Morgunblaðið - 02.04.1954, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.04.1954, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. apríl 1954 MORGVNBLAÐIÐ 11 I Sveinn Yiafússcn SEXTUGUR er í dag, Sveinn Vig fússon, verkstjóri, Felli í Breiðu- víkurhreppi á Snæfellsnesi. Sveinn er fæddur á Litlabæ á Álftanesi, sonur hjónanna þar, Vigfúsar Benediktssonar, sjó- manns og Gíslínu Jónsdóttur. Snemma, eða um 14 ára að aldri fór Sveinn til sjós á skútum með íöður sínum og hélt því starfi áfram og lengst af sem yfirmat- sveinn á togurum þar til 1941 að hann gerðist verkstjóri hjá 'Vikurfélaginu h.f. við námu- reksturinn á Snæfelisnesi. Sveinn er hinn traustasti mað- ur í hvívetna, áhugasamur og úrræðagóður í verkstjórastarfinu sem og öllu því, sem til fram- fara horfir. Giiftur er Sveinn Sveinínu J. Loftsdóttur, systir Jóns Loftssonar forstjóra og beirra systkina, greindri og mynd arlegri konu. Hafa þau eignast eitt barn, mjög efnilegan dreng, sem þau misstu á unga aldri. Hinir mörgu vinir og kunningj ar Sveins og_þeh’ra ’njóna á Felli færa bonum og konu hans hjart- anlegustu hamingjuóskir á þass- um afmælisdegi har.s. Kunnugur. Lára I. Lárusdéitir Bræðrabor^arstíg 15 In meniorian Kæra Lára, leyf mér nú um stund að leita þín á minninganna grund. Og þó að dauðinn hafi háð sinn dóm, um helga minning gróa fögur blóm. Ég lengi bý að brosi þínu og trú og blessun þeirri, er sífellt veittir þú., Göfugt eðli var þín vöggugjöf vermt af júnísól við norðurhöf. Sólu skírð var sál þín ljúf og blíð og sendi frá sér geisla alla tíð. Þín ástúð var sem indælt, heiðríkt vor, sem öllum létti hvers kyns þungbær spor. Þú óskastundir áttir vinum með við óð og söng og dýrmætt, Ijóðrænt geð. Þú skildir vei, að andinn á sinn rétt, . þótt engin skylda sé til hliðar sett. Gjöful sál með guðdómseðli sitt var gullið, fagurt aðalsmerki þitt. Ég veit ei slíkan ljóma um marga menn af manngæzku og fórnarlund í senn. Þó ber þig hæst í hjálp við hruman vin, hjarnrek lífsins, brotinn, veikan hlyn. Þar var stór þinn sigur, styrk þín önd, og stærri en þeirra, er vinna ríki og lönd. Leifur Eiríksson. Ljóð þetta birtist í Mbl. s.l. miðvikudag, en þá birtist röng mynd með því. Eru viðkomendur beðnir afsökunar á þeim mistökum. 2 herbergja frekar lítil, á góðum stað í Austurbænum (innan Hring- brautar) til sölu. — Vægt verð, en mikil útborgun æskileg. — Tilboð, er greini útborgunarmöguleika og fjölskyldustærð, sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, 5. þ. m., merkt: „2 herb. íbúð — 233“. flL LE í Vogunum 4 herb. og eldhús í haust, ibúðin er í port- byggðri rishæð. — Sá, sem getur nú þegar greitt fyrir- fram húsaleigu, eða útvegað lán, sendi tilboð merkt: ,,Nú þegar — 238“, til afgr. blaðsins fyrir 7. anvíl. Frú Una Einarsdófttr sexlug KÆRA vinkona! Er það tilfell- ið að þú sért að leggja upp í nýjan áfanga? Jú líklega er það svo samkvæmt kirkjubókum Hraungerðissóknar átt þú afmaeli í dag, 