Morgunblaðið - 10.02.1954, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.02.1954, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 10. febrúar 1954 MORGUNBLAÐIÐ 11 ÆSKULÝÐSSÍÐA Grein Gunnars G. Schram Framh. af bls. 9. Geir Jónasson, flutti aðra fram- söguræðu. Fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar 1934 var starfað mjög ötul- lega og bættust þá margir nýir félagar í hópinn. Þá varð for- jnaður Alfreð Jónsson tollvörður, er stjórnaði félaginu með hinni mestu prýði þar til hann féll frá. ,Við tók bá Jónas Jensson símrit- ari frá Seyðisfirði ög stóð félags- lífið með miklum blóma næstu árin. Tíu ára afmælisins er minnst á veglegan hátt í íslend- ingi og þar raktir höfuðáfangarn- ir í starfssögu fyrsta áratugsins. „í DAG ER MARKINU NÁГ Á styrjaldarárunum var starf- semi félagsins fremur lítil af eðlilegum ástæðum, en félagið var endurvakið 1945. Hinn 18. jan. 1946 var haldinn fjölmenn- ur fundur í félaginu og var þá endurkjörinn formaður Indriði G. Þorsteinsson. Hófst þá félags- starfið með miklu fjöri og hefur ekkert lát orðið á starfseminni síðan, en hún jafnan farið vax- andi. í ávarpi, sem gefið var út fyr- ir fund þennan segir svo: „Ungir Sjálfstæðismenn og konur á Akureyrl! Nú, er við höfum öðlazt sjálf- stæði okkar, verðum við eftir megni að varðveita það, sem okkur hefur verið gefið. Fylkj- um okkur því saman strax í dag og tökum til starfa. Okkur hefir verið veitt í vöggugjöf sú þraut- seigja og sá dugnaður, að á einni öld höfum við hrifið okkur upp úr hungri og vesaldómi, upp í það að verða frjáls og fullvalda þjóð. Þeir sem mestan og beztan þátt eiga í þessari haráttu hafa verið frelsisunnandi feður vorir, sem hafa virt og elskað frelsið. Þeir hafa ekki Iátið bugast af alls konar erfiðleikum, sem að þeim hafa steðjað, og í dag er markinu náð, í dag erum við frjáls þjóð á framfarabraut “ Þessum þróttmiklu hvatningar orðum lýkur síðan á áskorun- til allra æskumanna á Akureyri að styðja og efla stefnu sjálfstæð- is, frelsis og framfara og auka hróður og velferð íslands. Árið 1947 var Magnús Jónsson kjörinn formaður félagsins. Það ár bættust 112 nýir félagsmenn í hópinn og sýnir sú staðreynd ein glögglega, hve öflugt félagið var þá þegar orðið og hve vöxt- ur þess var ör. Sú nýbreytni var tekin upp á árinu að halda kvöldvökur fyrir félagsmenn og gesti þeirra og urðu þær skjótt mjög vinsæll þáttur í félagslífinu. Þennan vet- tir gekkst félagið og fyrir mælsku námskeiði, sem var mjög vel sótt, einkum úr framhaldsskól- um bæjarins, en margir ötulustu félagsmenn „Varðar“ hafa jafn- an verið nemendur í hinum fnörgu skólum, sem hér hafa að- setur sitt. FJÓRÐUNGSSAMBAND UNGRA SJÁI.FSTÆÐIS- MANNA Á NORÐUR- LANDI STOFNAÐ Vorið 1947 var Sambandsþing ungra Sjálfstæðismanna haldið á Akureyri og hafði „Vörður“ veg og vanda að undirbúningi þess. Þing þetta var hið lángfjölmenn- asta, sem ungir Sjálfstæðismenn höfðu nokkru sinni haldið og varð árangur þingstarfa hinn bezti. Um þessar mundir var og etofnað Fjórðungssamband ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi óg formaður þess kjörinn