Morgunblaðið - 02.02.1954, Side 5
Þriðjudagur 2. febrúar 1954
MORGUNBLAÐIÐ
5
Vandamál topraútgerðarinnar
ÞAÐ er ekki orðið óalgengt að
heyra þess getið að ekki sé hægt
að senda fiskiskip okkar út á
veiðar vegna þess að vöntun sé
á mönnum á þau. Til að byrja
með var hér aðallega um að ræða
minni fiskiskipin, eða hina svo-
kölluðu mótorbáta, en nú er orð-
3ð algengt að nýsköpunarbotn-
vörpuskipin komast ekki úr höfn
fyrr en eftir margra daga töf,
vegna þess að nothæfir menn fást
ekki á þau. Þegar svo er komið
er vissulega um vandamál að
ræða og þörf skjótra aðgerða til
að ráða bót á þessu máli áður
en þjóðarvoði hlýzt af.
Það vill nú þannig til að hér
er um það mál að ræða, sem er
miklu auðveldara úrlausnar, en
búast mætti við, ef menn aðeins
vilja horfast í augu við stað-
reyndirnar og „stemma á að ósi“
áður en hún hefur valdið tjón-
ínu.
Það liggur því fyrst fyrir að
athuga hversvegna menn fram
að þessum tíma hafa valið sér
Bjómannastarfið að atvinnu, en
virðast nú vera farnir að sýna
því tómlæti og taka aðrar at-
vinnugreinar fram yfir það.
Við, sem höfum lifað og verið
þátttakendur í því þróunarskeiði,
sem átt hefur sér stað síðastliðin
40 ár gerum okkur fyllilega grein
fyrir ástæðum þeirra hugarfars-
breytinga, sem orsaka þetta.
Sjávarútvegurinn hefur eins og
öllum er kunnugt staðið að miklu
leyti undir þeirri uppbyggingu,
sem hér hefur farið fram á þessu
tímabili. Hann var fram að þess-
um tíma sá atvinnuvegur, sem
skilaði í mörgum tilfellum einna
foeztri efnahagsafkomu. Hinir
Ungu og uppvaxandi drengir ól-
ust upp við fiskiveiðar og sjó-
sókn og litu á það starf í eins-
konar æfintýraljóma og bjuggu
sig undir að verða þar þátttak-
endur strax og þeir höfðu aldur
til þess. Nú er þetta orðið mjög
breytt, því nú eru ótal mögu-
leikar á sviði aliskonar tækni,
ílugmála, bílaiðnaðar og flutn-
ingamála á landi, svo nokkur
dæmi séu nefnd fyrir utan mjög
vaxandi atvinnu í ótal grein-
um.
Þegar þetta er athugað þá ligg
ur í augum uppi að það eru nú
allt aðrar aðstæður fyrir hina
uppvaxandi æsku, en var fyrir
B0—40 árum. Þess vegna verður
að finna leið til þess að gera
starfið í fiskiveiðiflotanum eft-
irsóknarvert fram yfir aðrar
Starfsgreinar þjóðfélagsins, og
það vill svo til, að það er ofur
auðvelt, ef menn aðeins vilja við-
Urkenna þá alþjóðarnauðsyn, sem
á því er að svo geti orðið.
' Til þess að þetta geti orðið,
þurfa fiskimenn okkar að bera
íneira úr bítum en aðrir, þegar
endanlega er gerð upp afkoma
ársins, án þess þó að útveginum
sé íþyngt meira en orðið er. Það
Sem hér ber að gera er þetta: Að
allir sjómenn í fiskiveiðiflotan
Um fái vissan hluta tekna sinna
Skattfrjálsan, t. d. %. Þá er mál-
Sð leyst, og áreiðanlegt að ekki
yerður vandi að koma skipunum
©kkar til veiða vegna vöntunar á
ínönnum. í því sambandi mætti
minnast þess, að á styrjaldarár-
jUnum hikuðu menn ekki við að
Sækja sjóinn og sigla á milli
landa, eftir að þeir höfðu feng
Ið hina svokölluðu áhættuþókn-
Wn skattfrjálsa að hálfu leyti,
Sem var þá 50% til 75% af heild-
srtekjunum, eða að skattfrjálsar
urðu þá y3 til helmingur af heild-
Brtekjunum á botnvörpuskipun-
um og öðrum skipum, sem sigldu
á milli landa, enda varð ekki
skortur vel hæfra manna á þess-
Um skipum, þrátt fyrir mjög
mikla eftirspurn eftir mönnum
til vinnu í landi, og þó að dauð
inn biði á næsta leiti í líki ein
hvers þess drápstækis, sem hafið
yar fullt af á þeim árum.
