Morgunblaðið - 24.03.1954, Blaðsíða 12
%2
MORGUISBLAÐIB
MiS> ikudagur 24. 'narz 1954
Biskup Islands berast
kveðjur erlendis irá
HERRA Ásmundi Guðmundssyni biskupi íslands hafa enn borizc
fjöldi kveðja og árnaðaróska í tilefni þess að hann var kjörinn
biskup. Meðal kveðja, sem honum hafa borizt nýlega eru:
FRA
ALHEIMS-KIRKJURÁBINU
Ég óska að senda yður beztu
óskir Alheims-kirkjuráðsins í til-
efni þess að þér voruð valinn
biskup íslands og vildi ég mega
vænta þess að náið samband og
vinátta megi komast á milli yðar
og kirkjuráðsins.
í bréfinu er síðan minnzt sér-
staklega á það að koma á nán-
ari samskiptum milli íslenzkrar
kristilegrar æsku og erlendrar og
er m. a. minnzt á það að svo
kunni að fara að erlend kristileg
æskulýðsfélög kunni í náinni
ftamtíð að efna til ferða til ís-
lands.
Bréfið er undirritað af W. A.
Vissert Hooft framkvæmdastjóra
Alheims-kirkjuráðsins.
FRÁ ALHEIMSSAMBANDI
LÚTERSTRÚ ARM ANN A:
Sambandið vill hér með senda
yður innilegustu árnaðaróskir í
tilefni þess að þér voruð kjörinn
biskup íslands. Sendum vér yður
hamingjuóskir fyrir hönd þess 51
kirkjufélags, sem er aðili að sam-
bandinu. Bræðralagsband yðar
við Aiheims-sáttmála Lúterstrú-
armanna og síðan 1947 við Al-
heims-samband Lúterstrúar-
manna hefur verið mikilsvert
fyrir málstað Lúterstrúarinnar.
Það er bæn vor, að Guð megi
blessa yður í embætti sem biskup
íslands. Vér vonum ennfremur að
bræðralagsböndin milli yðar og
annarra kirkjufélaga í Alheims-
sambandi Lúterstrúarmanna
megi styrkjast.
— Áfengismálið
Framh. af bls. 2.
ir því sé að finna í því, hvernig
aldarandinn er.
Gegn þessu dugir aðeins eitt
þ. e. sterkt almenningsálit er
fyrirlítur og fordæmir alla
misnotkun áfengis. Slíkt al-
menningsálit verður ekki vak-
ið nema með sterkri þjóðlegri
hreyfingu — og ef af henni
yrði þyrfti ekki að setja flókin
lagaákvæði um þessi mál.
DRYKKJUSKÓLI UNGLINGA
Pétur Ottesen kvað vín hættu-
legan hlut og vínnautn þjóð-
félagslega ógæfu. Reynslan sýn-
ir að mikill hluti þjóðarinnar fer
þannig með vín að ógæfa stafar
af.
Pétur fór lofsamlegum orðum
um Góðtemplararegluna og starfs
menn hennar, sem hann sagði að
hefðu helgað lífskrafta sina því
starfi að hjálpa þeim er afengið
knésetti.
Pétur kvað vínveitingar á
veitingahúsum vera diykkju-
skóla ungs fólks og því legði
Hann til að 12 grein frurnvarps-
ihs um vínveitingar á veitinga-
húsum yrði felld niður. — Kvaðst
Pétur vona að Alþingi bæri gæfu
til þess að fara að ráðum Góð-
templarareglunnar.
HERÐA VERÐUR EFTIRLIT
Síðastur talaði Magnús Jóns-
son. Hann ítrekaði þau ummæli
Björns Ólafssonar framsögu-
manns nefndarinnar um að hér
væri fjallað um hvernig haga
skyldi sölu áfengis, en ekki það
hvort vín ætti að leyfa í land-
inu eða ekki. Kvað hann ekki
hægt að banna vínveitingar á
veitingahúsum, en um þær yrði
að gera skýrar og strangar regl-
ur og tryggja það að þeim yrði
framfylgt. Samfara því að sala
áfengis er gerð frjálsari verður
að efla áfengisvarnir.
Ræddi hann siðan nokkuð um
sterkt öl og lagðist mjög gegn
framkominni tillögu um heimild
til að framleiða það.
Umræðum var síðan frestað.
Undirritað af Carl E.
Quist.
Lund-
FRA HINNI
SAMEINUÐU LÚTERSKIRKJU
BANDARÍKJANNA
Vér sendum yður bróðurlegar
kveðjur í nafni Jesú Krists. —
Fregnirnar af kjöri yðar til bisk-
ups íslands hafa borizt okkur til
Ameríku og gleður það vini yðar.
