Morgunblaðið - 11.12.1953, Side 1
16 síður
40. árgangur
284. tbl. — Föstudagur 11. desember 1953
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SjáEfstæðisflokkurinn efnir til
próíkosRlnpr m framhoð við
bæjarstjórnarkosningar
Qllum sluðningsmönnum flokksins er
gefinn kosfur á þáftlöku í þeim.
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem kosin
er af FuIItrúaráði Sjálfstæðisfélaganna og stjórnum þeirra,
til þess að stilla upp framboðslista flokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar, hefur ákveðið að efna til prófkosn-
ingar um val manna á listann.
Um þessa prófkosningu hefur blaðinu borizt eftirfar-
andi frá kjörnefndinni:
„Samkvæmt reglugerð Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík hefur nú verið kosin 15 manna kjörnefnd, til
þess að gera tillögur um frambjóðendur á lista Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosningar, sem fram eiga að fara
31. janúar næstkomandi.
Kjörnefndin hefur ákveðið að efna til prófkosningar um
val manna á listann og verður í þessari prófkosningu fylgt
eftirfarandi reglum:
REGLURNAR
Hér fara á eftir reglur þær, sem um prófkosninguna gilda:
1. Kosningin er alveg óbundin, þannig að kjósandi ritar
á þar til gerðan kjörseðil nöfn 16 manna, er hann óskar,
að taki sæti á lista flokksins við næstu bæjarstjórnar-
kosningar, 8 aðalmanna og 8 varamanna.
2. Kosningarrétt hafa:
a) Allir skráðir meðlimir Sjálfstæðisfélaganna í Rvík,
b) Allir aðrir, sem styðja Sjálfstæðisflokkinn, og eru
á kjörskrá í Reykjavík.
3. Meðlimum Sjálfstæðisfélaganna eru send kjörgögn, en
aðrir kjósendur greiða atkvæði í kjörklefum í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu.
4. Þeir, sem fá send kjörgögn, skulu stinga atkvæðaseðlin-
um í umslagið, merkt: ATKVÆÐI, loka því og setja
það í hitt umslagið, sem er með áletruninni: Til kjör-
nefndar Sjálfstæðisflokksins, Sjálfstæðishúsinu, Reykja-
vík. — Þetta umslag sé einnig lokað og ritað aftan á
það nafn og heimilisfang kjósanda. (Úr þessum um-
slögum verða atkvæðaumslögin öll sett á einn stað áður
en talning hefst, svo að kosningin er fullkomlega
leynileg). Meðlimir félaganna verða að sjá um, að
atkvæði þeirra séu komin til kjörnefndar áður en
kosningu lýkur. Hafi kjörgögn ekki komið til skila til
félagsbundinna manna, geta þeir kosið í skrifstofu
flokksins.
5. Þeir, sem kjósa í kjörklefa í skrifstofu flokksins, láta
kjörseðilinn í innsiglaðan kjörkassa, eins og við al-
mennar kosningar.
6. Kosningin stendur yfir til mánudagsins 14. desember
og skal lokið að kvöldi þess dags kl. 10.
Kosningin í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins hefst á morg-
un — laugardag. Skrifstofan verður opin á laugardag frá
kl. 9 f. h. til kl. 6 síðd., á sunnudag kl. 2 til 7 e, h. og á
mánudag frá kl. 9 árd. til 10 síðd.
SEM FLESTIR ÆTTU AÐ KJÓSA
Kjörnefndin beinir þeirri eindregnu áskorun til Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, að þeir sinni þessari prófkosn-
ingu af fyllstu kostgæfni. Kjörnefndin vill gera það, sem
í hennar valdi stendur til þess að hafa ráð sem flestra
Sjálfstæðismanna við mannaval á framboðslistann og treyst-
ir því, að það muni vel gefast“.
Meðal Sjálfstæðismanna mun það áreiðanlega mælast
mjög vel fyrir, að efnt hefur verið til prófkosningar á svo
almcnnum grundvelli. Hér er farið að með sama hætti og
við tvennar undanfarandi bæjarstjórnarkosningar. Hefur
það gefizt ágætlega og átt sinn þátt í glæsilegum sigri
flokksins við þær kosningar.
