Morgunblaðið - 25.03.1954, Síða 9

Morgunblaðið - 25.03.1954, Síða 9
Fimmtudagur 25. marz 1954 MORGUNBLAÐIÐ 9 Hver er Billy Braham? FYRIR skömsnu bírtisi hér í blaðinu fréttabréf frá London, ritað af hr. Karli Strand, lækni. í bréfinu var lítillega minnst á ameríska vakningaprédik- arann Billy Graham, sem kom til London í byrjun þessa mánaðar, til þess að halda þar kristilegar samkomnr. Það er ljóst af grein læknis- ins, að Billy Graham hefur vakið töluverða athygli í London, en hún gcfur að öðru leyti mjög ófullkomnar hug- myndir um þennan merka prédikara, sem nú er að verða heimskunnur. Fyrir þá, sem kynnu að vilja kynnast honum nánar og starfi hans er bent á grein sem birt- ist í marz hefti enska tímarits- ins: „The World Christian Ðigest“, og fer hún hér á eft- ir í lauslegri þýðingu. Ó. J. Þ. ÞAR sem milljónir Lundúnabúa , hafa veitt þvi athygli, að hér í borg eru nú haldnar trúmála- samkomur í stærri stíl en áður hefur þekkzt og eru kenndar við Billy Graham, er eðlilegt að menn almennt spyrji: „Hver er þessi Billy Graham?" Svarið er blátt áfram, Billy Graham er í dag þekktasti vakn- ingaprédikari Ameríku og þótt leitað sé um víða veröld. í borg eftir borg hafa samkomur hans dregið að sér fleiri áheyrendur en dæmi eru til um trúarlegar samkomur. Hann er þjóðkunnur maður og áhrifamikill, þegar hann kemur fram í útvarpi og sjónvarpi, sem hann gerir að jafnaði vikulega, er talið að um 18 milljónir manna hlusti á dag- skrárþætti hans. Þótt hann sé ennþá ungur maður, eða aðeins 35 ára, er hann talinn meðal mestu vakningaprédikara heims- ins. Frásagnir um samkomur hans minna helzt á hinar slá- andi sögur um þá Wesiey og Whitefield, Moody og Spurgeon. En fólk vill gjarnan vita eitt- hvað um þennan áhrifamikla unga mann. „Áhrifamikill“ ér ekki of sterkt orð, þegar þess er gætt, hve mikið hann hefur gert á stuttum tíma. Hann útskrifaðist úr Wheaton College fyrir tæpum 10 árum, en þó hefur hann þegar starfað sem prestur Og skólastjóri og umferð- arprédikari, er skipað hefur hon- um á bekk með merkustu kristnu áhrifamönnum allra tíma. Billy Graham ólst upp á bænda býli í Suðurríkjum Bandaríkj- anna, á kristnu heimili, samt var það ekki fýrr en hann var 16 ára, að hann tók þá ákvörðun að ganga Kristi á hönd. Með skólabróður sínum og vini Grady Wilson, sem nú er að- stoðarprédikari hans, sótti hann ©itt sinn samkomur, þar sem ræðumaðurinn virtist aiveg sér- staklega beina orðum sínum til þeirra. Þeir vildu gjarnan kom- ast undar. hinu skarpa augna- ráði hans, en þeim tókst það ekki, og áður en þeir vissu af voru þeir komnir á fremsta bekk, meðal þeirra, sem leituðu full- vissu í trúnni. Móðir Billys vonaðist nú eftir að hann gerðist prédikari, en hugur hans stefndi í aðrar áttir, hann ætlaði að leita sér frama sem baseball-leikari. Með þetta fyrir augum yfirgaf hann Bob Jones háskólann eftir eitt misseri og tók að stunda nám við Trinity College í Tampa á Elórída, því þar hugðist hann fá betn tæki- færi til þess að iðka baseball. „Maðurinn ráðgerir, en Guð ræður“ í stað þess að vera boðið að vera með i baseball-liði há- skólans, var h<jnum boðið að taka þátt i trúmálasamkomum í Tampa. Og nú sá hann fyrir alvöru, hvað honum var ætlað og síðan hefur hann verið trúr þessari köllun sinni. Billy Graham ræðir við Eisenhower forseta Eftir að hafa lokið fyrri hluta prófi 1941 hélt hann áfram námi við Wheaton College, þar sem hann kynntist úngfrú Ruth Bell, dóttur læknis og kristniboða, en hann hafði dvalið í Kína fyrstu 18 ár ævi sinnar. Þau luku bæði námi í Wheaton og giftu sig skömmu síðar. Hann hlaut prestsvígslu í baptistakirkjunni og gerðist síð- an prestui við litla kirkju 1 þorpi einu nálægt Chicago, var þar litil kirkjusókn og að jafnaði ekki fleira en 35 manns við kirkju. Kirkjusóknin óx r.