Morgunblaðið - 22.10.1953, Qupperneq 16
Yeðurúflil í dag:
SV kaldi, skúrir.
Mennfaskélinn
Sjá biuðsíðu 9.
240. tbl. — Fimmtudagur 22. októbcr 1953
Ibúðarhúsið að StérU'Borg
í Grímsnesi brann í gær
Enginn var heima er eldurinn kom upp
SEI.FOSSI 21. okt. — í dag brann íbúðarhúsið að Stóru-Borg í
Grímsnesi. Enginn var heima á bænum, en heimafólk á Minni-
Borg, sem er skammt frá Stóru-Borg, varð eldsins vart og gerði
elökkviliðinu á Selfossi aðvart. Tókst slökkviliðinu að verja önnur
hús á Stóru-Borg, en íbúðarhúsið brann til grunna.
Utför biskups
ENGINN HEIMA
Á Stóru-Borg býr Hjörleifur
Diðriksson með konu sinni og 5
börnum. Hjörleifur var ekki
heima í dag og kona hans hafði
brugðið sér í verzlunarerindum
að Minni-Borg og hafði börn sín
með sér. Slökkviliðið á Selfossi
brá skjótt við er það fékk boðin
frá heimafólkinu á Minni-Börg,
um kl. 5. Beindist sarf slökkvi-
liðsins, er austur kom, að þvl að
verja aðrar byggingar á Stóru-
Borg og tókst það.
VAR í SKYLDUTRYGGINGU
íbúðarhúsið á Stóru-Borg var
frekar lítið timburhús. — Húsið
mun hafa verið vátryggt hjá
Brunabótafélaginu, eins og
skylda er með hús í sveitum, en
fréttaritara blaðsíns var ekki
kunnugt um það í gærkvöldi
hvort innbú Hjörleifs og konu
hans var tryggt. — Sig.
Prestar ræddu biskupskjör
á fundi í gærkveldi
O
EKKI mun í áðra tíð hafa verið fleiri þjónandi prestar staddir hér
í bænum samtímis og nú. — Með tilliti til þessa komu prestarnir
saman til fundar hér í bænum í gærkvöldi, til að ræða um væntan-
legt biskupskjör.
Áður en líkfylgdin lagði á stað frá Gimli áleiðis til Dómkirkjunnar. Guðfræöistúdentar og prestaí
standa í fylkingu í Lækjargötu. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Sem kunnugt er hafa staðið
yfir hér í bænum aðalfundur
Prestafélags íslands og hinn al-
rnenni kirkjufundur og loks kom
íjöldi presta utan af landi til að
vera við útför biskupsins herra
Sigurgeirs Sigurðssonar.
KLERKAR OG KENNARAR
HAFA KOSNINGARRÉTT
Þegar kosinn er nýr biskup,
hafa til þess kosningarétt allir
ftarfandi klerkar svo og kennar-
■ar í guðfræðideild Háskólans.
Þessir aðilar tilnefna þrjá
yresta sem biskupsefni, ganga
^íðan til kosninga um þá. Fái
enginn einn meirihluta atkvæða,
Ifemur til kasta kirkjumálaráðu-
Veytisins að tilnefna sem biskup
eiun hinna þriggja. Kirkjumála-
ráðuneytið hefur með höndum
ii með á 3.
hundrað lonn
HAFNARFIRÐI — í morgun
jkom Siglufjarðartogarinn Elliði
af karfaveiðum með á þriðja
hundrað tonn. — Bjarni riddari
kom af veiðum s. 1. mánudag, og
var hann með 150 tonn af karfa.
Hann fór aftur á veiðar í fyrra-
dag. — Allflestir reknetjabátarn-
ir eru nú hættir veiðum. —G.
allar framkvæmdir kjörinu við-
komandi það ákveður kjördag
og hvenær atkvæðatalning fer
fram.
Þegar biskupskjör fór fram hér
á landi síðast árið 1938, hafði
kjörið farið fram 3 mánuðum eft-
i.r að þáverandi biskup, dr. Jón
Helgason, lét af embætti.