Það, sem verður að gera
þessu, er því það að Alþingi það
feem nú situr, ásamt bæjar- og
hreppsfélögum geri nauðsynlegar
feglugerðir og lög hér að lút
þndi, og geri sér grein fyrir því
að framtíðarvelferð íslenzku
þjóðarinnar getur oltið á heil-
brigðri úrlausn þessa más.
Reykjavík, 13. jan. 1954.
Þorkell Sigurðsson,
vélstjóri.
r
I
Mossadek
framboði
TEHERAN 1. febr. — I dag
hófust kosningar til öldunga-
deildar persneska þingsins.
Standa kosningarnar í þrjá
daga. Gamli stjórnmálarefur-
inn Múhameð Mossadek, sem
situr í fangelsi er efstur á lista
þjóðfylkingarinnar.
— Reuter.
Aflamagn
Grundarfjarðarbála
GRUNDARFIRÐI, 1. febrúar. —
Héðan eru nú gerðir út fjórir
bátar. Hafa aflaföng þeirra í
janúar verið, sem hér segir:
Farsæll 97 tonn í 15 róðrum,
Páll Þorleifsson 85 tonn í 14
róðrum, Runólfur 84,6 tonn í 14
róðrum og Vilborg 40 tonn í 8
róðrum.
Er hér miðað við óslægðan fisk
með haus. — Skipstjóri á Farsæli
er Sigurjón Halldórsson.
Enn veiðisf síld
við Noreg
ÁLASUNDI 1. febr. — Afli
var sæmilegur á síldarmiðun-
um í dag. Fram til kl. 9 síðd.
höfðu 70 til 80 þúsund hektó-
lítrar borizt á land í Álasundi.
Erfiðlega gengur að landa og
vinna allan aflann.
Viija koma í veg fyr-
ir sælgæiiskaup
unglinga í frímín-
úlum
KENNARAFÉLAG Gagnfræða-
skóla Austurbæjar hefir sent
eftirfarandi samþykktir til bæjar
ráðs:
„Kennarafélag Gagnfræðaskóla
Austurbæjar bendir hér með á
þá hættu, sem æskulýð skólanna
er búin af sælgætisbúðum og veit
ingastofum í nágrenni skólanna.
Við beinum hér með þeirri
áskorun til bæjarráðs, að það
leyfi engar slíkar búðir né veit-
ingakrár í nágrenni skólanna, og
hörmum, að leyft hefur verið að
opna veitingastofu í nágrenni
stærstu barna- og unglingaskóla
bæjarins.
Krafa okkar til bæjarráðs er
því, að veitingastofu þeirri, sem
opnuð hefur verið á horninu á
Bergþórugötu og Vitastíg, verði
tafarlaust lokað.“
„Kennarafélag Gagnfræðaskóla
Austurbæjar ítrekar hér með
fyrri áskoranir sínar til bæjar-
ráðs um að girða og lagfæra lóð
skólans.
Kennarar treystast ekki til að
halda nemendum frá umferða-
götum í frímínútum, nema lóðin
sé vel afgirt.
Þá vilja kennarar einnig koma
í veg fyrir, að nemendur kaupi
sælgæti í frímínútum, en ega
mjög óhægt um það, á meðan ekk
ert svæði er afmarkað nemendum
við skólann.
Við treystum því, að bæjarráð
geri nú tafaríaust ráðstafanir til
þess að ráða þessu máli til lykta
í samráði við skólastjóra og
kennara skólans."
r 1
Aætlun Edens um samein-
ingu Þýzkalands vel tekið
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Berlín 30. jan. — Utanríkisráðherrar fjórveldanna ræddu á fundi
sínum í dag um Þýzkalandsmálin. Bidault lýsti yfir stuðningi
Frakka við „5 punkta áætlunina“ um sameiningu Þýzkalands, se«k
Eden lagði fram í gær. — Molotov hefur mótmælt áætluninni.
VEL TEKIÐ
Þessari 5 punkta áætlun
Edens var vel tekið í Þýzka-
landi bæði af flokki Aden-
auers svo og af sosialistum. —
Telja allir aðiljar að í þessari
áætlun sé að finna grundvöll
sem byggja megi á. Adenauer
sagði að áætlunin hefði verið
vandlega undirbúin af brezk-
um og þýzkum sérfræðingum.
Rætt var um áætlunina í öll-
um helztu blöðum Vestur-Þýzka-
lands og sum þeirra fóru lofsam-
legum orðum um Eden sem höF-
und hennar. — Hins vegar minnt-
ust blöð í Austur-Berlín varla k.
áætlunina.
ATOMFUNDUR
Dulles og Molotov ætluðn S
kvöld að hittast og ræða til-
lögu Eisenhowers um eftirlrt
með atomframleiðslu.