ú fljót- lega og áður en 6 mánuðir voru liðnir hafði hann tekið að sér að sjá um kvöldþátt í útvarps- dagskrá, er varð brátt mjög vin- sæll. Það var um þetta leyti, sem hann hitti George Beverley Shea, baritone söngvara, sem síðar varð einsöngvari á mörgum af fjölda- samkomum hans. Þegar honum var boðið af Dr. Torrey Johnson að taka þátt í hreyfingu þeirri, er kölluð hefur verið „Æskan fyrir Krist“, sem þá var að byrja, varð Billy Graham það ljóst, að í þessháttar starfi myndi hann njóta sín bezt. Hann var fyrsti varaforseti hreyf- ingarinnar og helzti prédikari hennar. Hann hafði brennandi boðskap að flytja æsku eftir- stríðsáranna, sem skildi að hér var áhrifamikil spámannleg rödd á ferðinni. Nokkrum sinnum kom hann til Bretlands og margir áttu kost á að hlusta á hann. Maður skyldi nú ætla að hin ævintýralega frægð hans hefði stigið honum til höfuðs, en svo er ekki, hann lítur á sig sem verkfæri í Guðs hendi og um það eru þeir einnig sannfærðir, sem þekkja hann bezt. Hann trúir á mátt bænarinn- ar og bvggir starf sitt á bæna- samfélaginu við Guð. Hann hefur bænastundir með samstarfsmönnum sínum og sjálf ur leitar hann einverunnar, þar sem hann er einn með Guði og fær styrk hjá honum, svo að boðskapurinn sem hann hefur að flytja verði sem áhrifamestur, því að Guð einn getur gefið ávöxtinn. Af þessu er ljóst, að Billy Graham er maður auðmjúkur i anda og hin mikla frægð hans í kennimannsstarfinu hefur ekki stigið honum til ^höfuðs. Allir, sem fylgst hafa með hinum opin- beru störfum hans segja að hann sé nákvæmlega hinn sami Billy Graham, sem tók að sér starf í hinum fámenna söfnuði. Hann er leiðtogi flokks ánægðra samstarfsmanna. Þeir elska hann og virða, hann „er samt einn af þeim“ og leitar ráða þeirra í öllu. Boðskapurinn, sem hann flytur er þrautreyndur í þessu litla samfélagi, þar sem hann er leiðtogi. Hvað sriertir einkalíf hans, þá lifir hanri ánægjulegu heimilis- lífi með konu og ;fjðruin börn- um, einum syni og þreiri,úf dætr- um. í sambandi við prédikunar- snua heim frá Russlandi Tupþúsundir ítalskra fanga létusl af slæmri meSferð. úarfið er hann oftar að heiman en hann er heima, en frú Graham ;egir um mann sinn: „Þó að Billy sé sjaldan heima, þá þykir mér vænna um þær stundir sem hann er heima en allt annað“. Þetta er maðurinn, sem nú er rð halda vaknignasamkomurnar í London. Hann er sendibo.