Morgunblaðið - 03.11.1953, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.1953, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. nóvember 1953 Smásoga dagsins: SÁRABÆTUR Eftir HOLGER BOETIUS ÞAÐ var hálfrökkur í stofunni. Daufur bjarminn frá arninum féll á manninn og konuna. Hann var í svörtum kjólfötum og hún var í bláum flegnum kvöldkjól. Hún hélt á lít.illi leikhústösku í annarri hendinni og um varir hennar lék kuldalegt bros, „Ég hef komizt að hinu sanna um þig, Rudy. Þú hefur ekki ein- göngu eyðilagt allt mitt líf, held- ur hefur þú dregið margar aðrar konur á tálar. Nú veit ég allt um þig“. Hann reyndi að láta ekki bil- bug á sér finna. Reyndi eins og hann gat að komast ekki úr jafn- vægi, kveikti sér í sígarettu með letilegum tilburðum eins og hann var vanur. „Afbrýðissemin gerir þig öfga- fulla“, sagði hann. „Ég hef alls ekki ....“. „Þér er tilgangslaust að reyna að blekkja mig“, sagði hún. „Ég sé að þú ert skjálfhentur. Þú ert nefnilega hræddur“. Hann fleygði sígarettunni frá sér, eins og hann hefði brennt sig á henni. „Við hvað ætti ég að vera hræddur?" „Þú ert hræddur við augnaráð 'mitt. Og rödd mína, sem er svo róleg, og hatrið sem brennur úr augum mínum“. „Hættu þessum leikaralátum", sagði hann. „Við skulum tala um þetta í rólegheitum og reyna að komast að einhverri niðurstöðu". „Þetta hefur þú sagt áður, en ég tek ekki mark á þér lengur. Þú hefur rænt mig öllu fémætu og nú ætlar þú að sigla þinn sjó með allt saman. Ég veit það. Ég skal segja þér það Rudy, að ég hef misst alla lífslöngun. Ég girnist einskis framar en .... ég ætla að jafna sakirnar við þig. Bæði vegna sjálfrar mín og vegna allra hinna“. „Hættu þessari vitleysu. Hvað ætli þú getir svo sem gert mér?“ „Ég get gert ýmislegt með þessu hérna“. Það glampaði á skammbyssu í hendi ungu konunnar. Kippir fóru um andlit mannsins. „Ertu orðin vitskert? Láttu mig fá hana ....“. „Þér er bezt að standa kyrr og hlusta á það sem ég ætla að segja þér .... stattu grafkyrr og lofaðu mér að njóta þess að horfa á, hvað þú ert skelkaður .... og hvað þú ert huglaus .... kvikindið þitt“. Það var hryllilegt fyrir Marion að upplifa það að heyra dóttur sína segja þetta. En hún skarst ekki í leikinn. Hún hafði ekki augun af Lydiu. Hún er lík. mér, hugsaði hún. Svona var ég þá .... augun djúpblá, sami háralit- urinn, sama vaxtarlagið, sem verkar heillandi á alla karlmenn. En Lydia er sterkari, hugsaði hún. Frjálsmannlegri, stoltari og hugrakkari. Marion fann æðasláttinn í gagn augum sínum og hiti hljóp fram í vanga hennar. Þetta var örlaga- ríkt augnablik. Hún hafði varað dóttur sína við, en úr því sem komið var, óskaði hún þess ein- í göngu að dóttir hennar lyki því af, sem hún haíði ákveðið að gera. Marion lét hugann reika aftur í tímann og hendur hennar kreppt- ust við tilhugsunina um mann- inn, sem hafði blekkt hana og svikið .... fyrir mörgum árum. En hún hafði ekki átt hugrekki j til að gera upp við hann. Hún ' hafði borið hatur í huga........ Oft hafði hún verið gripin næst- um ómótstæðilegri löngun til að koma honum fyrir kattarnef .... j ná sér niðri á honum .... mann- ' •'num sem hafði dregið hana á tálar. þnöggvast leit hún á manninn, sem dóttir hennar átti í höggi við. Hinn hafði verið alveg eins glæsilegur útlits. Klæðaburður- inn hafði auðvitað verið dálítið öðruvisi og málfarið sömuleiðis. En manntegundin var sú sama. Brosið var strákslegt og aðlað- andi. Það talaði til einhverra duldra kvenlegra hvata en und- ir því bjó svikult hugarfar. Hún hafði hlustað á sömu afsákanirn- ar .... sömu undanbrögðin. Nú hélt Lydia áfram. Marion var gripin lotningu gagnvart dóttur sinni sém talaði titrandi röddu en var þó svo ákveðin. i „Dómur þinn er fallinn, Rudy“, sagði hún. „Hugsanir mínar eru kviðdómendurnir og hjarta mitt dómarinn. Nú er þér ekki bjarg- arvon. Ég tala ekki aðeins fyrir mig heldur fyrir munn allra þeirra kvenna sem hafa lent í klónum á mönnum af þínu tagi. Þær standa að baki mér og lyfta hönd minni með mér“. Já, hugsaði Marion, hún hefur