Sjúklingi svnrað
KAIRO 1. febr. — í dag hófust
réttarhöld í Kairo yfir 44 komm-
únistum, sem kærðir eru fyrir að
hafa ætlað að steypa stjórn
Nabigs af stóli með blóðugri bylt-
ingu.
70 ára í dag:
Gunnar
DAG, 2. febrúar, er Gunnar
Sigurðsson kaupmaður sjötugur.
Gunnar í Von, eins og hann er
oftast nefndur er glæsilegur og
sannur fulltrúi allra þeirra, sem
byggja afkomu sína á eigin at-
orku og framtaki. Það var í mik-
ið ráðizt þegar Gunnar keypti
Laugaveg 55 og hóf þar verzlun-
arrekstur. Efnin munu ekki hafa
verið mikil, og reynsla og sér-
þekking lítil á sviði kaupmennsk-
unnar. En allt fór þó vel, enda
dugnaður og hyggni í öndvegi.
Þau 35 ár, sem Gunnar hefur
starfrækt verzlunina Von, mun
hann hafa verið flestum kaup-
mönnum árrisulli, opnað búð sína
fyrr en almennt gerist, til mikils
hagræðis fyrir húsmæður og
verkamenn, sem taka daginn
snemma eins og það er kallað.
En þrátt fyrir þetta var athafna-
þrá hans hvergi nærri fullnægt.
Miðaldra menn, og eldri, muna
gróðurgeirana og hraunflákana
meðfram veginum milli Hólmsár
og Lögbergs. Þar er nú stórbýlið
Gunnarshólmi, sléttar grundir og
staðarlegt heim að líta. Þó er
mikill hluti ræktunarinnar að
hólabaki og sést því ekki frá veg-
inum. Stofnandi og eigandi þessa
stórbýlis er Gunnar í Von. Eng-
inn einn maður á þar fleiri hand-
tök en húsbóndinn sjálfur. Þau
eru ótalin vor- og sumarkvöldin,
sem hann fór þangað uppeftir, að
afloknu fullu dagsverki í verzlun-
inni, reif upp grjót og hlóð vörð-
ur langt fram á nótt. — En að
morgili var hann aftur í búðinni.
Og ennþá er athafnaþrúin hin
Von
sama, þrátt fyrir grá hár og 70
ár að baki.
Gunnar í Von er hið mesta
prúðmenni, einlægur og traustur
vinur og svo orðvar, að þau 30
ár, sem leiðir okkar hafa legið
saman, hef ég aldrei heyrt hann
segja hnjóðsyrði um nokkurn
mann.
Kvæntur er Gunnar Margréti
Gunnarsdóttur frá Yztagili í
Langadal, mikilhæfri athafna og
gáfukonu. Eiga þau 5 dætur, vel-
gefnar og glæsilegar.
Heimilið í Von er orðlagt fyrir
rausn og myndarskap. Þangað er
alltaf jafn ánægjulegt og gott að
koma.
Ég enda svo þessar fáu linur
með beztu heillaóskum til Gunn-
ars Sigurðssonar og fjölskyldu
hans.
Jóhann Fr. Guðmundsson.
Á ÞORLÁKSMESSU birtist í
Morgunblaðinu afar hörð ádeilu-
grein á starfslið annars stærsta
sjúkrahúss Reykjavíkurbæjar,
Landspítalann. Grein þessi birt-
ist undir nafninu: „Er ofkæling
sjúklinga tíð í sjúkrahúsum?“ J
Ekki ætti greinarhöfundur, eftir
því sem nafn greinarinnar ber!
með sér, að veigra sér við að láta
nafns síns getið, þar eð umræðu-
efnið virðist gefa tilefni til hins
gagnstæða. Ennfremur er það
mjög athyglisvert, að fólk skuli
leyfa sér þá ósvífni að úthrópa
hjúkrunarlið einnar veigamestu
stofnunar landsins og þora ekki
um leið að bera reifalaust ábyrgð
orða sinna.
Greinarhöfundur, sem undir-
gekkst stóran holskurð, telur sig
hafa ofkælzt eftir svæfingu, sak-
ir ónógrar, eftir greininni að
dæma, alls engrar aðhlynningar
hjúkrunarliðsins. Segir greinar-
höfundur, að aðalstúlkan á deild-
inni (að líkindum yfirhjúkrunar-
kona deildarinnar), hafi „glennt
upp“ gluggann á herberginu og
skilið dyrnar eftir opnar. Sjúkl-
ingurinn hlaut því ofkælingu af
völdum gegnumtrekks.