Jónas G'. Rafnar alþingismaður. Hefir það með starfi sínu orðið mikil lyftistöng fyrir starfsemi félag- anna á Norðurlandi, en „Vörður“ var frá upphafi ein ai meginstoð- um þessa sambands. Um haustið gekkst félagið fyrir öðr.u stjórnmála- og mælskunám- skeiði og sóttu það ekki einungis ungir menn héðan úr bænum heldur einnig gestir frá allmörg- um nágrannafélögunum. Árið 1949 var Eggert Jónsson ritstjóri kjörinn formaður. Höf- uðþáttur félagsstarfseminnar það ár var fólginn í undirbúningi al- þingiskosninganna, en Jónas G. Rafnar var þá í fyrsta sinn í kjöri. Hafði hann ásamt Magnúsi Jónssyni átt drýgstan þátt í hinni miklu eflingu „Varðar“. Hinn glæsilegi kosningasigur, sem Sjálfstæðismenn unnu þá, var ekki hvað sízt að þakka ötulu starfi og áhuga Varðarfélaga, sem unnu mikið undirbúningsstarf fyrir kosningar þessar. Félagið hélt almennan æsku- lýðsfund og útbreiðslufund, marg ar kvöldvökur og fundi, sem jafn- an voru fjölsóttir, enda bættust tugir nýrra félaga í hópinn í hvert sinn. Þá hafði einnig verið tekinn upp nýr, vinsæll þáttur í félagsstarfseminni, spilakvöldin, sem jafnan hafa tíðkazt síðan. ★ Árið 1950 var Gunnar G. Schram kjörinn formaður. Á að- alfundinum bættist hálft hundr- að nýrra félaga í hópinn og tvö- faldaðist sú tala skömmu seinna, enda hafði félagsstarfsemin verið með afbrigðum mikil árin áður. Við bæjarstjórnarkosningarn- ar, sem fram fóru í byrjun ársins lögðu Varðarfélagar fram mikið starf og bætti flokkurinn við sig einum fulltrúa í bæjarstjórn. Þá gekkst félagið fyrir stjórnmála- námskeiði undir forustu Gunnars Helgasonar og Friðriks Sigur- björnssonar og almennum út- breiðslufundi, þar sem fjölmargir ræðumenn komu fram, auk ai- mennra félagsfunda, kvöldvaka og spilakvölda. Tómas Tómasson ritstióri gegndi formannsstörfum 1951 og var félagsstarfsemin með svipuð- um hætti og verið hafði. Síðast á árinu tók Vignir Guðmundsson við formannsstörfum og hefur hann gegnt þeim síðan. Sumarið 1951 var Sambands- þing ungra Sjálfstæðismanna haldið á Akureyri og sá „Vörður“ að mestu um þinghaldið, en full- trúar sóttu þingið frá flestum fé- lögum ungra Sjálfstæðismanna á landinu. Síðustu árin hefur „Vörður“ haldið áfram að eflast og þrosk- ast og stendur nú traustari fót- um en nokkru sinni fyrr. Félags- starfsemin hefur verið með svip- uðu sniði sem fyrr. í janúar 1953 var haldið stjórnmála- og mælsku námskeið á vegum félagsins og sóttu það um 30 þátttakendur. Leiðbeinendur voru þeir Magnús Óskarsson og Gunnar G. Schram. Félagið hefur lagt fram sinn skerf til undirbúnings þeirra kosninga, sem fram hafa farið, sent fulltrúa á þing og fulltrúa- ráðsfundi ungra Sjálfstæðis- manna, staðið fyrir útgáfu á síðu í fslendingi, þar sem Varðarfé- lagar ræða áhugamál sín, farið í lengri og skemmri ferðir, og auk þess haldið fjölda félags- funda, kvöldvökur og aðrar sam- komur. zAldrei frá stofnun sinni hefur félagið talið stærri hluta akur- eyrskrar æsku innan vébanda sinni en í dag. Aldrei hefur fé- lagið heldur átt á að skipa jafn ötulli og dugmikilli sveit ungra áhugasamra Sjálfstæðismanna sem nú. Það er þvi