Morgunblaðið - 28.07.1953, Síða 12

Morgunblaðið - 28.07.1953, Síða 12
Síldarafli um 109 þús. málum og funnum meiri en í fyrra Saliað hafði verið í rúml. 99 bös. tunnur s.l. laugardagskvöld. Á MIÐNÆTTI s. 1. laugardags var afli síldveiðiskipanna við Norð- •urland alls orðinn 148.898 mál og tunnur, en á sama tíma í fyrra var hann aðeins 49.736, eða um 100 þús. málum og tunnum fninni en nú. Mest af síldinni hefir verið saltað, eða 99.056 tunnur (25.607 ) fyrra). 45.176 mál hafa farið til bræðslu (19.403 í fyrra) og 4.666 tunnur frystar (4.726 s.l. ár). — Frá þessu er sagt í skýrslu frá Fiskifélagi Islands. — Fiskifélaginu var kunnugt um, að 146 skip væru farin til síld- veiða við Norðurland s. 1. laug- ardag, en sennilega bætast enn nokkur við þá tölu. Af þessum Í46 skipum voru 138 komin með afla og þar af 103 með 500 mál og tunnur eða meira, en á sama tíma í fyrra aðeins 39. Á miðnætti s. 1. laugardags hafði togarinn Jörundur frá Akureyri fengið mestan afla, eða 3600 mál og tunnur. Snæfell frá Akureyri var með 3574, Edda, Hafnarfirði, 3312, Helga, Rvík, 3223, Akraborg, Akureyri, 2665, Súlan, Akureyri, 2611, Björn Jónsson, Rvík, 2411 og Haukur I., Ólafsfirði 2395. (Aflaskýrslan er birt í heild á bls. 2). Sigifirzkir æskumenn Hikill leki kom að "Halíveigu Fróðadótlur” hér í höfninni Ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd af nokkrum ungum Siglfirðingum, er þeir lögðu leið sína upp í Hvanneyrarskál í blíðviðrinu hér á dögunuin. Kaupstaðurinn er í baksýn. Þessara æskumanna og annarra er framtíðin. Orukku vökvann af áttavitanum Venlill bilaði í vélarúmi skipsins. Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ urðu skipverjar, sem voru á verði um Lorð í togaranum Hallveigu Fróðadóttur, sem liggur hér í höfninni, þess varir, að skipið var farið að síga nokkuð í sjó og halla. Þegar að var gáð, kom í ljós, að sjór streymdi inn í véiarúm þess. <S>------------:------— SJÓ DÆLT ÚR SKIPINU Slökkviliðið var þegar fengið til þess að dæla sjó úr skipinu svo og dráttarbáturinn Magni. — Var því verki sleitulaust haldið átram þar til því var lokið, en það var um kl. 3 á mánudags- morguninn. VENTILL BILAÐI Við rannsókn kom í Ijós, að vpntill hjá hraðamæli skipsins (logginu) hafði bilað og sjór náð að streyma þar inn. Rétt er að taka það fram, að útbúnaður í sambandi við ventil þennan er miklu örugg- ari, þegar skipið er á hafi úti og einnig þá eru menn þá stöð- ugt á vakt í vélarúminu, þann- ig að undir eins yrði séð, ef eitthvað yrði að. — Nú hafði enginn farið niður í vélar- rúmið frá hádegi á laugardag, er vinnu hætti, og þar til lek- ans varð vart. Fundur Sjálf- sfæðisþingmanna ÞINGFLOKKUR Sjálfstæð- manna sat í gær í 3 klst. á fundi í fundarherbergi flokksins í Alþingishúsinu. Voru þar rædd viðhorfin í íslenzkum stjórnmálum eins og þau eru nú að kosning- um loknum. Fundurinn heldur áfram kl. 2 síðdegis í dag. seint i gær SEINT í gærkveldi símaði Einar