Morgunblaðið - 18.07.1953, Blaðsíða 12
Yeðurúflif í dag:
SV og síðar S-gola. Skýjað.
159. tbl. — Laugardagur 18. júlí 1953
Lundúnabréf
er á bls. 7.
fiskaflinn 10 þúsund smál.
meiri en síðastliðið ár
Stærdur hluti allans fer nú í henlu
FÍSKAFLINN í maí 1953 varð alls 40.V20 smál. Til samanburðar
má geta þess að í maí 1952 varð fiskaflinn 33.263 smál.
Fiskaflinn frá 1. janúar til 31. maí 1953 varð alls 185,108 smál.
en á sama tíma 1952 var fiskaflinn 174.532 smál. og 1951 146.707
>smálestir. —
Hellisgerði 3ð ara
Hagnýting þessa afla var sem
hér segir (til samanburðar eru
settar í sviga tölur frá sama tíma
1952):
smál. smál.
ísaður fiskur (20.536)
Til frystingar 56.510 (77.384)
Til herzlu 68.951 (13.553)
Til söltunar 57.852 (61.353)
ijí fiskmjölvinnslu 197 ( 508)
Annað 1.425 ( 991)
Þungi fisksins er miðaður við
slægðan fisk með haus að und-
ánskildum þeim fiski, sem fór
til fiskmjölsvinnslu, en hann er
óslægður.
Skipting aflans milli veiði-
skipa til maíloka varð:
smál. smál
Bátafiskur 109.993 (101.778)
Togarafiskur 75.115 ( 72.754)
Samtals 185.108 (174.532)
Sæmilegur sítdarafli í fyrri-
ifótt og von um áframhald
SÆMILEGUR síldarafli var á Austursvæðinu í fyrrinótt og komu
nokkrir bátar inn, einkum til Raufarhafnar, með síld til söltunar.
Aðrir biðu út á miðum og ætluðu, ef síld veiddist áfram að fylla
sig og koma aflanum síðan í bræðslu. Bátarnir fóru að kasta um
9-leytið. Var austan blær á miðunum, aðeins andvari og því dá-
góðar vonir um afla. Síldarflugi varð ekki haldið uppi síðari hluta
d'ags vegna þess hve lágskýjað var.
Viðskiptanefnd
farin til Prag
ÞEIR Oddur Guðjónsson og
Magnús Z. Sigurðsson, sem dval-
izt hefur um hríð hér á landi,
j fóru utan í morgun áleiðis til Prag
| í Tékkóslóvakíu. Skipa þeir ásamt
Bjarna Ásgeirssyni, sendiherra,
viðskiptanefnd, sem hefur að hlut
verki að gera verzlunarsamninga
við Tékka. Samningaviðræður
munu hefjast í lok mánaðarins.
Hellisgerði í Hafnarfirði er 30 ára um þessar mundir. Er það
fagur gróðurreitur, ræktaður í beru hrauninu. Hann er Hafnfirð-
ingum til sóma, enda dáður staður íbúanna á frístundum. Mynd-
in sýnir trjágöng í garðinum. Um Hellisgerði er stutt grein á
bls. 2. (Ljósm. K. Ó. Bjarnason).
ikið saltað
í gærdag
SIGLUFIRÐI, 17. júlí: — Síld-
arleitarflugvélin fann síld á
stóru svæði á Miðsvæðinu í gær-
icvöldi. — Fór flotinn þangað og
jmunu flest hafa fengið þar ein-
iiverja veiði, eða frá 50—300
tunnur síldar. Torfurnar voru að
vísu ekki stórar, en dreifðar yfir
stórt svæði.
Hér hefur verið unnið látlaust
að söltun á mörgum söltunar-
stöðvum og fyrirsjáanlegt að all
mikið verður saltað í dag.
— guðjón.