fullvíst, að félagið mun ekki láta sitt eftir liggja í fjölþættum og gifturíkum störf- um á komandi árum, leggja hverju góðu máli lið og láta anda framfara og umbóta ráða störf- um sínum og stefnu í hvívetna. Það er von mín, að þegar „Vörður“ á hálfa öld að baki sér muni sú spá hafa ræzt, og félagið hafa markað sér enn dýpri spor í félagsmálasögu Sjálfstæðis- flokksins og Akureyrar. Grein Vipis Guðmundssonar Framh. af bls. 8 Margur ungur maðurinn hefir þar í fyrsta sinn stigið í ræðu- stól og hlotið undirstöðu þá, er síðar hefir fært hann að því marki að verða snjall ræðumað- ur. Undirstaða þess að fá hugðar- málum sínum framgengt er að geta flutt þau áheyrilega. Engir hafa gert sér þetta jafn ljóst og Sjálfstæðismenn. Enda gefur það auga leið. þar sem þeir flytja ekki mál sitt eftir gefnum forskrift- um. Þeir verða á hverjum tíma að marka stefnu mála sinna á grundvelli frelsishugsjónar sinn- ar. Aðra forskrift hafa þeir ekki. Enn er ógetið eins þáttar í starfsemi þessa félagsskapar. En það eru afskipti hans af stofnun félaga ungra Sjálfstæðismanna hér víðs vegar á Norðurlandi og forustuhlutverks þess, er hann hefir gegnt innan fjórðungssam- bands ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi. í þeim efnum ber fyrst og fremst að þakka þeim alþingismönnunum Jónasi G. Rafnar fráfarandi formanni S. U. N. og Magnúsi Jónssyni formanni S. U. S. Báðir hafa þeir unnið frábært starf í þágu þessara sam- taka og ávallt mun þeirra verða minnst í sögu félagsins sem ein- j hverra hinna ötulustu og farsæl- ustu forustumanna þess. Við minnumst nú tuttugu og fimm ára starfs þessa fjölmenn- asta stjórnmálafélags utan Reykjavíkur. Þessar linur hafa | ekki verið nein heildarmynd af sögu félagsins, heldur aðeins fá- : ar svipmyndir úr glæsilegri bar- áttusögu þess. Við minnumst þess, að í tuttugu og fimm ár hef- ir unga fólkið á Akureyri staðið vörð við dýrmætustu verðmæti þjóðmálabaráttu okkar íslend- inga, sjálfstæðisstefnuna. Stöð- ugt fjölgar þeim mönnum, er bera vilja stefnu þessa fram til sigurs. Það er ekki hvað minnst að þakka þeim mörgu ungu körlum og konum, sem lagt hafa stefnunni lið. í þeirri trú og með þá einu afmælisósk „Verði“ til hanða, höldum við sigurglaðir áfram baráttu okkar, að nú, sem jafnan áður, megum við enn vinna stefnunni ný lönd í hug- um þjóðarinnar, og að svo megi fara, að á grundvelli hennar einn Laust starf Ákveðið hefur verið að ráða húsameistara (arkitekt) að skipulagsdeild skrifstofunnar hér. Umsóknum sé skil- að til skrifstofunnar í Ingólfsstræti 5 fyrir 20. þ. m. Bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík Morgunblaðið með morguDkaííinu — l NÝJA BÍÓ: hinna póliíísku fiokka. Taka SÉRA CAMILLO OG KOMMÚNISTINN Nýja bíó sýnir nú bráðskemmti lega franska mynd: Séra Camillo og kommúnistinn, sem byggð er á skáldsögunni Heimur í hnot- skurn, sem kom út hér í ísl. þýð- ingu árið 1952, og er eftir ítalska rithöfundinn Giovanni Guareschi. Er myndin gerð eftir handriti Julien Duvivier’s og René Barja- vel og hefur Duvivier einnig haft á hendi leikstjórnina. Aðalhlutverkið í myndinni, séra Camillo, leikur