Morgunblaðið - 03.04.1954, Síða 4
MORGVNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. apríl 1954
\ 4
I dag er 93. dagur ársins.
3. apríl.
24. vika vetrar.
Nýtt tungl, páskatungl.
Árdegisflæði kl. 4,59.
Síðdegisflæði kl. 17,21.
Næturlæknir er í Læknavarð-
tstofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
iteki. Sími 1330.
• Veðrið •
Framan af degi í gær var aust-
ian hvassviðri og rigning, en sner-
ást, þegar á daginn leið, í hvassa
ivestanátt sunnanlands, en létti til
«neð suðlægri átt á Norðurlandi.
Xl rkoma í Eeykjavík í gær, frá kl.
6—5, mældist 2,8 mm, en í Keflavík
var úrkoma á sama tíma 10 mm.
í Reykjavík var hitinn 3 stig kl.
'14,00, 8 stig á Akureyri, 3 stig á
Oaltarvita og 5 stig á Dalatanga.
KÆestur hiti hér á landi í gær kl.
14,00 mældist á Akureyri, 8 stig,
«n minnstur hiti á nokkrum stöð-
wm vestanlands, 3 stig. — 1 London
«var hiti 12 stig á hádegi, 5 stig í
Kaupmannahöfn, 15 stig í París,
2 stig í Osló, 2 stig í Stokkhólmi
<og 8 stig í Þórshöfn.
a------------------□
• Messur •
á morgun:
Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h.
Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5 e.
li. Séra Óskar J. Þorláksson.
Barnasamkoma í Tjarnai'bíói
*unnud. kl. 11 f. h. Séra Óskar J.
•Þorláksson.
Hallgrímsprestakall. Messa kl.
11 f. h. Séra Sigurjón Árnason.
Barnaguðsþjónusta kl. 1,30 e. h.
Séra Sigurjón Árnason. Messa kl.
-)5 e. h. Séra Jakob Jónsson.
Nesprestakall: Messað í Mýrar-
húsaskóla kl. 2,30. Séra Jón Thor
arensen.
Elliheimilið: Guðsþjónusta kl.
10 árdegis. Brynleifur Tobíasson
-flytur ræðuna. Séra Sigurbjörn Á.
Gíslason.
Hátéigsprestakall: Messað í há-
Uðasal Sjómannaskóians kl. 2 e. h.
Barnasamkoma kl. 10,30 f. h. Séra
Jón Þorvarðarson.
Laugarneskirkja: Messað kl. 2
«. h. — Ferming. — Séra Garðar
■Svavarsson. — Barnaguðsþjónusta
fellur niður.
Langholtsprestakall: Messað 1
Laugarneskirkju kl. 10,30 árdegis.
— Ferming. — Séra Árelíus Níels-
«on.
BússtaSaprestakalI: Messa í Kópa
vogsskóla kl. 3 e. h. -— Barnasam-
lcoma kl. 10,30. — Séra Gunnar
Árnason.
Fríkirkjan: Messað kl. 5. Barna-
tguðsþjónusta kl. 2. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Barnasamkoma. Óháði fríkirkju
söfnuðurinn hefur barnasamkomu
1 kvikmyndasal Austurbæjarskól-
«ns kl. 10,30 í fyyrramálið. Öll
Lörn velkomin á samkomuna, með-
mn húsrúm leyfir. Séra Emil
Bjömsson.
Kaþólska kirkjan: Hámessa Og
predikun kl. 10 árdegis. Lágmessa
M. 8,30 árdegis. Alla virka daga
<er lágmessa kl. 8 árdegis.
Hafnarfjarðarkirkja: Messa kl.
2 e.h. Séra Garðar Þorsteinsson.
Brautarholtskirkja: Messa á
morgun kl. 14. Séra Hálfdan
Helgason.
Beynivallaprestakail: Messað að
Saurbæ kl. 2. Séra Kristján
.Bjarnason.
Útskálaprestakal!: Messað að
Hvalsnesi kl. 5 e. h. Séra Guðm.
iGuðmundsson.
Keflavíkurkirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 f. h. Messa kl. 2
«. h. Séra Björn Jónsson.
Dagbók
„Yerðlækkun í SovéhikjuRum"
SAMKVÆMT því, sem Þjóðviljinn skýrir frá, hefur sovétstjórn-
in rússneska lækkað niður úr öllu valdi allt verðlag á neyzlu-
vörum almennings. Að sögn blaðsins hefur samskonar verðlækk-
un farið fram á hverju vori siðan 1947.
Rússar selja öðru hvoru allt við vægu gjaldi,
og einkum þó á vorin þess merki tiðum sjást.
Þá lækkar stjórnin neyzluvörur niður úr öllu valdi,
en — náttúrlega aðeins þær vörur, sem ei fást.
Já, það er bara austantjalds, að allar vörur lækka,
og yfirburði skipulagsins sýnir þetta gleggst.
En hitt þarf ekki að vitnast, að verðlagið skal hækka —
ef vörur fást að nýju og uppskeran ei bregzt. B.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Birni Jónssyni ung-
frú Helga Albertsdóttir og Hjál'm-
ar Guðmundsson, Keflavík. Heim-
ili ungu hjónanna verður á Vatns-
nesvegi 20, Keflavík.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Jóni Auðuns, ung-
frú Þórunn Sigurjónsdóttir og
Garðar Sveinbjörnsson skrifstofu-
maður. Heimili þeirra verður að
Langhpltsvegi 110.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Bjarndís Jónsdóttir,
Sigtúni 43, og Geir Óskarsson,
Njálsgötu 42. Heimili þeirra verð-
ur fyrst um sinn að Njálsgötu
72. Séra Jakob Jónsson gefur brúð
hjónin saman.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band Sólveig Ásb.jarnardóttir og
Jens Jónsson, verksjóri í Pólar h.f.
Heimili brúðhjónanna verður að
Hrannarstíg 3.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af séra Óskari J. Þorláks-
syni ungfrú Bryndís Jónsdóttir,
Veltusundi 3, og Geir Geirsson
rafvirki, Leifsgötu 21.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
band ungfrú Ragnheiður Eyjólfs-
dóttir Eskihlíð 14 A, og Bjarni
Einarsson húsgagnasmiður, Ein-
holti 11. Heimili þeirra verður að
Teigagerði 10.
Nýlega hafa verið gefin saman
í hjónaband Fríða Benediktsdóttir
(Ögmundssonar skipst.), Hafnar-
firði, og Brynjólfur Thorvaldson,
framkv.stj., Keflavíkurflugvelli.
og Jón S. Ágústsson afgreiðslu-
maður, Tryggvagötu 4, Selfossi.
• Afmæli •
Fimmtugur er I dag Benedikt
Jóhannesson trésmiður. Benedikt
er víðkunnur sem góður smiður og
lipurmenni í allriframkomu. Munu
margir af hans góðu vinum heim-
sækja hann í dag og gleðjast með
honum. Hann mun dveljast í dag
að heimili sonar síns að Ránar-
götu 6.
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sina ungfrú Helga Tryggvadóttir,
Bjarnastöðum, Garði, og Eyjólfur
Gíslason, Presthúsum, Garði.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Rósanna Hjartardótt-
ir frá Auðsholtshjáleigu, Ölfusi,
60 ára er í dag Ármann Guð-
freðsson, trésmiður Vífilsstaða-
hæli.
Bólusetning gegn
barnaveiki.
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 6. apríl n. k. kl. 10—12
f. h. í síma 2781. — Bólusett
verður í Kirkjustræti 12.
Bazar Hjálpræðishersins
verður í dag kl. 3. Kaffisala frá
kl. 3,30. 1 sambandi við bazarinn
verður einnig númeraborð.
Sólheimadrengurinn.
Áfhent Morgunblaðinu: Laulau
50 krónur.
íþróttamaðurinn
(lamaði). Afhent Morgunblað-
inu: H. S. 60 krónur.
Kvöldbænir í Hallgríms-
kirkju
verða á hverju virku kvöldi kl.
