Morgunblaðið - 17.03.1954, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.03.1954, Qupperneq 16
 Yeðurútii) í dag: SA kaldi. Skýjað. on ir stc índn 1 s knpu hrn un i mm rkoð WðiltttMðMfr 63. tbl. — Miðvikudaguc 17. marz 1954 Zahedi er öruggur í sessi í Persíu. Sjá grein á bls, 9. Stutt samtal við Elías Þorsteinsson formann S. IL (AÐ SEM af er þessu ári, hefur Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna selt meira magn af fiskiflökum vestur til Bandaríkjanna, en 3-okkurn tíma fyrr á jafnskömmum tíma. — Hafa íslenzk farmskip íhítt fimm skipsfarma til New York frá áramótum. Þessi hrað- írysti fiskur er verkaður sérstaklega fyrir Bandaríkjamarkað. — Hraðfrystihúsaeigendur binda miklar vonir við áframhaldandi jnarkað þar vestra. f Formaður stjórnar Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, Elías Þorsteinsson, skýrði Mbl. frá þessu í samtali í gærkvöldi. FISKURINN f ÍSHELLUM Elías Þorsteinsson skýrði blað- inu svo frá, að hinn frysti fiskur væri framleiddur fyrir Banda- ríkjamarkað með öðrum hætti en tíðkast hefði um hraðfrystingu fiskflaka til sölu erlendis. Þessi flök eru fryst í allstórum „hell- um“ 7, 12 eða 19 punda, síðan er búið um fiskinn í miklu ein- faldari pappaumbúðum en gert hefur verið. LÍKAR AFBRAGÐS VEL Vestur í Bandaríkjunum er íiskur þessi seldur beint til mat- eölustaðanna, en þar er fiskurinn tekinn úr íshellunni og mat- reiddur samstundis. Matsölu- gtaðir, sem eingöngu selja úr- vals fiskmeti, hafa slíkan fisk á boðstólum. Sölumiðstöðinni hafa borizt upplýsingar um að fiskur- inn liki hvarvetna afbragðs vel, svo sem vænta inátti um hrað- írystan ísl. fisk. Hér er um að ræða eingöngu þorskflök. Mjög erfiðlega hef- ur gengið á undanförnum ár- um að selja þorskflök í Banda- ríkjunum. Er hér því um mjög merkilegan áfanga að ræða í fisksölumálum íslendinga. EKKI STUNDARFYRIRRRIGÐl — Við höfuð ástæðu til að ætla, að hér sé ekki um að ræða Stundarfyrirbrigði, heldur geti hér verið um að ræða fiskmark- •að, sem fara muni vaxandi. Það «r staðreynd, að Bandaríkjamenn hafa á síðari árum aukið mjög fiskneyzlu sína, sagði Elías Þor- feteinsson. En fran#íðarmöguleikarnir fyr- ir öruggum markaði í Banda- ríkjunum, eru mjög undir okkur sjálfum komnir hversu okkur tekst til við vöruvöndunina. Eldur í húsimi Crettisgata 52 í GÆRDAG kom upp eldur í kjallara hússins Grettisgötu 52. — Var verið að þvo þar þvott í kolakynntum þvottapotti sem kviknaði í útfrá. — Nokkrar skemmdir urðu í kjallaranum og var slökkviliðið um það bil klukkustund að fást við eldinn. Læknaskipii á Skapströnd SKAGASTRÖND 16. marz: — Halldór Arinbjarnar, læknir, sem hefur sinnt læknisstörfum hér í rúmlega eitt ár, er nú á förum héðan til Danmerkur, um mán- aðarmótin. Annar læknir er tek- inn við hér og er það Björn Þórð- arson, en hann hefur áður verið læknir hjá Hamiltonfélaginu í Keflavík. Undanfarnar vikur hefur verið afbragðs líð hér og hafa bátar verið á sjó. Afli hefur verið all- góður og hafa trillubátar verið með um 1 tonn í róðri. Bátarnir hafa beitt loðnu síðustu dagana, en hana fá þeir frá Sauðárkróki. — Jón. Afliiin glæddkt á ný í gær UNDANFARNA daga hefur afli bátanna úr verstöðvum hér við Faxaflóa, á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum, yfirleitt verið mjög tregur. — Hafa Reykjavík- urbátar t. d. verið með aðeins 3—4 tonn. í gærkvöldi símaði fréttaritari Mbl. í Kefiavík, að þá um daginn hefði aflinn skyndilega