Ég minnist þeirra viðburðaríku
og vinátturíku daga, er við sátum
saman fyrir nokkrum árum ís-
lenzka kirkjuþingið í Winnipeg.
Með þær minningar í huga, verða
kveðjur mínar þeim mun hjart-
anlegri.
Með bróðurlegri kveðju.
Franklin Clark Frey.
Aðallundur Hlífar
í Hafnarfirðf
HAFNARFIRÐI. — Aðalfundur
Verkamannafélagsins Hlífar var
haldinn síðastliðinn sunnudag. —
Á fundinum var skýrt frá stjórn-
arkjöri, og voru eftirtaldir menn
kosnir í stjórnina: Hermann Guð-
mundsson formaður, Marteinn
Marteinsson ritari, Sigurður Guð-
mundsson gjaldkeri. — Þeir Þor-
steinn Auðunsson, Bjarni Erlends
son og Sigurður Einarsson, sem
allir hafa átt sæti í stjórn Hlífar
um langt árabil, báðust eindregið
undan endurkosningu.
Ýmsar lagabreytingar voru
samþykktar, m. a. að allsherjar-
atkvæðagreiðsla skuli viðhöfð
um kjör stjórnar.
Geta má þess, að í ráði er að
árshátíð Hlífar verði haldin laug-
ardaginn 3. apríl næstkomandi.
— G. E.
Ární Pálsson bygg-
ingemeislari 50 ára
FIMMTUGUR er í dag Arni Páls-
son, byggingameistari Vífilsgötu
5 hér í bæ. Hann er fæddur á
Seyðisfirði 24. marz 1904, sonur
hjónanna Guðrúnar Erlendsdótt-
ur og Páls Árnasonar sem lengi
var útgerðarmaður þar. Árni
sleit barnsskónum á Seyðisfirði
utan þess að ungur stundaði hann
nám við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar, byrjaði hann að nema tré-
smíðaiðn þar á Seyðisfirði, og
lauk því hér í Reykjavík kring-
um 1930. Síðan hefur Árni óslitið
unnið við húsabyggingar, bæði
stórar og smáar og eru það nú
eigi allfá hús, sem hann hefur
reist hér í bæ.
I dag sendum við vinir hans
og kunningjar honum, konu hans
frú Þóru Eiríksdóttir og börnum
þeirra hlýjar kveðjur, og vænt-
um þess að hans megi njóta vel
og lengi. Og ennfremur að hann
megi oft njóta þeirrar ánægju, í
sumarfríum sínum, hér eftir sem
hingað til, að standa við vötnin
ströng, með veiðistöngina sína.
Steingr. Þórðarson.
X liEZT AÐ AUGIASA X
T í MORGUmLAÐITSU T
PAPPIRSSERVIETTDR
hvítar, nýkomnar.
^Qaeut ^JJrióti
CjanóioLi
Co. Lf.
ADALFUMDUS
Náttúrulækningafélags Reykj avíkur
verður í húsi Guðspekifélagsins, Ingólfsstræti 22,
fimmtudaginn 25. marz kl. 20,30.
D a g s k r á :
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Þorscafé
DANSLEIKUR
að Þórscafé í kvöld kl 9.
Björn R. Einarsson og hljómsveit.
Sigrún Jónsdóttir syngur.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7.
TOIEETTPAPPIR
Fyrirliggjandi.
clcfCj-ert ~JJriótjánóóoi% CsC (Jo. h.j.
N ý k o m i ð
enskor dragtir
í fjölbreyttu úrvali.
3Mu,- /,./
Laugavegi 116
Austurstradi 6
Nýkomið
Enskar kápur
GULLFOSS
Aðalstræti
CXD M A R K Ú * MRto H ftwi'
1) — Þetta er Finnur bruna-
málafulltrúi.
— Komið þér sælar, ungfrú
Gyða.
2) — Ég hef ti] rannsóknar
hvernig eldurinn kom upp í hest-
húsinu. Hafið þér nokkra hug-
mynd um eldsupptökin?
— Það er svo ægilegt að hugsa
um það, en....
3‘ Haidið þér áfyam, við
verðum : ' fa allar upplýsingar.
— Sú ema, sem var þarna nær-
stödd var Hanna Vilhjálmsdóttir.
4) — Haldið þér þá að Hanna
hafi kveikt í hesthúsinu?
— Ég veit það ekki, þó trúi ég
því tæplega.