Jónsson fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn, að frétzt hefði til 40 skipa á austur- svæðinu, ,sem fengið hefðu 100 til 500 tunnur síldar og væru nú á leiðinni til hafna. Yar þá Jogn á !miðunum en þoka ög ftná telja víst að enn fleiri skip fái góðan afla í nótt, því að þarna imun mest allur síldarflotinn vera. Allt útlit er því fyrir að þetta verði ein bezta síld- veiðinóttin. Fegurðardroltningin mun hljófa mikil og góðverðlaun Skúraveður í Kjós V ALD ASTÖÐUM 24. júlí. — Þessir 5 dagar af þessari viku hafa verið einmunagóðir, enda liefur verið þurrkað mikið af heyi, og eiga þó sumir bændur úti allmikið. Aðallega hefur ver- ið lögð áherzla á að slá og þurrka,1 en því ekki unnizt tími til þe;s! að koma heyinu inn jafnóðum. j í dag gerði hér dálitla úrkomu og var hennar að vissu leyti þörf, feaeði vegna seinni sláttar á tún- urn, enda var jörðin orðin mjög þurr, og ryk á vegum. Þegar af tekur eftir skúrina í clag, mun unnið að því að koma inn því heyi, sem hefur verið þurrkað undanfarna daga. Grasspretta á útengi virðist sérstaklega góð, ekki síður en á túnum. Einstöku bændur hafa byrjað að slá á engjum. Og þeir, sem fyrstir byrjuðu að slá, geta fárið að slá aftur fyrstu stykkin, sem hirt var af. Svo hefur sprott- jð fljótt aftur. — St. G. Samkeppnin verður í Tívolí 16. ágúsl. FEGURÐARSAMKEPPNI verður haldin á Reykjavíkurdaginn 16. agúst í skemmtig-arðinum Tívolí. Verður þar valin ungfrú Eeykja- vík, fegursta stúlkan í borginni. VERÐLAUN AKVEÐIN Það er Fegrunarfélagið, sem efnir til þessarar fegurðarsam- keppni. Hefur nú verið ákveðið hver verðlaun fegurstu stúlk- unni hlotnast. Eru verðlaunin gefin af Eimskipafélaginu, Loft- leiðum, Feldinum og Belgjagerð- FAR OG DVÖL A NORÐURLÖNDUM Eimskipafélagið gefur far með Gullfossi til Kaupmannahafnar og Loftleiðir flugfar með Heklu heim frá Kaupmannahöfn. Getur fegursta stúlkan valið, hvenær hún kýs að fara þá ferð. Þá mun Fegrunarfélagið kosta dvöl henn ar í hálfan mánuð í hverju því Norðurlandanna, sem fegurðar- drottningin kýs. FATNAÐUR OG FERÐAÚTBÚNAÐ UR Feldurinn h.f. mun gefa draj eða kápu eftir vali, auk þe: hanzka, skó og tösku. Belgjager in h.f. mun gefa útbúnað t ferðalaga hér innanlands, tjald, svefnpoka og bakpoka. ÞÆR SEM KOMAST í ÚRSLIT Auk þessarar verðlauna, mun hver þeirra 10 stúlkna, sem njóta þess heiðurs að komast í úrslit fegurðarsamkeppninnar fá 500 krónur í verðlaun. Mikils er um vert að þátttakan í samkeppninni sé sem mest. Er tekið á móti tillögum og ábend- ingum um fallegar stúlkur í síma 6610 eftir kl. 5 á daginn eða í pósthólf 13. AKUREYRI, 27. júlí; — Síðastlið'.