Sprengingin
la
ENN er ekki vitað með neinni
vissu hvað olli sprengingu þeirri,
sem skýrt var frá hér í blaðinu
í gær. Ýmsir hallast þó að því,
að hér hafi verið um að ræða
endurvarp hljóðsins í loftlögun-
um frá sprengingu, sem varð á
svonefndum Patterson-flugvelli,
sem er í námunda við Keflavík-
urflugvöll.
Er veðurstofan að kanna þetta
nánar. En suður á Keflavíkur-
flugvelli var um kl. 6 í fyrra-
kvöld sprengt með dýnamiti.
Listi Y5ku, féi. iýiræð-
issmnuðra stúdenta,
kfðif frani
Fráfarandi ráð hefur unnið af kappi að
hagsmunamálum stúdenta
VAKA, fclag lýðræðissinnaðra stúdenta, hcfur nú lagt fram lista
sinn til stúdentaráðskosningar, er fram fer laugardaginn 31. okt.
n.k. Listinn er skipaður þessum stúdentum:
Unnið að dýpkun innsigl-
r
ingarinnar til Isafjarðar
Mokað verður upp 45 þús. rúmmelrum sands
ÍSAFIRÐI, 21. okt. — í gærmorgun hóf dýpkunarskipið Grettir
framkvæmdir við dýpkun innsiglingarinnar inn á ísafjarðarhöfn.
Fyrirhugað er að ganga svo frá innsiglingunni, að öll skip, sem
hér eru í ferðum geti komi2t inn og út um hana án tillits til flóðs
og fjöru.
BYRJA ÁTTI FYRR
Nokkuð hefur dregizt að byrj-
að væri á þessu verki og stafar
sá dráttur af því, að dýpkunar-
skipið var lengur á Flateyri en
upphaflega var áætlað.
FÆR ÖLLUM SKIPUM
Guðmundur Þorsteinsson verk-
fræðingur Vitamálaskrifstofunn-
Akranesbátar á smokk-
fiskveiðum á Arnarfirði
AKRANESI, 21. okt. — Fyrir um
það bil hálfum mánuði hófu
Akurnesingar að senda báta sína
vestur á fjörðu á smokkfiskveið-
ar. Tíu bátar hafa farið þennan
leiðangur — Sigrún, Böðvar,
Seynir, Keilir, Aðalbjörn, Far-
sæll, Sigurfari, Hrefna, Heima-
skagi og Ólafur Magnússon. —
Bátarnir hafa stundað veiðarnar
aðallega á Arnarfirði, innan við
Bíldudal. Veiðin hefur verið treg.
Fyrsti báturinn, sem vestur fór,
Sigrún, er komin aftur til Akra-
ness. Hafði hún aflað i förinni
,22 tunnur. Er smokkfiskurinn
notaður til beitu á línuna á ver-
tíðinni. Bregst það varla að séu
þrír önglar beittir með síld og
einn með smokkfiski tekur þorsk-
urinn fyrst smokkfiskinn. Það
eru því hyggindi sem í hag koma
að senda bátana vestur á Arnar-
fjörð til þess að veiða slíkt lost-
æti handa þeim gula.
Smokkfiskurinn sem Sigrún
kom með var yfirleitt stór — eru
þeir stærstu um 1 kg að þyngd.
—Oddur.
ar hefur gert teikningar og áætl-
anir um framkvæmd verksins. —
Skýrði hann Morgunblaðinu svo
frá, að ætlunin væri að grafa
42—44 metra breiða rennu um
sundin og það djúpa að dýpi
yrði 19—20 fet um stórstraums-
fjöru, en með því á að vera tryggt
að öll skip, sem hér eru í ferð-
um geti komizt inn og út án
tillits til sjávarfalla.
Til þessa hefur það torveldað
mjög siglingar til og frá ísafirði
að öll djúprist skip, eins og t. d.
togararnir sem að jafnaði rista
um 17 fet nema 10—12 stundir I
sólarhring hverjum eða þegar
hálffallið hefur verið að. Verður
þessi dýpkun því geysileg sam-
göngubót fyrir bæinn.