Aðstoð við ný iðnfyrirtæki
Sendurí fund
Rússasfjórnar
± WASHINGTON, 10. des. —
T Sendiherra Bandaríkjanna í
Moskvu, Bohlen, hefur verið
falið að Ieggja tillögu þá er
Eisenhower setti fram í ræðu
sinni í Allsherjarþinginu i
vikunni, fyrir rússnesku
stjórnina.
rk Jafnframt hefur blaðafull-
j trúi Eisenhower það eftir
forsetanum að Bandaríkin
vonist til þess að Rússar taki
tillögunni vel, þrátt fyrir
þær kuldalegu kveðjur er
hún hlaut í fyrstu ummæl-
um Moskvuútvarpsins um
hana.
A Þau ummæli voru á þá leið,
T að Eisenhower væri stríðs-
æsingamaður og í ræðu sinni
hefði hann æst til atóm-
stríðs!!! Rússar einir taka
ræðunni svona. Fjölmargar
þjóðir fagna henni alúðlega,
m. a. þjóðir, er framleiða
mikið magn úraníums og
hafa þær lýst yfir að þær séu
fúsar til samstarfs á sviði
atómrannsókna.
—Reuter-NTB
til vinnujöfnunar
Merk tillaga Sjáifstæðis-
manna á Alþingi
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þeir Jónas Rafnar, Magnús
Jónsson, Kjartan J. Jóhannsson og Einar Ingimundarson flytja á
þingi tillögu til þingsályktunar um aðstoð við ný iðnfyrirtæki til
atvinnujöfnunar. Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka, með
hvaða hætti helzt verði stuðlað að því, að ný iðnfyrirtæki rísi
upp í kaupstöðum og kauptúnum, þar sem skilyrði eru góð til iðn-
aðarframleiðslu, en atvinnuleysi hefur gert vart við sig að undan-
förnu. — Sérstaklega verði athugað, hvort ekki sé rétt að setja
löggjöf um fyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins við stofnun nýrra
iðnfyrirtækja á fyrrnefndum stöðum með það fyrir augum að
hagnýta sem bezt náttúruauðlindir landsins og koma í veg fyrir
atvinnuleysi.
1 ^
A aðfanga-
dagskvöld
^FRAMFARIR
í greinargerð er þingmennirn-
ir láta fylgja tillögunni segir
svo:
A síðari árum hefur iðnaður-
inn tekið stórfelldum framförum
hér á landi. Nýjar iðngreinar
hafa risið upp og eldri fyrirtæki
fært út kvíarnar. Er nú svo kom-
ið, að iðnaðurinn er engu síður
mikilsverður þáttur í atvinnulífi
BELGRAD 10. des. — Hið ný-
kjörna þing í Júgóslavíu mun á
aðfangadagskvöld kjósa forseta!okkar íslendinga en sjávarútveg
landsins, tilkynnti fréttastofan
Tanjug í dag. — NTB-Reuter.
Nób«lsverðlaun afhent
Kommúnisfar svívirtu afhendingar-
afhöfnina í Oslo.
STOKKHÓLMI OG ÓSLÓ, 10. des. — Viðhafnarsalurinn í sænsku
konungshöllinni var í dag þéttskipaður tignum gestum er Gústaf
j Adolf Svíakonungur afhenti Nobelsverðlaunin fyrir bókmenntir,
, læknisfræði, eðlisfræði og efnafræði. Meðal annara gesta voru
. Louise drottning, prinsessurnar Ingeborg, Sibylla og Margrét, ráð-
‘ herrar og þingmenn. — Allir Nobelsverðlaunamennirnir voru
mættir að Churchill undanskildum en fyrir hans hönd mætti kona
hans. —
CHURCHILL OG DISRAELI
Rithöfundurinn Sigfrid Siw-
ertz, sem sæti á í sænsku aka-
demíunni flutti minni Sir
Winstons. Ræddi hann m. a. um
stórmenni sögunnar og ritverk
þeirra og líkti Churchill við
Disraeli. Siwertz lauk ræðu sinni
með því að segja að Nobelsverð-
laununum væri ætlað að varpa
frægð á þann er þau hlyti, en nú
væri það sá sem þau fengi sem
varpaði frægð á verðlaunin.