RAUFARHOFN, 17. júlí —
Eftirtalin skip hafa landað
hér afla, sem hér segir: Mím-
ir 200 tunnur, Víðir GK 750,
Björn Jónsson 300, Vöggur
120, Muninn 350, Valþór 700,
Heimir 350, Gylfi 250, Björg
Norræn samvinna um
tryggmgarmál
Þrír samningar undirritaðir n.k. mánudag
frá Eskifirði 250, Ársæll Sig- I
urðsson 250, Hagbarður 130, FUNDUR félagsmálaráðherra Norðurlanda og fulltrúa þeirra hélt
Guðmundur Þórðarson 180 áfram í Alþingishúsinu í gær. Hófst hann kl. 9,30 árdegis. Var fyrst
tunnur. I tekin fyrir skýrsla sérfræðinganefndar um samræmingu hag-
Nokkur skip voru með gkýrslna um útgjöld til félagsmála á Norðurlöndum. Framsögu-
minni slatta. | magur var Finn Alexander forstjóri. — Næst var skýrsla frá
Meiri hluti aflans var salt- ritstjgrn bókarinnar um félagsmál á Norðurlöndum og var G.
Nelsson, hagfræðingur, framsögumaður.
Sjúkratryggingar voru næsta mál á dagskrá og var Per Ecker-
aður, en afgangur settur í
verksmiðjuna.
Sæmilegur afli hefur verið „ . . ., , .. ..
á stóru svæði og eru flestir , berS- rikisntan malshefjand!
bátarnir þar að veiðum. Að-
eins þeir bátar, sem gátu selt
til söltunar komu að landi í
Þá var rætt um samband nor-^"
rænna félags- og vinnumála-
, . . ráðuneyta við alþjóðastofnanir á
dag. Aðnr liggja og fylla sig svjgt félagsmála. Málshefjandi
af síld til bræðslu. — Einar.
Tvær stórgjafir ber-
ast Skálholtsfélaginu
TVffiR höfðinglegar gjafir hafa Skálholtsfélaginu borizt seinustu
daga. — S. 1. fimmtudag afhenti dr. Björn Þórðarson, fyrrum
forsætisráðherra, Skálholtsfélaginu að gjöf prentaðan ritling, sögu-
legs efnis. Heitir hann: „Móðir Jóru biskupsdóttur.“
TIL ÁGÓÐA
SKÁ LHOLTSSTAÐAR
Jóra er dóttir Klængs biskups,
en ritið er skemmtilegt og fræð-
andi, og hefir höf. afhent hann fé
laginu fullbúinn til sölu því alger
iega að kostnaðarlausu. Ritling-
nrinn er 4 arkir.
Upplag er ekki ýkjamikið, og má
ætia, að færri fái en vilja. Bæði
er málefnið gott og svo er að ritl-
ingnum góður fengur. Ágóða af
•honum verður varið tii endurreisn
ar Skálholtsstaðar. Hann verður
aeldur á Skálholtshátíðinni á morg
un.
ÁGÓOI LJÓÐABÓKAR
BRYNDÍSAR
Þá var Skálholtsfélaginu í gær
aflient önnur stórgjöf, 5 þús. kr.
Btyndís Jónsdóttir afhenti gjöf
Jiessa, sem er ágóði »a? sölu
ljóðabókarinnar „Vor að Skál-
holtsstað".
Þessi ljóðabók kom út fyrir 3
árum með höfundarnefninu Bára
Bjarg. Hún er til minningar um
Þórð Daðason og hefir að geyma
nokkur kvæði, sem öll snúast um
Skálholtsstað, persónur, sem þar
hafa lifað og sögur, sem þar hafa
gerzt.
Síldarstúlkur
fara uorður
AKRANESI, 17. júlí — Á þriðju-
daginn var sendi Ásmundur h.f.
á Akranesi 20 stúlkur og 5 karl-
menn norður til Siglufjarðar til
þess að vinna á vegum félagsins
að síldarsöltun þar. — Oddur.
var Thyge Haarlöv deildarstjóri.
Á mánudag mun fundinum
ljúka með undirritun Norður-
landasamninga, í fyrsta lagi um
gagnkvæma veitingu mæðra-
hjálpar, í öðru lagi um gagn-
kvæmi varðandi greiðslur vegna
skertrar starfshæfni og í þriðja
lagi um flutning milli sjúkra-
samlaga og um sjúkrahjálp
vegna dvalar um stundarsakir.
í gær sátu fundarmenn boð
bæjarstjórnar Reykjavíkur um
hádegið. í dag eru þeir boðnir
til Reykalundar og Þingvalla og
á morgun mun verða farið til
Gullfoss og Geysis.
Kl. 10 á mánudagsmorgun
hefst svo síðasti fundurinn.