á réttu að standa. Og ég er ein meðal þeirra. Móðir þín er meðal þeirra, Lydia. Henni varð aftur litið á mann- inn. Andlit hans var afmyndað af hræðslu. Nú fæ ég hefnd, hugsaði hún. Ég hafði ekki kjark þá. Ég sætti mig við örlög mín í auðmýkt. Og hann fékk að halda áfram sama hátterninu. Skyldi hann vera á lífi ennþá? Ég var alein og yfir- gefin þegar Lydia fæddist. Ég var á barmi örvinglunar. Ég minnist næturinnar, þegar ég vafði hana í teppi og fór með hana niður að árni. Ég hafði ákveðið að binda endi á örbirgð okkar. Mér fannst ég hafa hug- rekki til þess. En þegar ég stóð frammi á bryggjunni og horfði niður í svart vatnið, feykti vind- urinn ábreiðunni frá andliti barnsins. Það svaf vært og hafði ekki hugmynd um hvað yfirvof- andi var. Þá missti ég kjarkinn. Ég fór að hugsa um það að verið gæti að hennar líf yrði farsælla en mitt. Ef til vill átti hún mikla hamingju í vændum og ef til vill átti hún eftir að veita mörgum hamingju og gleði. Ég hafði eng- ann rétt til að taka í taumann. Og þessvegna fór ég með hana aftur heim. Einhvern veginn tókst mér að komast af fyrstu erfiðustu árin. Ég fékk vinnu og Lydia dafnaði. Hún var einstak- lega fallegt barn og áður en varði var hún orðin góð, falleg og greind stúlka. „... . Þú getur eins hætt þess- um bænum. Nú er úti um þig“. „Þér getur ekki verið alvara. Ég .... ég ... Hánn bandaði höndunum í all- ar áttir og svitinn spratt fram af enni hans. Svo féll hann á kné og skreið í áttina til hennar „Vertu kyrr þarna sem þú ert“. Brálæðiskennd hræðsla skein úr augum hans. Marion hafði aldrei á ævi sinni verið vitni að annarri eins skelfingu. En dóttir hennar lét ekki bugast. Hún stóð þarna hnarreist og glæsileg í bláa kvöldkjólnum. Hún stóð á miðju stofugólfinu og bjarminn frá arninum lék um andlit hennar, ' axlir og hár. „Þetta verður sjálfri þér fyrir ! verstu", stundi hann. „Þú færð j þína hegningu ....“. „Það skiptir ekki máli fyrir mig, Rudy“, sagði hún næstum blíðum rómi. „Mér stendur á sama um allt, nema það eitt, að ég get ekki látið það viðgangast að þú lifir lengur til að valda öðrum tjóni“. Marion starði án afláts á dótt- ur sína. Hún var eins og dáleidd .... hún gat hvorki hrært legg né lið. Þá kvað skotið við .... og annað .... og enn annað. Og nú sá Marion að dóttir hennar brosti. Þegar Marion stóð skömmu síð- ar augliti til auglitis við dóttur sína, fannst henni hún smátt og smátt vera að komast niður á jörðina. AðHáunin ljómaði úr aug um hennar og henni fannst raun- verulega Lydia hafa veitt henni sárabætur fyrir það sem hún hafði orðið að þola. „Ég skil ekki hvernig þú fórst að þessu Lydia,“ sagði hún. „Þetta var .... þetta var alveg dásamlegt .... stórkostlegt....“. Lydia lét fallast riiður á stól. Það var eins og allur lífsþróttur hennar væri þrotinn. „Já, það segir þú, mamma. En hvað segir fólkið". Móðirin lagði handlegginn um axlir dóttur sinnar. „Ég held að þér hafi farist þetta vel úr hendi. Ég er viss um það. Fólk verður líka að taka tillit til þess hvað þú ert ung og óreynd“. „Ég var ekki hrædd mamma, meðan á því stóð“, sagði Lydia hljóðlausri röddu. ,,En nú er ég hrædd. Og ég held áfram að vera hrædd, þangað til ég hef fengið minn dóm. Þá fyrst held ég að róin færist yíir mig, hvernig svo sem hann verður ....“. En Marion var ekki hrædd eða kvíðin. Hún var aðeins hreykin. Hún var viss um að allir mundu sameinast í takmarkalausri að- dáun á dóttur hennar. Enginn gat fundið nokkra galla á þessu fyrsta afreki hennar á leiksviðinu í leikhúsinu, þar sem móðir henn- ar hafði starfað sem hvíslari. Vegleg minningar- ÓLAFUR S. Lúðvíksson, bók- bindari, Seljaveg 15 hér í bæ, kom í skrifstofu S.Í.B.S. í gær og færði byggingarsjóði sam- bandsins 10 þúsund krónur að gjöf til minningar um eiginkonu sína, frú Gróu Einarsdóttur, er lézt að Vífilsstöðum 23. nóvem- ber 1952. S.