Morgunblaðið - 24.03.1954, Blaðsíða 1
16 síður
41. árgangur.
69. tbl. — Miðvikudagur 24. marz 1954
Prentsmiðj* Margunblaðsina
Skattafrumvarp ríkisstjórnarinuar
Lækkun á sköttuan persónulegra gjaldenda
nemur til jafnaðar 29%
Mænveikin sigruð
Bsndiríkjwnn finna bóíuefni
sem yera menn ónæma ævilangt
IJRÁ Bandaríkjunum berast nú fregnir af mjög stórkostlegri upp-
götvun í læknavísindum. Þykir nú ljóst eftir víðtækar tilraunir i
í vírus-rannsóknarstofunni í Pittsburg að fundið er bólusetningar- til jafnaðar verði lækkunin 29% að því er skatta af tekjum snertir hjá persónuleguni
efni, sem mun sigra mænuveikina. Það er bandaríski vísindamað- skattgreiðendum. Hjá félögum verður skattalækkunin 20%.
urinn dr. Jonas E. Salk, sem á mestan heiðurinn af þessum sigri
Skattfrelsi sparifjár. — Sér skatt-
stigi hjóna — Fríðindi f yrir sjómenn
¥ GÆR voru lögð fram á Alþingi tvö stjórnarfrumvörp. — Annað fjallar um breytingu á
1 lögum um tekju- og eignarskatt, hitt um breytingu á útsvarslögunum. Frumvörp þessi
miða að verulegri skattalækkun fyrir alla, skattgreiðendur. Gerir Skattstofan ráð fyrir að
ÓNÆMIR ALLA ÆVI
Rannsóknir hafa staðið yfir í
mörg ár og sýna nú síðustu til-
raunir, sem voru framkvæmdar
á börnum, að fullkomið bóluefni
er fundið, sem gerir menn ónæma
gegn öllum þremur tegundum
mænuveiki. Verkar bóluefnið svo
vel að allar líkur benda til að
Mólmæltu kúgun karlmanna
og sveltu sig í 9 daga
Nílardæfur og hinn lagri foringi þeirra
báru sigur a! hólmi
Kairo 23. marz.
NÍLARDÆTUR hafa nú ákveðið að hætta hungurverkfalli sínu
eftir að Nagíb forseti sendi forustukonu þeirra, Doriu Shafik,
tilkynningu, þar sem hann tók vel í að greiða fyrir því að konur
fengju fullt jafnrétti á við karla í Egj'ptalandi. Hét Nagíb að leggja
tillögu þess efnis fyrir stjórnmálanefndina, sem nú hefur til með-
ferðar að semja ný kosningalög fyrir landið. Konurnar voru aðfram
komnar af matarskorti, er orðsending Nagíbs barst þeim.
Það var egypzka kvennrétt- sem hún kvaðst mundu svelta
indakonan frú Doria ShafikJ sig, þar til annaðhvort gerðist
Dr. Jonas E. Salk
ein bólusetning geri menn ónæma
til æviloka.
VELDUP. MYNDUN
MÓTEITUES
Mænuveikin hefur verið einn
ægilegasti sjúkdómurinn, sem
þjáð hefur mannkynið og fengu
*Yainfi á bU 2
sem hóf hungurverkfallið eft-
ir að síjórnlaganefnd skýrði
frá því að konur skyldu ekki
fá að gegna opinberum störf-
um. Þá lagði nefndin til að
konur skyldu fá kosningarétt,
en ekki sjálfkrafa, heldur því
aðeins að þær létu færa sig
inn á kjörskrá.
Þetta töldu kvenréttindakonur
algerlega ófullnægjandi. Doria
Shafik, sem er mjög fögur kona,
35 ára að aldri, tveggja barna
móðir, rithöfundur, blaðakona og
formaður „Nílardætra", ákvað
að svelta sig til þess að fram-
^fylgja kröfum um fullt jafn-
rétti.
HUNGUR ÞAR TIL
YFIR LÝKUR
Hún gaf út tilkynningu, þar
Aukið fluglið væuftan-
legt til Indo-Kínu
Saigon 23. marz. Frá Reutei.
CJTÓRSKOTAHRÍÐ kommúnista á virkisbæinn Dien Bien Phu
linnti nú mjög í dag. Það er samt ekki talið tákn þess að þeir
séu að gefa upp umsátina um borgina, heldur þykir það þvert á
móti benda til þess að þeir vilji nú spara skotfærin, áður en þeir
hefja lokaatlögu að borginni.
AUKIÐ FLUGLIÐ j viðhalds flugvélanna, en franskir
Bandaríkjamenn hafa nú á- flugmenn fljúga þeim.
kveðið að senda Frökkum all- Orðrómur gengur nú um það
margar sprengjuflugvélar af með í Indó-Kína að kommúnistar hafi
alstærð til viðbótar þeim, sem! fengið þrýstiloftsorustuflugvélar
þegar eru í Indó-Kína. Hafa þær af rússneskri gerð frá Kínverj-
reynzt vel undanfarna daga í því
að hefta áhlaup kommúnista. —
Bandaríkjamenn hafa einnig
um. Lítur herstjórn Frakka mjög
alvarlega á það mál og telur að
ef slíkt kæmi fyrir, væri það bein
sent vélvirkja til Indó-Kína til íhlutun Kínverja í styrjöldinni.
að hún dæi, eða konum yrði
veitt jafnrétti. Egypzkar konur
hafa þegar sýnt það að þær eru
færar um að gegna störfum sem
lögfræðingar, læknar og blaða-
menn. Og bændakonur, sem
strita allan liðlangan daginn úti
á ökrunum eða við erfið heimilis-
störf, hafa engu minni rétt en
karlmenn til að krefjast að þeim
sé fullur sómi sýndur.