Þá voru afhent verðlaunin
fyrir eðlisfræði, efnafræði og
læknisfræði. Voru ræður haldn-
ar til heiðurs þeim er verðlaunin
hlutu, störf þeirra rakin að
nokkru, sérstaklega þau er urðu
til þess að þeim var veitt þessi
mikla viðurkenning.
UPPSTEIT
I Osló fór fram afhending frið
arverðlaunanna. Albert Zweitzer
er verðlaunin hlaut árið 1952, sá
sér ekki fært að taka á móti þeim
sjálfur, en franski sendiherrann
í Osló veitti þeim viðtöku fyrir
hans hönd.
Georg Marsháll var hins veg-
ar til staðar og veitti vérðlauna-
upphæðinni fyrir árið 1953 við-
töku. Um leið og afhendingin fór
fram vörpuðu 3 unglingar á
áheyrendapöllum flugritum nið-
ur í salinn þar sem afhendingin
fór fram, en á flugritunum var
rógur um Marshall og mótmæli
gegn því að hann hlyti verðlaun-
in. — Drengirnir höfðu verið
fengnir til ódæðisins af komm-
únistaforingjum. Þeir virðast
alls staðar eins innrættir.
ur og landbúnaður — og með ári
hverju fjölgar þeim aðilum, sem
beinlínis hafa lífsuppeldi sitt frá
þeirri atvinnugrein.
Segja má, að flestöll meiri hátt-
ar iðnfyrirtæki, nema ullarverk-
smiðjur og iðjuver, sem vinna úr.
sjávarafurðum. séu nú staðsett í
Reykjavík. Valda því margar
ástæður. í Reykjavík sjálfri er
stærsti markaðurinn fyrir fram-
leiðsluna, hægara en víðast hvar
annars staðar að ná í þjálfað
vinnuafl og auðveldara um út-
vegun lánfjár. Meðan leita þurfti
til nefnda og ráða um allan inn-
flutning, höfðu fyrirtæki í höfuð-
staðnum allt aðra og betri að-
stöðu en fyrirtæki úti á lands-
hyggðinni. Það mun og hafa ráð-
ið nokkru um val á staðsetningu
nýrra iðnfyrirtækja, að opinber
gjöld hafa yfirleitt reynzt nokkru
lægri í Reykjavík en í öðrum
kaupstöðum.
DREIFING ÆSKILEG
Flestir munu líta svo á, að ekki
sé hagstætt fyrir þjóðarheildina
að einskorða iðnað landsmanna
að mestu við Reykjavík og ná-
grenni, æskilegra sé, að iðnfyrir-
tækin séu ekki síður staðsett úti
á landi þar sem skilyrði eru fyr-
ir hendi. Á það má benda, að
Framh. á bls. 2.
Hlaut hryllilecfa ineMerð
HANNOVER 10. des. — Blaða
mönnum hefur verið gefinn
kostur á að ræða við brezkan
hermann, sem í s.l. mánuði
var sleppt úr haldi í þrælabúð
um í Rússlandi, þar sem hann
hefur orðið að dúsa s.l. 6 ár.
Brezki hermaðurinn sagðist
hafa verið dæmdur án þess að
um mál hans hefði verið fjall-
að af rétti. Varð hann að sæta
hinni hryllilegustu meðferð er
hann var yfirheyrður af fanga
búðastarfsmönnunum —
stundum allt að 16 stundir í
sólarhring. Greip hann til þess
ráðs að fara í „hungurverk-
fall“ en þá var fæðan sett of-
ö
an í hann með valdi. Var hon-
um misþyrmt á margan annan
hátt.
Brezki hermaðurinn, Kelly
að nafni, var um hálftíma að
gefa skýrslu sína um veru
sína í • þrælabúðum Rússa.
Blaðamönnum hafði verið
heitið tækifæri til þess að
leggja fyrir hann spurningar,
en þegar hann hafði lokið
skýrslu sinni, taldi læknir
hans ráðlegt að hann færi
þegar í stað á sjúkrahús aft-
ur, svo máttfarinn er Kelly
eftir misþyrmingarnar sem
liann hlaut í þrælabúðum
Rússa. — Reuter.