2. apríl. Fljótur er tíminn að snúa snældu sinni, eða finnst þér ekki tiltölulega stutt síðan við iékum okkur saman að legg og skel á Arnarstaðatúninu. Ekki voru leik föngin mörg né kostbær, en þrátt 'yrir það vorum við ánægð með tilveruna, og hugðum gott. til ókominna ára, að hætti bernsk- unnar. Og tilfellið er, að lífiö hefur farið vel með okkur. Hafa von- ir þínar ekki ræst að miklu leyti? Ég held að heimilið á Vatnsstíg 10 beri þess ljósan vott í dag, þar hefur framtak og myndarskapur húsfreyjunnar og húsbóndans haldist í hendur. Þar hefur vinur minn Magnús Jónsson hú„asmíða meistari byggt upp hlýtt og yndis legt heimili, og afmælisbarnið hefir lagt til sinn hlut að prýða og fegra þetta hlýja og skemmti- lega inni, og skapað manni sín- um og börnum þar þeiira há- borg á þessari jörð. Þá hafa gestir og gangandi fengið þar góðar móttökur, um það get ég og mitt fólk best borið, við höfum átt þar okkar annað heimili, um margra ára bil. Fyrir þetta höfum við hjónin og synir okkar svo ipikið að þakka, því við höfum aldrei haft tækifæri til að veita ykkur neitt það, er heitið geti’r endurgjald, enda er ekki hægt að endurgjalda svo mikla elskusemi og hlýhug, sem ávalt auðkennir mottökur er gestir verða aðnjótandi hjá þeim hjónum Unu Einarsdóttur og Magnúsi Jónssyni. Guð blessi afmælisbarnið, og allt hennar heimilisfólk og ást- vini. — Liðið heil. J. B. G. & S. K. S. HARMONIKA og CLARINETT Vel með farin Hohner har- monika, 120 bassa; verð kr. 1500,00. Einnig Selmer klarinett, nýuppgert; verð kr. 2000,00. Til sölu og sýn- is í Músikbúðinni, Hafnar- stræti 8. IMiðsltöðvar- ofr&ar Hreinsum miðstöðvarofna. Hreinsunin er framkvæmd með sérstakri efnablöndu undir eftirliti efnaverkfræð- ingsins Svavars Hermanns- sonar. Hringið í síma 6060. ¥ Fæst hjá okkur með afborgun- arskil- málum Véla- og raftækja- verzlunin Bankastræti 10. Sími 2852. íumm | TIL SÖLIJ I Tvær sjö herbergja íbúðir ásamt stórri ■ risíbúð til sölu á góðum stað í bænum, ■ milliliðalaust. Þeir, sem hefðu áhuga á einstakri ,búð eða ölium, : sendi tilboð til afgr. Morgunbl. fyrir n. k. fimmtu- j dag, merkt: X —- 239. ■ Köfum fengið # nokkur stvkki af Termókönnuhylkjum (Plastic), sem við munum afgreiða meðan birgðir endast til fólks, et á sín- um tíma keypti Plastic-Termókönnur hjá okkur, en hafa sprungið. Fólk verður að hafa með sér sprungnu könnurnar. Verzlun B. H. Bjarnason. Til fermingargjafa: Kommóður, saumaborð, skrifborð, lestrarborð og > margskonar önnur húsgögn í fjölbreyttu úrvali. Húsgagnaverzlun Guðmundar Guðmundssonar. Laugaveg 166 Ungur maður óskast til afgreiðslustarfa í bílaverzlun. — Uppl. gefur Gunnar Vilhjálmsson, Laugavcg 118. — Uppl. ekki géfnar í síma. Rafsuðumaður og rennrjmiður óskast nú þegar til starfa á verkstæði voru. Vélasjóður. Sími 7343. 4 BEZT AÐ AUGLYSA í MORGUNBLAÐINU ■» ■ Ll »HJJ ■A14JL1M.I , A Wi/M1-1 A A MAMAMJAW.UM'JL'AM.** * * M1 •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.