hinn heims- allir þcrpsbúar meiri og minni þátt í þessum deilum og skifta þær mönnum í tvo fjandsamlega flokka, jafnvel á knattspyrnu- vellinum. En foringjarnir, —■ presturinn og borgarstjórinn gera oftast upp reikningana með bnrf- unum og hrósa þá sigri á víxl. Margt fleira skemmtilegt ber þarna á góma, svo sem eintal prestsins við Kristslíkneskið sem segir honum óspart til syndanna. Fernandel er frábær snillingur og svipbrigði hans og hreyfingr.r eru svo óumræðilega skringilcg- frægi og bráðsnjalli franski leik- i ar að það er dauður maður sem ari Farnandel en annað veiga- ekki hlær að honum. — Myndin mesta hlutverkið, Peppone, borg- ' í heild er prýðilega vel gerð cg arstjóra, — kommúnistann, leik- . full af skemmtilegum atvikum ur Gino Cervi, sem einnig er af- j og góðlátlegri kímni. Og auðvitað burðaleikari. Efni myndarinnar hefur Fransmaðurinn kryddaA verður hér ekki rakið, en hún hana sorgum og gleði ungra cg lýsir á fyndinn og skemmtilegan geðþekkra elskenda. hátt lífinu í smáþorpi í Ítalíu og j Það er gaman og hressandi að togstreytunni í bæjarmálum milli' sjá þessa mynd. Ego. GAMLA BÍÓ: QUO VADIS GAMLA BÍÓ sýnir um þessar mundir kvikmyndina, Quö Vadis, frá Metro Goidwin Meyer félag- inu. Myndin, sem er í eðlilegum litum, er gerð eftir hinni heims- frægu og stórbrotnu skáldsögu pólska rithöfundarins Henryks Sienkiewicz, sem margir hér munu kannast við. Hefur saga þessi verið kvikmynduð áður, og var sú mynd sýnd hér fyrir nokkr um áratugum. Handritið að þess- ari nýju mynd hafa samið John Lee Martin, S. N. Behrman og Sonya Levien, en tónlistin er eftir Niklos Rozsa. Hinn þekkti leikstjóri Mervyn LeRoy hefur sett leikinn á svið og annast alla leikstjórn, en auk þess var ráð- inn til myndatökunnar sérstakur sagnfræðilegur leiðbeinandi, Hugh Gray, til þess að tryggja það, að myndin bæri á sér réttan sögulegan blæ um búninga, vopn, húsagerð og annan útbúnað. Mynd þessi er sögð sú stórfeng- legasta og kostnaðarsamasta, sem nokkurn tíma hefur verið gerð, og er það ekki ótrúlegt eftir öll- um þeim mikla íburði og geisi- lega mannf jölda og mannvirkjum um sem bar er að sjá. Myndin gerist á dögum Neros keisara um 65 árum eftir Krist- burð. Sýnir hún hina geisilegu spillingu og hið taumlausa óhóf, er ríkti og þróaðist innan róm- verska heimsveldigins í skjóli nautnasjúkra og hálfvitskertra keisara og gæðinga þeirra, en náði hámarki sínu á valdatímum Nerós. Allt laut boði og banni þessa siðspilta mannhraks, er í senn var grimdarseggur og heig- u31. Réttaröryggi var ekkert til, en alþjóð manna var ofurseld geðþótta og dutlungum valdhaí- anna. Harðast kom þetta þó nið- ur á þeim, sem minnst máttu sín svo sem ánauðugir menn og ját- endur hinnar nýju trúar, kristn- innar. Er sá þáttur myndarinnar áhrifarikur og hrífandi er sýnir baráttu og þjáningu, en jafnframt festu og trúarþrek hins fyrsta kristna safnaðar í Rómaborg und ir forystu þeirra postulanna, Péturs og Páls. Leikstjórinn, Mervyn Le Roy, hefur með mynd þessari unnið stórkostlegt afrek. Öll múgatriðia í’i-amh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.