Morgunblaðið - 10.02.1954, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.02.1954, Blaðsíða 7
ii «n>■ ii•■■imtiiiiay~iivriyirn • w ii■«■ iiii•■■«■'■'■■ ■ iiiiiriiii■■ riiiiiii * W nmTiíiiTiiTmfeifivm*lswiTíTiíTiTTiTTíííffínii■■■ ■ írrfliKTffí11nriTnTTiiII'iiiTiím■vi'ifiTrTnnnJ Miðvikudagur 10. febrúar 1054 MORGVTSBLÁÐlh 1 ÚTSVÖR 1953 Vinbruggun er orðán ulgengrsxr heimilisiðnuður MorðmcinEim Hinn 1. febrúar var allra síðasti gjalddagi \ ■ álagðra útsvara til bæjarsjóðs Reykjavíkur ; árið 1953. j Atvinnurekendur og aðrir kaupgreiðendur, : sem hefir borið skylda til að halda eftir af : kaupi starfsmanna til útsvarsgrciðslu, eiu al- : ■ varlega minntir á að gera bæjargjaldkera full : skil nú þegar. : Að öðrum kosti verða útsvör starfsmanna : innheimt með lögtaki hjá kaupgreiðandanum : ■ sjálfum, án fleiri aðvarana : Reykjavík, 9. febrúar 1954. Borgarritarinn. •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■B ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■ I hn.aðarh.úsn.æhL ■ Til leigu er ca. 250 m2 iðnaðarhæð í húsi, sem er í bygg- : ■ , ■ ingu á góðum stað. Um nokkurra ára leigu gæti verið : ■ að ræða. Tilboð merkt: „Fyrirframgreiðsla“ —430, send- | ■ ■ ist blaðinu fyrir næstkomandi laugardag : Trésmiðafélag Reykjavíkur heldur fund sunnudaginn 14. febr. n. k. kl. 1,30 e. h. í Alþýðuhúsinu, gengið inn frá Hverfisgötu. DAGSKRÁ: 1. Rætt um lagabreytingar. 2. Önnur mál. Aríðandi að mæta stundvíslega. STJÓRNIN í f i ■ !* Kvensokkar úr ull eru nú aftur fyrirliggjandi. — Hagkvæmt verð. jf^ór^ur SueinínSon Cs? (Co. h^. Símar 3701 og 4401 Korlmannaiöt ■ saumum við eftir máli frá kr. 980.00. : ■ ■ Vönduð vinna — Nýtízku snið — Fljót afgreiðsla • ■ ■ ■ ■ Andersen & Sólbergs : Laugaveg 118 III. hæð. — Sími 7413 : Kjöthakkavél Rafknúin kjöthakkavél, óskast kcypt. Uppl. í síma 7661, eftir kl. 6 í dag og á morgun. EFTIR að sykurinn var gef- inn frjáls í Noregi haustið 1952 og verð á víni hækkaði nokkuð, hefur það orðið land- lægur siður í flestum héruðum Noregs að brugga landa. Slíkt er eftir norskum lögum afbrot, sem varðar fangelsisrefsingu. En nú er svo komið að allir Norðmenn viðurkenna að mjög erfitt er að hamla á móti þessum nýstárlega heimilisiðn aði af þvi að almenningsálitið lítur ekki á þennan verknað sem glæp. Hér fer á eftir at- hyglisverð grein úr sænska blaðinu Dagens Nyheter um bruggöldina í Noregi. Uppi í Buskerud-sveit situr Norðmaður einn. Þetta er maður á fertugsaldri, hann á eiginkonú. og börn og lifir hamingjusömu fjölskyldulífi. Hann er vel efnum búinn, búgarðurinn, sem hann á er svona þrjú hundruð þúsund norskra króna virði. Hann er í góðu áliti meðal fólks og fram til hausts hefur hann aldrei brotið lögin, fyrir utan að sjálfsögðu lögin, sem Quisling setti. En nú er hann allt í einu orðinn argasti lögbrjótur. — Hann bruggar sitt brennivín sjálfur. HIN SIÐFERÐILEGA HLIÐ En Jens Berg, en svo getum við kallað hann, hefur sjálfur sínar skoðanir á því hver er siðferði- lega hliðin á þessum málum. Hann segir: — Ég get ekki sætt mig við það að ríkið tolli áfengi svo gífur- lega, að það séu aðeins tveir tak- markaðir hópar manna, sem hafa ráð á því að greiða verðið hjá víneinkasölunni. — Hvaða hópar manna eru það, sem hafa ráð á því? — Það er í fyrsta lagi þeir, sem vita ekki aura sinna tal og í öðru lagi hreinir ofdrykkjumenn, sem eyða sínum síðasta eyri í vín, hvort sem þeir hafa ráð á því eða ekki. Við hinir höfum ekki pen- inga að kasta út til þess að fá okkur dálítinn glaðning. LITIÐ ÚT UM GLLGGANN Þannig er hugsanagangur Jens Bergs, þennan þriðjudag, þegar hann er einmitt önnum kafinn við að „spóla“ niðri í kjallara sínum. Og þannig var hugsanagangur hans haustið 1952, þegar sykurinn a ar gef- inn frjáls og þegar hann keypti sína síðustu flösku í búð víneinkasölunnar niðri í dalnum. Og hann er ekki einn um þessa skoðun. Úr glugg- anum í baðstofunni getur hann bent á átta aðra bóndabæi í hlíðunum fyrir neðan, þar sem góðir vinir hans hafa einnig hætt kaupum hjá víneinkasöl- unni og brugga sjálfir sitt vín. Innan sviga má bæta'því eið, að miklu fleiri eru þeir bæir í sveitinni, sem sjást ekki úr glugganum og á flestum þeirra er bruggað. Til að leiorétta allan misskiln- ing, þá er þessi sveit ekki