ð laugardagskvöld voru skipverj- ar á m.b. Otto, sem liggur hér í höfn, gruiiaðir um að hafa brotið upp áttavita skipsins og drukkið a; honum vökvann. Samkvæmt úr- skurði lögregluýfirvalda voru sex skipverjanna handteknir og vökv anum dælt upp úr þeim. Neituðu þeir al'lir, en báru verknaðinn hver á annan. — BEÐIÐ UM AÐSTOÐ Klukkan að ganga 10 s.l. laug- ardagskvöld var hringt til lög- reglunnar og hún beðin að fjar- lægja tvo ölóða skipverja, sem voru um borð í mb. Ottó, er ligg- ur við Oddeyrartanga og er að búast á síldveiðar. Var það einn af skipshöfninni, sem um hjálp- ina bað. DRUKKIÐ AF ÁTTAVITANUM Er lögreglan kom um borð í skipið, logaði þar allt í ófriði með skipverjunum, en þeir voru sex talsins um borð. Sýndi einn, er ranglega sagðist vera stýrimað- ur, og var alldrukkinn, sem og aðrir skipverjar, lögreglumönn- unum áttavitann og kvað hann hafa verið brotinn upp og af hon- um drukkinn vökvinn. Reynd- ist töluvert borð á áttavitanum. ÁKVEÐIÐ AÐ DÆLA ÚR ÞEIM Enginn skipverjanna vildi kannast við að hafa drukkið af áttavitanum. Var því farið með þá alla upp á varðstofu lögregl- unnar. Þar sem ekki var mark takandi á framburði neins þeirra vegna ölvunar, en miklar líkur til þess, að þeir hefðu drukkið spíritusinn af áttavitanum, sem talið er að hafi verið baneitr- aður tréspíritus. Var leitað álits bæjarfógeta. í samráði við hér- aðslækni, gaf hann þann úrskurð að dæla skyldi upp úr öllum mönnunum. ERFITT VIÐ MENNINA AÐ FÁST Var nú leitað til yfirlæknis sjúkrahússins, sem framkvæmdi verkið. Róma lögreglumenn mjög handbragð hans, því ekki var auð velt við mennina að fást, þar sem taka þurfti þá með valdi og halda sumum þeirra meðan á aðgerð- inni stóð. Að lokinni aðgerðinn var far- ið með þá skipverjanna, sem ekki voru það ölóðir, að óhætt taldist að sleppa þeim lausum, utn borð í skipið aftur, en hinir sett- ir í fangahúsið. Áttavitinn var tekinn í vörzu lögreglunnar. Ekki er vítað til að sjómönn- unum hafi orðið meint af hinum görótta drykk. — Vignir. Góð síldveiði á sunnudag RAUFARHÖFN, 27. júlí. — All- góð síldveiði var í gær á Aust- ursvæðinu. Fengu 33 skip síld, sem vitað var af í gær, en í dag ékk eitt skip, Vonin, 150 tunnur. Eftirtalin skip fengu síld í gær sem Kér segir: Hrafnkell 175 tunnur, Hagbarður 150, Gylfi 150, Garðar 350, Akraborg 150, Sig- urður Pétur 300, Von frá Greni- vík 100, Valgeir 100, Helga 150, Snæfell 150, Reynir 100, Víðir G. K. 250, Stjarnan 70, Týr 100, Fanney 60, Heiðrún 80, Græðir 80, Sjöstjaman 200. Til Þórshafnar komu Kári Söl- mundarsofi og Auður með 150 tunnur, Smári 100 tunnur. — Einar. Vopnafjörður 27. júlí. — Nokkur skip fengu góða veiði í gær. Þessi skip lönduðu afla sínum hér: —. Björg frá Neskaupstað 255 tunn- ur, Hvanney 160 tunnur, allt mið- að við upsaltaðar tunnur. Auk þess landaði Hvanney 130 tunn- um í íshús. í dag mun ekki vera veiði- veður á miðunum og liggja því nokkur skip hér inni. Mótorskipið Oddur kom hér í morgun með 1800 tómtunnur og 300 saltfullar, því að tunnur voru á þrotum á staðnum. — Kolbeinn. Ilollendingar selja Rússuni síld HAAG, 20. júlí: — Tilkynnt var í dag, að Rússar hefðu ákveðið að kaupa 150.000 tunnur af saltsíld af Hollendmgum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.