Sannleiksgildi þessa dreg ég
mjög í efa, þar eð yfirhjúkrunar-
kona handlæknisdeildarinnar er
sérstaklega gætin og umönnun-
arsöm við sjúklinga sína, og það
svo að af ber. Því síður mundi
ég hafa eftir henni, að hún hefði
of mikið að gera „til að tefja sig
á að loka á eftir sér“!!! Þess ut-
an telur greinarhöfundur, sem að
öllum líkindum virðist vera
kona, sig hafá verið berann upp
á axlir, þegar hann vaknaði eft-
ir svæfinguna! — Vissulega er
þetta vítavert og óskaplegt, ef
rétt er með farið.
Mín kynni og undantekningar-
laust allra þeirra, sem ég þekki
til, eru hins vegar þau, að sjúkl-
ingurinn þoli helzt ekki við fyrir
hita eftir aðgerðina. Fyrst er
hann færður í sokka, vafinn inn
í þverlak, síðan teppi, eitt ef
ekki fleiri, auk venjulegra rúm-
fata, sem alls ekki eru aðfinn-
anleg. Áður en sjúklingurinn
kemur inn frá skurðstofunni, er
öllum gluggum vandlega lokað,
svo og hurðum. Á meðan sjúkl-
ingurinn er ekki vaknaður af
svasfingunni, situr einn nem-
anna yfir honum, fylgist með
líðan hans og mælir blóðþrýst-
inginn með stuttu millibili. Meiri
aðhlynningu er varla hægt að
veita. Hins vegar getur ofkæling
eða lungnabólga átt sér annan
aðdraganda, en dragsúg og slæma
umhirðu. — Infection í líkaman-
um og hinn mikli næmleiki sjúkl
ingsins fyrir utanaðkomandi á-
hrifum á vafalaust sinn mikil-
væga þátt í henni.
Því, hvort ofkælingartilfelli
séu tíð í sjúkrahúsum yfirleitt,
skal látið ósvarað. Að minnsta
kosti eru þau ekki tíðari (ef ekki
fátíðari) hér á Landspítalanum
en á öðrum sjúkrahúsum og að-
hlynning síður en svo verri. —-
Hjúkrunarliðið er i heild sinni
með afbrigðum nærgætið og'
varkárt, og á miklar þakkir skil-
ið fyrir óeigingjarnt en vanda-
samt starf.
Grein sína endar „sjúklingur"
með fádæma ruglkenndum og
yfirborðslegum setningum, og
ægir þar öllu saman. Þeir, sem.
annars hafa einhverjar kvartanir
fram að bera um starfrækslu.
hjúkrunarliðsins, ættu a5
minnsta kosti að vera svo hyggn-
ir að bera þau fyrst fram vitS
forstöðukonu sjúkrahússins, og
athuga, hvort hún geti ekkert
um bætt. En smásálarlegur tii-
tíningur í dagblöð bæjarins veríT-
ur ávallt dæmdur og fyrirlitinm
ekki sízt, þegar höfundar fara
undan í flæmingi.
Guðmundur Gislason.
★
Að gefnu tilefní skal þ>að tekiS?
fram, að höfundur umræddrar
greinar, er birtist í Mbl. á Þor-
láksmessu, var ekki sjúklingur 1
Landsspítalanum.
Ráðgasl um ‘
stjórnarmyiKlun
RÓMABORG, 1. febr. — Einaudi
forseti Ítalíu kvaddi foringja
allra stjórnmálaflokka á sina
íund í dag og leitar ráða þeirra
um hvernig auðnast megi a<S
mynda stjórn á Italíu, sem nýtur
meirihluta á þingi. En Fanfani
einn af foringjum kristilega
flokksins, sem gerði tilraun til
stjórnarmyndunar fékk van-
traust s. 1. laugardag. EinaudL
ræddi einnig við di Nicola, sena
var forseti landsins á undan.
honum. — Reuter.
Rannsókn á hækkun
kaffiverðs
WASHINGTON, 1. febr,— Stjóm.
aryfirvöld í Bandaríkjunum hafa
ákveðið að rannsókn skuli fara
fram á ástæðunum fyrir því a3
kaffi hefur hækkað mjög mikifS
í verði á siðustu árum. Leikur
grunur á að verðlagið á hinujxw
frjálsa markaði hafi orðið fyrir
gerfieftirspurn og þannig sé
kaffiverðinu haldið óeðlilega háu.
Fyrir skömmu hækkaði verðið L
einu pundi af kaffi í rúmlega 1
dollar. — NTB.
Gefst ekki upp á fluginu.
NAIROBI 1. febr. — Ernest
Hemingway hefur nú fyTiiega
náð sér eftir t-ö flugslys, ,-.cm
hann lenti í í TJvanda i MiC-
Afríku. Hann <coui í dag inn í
flugskrifstofu 1 Entebbe og spurS
ist fyrir um flugferðir til austur-
strandarinnar. j