glæðst mjög á ný. — Einn bátanna, Dux, var með milli 17—-20 tonn. — Almennt var afli Keflavíkurbáta um 10 tonn og allmargir með 15 tonn. á mánudagskvöldið EINS og skýrt var frá í blaðinu í gær, var fundi Varðar, sem haldinn var s.l. mánudagskvöld um áfengislagafrumvarpið, ekki lokið, er blaðið fór í prentun. Auk þeirra, er áður hefir verið getið urh, tóku þessir til máls á fundinum: Brynleifur Tobiasson, yfirkennari, Sigurður Pétursson gerlafræðingur, Hannes Jónsson, verkamaður og Ludvig C. Magn- ússon, skrifstofustjóri. Skáksvest Vestmannaeyja Þetta er skáksveit Vestmannaeyja, sem nýlega gekk með sigur af hólmi í skákeinvígi við Hafnarfjörð, hér í Morgunblaðinu. — Skákmennirnir eru taldir frá vinstri: Karl Sigurhansson, Vigfús Ólafsson, Árni Stefánsson og Sigurjón Karl Ólafsson. ni loftleiia SAS óitasi einnig að iélagið kimni að fá leyfi á Austurlandaleiðinni. OEM KUNNUGT er af fregnum frá fréttaritara Mbl. í Kaup- ^ mannahöfn, hefur mikill ótti gripið um sig í aðalbækistöðvum hins skandinaviska flugfélags SAS, vegna samkeppninnar við flugfélagið Loftleiðir. í öðrum blaðafregnum segir einnig frá því, að SAS og hið ameríska stór-flugfélag Pan American Airways, hafi farið í hár saman vegna væntanlegrar flugleiðar milli Skandinavíu og Ameríku, um Norðurpólinn. Háfíðahöld KR: í kvöld bændaglíma og hnefaleikar í KVÖLD halda glímumenn K.R. tipp á afmæli félagsins með því að hafa glímusýningu og bænda- glímu. Við setningarhátíðina á sunnu- daginn sýndu nokkrir glímumenn úr félaginu glímu og sýndi sú sýning að K.R. á ágæta glímu- menn. Á eftir glímunni verður hnefa- leikasýning, er það Hnefaleika- deild KR. sem þar sýnir og eins og kunnugt er á K.R. marga góða Jmefaleikamenn. Fer þetta frám í íþróttaskála íélagsins við Kaplaskjólsveg. tonn af fiski til og Ifússlands í vor Aískipunum upp í samninga þá lokið FEIKNMIKLAR afskipanir á hraðfrystum fiski til Rússlands og annara Austur-Evrópulanda hafa farið fram að undanförnu og standa fyrir dyrum. Mun Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna ljúka fisksendingum til þessara landa, samkvæmt gerðum samningum, fyrir sumarið. PAA og SAS TAKAST Á . -,a Hið skandinaviska félag hef- Molmæla Ii3ísafnaði,rngl“ væntanlegu flugleið, ená biðlista hjá félaginu eru nú 10,000 far- þegar og er það reiðubúið að hefja þessar ferðir þegar í stað.1 — Pan American Airways gerir allt, sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að leyfi fá- ist fyrir Los Angeles sem enda-1 stöð. Hið ameríska félag er ekki enn undir það búið að hefja sam- 1 keppni á þessari flugleið, við SAS. AMMAN, 16. marz. — Stjórn Jórdaníu hefur mótmælt því að ísraelsmenn hafa safnað miklu herliði við jórdönsku landamær- in. Segja Jórdaníumenn að Gyð- ingar geri þetta til að ógna ná- grannaríki sínu til að fallast á tillögur Sameinuðu þjóðanna um skiptingu landsins. 11000 TONN TIL RUSSLANDS I viðskiptasamningunum við Rússland, var gert ráð fyrir sölu á 11000 tonnum af hraðfrystum fiski á fyrstu 3—4 mánuðum þessa árs. — Nú munu vera kom- in til Rússlands um 6000 tonn. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna gerir ráð fyrir, að það sem nú ávantar, um 5000 tonn, verði kom in til Rússlands í lok aprílmánað- ar. TÉKKAR KAUPA 3200 TONN Um líkt leyti mun verða lokið við að senda til Tékkóslóvakíu um 2400 tonn af fiskflökum. Von- ir standa til að bráðlega takist samningar við Tékka um kaup á 800 tonnum að auki, sem einnig verða send þangað fyrir vorið. EKKI FREKARI SÖLUR í BILI Eins og stendur eru ekki fyrir- liggjandi frekari fisksölur til Rússlands eða annara Austur- Evrópulanda. En vonandi verður þess ekki langt að bíða, að áfram haldandi viðskipti verði tekin upp. Að lokum er svo þess að geta, að Ungverjar hafa fyrir nokkru fest kaup á 350 tonnum af hrað- frystum fiski. TIL ÍSRAEL I næsta mánuði verða seld til fsrael um 750 tonn af frystum flökum. Ýmsir erfiðleikar eru ú viðskiptum við ísrael og eins og stendur óvíst um hvernig áfram- haldandi viðskiptum verður háttað. BAÐIR SÆKJA AÐ LOFTLEIÐUM í norska blaðinu „Bergen Tidende“, segir frá þessu, en blaðið getur þess og að hinn sameiginlegi óvinur fyrrnefndra tveggja félaga sé hið íslenzka flugfélag Loftleiðir, sem haldi uppi ferðum yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna fyrir lægra verð en önnur flugfélög, sem eru inn- an vébanda flugmálastofnunar- innar IATA. — Hafa bæði félög- in borið fram mótmæli við Banda ríkjastjórn, og kröfu um að fé- lagið fái ekki leyfi til slíkrar samkeppni við önnur félög. Hið norska blað ræðir nokkuð þetta atriði og telur að um sé að ræða atriði í landvanrarsamn- ingi íslands og Bandaríkjanna, sem erfitt verði að fást við. — Slikt er þó algjör misskilningur. Að lokum segir blaðið frá því að forráðamenn SAS óttist mjög að íslendingar kunni að fá leyfi til farþegaflugs á Austurlanda- leiðinni til Tokíó. SJÓNARMIÐ LOFTLEIÐA Stjórnendur Loftleiða h.f. hafa skýrt Morgunblaðinu svo frá i þessu sambandi að þeim sé ó- kunnugt um aðgerðir SAS í þessu efni. Millirikjasamningur hefur verið gerður um loftflutninga af islenzkum stjórnarvöldum og bandariskum, og samkvæmt hon- um hefir Loftleiðir fengið leyfi til áætlunarflugs til Bandarikj- anna. i framhaldi af samningn- um var Loftleiðir útnefnt til að halda uppi ferðum milli íslands og Bandaríkjanna, en af bandar- ískri hálfu fyrst AOA, en síðar PAA, sem keypti hið fyrnefnda félag. - Fargjöld Loftleiða voru samþykkt af flugráði Bandaríkj- anna, og væntanlega myndi PAA njóta sama réttar, ef það félag notaði „Skymaster-flugvélar“ til þessara ferða. Hinsvegar verður ekki séð, að SAS sé aðili þessa máls, og dregur stjórn Loftleiða í efa, að það félag geti talað í nafni ameriskra flugfélaga. SAS heldur ekki uppi ferðura milli Reykjavíkur og New York. Rétt er jafnframt að vekja athygli á, að Loftleiðir fljúga með IATA- milli íslands og Norður-Erópu, og hefur SAS væntanlega ekki við það að athuga. Mikil hrlfning á tón- leikum Sinfóníu- r SINFÓNÍUHLJÓMSVEITIN hélt tónleika í Þjóðleikhúsinu í gær- kvöldi fyrir fullu húsi áheyr- enda og gífurlegum fögnuði. — Stjórnandi var Olav Kielland, en einleikari Árni Kristjánsson. Lék hljómsveitin fyrst sinfónín nr. 6 í F-dúr, op 68 eftir Beethoven, Og þar næst píanókonesrt nr. 4 í G- dúr, op. 58. Lék Árni Kiistjáns- son einleik í þeim konser t. Var honum ákaft fagnað af áheyrend- um, enda að verðleikum. Barst honum og stjórnandanum Olav Kielland, blóm að lokum. Næstu tónleikar Sinfóníuhljóra sveitarinnar verða væntanlega haldnir í Þjóðleikhúsinu þriðju- daginn 6. apríl næstkomandi. — Stjórnandi verður þá Olav Kiel- land, en einleikari Einar Vigfús- son, sem er fyrsti cellóleikarj hljómsveitarinnar. Meðal við- fangsefna þá, verður cellókonsert eftir Saint-Saens Og sinfónía nr. 5 í e-moll, op. 64 eftir Tschai- kowskyL ___

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.