KÚGUN KARLMANNA
Einnig minntist hún á von-
brigði egypzkra kvenna yfir
því að karlmennirnir skyldu
enn einu sinni ætla sér að
sitja yfir rétti kvenna. — Þeg-
ar Farúk var steypt af stóli
BVatnh á bls 2
Frú Doria Shafik
Frumvörp þessi er árangur langrar og sleitulausrar baráttu
Sjálfstæðisflokksins. Þau eru aðeins áfangi á leiðinni til
einfaldara skattgreiðslufyrirkomulags og lægri skatta. Það
var árið 1952 sem Sjálfstæðismenn á Alþingi kröfðust þess
að skattalögin yrðu endurskoðuð. Eitt af skilyrðum Sjálf-
stæðismanna við málefnasamning ríkisstjórnarinnar var að
lokið yrði þessum þætti endurskoðunarinnar á þessu þingi
og að skattalækkunin næmi ekki minna en 20%.
Eftir eru óendurskoðaðir kaflarnir um félögin og framkvæmda-
kaflinn. Samkomulag náðist ekki um félagakaflann vegna þess að
Framsóknarflokkurinn vill ekki að öll félög hafi sama rétt. Fram-
kvæmdakaflann er ekki hægt að endurskoða fyrr en endurskoðun
félagakaflans er lokið, en þá kemur til greina að saméina skatta
og útsvör, svo greiðandinn greiði aðeins á einn stað og þá jafnóðum
af kaupi sínu.
Þeir, sem lækkunar njóta fyrst
og fremst, er fjölskyldufólk og
því meiri lækkunar sem ómagar
eru fleiri, hjón, sem stofna heim-
ili, fiskimenn, fólk, sem þarf
að leita atvinnu lengra til, þeir,
sem verja nokkru af tekjum sín-
um til að tryggja sér eða sínum
lífeyri og fólk, sem með sparnaði
leggur til fé handa bönkum og
sparisjóðum í útlán. Ekki er unnt
að gera ítarlega grein fyrir ný-
mælum frumvarpsins, en Gísli
Jónsson, forseti ED, mun skýra
það á Varðarfundi á morgun. —
Hér skulu þó rakin helztu ný-
mælin:
• Einn skattur kemur nú í stað
þriggja áður — tekjuskatts,
tekjuskattsviðauka og stríðs-
gróðaskatts.
• Gert er ráð fyrir sérstökum
skattstiga fyrir einstaklinga.
Þeir, sem notið hafa umreikn-
ingsins að fullu munu áfram
greiða svipaðan skatt og áð-
ur. Hinir fá lækkun, sem
ekki hafa notið umreiknings
að fullu og þannig er leiðrétt
misræmi, sem orðið hefur
vegna verðlagsbreytinga.
• Gerður er sérstakur skattstigi
fyrir hjón, en ekki farið út á
þá leið að skattleggja hjón
hvort í sínu lagi, — Persónu-
frádráttur er stórlega hækk-
aður. Verður hann fyrir hjón
12000 kr. í stað 8260 kr. Frá-
dráttur fyrir hvert barn verð-
ur 4500 kr. í stað 3213 kr. —
Persónufrádráttur einstakl-
inga verður 6500 kr. í stað
4131 kr.
• Skattur barnlausra hjóna verð
ur því þessi:
Af 15000 kr. engin skattur
Af 25000 kr. 280 kr. áður 385
Af 40000 kr. 1320 kr. áður 1652
Af 50000 kr. 1760 kr. áður 2188
Af 80000 kr. 7210 kr. áður 10821
Vinni kona úti má draga frá
allt að 6000 kr., ef hún kaupir
heimilisaðstoð.
Skattstigi hjóna með 2
er þannig:
börn
Af 20000 kr. ekkert
Af 40000 kr. 520 áður 826
Af 50000 kr. 1050 áður 1523
Af 70000 kr. 3060 áður 5441
Af 80000 kr. 5010 áður 9483
Sparifé er gert skattfrjálst og
útsvarsfrjálst svo og vextir af
sparifé. — Lagt er til að mjög
verði rýmkuð heimild til að
draga frá tekjum iðgjöld
vegna ólögboðinna lífeyris-
trygginga.
Hjón, sem byrja búskap mega
draga frá tekjum sínum 12000
krónur það ár, sem þau ganga
í hjónaband.
Maður, sem leigir húsnæði
dýrara en samskonar húsnæði
er metiði í eigin íbúð, má
draga frá skattskyldum tekj-
um helming mismunarins, þó
aldrei meira en 600 kr. fyrir
hvern fjölskyldumann.
Sölugróði af fasteign seld
innan 5 ára er ekki skatt-
skyldur, ef samskonar eign er
keypt innan 1 árs eða byggð
innan 2 ára.
Ferðakostnaður vegna at-
vinnuleitar eða atvinnu er
frádráttarhæfur.
Börn mega telja fram sem
sjálfstæðir skattgreiðendur, ef
þau hafa meiri tekjur en per-
sónufrádráttur þeirra nemur.
Jarðræktarstyrkur ríkisins er
undanþeginn skatti.
Félög eru skattskyld sem áð-
ur, en að því búnu veittur
20% afsláttur af skattinum.
Sjómenn á fiskiskipum fá
rétt til að draga frá tekjum
fæðiskostnað, ef þeir leggja
sér fæðið til. Sjómenn á bát-
um mega draga frá tekjum
sínum 200 kr. mánaðarlega
vegna hlífðarfatakaupa en
togarasjómenn 300 krónur á
mánuði.
Helmingur björgunarlauna til
Framh. á bls. 2.