UPPMOKSTURINN
NOTAÐUR
Áætlað er að uppmoksturinn
úr sundunum verði um 45 þús.
rúmmetrar og verður hann not-
aður til að fylla upp innan við
nýja hafnarbakkann í Neðsta-
kaupstað og eins sem stoð fyrir
framan sjálft stálþilið. Hefur það
sigið nokkuð fram, en með því
að setja uppmokstur framan við
það má koma í veg fyrir frekari
skemmdir á mannvirkinu. — J.
Akranes
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN Á
Akranesi efna til spilakvölds í
kvöld að Hótel Akranesi. kl. 8,30.
— Hljómsveit hússins mun
skemmta með leik sínum til kl.
1. — Sjálfstæðisfólk er hvatt til
að fjölmenna.
B.v. Óla Garða
náð á floi
HAFNARFIRÐI — Rétt fyrir
klukkan sex í gærkvöldi náð-
ist togarinn Óli Garða á flot.
Var það varðskipið Þór, sem
dró togarann af skerinu, sem
hann strandaði á s. 1. sunnu-
dag.
Fór Þór með skipið til
Reykjavíkur, þar sem skemmd
ir þess verða athugaðar. —G.
Landsmálafél, Fram,
Hafnarf., heldur fund
um atvlnnumál
LANDSMÁLAFÉL. Fram í
Hafnarfirði heldur fund kl.
8,30 í kvöld í Sjálfstæðishús-
inu.
Á fundinum verður flutt
erindi um atvinnumál, og síð-
an verða frjálsar umræður.
Þetta er fyrsti fundurinn,
sem Fram heldur á þessu
starfsári. Hefir verið valið til
umræðu það mál, sem mestu
varðar allan almenning. Má
því gera ráð fyrir, að fólk f jöl-
mcnni á fundinn, og er allt
Sjálfstæðisfólk og gestir vel-
komið á fundinn.
1. Eyjólfur K. Jónsson st. jur.
2. Jón H. Aðalsteinsson st. med,
3. Valdimar Kristinss. st. oecom
4. Ólafur H. Ólafsson st. med.
5. Haraldur Bessason st. mag.
6. Sverrir Hermannss. st. oecon
7. Röngvaldur Jónsson st. theol,
8. Þórir Einarsson stud. oecon,
9. Ólafur G. Einarsson st. med,
10. Þorvarður Alfonsson st. oecon
11. Pétur G. Kristjánss. st. jur.
12. Gissur Pétursson st. med.
13. Borghildur Thors st. philol.
14. Matthías Johanness. st. mag.
15. Emil Als st. med.
16. Bogi Ingimarsson st. jur.
17. Frosti Sigurjónsson st. med.
18. Bragi Sigurðsson st. jur.
MEIRIHLUTI VÖKU
Stúdentaráð er skipað nín
mönnum og hefur „Vaka“ hafí
meiri hluta í ráðinu tvö undan-
farin ár, enda hefur félagið bar-
izt ötuliega fyrir hagsmunamál-
um stúdenta.
MIKIÐ OG FJOLBREYTT
STARF \
Á starfsári fráfarandi ráðs hef-
ur lánasjóðsmáli stúdenta veri®
siglt í örugga höfn, vinnumiðlun
verið starfrækt af miklu kappi,,
komið á bókmenntakynningum,
sem miklum vinsældum á a@
fagna, stutt ötullega aS fram-
gangí félagsheimilismálsins og
farið fram allsherjaratkvæða-
greiðsla siúdcnta um íþrótta-
skylduna, svo að nokkuð sé
nefnt.
UNNIÐ AÐ SIGRI VÖKU
Félagslíf í „Vöku“ er nú með
miklum blóma og eru „Vöku“-
menn staðráðnir í að tryggja fé-
lagi sinu enn á ný meiri hluta í
Stúdentaráði við kosninguna
annan laugardag.