ði Drottins til vor í dag og vér von- um, að hann sé ekki aðeim sendi- boði Guðs til Lundúnabúa, held- ur líka til allrar þjóðarinnar og samveldislandanna. (Þýtt úr „The World Christian Digest“). LESTIN rann inn á stöðina og út stigu 34 itatskir „stríðsglæpa- menn“, sem Rússar háfa haldið í fangabúðum síðan í stríðinu. Samkvæmt rússneskum heimild- um héfur öllum ítölskum stríðs- föngum nú verið skilað. FANGAGEYMSLA DAUÐANS ítalir rakna eitt-hundrað-þús- und stríðsfanga. Það er eitt erfið- asta vandamálið, sem ítalir eiga nú við að striða. Þessir menn hafa horfið án þess að skilja eftir sig nokkur spor, og samkvæmt áðurnefndum heimildum munu þeir ekki vera í rússneskum fangabúðum. Hægriflokkarnir hafa þó hald- ið því mjög fram, að hinir horfnu menn séu enn, eða hafi verið í rússneskum fangabúðum. — Her- prestur nokkur, sem hafði verið fangi Rússa í fangabúðunum í Krinovaya, hefur sagt, að „þar væru 40 þúsund fangar í byrjun, en aðeins fjögur þúsund fóru þaðan lifandi“. Þessar fangabúð- andbúnaðarflusvélar mikið nolaðar í Bandaríkjunum IBANDARÍKJUNUM eru bændur farnir að nota flugvélar við landbúnaðinn. Þetta ár munu um 7 þús. flugvélar beinlínis verða notaðar til landbúnaðar, en það er helmingi meiri fjöldi en síðast liðið ár. Flugvélarnar eru notaðar til þess að eyða skordýr- um sem hættuleg eru gróðrinum, sá korni og dreifa út áburði. Það er hægt að nota þessar flugvélar til allrar mögulegrar vinnu. Þær geta séð um berja- uppskeru, tóbaksuppskeru, hveiti og epli og allt frá rísuppskeru til garðblómaræktar. — Þær dreifa áburði yfir uppskerulöndin. — Bómullaruppskeran hefur alðrei gefizt eins v^og síðan tekið var upp það ráð að vökva ekrurnar úr flugvél. BLÁSA REGNDROPANA BURTU Helikoptaflugvélar eru einnig mikið notaðar til þess að blása burt dögg af þroskuðum kirsu- berjum, en berip springa ef dögg in nær að þorna á þeim. Einnig eru helikoptar notaðir tíl þess að blása niður þroskaðar hnetur. El' frost kemur, eru þær látnar vera á sveimi yfir ökrunum og blása heitu lofti yfir þá, svo frostið nái ekki að eyðileggja gróðurinn. LANDBÚNAÐARFLUGVÉLAR MARG BORGA SIG Það eru engar ýkjur að segja, að flugvélarnar hafa stóraukið afurða framleiðslu Bandaríkj- anna á sviði landbúnaðar. Það er auðvitað dýrari aðferð að sá úr lofti heldur en á sjálfum akrin- um, en samt sem áður hafa 98% bandarískra bænda tekið upp þessa aðferð. — Fyrst og fremst vinna þeir tíma með því, þar sem flugsáning tekur margfalt styttri tíma en akursáning. Einnig krefst loftsáning ekki þurrs jarðvegs, heldur er fræjunum hálfspíruð- um dreift yfir akrana þótt þeir séu blautir. Þegar sáningin fer fram á sjálfum ökrunum, verða bæði akurinn og fræin að vera þurr. Á þessu vinna bændurmr 14 daga í vaxtartíð, sem leiðir til fljótfengnari uppskeru. Seinna á uppskerutímabilinu dreifa flug- vélarnar áburði yfir lartdið og einnig skordýraeitri. — Þar sem dreifing skordýraeitursins verður að öðrum kosti að fara fram á traktorum, en þá er ekki hægt að nota þar sem votlendi er, eykur aðeins þetta atriði, til dæmis hrís uppskeruna um 40% hvert upp- skerutímabil. Svipaður árangur er einnig um aðra uppskeru. NOTKUN ÞEIRRA EYKST MEÐ HVERJU ÁRI Þar sem þegar er Ijóst, að land- búnaðarflugvélar eru mjög mik- ilvægt atriði fyrir landbúnaðinn, fer notkun þessara tækja mjög í vöxt. I Bandaríkjunum er slík flugvél til svo að segja í hverju sveitahéraði og þykir jafn nauð- synleg og landbúnaðartraktorar. Byriaði vandamönn- um sinum eilur BORDEAUX, 22. marz — Mál Maríu Besnard hefir vakið at- hygli um allt Frakkland, en hún er sökuð um að hafa ráðio bana 6 venzlamönnum sínum og ætt- ingjum með eitri. í dag var einu aðalvitnií mál- inu vísað burt úr réttarsalnum vegna ósæmilegrar hegðunar. Þetta vitni, Auguste Massip, hef- ir það eftir manni Maríu, sem var eitt fórnarlambanna, að