fræg fyrir brugg. Meira að segja sýslu- aðurinn sagði nýlega svo margir heyrðu, að í þessari sveit væri hvergi bruggað. En Jens álítur að það sé bruggað á minnsta kosti 60% allra bæja í sýslunni. — Já, það er varlega áætlað, segir hann. FRÍSTUNDAIÐJA BÆNDA — En við bruggum aðeins til heimilisþarfa, segir hann. Og því aðeins er þetta mögulegt, því að strax og við færum að selja, er hætta á að lögreglan komist á snoðir um það. Og þó er það ekki aðeins áhættan, sem kemur til greina. Okkur finnst óviðeig- andi að gerast leynivínsalar, Eftir því sem maður brugg- ar lengur getur maður fengið hinn mesta áhuga á verkinu. I»að verður að „hobby“, sem maður unir sér við. Maður Sænska blaðið Dagsns HyheSer segir frá heimsókn iil bruggara í Buskerud Mynd þessa birtir sænska dagblaðið Dagens Nyheter af brugg- tækjum Jens Bergs. Segir blaðið að mörg hinna norsku tækja séu af fullkomnustu gerð. lærir að framleiða betri og betri vöru, nágrannarnir koma og segja frá uppfinningu, sem þeir hafa gert og þá reynir maður hana. Stundum kemur góður vinur í heimsókn. Hann dregur pyttlu úr rassvasanum og segir glaður í bragði að nú hafi hann hitt á nokkuð nýtt. Hann biður mann um að smakka og segja álít sitt á drykknum. — Nú skaltu ekki halda, að ég bruggi á hverjum degi, segir Jens Berg. Það geta liðið svo vikur og mánuðir að tækið mitt liggi ónotað í kassanum. Að sjálfsögðu gengur þá á birgðirnar á meðan og þá tek ég tækin fram aftur. Á mínu heimili er ekki að tala um misnotkun áfengis eða of- drykkju. Að visu drekk ég að- eins meira, en meðan ég varð að kaupa vínið rándýrt í áfengis- einkasölunni, en það fer ekkert út í öfgar. FULLKOMNUSTU TÆKI Eimingartæki Jens Bergs eru af fullkomnustu tegund. Það er góður vinur hans, efnafræðingur að menntun, sem hefur smíðað tækið og engan galla er að finna á vörunni, sem það framleiðir. Alkóhólmagn er 85%, en það er alltoí sterkt, svo að það verður að blanda það og kemur þá út gott borðbrennivín um það bil 50% af styrkleika. Tækið hefur Jens Berg í gangi að næturlagi, setur tækið upp um kvöldið. Það aluminium. Síðan setur hann er búið til úr eldföstu gleri og á meðan sefur hann sjálfur. Hann rafmagn í samband, fer að hátta og þegar hann vaknar um morg- uninn á hann 10 lítra af sterkum vínanda niðri í kjallaranum. Og þá tekur hann tækið aftur í sund úr Bruggið er í 9 tilfellum af 10 úr sykri. Það er blandað saman úr 50 lítrum af vatni, 10 kilóum af sykri og 1 kílói af geri. Úr þessu koma um það bil 10 pott- flöskur af brennivíni. Sykurinn og gerið kostar um 20 norskar krónur, en ætti maður að kaupa sama áfengismagn í einkasölunni, myndi það kosta 200 krónur. Og þó er alkóhólmagn heimabruggs- ins helmingi sterkara. FJÖLBREYTNI í IÐNAÐINUM Norðmenn nota nú geysilegan aragrúa af mismunandi eimingar- tækjum. Flest tækin eru að sjálf- sögðu smíðuð heima, en það er nú þegar opinbert leyndarmál að’ til eru stór verkstæði, sem fram- leiða bruggunartæki í stór- um stíl, sagt er að á einu þeirra starfi 10 manns. — Hafi maður bara hin réttu sambönd þá getur maður t. dL keypt hitavatnsdunk, sem lítur út eins og venjulegur dunkur á ytra borði, en í rauninni er hann ekk- ert annað en dulbúin eimingar- tæki. Önnur bruggtækjasmiðja hefur fyrir sérgrein að fela brugg tækin í stórum mjólkurbrúsum. Þeir líta sakleysislega út, en það þarf ekki annað en taka lokið af, setja rafmagnsþráð í samband og tengja tvær siöngur fyrir kæl- ingarvatnið. I Osló tók lögreglan nýlega fast an drukkinn mann. Þegar farið var að rannsaka hann kom í ljós að hann bar i frakkavasa sínum lítil færanleg eimingartæki. HAFA VERÐUR VARA Á Heimabruggið þróast sérstak- lega í sveitunum og smærri þorp- um. I bæjum og borgum er miklu örðugra um vik, því að séu tæk- in ekki fuilkomin, stafar frá þeim sérkennileg lykt, sem getué órðið til þess að kemst upp um vllt. Og jafnvelV þó maður hafi /yktarlaus tæki, þá getur maður ekki yíirstigið yatnskælinguna, en það vekur alltaf grunsemdir, ef vatn er látið renna heila nótt. I ----------------------- MARSEILLES, 4. febrúar — 'Ú-'anskur herréttur dæmdi til dauða 22 fyrrverandi Gestapo- menn. Aðeins tveir þeirra voru | viðstaddir. Hinir voru dæmdir í I fjarveru sinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.