Heyskapur gengur
vel í austur-
sveitum
HEYSKAPUR mun almennt
ganga mjög vel í austursveitum
nú. Fréttaritari Mbl. í Þykkva-'
bænum sagði að þar væri dag
hvern brakandi þerrir og breiskju
hiti. Eru bændur nú langt komn-
ir með að ljúka hirðingu á tún-
um sínum og víðast eru þeir
byrjaðir að slá útengi, sem eins
og túnin er vel sprottið.
Heyið sem komið er í hlöð-
urnar, er ilmandi og fallegt.
2:1
REYKJAVÍKURLIÐIÐ sigr
aði lið Boldklub 1903 með
tveimur mörkum gegn einu
á íþróttavellinum í gær, í
ágætu veðri.
Fríðrik gerð! jafn-
lefli við hrkoy
KAUPMANNAHÖFN, 17. júlí. —
í þriðjn umferð úrslita heims-
meistaramóts unglinga í skák
tefldi Friðrík Ólafsson við Júgó-
slafann Ivkov og skildu þeir
jafnir.
Einnig varð jafntefli hjá Þjóð-
verjanum Darga og Argentínu-
manninum Panno, en þeir hafa
hvorugur tapað skák til þessa,
og Bretanum Penrose og Banda-
ríkjamanninum Sherwin. Dan-
inn Larsen vann Keller frá
Austurríki.
Staðan er nú þannig, að Darga
og Panno hafa 214 vinning hvor
og Larsen er þriðji með 2 vinn-
inga. Tvkov, Penrose og Sher-
win eru með 114 hver, Friðrik
14 og Keller engan. — Páll.
Síld í reknef
AKRANESI, 17. júlí. — Þrír rek-
netjabátár komu hingað í dag
með síld, þeir Sæfari frá Vest-
mannaeyjum með 36 tunnur,
Reynir með 32 tunnur og Ás-
björn með 23 tunnur. Afli trillu-
báta hérna var í gær samtals
19 tonn. — Oddur.
Góðar uppskeru-
horfur í
Þykkvabæ
FRÉTTARITARI MBL. í Þykkva
bæ, símaði i gær, að vppskeru-
horfur þar, en bændur eiga kart-
öfluakra, sem ná yfir um 75 ha
lands, séu nú betri en verið hef-
ur á sama tíma á undanförnum
árum.
Bændur hafa verið mjög
heppnir þar eð sníkjudýra hefur
ekki orðið vart í kartöflugrös-
unum og sprettan er nú talin
vera um 2 vikum á undan miðað
við fyrri ár Sagði fréttaritarinn
að ef vel viðrar og sumarfrost
verða ekki, þá er sýnt að kart-
öfluuppskeran muni verða sér-
lega góð í ár.
8 km jorðsími lagður
í Helgafellssveit
STYKKISHÖLMUR, 17. júlí. — Nú er verið að ljúka iagningu
jarðsíma niður Þórsnesið. En einmitt á þeirri línu hafa fleiri
og færri símastaurar brotnað á hverjum vetri af ísingu og stormi.
Með jarðsímalínunni skapast möguleikar til að setja flesta bæi
í Helgafellssveit inn í bæjarsímakerfi Stykkishólms.
8 km. LÖNG LINA
Jarðsímalína þessi, sem er með
14 línum, nær frá samkomustaðn
um á Skiidi og niður í Stykkis-
hólm eða um 8 km. leið. Er hún
grafin 60—80 cm. niður ~>g varð
sums staðar að spreng.ja hana í
klöpp.
VEKKIÐ GEKK VEL
Verkið hófst um síðustu mánaða
mót og hefur gengið betur en bú-
ast mátti við. Milli 20 og 30 manns
úr kauptúninu hafa starfað við
það. Verkstjóri við þetta verk var
Sigurður Árnason úr Reykjavík.
Með lagningu þessa jarðsíma
skapast möguleikar á að leggja
síma inn á næstum hvern bæ í
Helgafellssveit, og koma þeim í
beint samband við Stykkishólm,
þótt ekki verði ráðist í þær fram
kvæmdir í sumar. Þrjár þriðja
fiokks símstöðvar eru nú í Helga-
fellssveitinni, Gríshóll, Sveigsá og
Hraunsfjörður. Minnsta kosti
tvær þær síðastnefndu mhhú
haldast við enn um sinn.