hún hefði byrlað sér eitur, látið arsenik í súpuna. Massip lýsti því yfir þrumuraustu frammi fyrir hátalaranum í réttarsal, að hann dáðist ekki að neinum öðr- um í þessu máli en Maríu Besn- ard. Ef hún yrði tekin af lífi, mundi skella yfir sjálfsmorðs- alda í hópi lögfræðinga landsins. Mariu Besnard er gefið að sök, að hún hafi byrlað manni sínum eitur, foreldrum sínum og 3 öðr- um sér nákomnum. Allt þetta fólk erfði hún. Mál hennar hefir nú verið á döfinni árum saman, —Reuter-NTB. ir voru kallaðar „fangageymsla dauðans“ Fæðið var bæði lélegt og smátt skammtað. í kjölfar þess fylgdl dýrsleg villimennska, og er einhver fanganna dó, réð- ust hinir hungruðu á líkið og' slitu hjarta og lifur út ogjúu. NOKKUR DÆMI Til viðbótar matarskorti og illri meðferð, urðu þeir að þola kulda og geysilega vinnuhörku. M.a. voru sumir hafðir í fanga- búðunum í Vorkuta, sem eru fyrir norðan heimskautabaug. Prestar urðu að þola ýmislegt. fvrir trú sína. Einn þeirra var t.d. dæmdur í 18 ára fangelsi fyr- ir að vera meðlimur í byltingar félagsskap, en hann var Jesúíti. Sumir fengu harðari dóma, eins og t.d. liðsforingi nokkur, sem dæmdur var í 25 ára fang- elsi fyrir að hvetja menn sína í orustu til að duga sem bezt og fella eins marga óvini og þeir gætu. Engu máli skipti þótt vitn- ið, sem ákærði hann skildi ekki ítölsku; vitnisburður þess var tekinn gildur. Aðrir sluppu vægt, t.d. fanginn sem brauzt út úr fangelsinu og gaf sig fram aftur, þegar hann sá fram á það. að hann mundi ekki geta komizt heim hjálparlaust vegna hinnar gifurlegu fiarlægðar til ættlands- ins. En yfirvöldin á staðnum neitpðu að taka við honum, því að þau vantaði öll gögn um hann. Frá sjónarhóli yfirvaldanna var maðurinn þess vegna ekki til, VIÐURVÆRIÐ BATNAÐI EFTIR STRÍÐIÐ .Með þessu er ekki sagt, að allir dómarnir yfir þessum föngum hafi verið óverðskuldaðir. — Sú staðreynd, að sex úr þessum hópi börðust í stormsveitum Hitlers, gefur hið gagnstæða í skyn. — Flestir sögðust hafa verið dæmd- ir vegna þess að þeir hafi verið ófáanlegir til að vinna fyrir Rússa. — Það kom í ljós, að með- ferð fanganna batnaði stórum þegar eftir stríðslok og í árslok 1951, gat hún talizt góð. Matur var nógur, þeir fengu ýmislegt sent að heiman, og þeir fengu borgaðar 200 rúblur á mánuði. Áður en þeir yfirgáfu Rússland var reynt að skemmta þeim sem bezt til bess að vega upp á móti þeim skelfingartíma, sem þeir höfðu setið í fangelsi. Sumir þessara manna höfðu ekki séð ættland sitt í meira en. 10 ár, og ættingjarnir biðu eftir- væntingarfullir eftir þeim á járnbrautarstöðinni. Einn fang- inn hafði kvænzt aðeins 3 vikum, fyrir burtförina til vígvallarins, og er hann kom heim beið konan hans enn eftir honum. Móðir eins fangans bekkti hann ekki fyrr en hann sýndi henni fæðingarblett á brjóstinu. VESPAN HREIF Það, sem vakti einna mesta at- hygli fanganna, var hinn stöðugi straumur flunkunýrra bifreiða, an öllu meiri eftirtekt vakti þó litla mótorhjólið „Vespa“, sem með dæmafárri dirfsku og leikni skauzt á milli bílanna. Þessir fyrrverandi fangar hafa heitið því, að hið fyrsta, sem þeir kaupi muni verða ,,Vespa“, og eftir 'ö'llum sólarmerkjum að dæma, mun ekki líða langur tími þar til þeir eru orðnir samlitir unihverfinu. (Observer •— Öll réttindi áskilin).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.