Í.B.S. biður blaðið að flytja gefandanum alúðarfyllstu þakk- í Egyp UM Borgarfjörð liggja leiðir' margra og er því þörf veitinga- ' og gistihúsa. Enda eru hér marg- j ir slíkir staðir, þ. e. 1—2 mánuði | um mitt sumarið. meðan helzt er ágóðavon að selja veitingar til ferðamanna og sumarleyfis- fólks. Nú síðasta áratug hafa ríkið og Sambandið varið a. m. k. fimm milljónum króna í veitingastarf- semi í einum hreppi héraðsins. Og líklegt er að í slíka starf- semi skolist á .sama stað ekki minni fjárhæð frá þessum aðil- um á næsta áratug. Marga hér efra undrar þrá- kelkni SÍS, að ausa milljón eftir milljón króna í starfsemi, sem lítil þörf er fyrir á þessum stað. Reyndar er verið að kalla þetta „félagsheimili“. En búið er að reka veitingahús þarna þrjú sumur undanfarið í harðvítugri samkeppni við þá starfsemi í þessari grein, sem fyrir var í héraðinu. Tókst „Bifröst" t. d. að ná viðkomum áætlunarbílanna milli Reykjavíkur og Akureyrar til sín tvö fyrstu sumrin, en tap- aði þeim aftur s.l. sumar. Nú er SÍS að hefja viðbótar- byggingu við „Bifröst“ og er tal- ið að í henni verði um 50 herbergi sem aðallega eigi að verða til gistingar. Er búizt við að það dragi mjög frá aðal gistihúsum héraðsins, þ. e. Borgarnesi og Fornahvammi. Jafnvel muni það ríða þeim að fullu, nema þá að ríkið auki enn að mun peninga- strauminn til þess áðurnefnda. Einkum er líklegt að þetta valdi hótelinu í Borgarnesi mikilla örðugleika. Þar er nýlega komið upp mjög myndar'egt hótel með mörgum ágætum nýtízku gisti- herbergjum. Þótt enn sé ólokið við neðstu hæð hússins. KAIRO 31. okt. —r* Tveir her- menn úr Norður Afríku-liðssveit um Frakka struku af frönsku her flutningaskipi sem var á sigl- ingu eftir Suez-skurði. Hermennirnir hafi nú beiðst landvistar í Egyptalandi. — Þeir eru ættaðir frá Túnis og segjast hafa gerzt liðhlaupar til þess að geta barizt fyrir sjálf- stæði föðurlands síns. — Reuter. Síðan um aldaroót hefir Borg- arnes verið aðal miðstöð héraðs- ins — höfuðstaður þess — fyrir ofan Skarðsheiði. Eftjr að gamla hótelið þar brann fyrir nokkrum árum var hafizt handa £ið reisa stórt og myndarlegt gistihús í kauptún- inu og standa að því sýslan, kaup- túnið, helztu verzlanir þess og svo gestgjafinn, Ingólfur Péturs- son, sem með sérstökum dugnaði Akvörðun Vesturveldanna um að afhenda ítölum Trieste-borg, hefur vakið ólgu og reiði í Júgóslavíu. En íbúar Trieste, sern eru að yfirgnæfandi meirihluta ítalskrar ættar fagna ákvörðuninni. Hér sjást ítaiir í skrúðgöngu. lægni og vinsældum hefir klifið þrítugan hamarinn við áð koma upp hinu glæsilega gestaheiinili. Þegar hafizt var handa að byggja þetta gistihús var þess mikil þörf, bæði í kauptúninu og héraðinu, því gistihús hafa ekki annarsstaðar verið að ráði í hér- aðinu nema þá 1—2 mánuði að sumrinu, þegar frá er skilin Fornihvammur. Sýndi það sig líka s. 1. sumar, að fjöldi manna, sem þurfti að gista í héraðinu, leitaði sér gist- ingar í Borgarnesi. Og einmitt þetta gaf góðar vonir um að gistihúsið þar væri lífvænt í fram tiðinni. En nú er mikill kvíði í mönn- um, að gistihús SÍS við Hreða- vatn nái flestum gistingum til sin, þegar búið er að bera í það nokkrar milljónir lcróna, þótt viss sé þar fyrirfram stór halla- rekstur á fyrirtækinu. Mc-ð þessari gistihússbyggingu SÍS hlýtur hótelið í Borgarnesi að verða svift rekstrarmöguleik- um strax eftir að vera búið að fullnægja þörfinni í héraðinu. Þegar loks er komið upp, með ærnum kostnaði, myndarlegt ný- týzku gistiheimili í Borgarnesi, þykir hart að nokkur íbúi kaup- túnsins skuli vinna beinlínis að því að eyðileggja umferðina um þennan kunna gamla ferða- mannabæ, m. a. með því að vera í fremstu röð í öllu hallarekstrar bramlinu á Hraðavatni. Borgfirðingur. MOSKVU 30. okt.: — Stjórn- málaíréttaritarar í Moskvu telja liklegt að rússneska stjórnin inuni um þessa helgi svara til- boði Vesturveldanna um fund utanríkisráðherranna í Lugano í Sviss. Mjög skiptar skoðanir eru um það hvernig svar Rússa verð- ur. í London og París er talið að Rússar muni enn hafna tilboði um íjórveldafund á grundvelli til boðs Vesturveldanna, en aðrir telja að Rússum muni veitast erfitt að hafna tilboðinu. — NTB-Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.