Morgunblaðið - 10.02.1954, Page 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. febrúar 1954
Miðjarðarhafsferð
m.s. „GULLFOSS"
Með því, að enn hafa eigi nægilega margir
af þeim, sem spurst hafa fyrir um Miðjarð-
arhafsferð m. s. „Gullfoss“, ákveðið endan-
lega þátttöku sína í ferðinni, er þess óskað
að þeir, sem ætla sér að fara, gjöri fastar
pantanir á fari fyrir hádegi næstkomandi
laugardag 13. þ. m.
Verðí tala farþega þá eigi nægileg að dómi
félagsins, má búast við að ferðin falli niður.
!
ÚTSVÖR 1954
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir ákveðið skv.
venju að innheimta fyrirfram upp í útsvör
1954, sem svarar helmingi útsvars hvers
gjaldanda 1953, og hafa verið sendir giald-
seðlar samkv. því.
Fyrirframgreiðsluna ber að greiða með 4
afborgunum og eru gjalddagar 1. marz, 1.
apríl, 1. maí og 1. júní, sem næst 12%% af
útsvari 1953 hverju sinni, þó svo að greiðsl-
ur standi jafnan á heilurn eða hálfum tug
króna.
Reykjavík, 9. febrúar 1954.
Borgarritarinn.
JJimóLipci^éicicj J^áictnclá
FarþegadeiBd — Sími 82460
S<S<»'CS<SKS<S<S<S c
SATT
flytur í uý-útkomuu hefti sex sanfiar frásagnir
Úr sögunni:
„DAUÐS MANNS BEIN
VIÐ BLÖNDUÓS“
Árið 1802 gekk í garð með miklum harðindum. Hafís lagðist
snemma að landi og hvarf ekki á brott fyrr en undir höfuðdag.
Fórust þá allmörg íslandsför, sum við land, sum í hafi. Um miðj-
an ágúst var íslaust orðið á Skagafirði og Húnaflóa. Þetta sum-
ar kom aðeins eitt skip til Skagastrandar. Það hét „Hákarlinn“
og átti það danskur kaupmaður, Kristján Gynther Scram, á
Blönduósi. Skipið hafði að mestu verið affermt 1 Höfðakaup-
stað, en sleit þar upp á höfninni og hraktist særokið fyrir vind-
um og veðrum. Þetta var nálægt veturnóttum. Skipið var vist-
þrota, án elds og vatns. Stýrði skipstjóri þá að landi nálægt
Hjaltabakka í Húnavatnssýslu. Þrír skipverja voru sendir í land
til að sækja eld og vatn og leiðsögumann, er gæti komið skip-
inu í rétta höfn. Það var sunnudaginn 18. október, árdegis, er
þeir tóku land. En þá umhverfðist sjór með brimi og norðaust-
anfárviðri. Var þá varpað akkerum á Hákarlinum, en hann bar
inneftir undan hríðinni og hvarf í dimmuna.
Mánudaginn 19. október máttu menn úr landi sjá Hákarlinn,
hvar hann hafði krakað niðri á Hjaltabakkasandi. Skipherrann
var úppi í reiða og veifaði hatti sínum, en ekki var þá annað
skipverja eftir á skútunni en hann og kokkurinn, sem var
sjúkur. Að kvöldi sama dags bar skipið upp í sandinn, en um
morguninn næsta, þriðjudaginn 20. október, máttu menn ganga
út í það úr landi þurrum fótum.
Þar var köld aðkoma. Kokkurinn lá dauður undir kistum
tveim í káetunni, og var þar ekki annað manna. Uppi á sand-
inum stóð tóm tunna, en brennivínsflaska ofan á tunnunni.
Skammt þar frá lá skipshundurínn og ýlfraði ámátlega. Ein
stígvél blóðblettótt lágu í sandinum og nokkurt smádót ann-
að. Þar sáust einnig nokkur mannaspor. En skipstjórinn? Hann
var horfinn.
Hafaldan suðaði við Hjaltabakkasand, en var hljóð um þann
harmleik, sem gerzt hafði þessa íslenzku óveðursnótt, og liðu
svo stundir fram..........
Um frásÖgnina:
„RÉTTVÍSIN
GEGN LÁRU
ÚARR“
i
i
Réjttarfræðingar halda
því fram, að hinn heims-
frægi lögfræðingur Leibo
witz hafi hvergi náð
hærra en í vörn sinni fyr-
ir Láru Parr. Málið er
næsta íhugunarvert, ekki
aðeins sem merkileg rétt-
arfarsleg heimild, heldur
sem mannleg og örlaga-
þung harmsaga, sem vel
hefði mátt vcrða uppi-
staðan í forngrískum sorg
arleik.
Það er álit manna, að
aldrei hafi yndislegri
kona verið sökuð um morð
fyrir bandarískum dóm-
stóli.
SATT
bemur út
mdnaðarlega
og kostar
kr. 9,50
TILKTNMING
um bótagreiðslur almannatrygginganna
Bótagreiðslur almannatrygginganna í febrúar fara
fram frá og með miðvikudeginum 10. febrúar.
Bæturnar verða greiddar frá kl. 9,30—3 (Opið milli
kl. 12—1), nema laugardaga frá kl. 9,30—12, í húsnæði
Tryggingastofnunar ríkisins að Laugavegi 114, fyrstu hæð
(horn Laugavegs og Snorrabrautar), og verða inntar af
hendi sem hér segir:
ELLILÍFE YRIR:
Miðvikudag 10. og fimmtudag 11.
ÖRORKULÍFEYRIR OG ÖRORKUSTYRKIR:
Föstudag 12. og laugardag 13.
BARNALÍFEYRIR:
Mánudag 15. og þriðjudag 16.
F JÖLSKYLDUBÆTUR:
fyrir 4 börn eða fleiri í fjölskyldu:
Miðvikudag 17.
Frá og með 18. verða greiddar þær bætur, sem ekki
hefir verið vitjað á þeim tíma, sem að framan segir,
einnig aðrar tegundir bóta er ekki hafa verið taldar áður.
Fyrsta greiðsla fjölskyldubóta fyrir 2 eða 3 börn í
fjölskyldu fer fram í marz fyrir tímabilið janúar—marz
og verður auglýst áður en greiðslur hefjast.
^Jnj^in^-aótofnun nhiáinó
Laugavegi 114.
Útborganir kl. 9,30—3 — Opið kl. 12—1
ILLEY.
&<5<»<s<s<s<Sr^<s<s<s^s<aKS<»<s<s<s<s<s<s*s<a<s<SKS<a*s<s<s<s><s<s<s<s>'S<s><s<»><3í>B*s<arsso^s<s<s<s
X 246
Tilley stormlugt.
Sterkari
Betri
Ódýrari
Spyrjið um þær
hjá
kaupmanni yðar.
/ Agenten r
MB0HNS
. K0BENHAVN
T.L. 106
Tilley Borðlampi.