8 e. h. framvegis. (Á miðvikudags-
kvöldum eru föstumessur kl. 8,15).
Hafið Passíusálmana með.
Klukkunni flýtt í nótt.
Athygli bæjarbúa skal vakin á
því, að í nótt, þegar klukkan er
eitt eftir miðnætti verður henni
flýtt um eina klukkustund, þannig
að þá verður hún raunverulega
tvö.
Taumálun Handíðaskólans.
Dúkar þeir, sem í vetur hafa
verið handmálaðir eða þrykktir,
eru nú til sölu í skólanum, Grund-
arstíg 2 A. Fer salan aðeins fram
á þriðjud. og föstud. kl. 4—6 síð-
degis og á laugard. kl. 10—12 árd.
— Þar er líka tekið við pöntunum
á taumálun og tauprenti, t. d. á
borðdúka, höfuðklúta, veggteppi,
félagsmerki o. fl. — Flesth- þeirra
muna, sem nú eru til sölu, eru
málaðir með hinni vandasömu,
austurlenzku Batik-aðferð.
Tilkynning'
frá Landsbanka íslands um
breytt gengi á Kanadadollar. —
Frá og með 2. apríl 1954 er gengi
Kanadadollars: kaup 16,64 kr. og
sala 16,70 kr., miðað við 1 Kanada
dollar.
r r~~
• Utvarp •
12,50 Óskalög sjúklinga (Ingi-
björg Þorbergs). 17,30 Útvarps-
saga barnanna: „Vetrardvöl í
sveit“ eftir Arthur Eansome; XII.
Frú Sólveig Eggerz Pétursdóttir
þýðir og flytur). 19,25 Tónleikar:
Samsöngur (plötur). 20,20 Leikrit
Þjóðleikhússins: „Koss í kaup-
bæti“, gamanleikur eftir Hugh
Herbert, í þýðingu Sverris Thor-
oddsen. — Leikstjóri: Haraldur
Björnsson. Leikendur: Haraldur
Björnsson, Arndís Björnsdóttir,
Róbei't Arnfinnsson, Herdís Þor-
valdsdóttir, Valur Gíslason, Emi-
lía Jónasdóttir, Gestur Pálsson,
Anna Guðmundsdóttir, Sigríður
Hagalín, Ólafur Mixa, Valur Gúst-
afsson, Valdimar Helgason, Þóra
Borg, Rúrik Haraldsson og Kle-
menz Jónsson. 22,30 Passíusálmur
(41). 22,40 Danslög, þ. á m. frá
úrslitakeppni S.K.T. um ný lög
við gömlu dansana (útv. frá Góð-
templarahúsinu). 01,00 Dagskrár-
lok.
Æ \
Erlendar stöðvar.
Danmörk
. Danskar stöðvar útvarpa á
ýmsum bylgjulengdum. Á lang-
bylgjum 1224 m útvarpa þær all-
an daginn; en sú stöð heyrist illa
hér. Á tímanum kl. 16,40—20,15
útvarpar stuttbylgjustöð þeirra á
49,50 metrum og heyrist það vel,
Dagskráin hér miðuð við það,
Fastir liðir: 16,45 Fréttir, 17,00
Aktuelt kvarter, 20,00 Fréttir.
18,15 Létt tónlist.
Noregur:
18,50 Helge Ingstad segir frá
heimsókn að bæ Eiríks rauða í
Grænlandi, Bröttuhlíð.
Svíþjóð
útvarpar t. d. á 25 og 31 m.
Fastir liðir: 10,00 Klukknahring-
ing og kvæði dagsins, V0,30, 17,00
og 20,15 Fréttir. Á þriðjud. og
föstud. kl. 13,00 Framhaldsaga.
11,00 Ferðaþáttur frá N ý j u
Mexíkó. 14,35 Erindi um þýzka
skáldið Oskar Loerke. 19,10 Erinds
um Ágústus keisara. 20,00 Hvern-
ig á maður að lesa l.ióð? 20,30
Nat King Cole syngur og leikur.
Brúðkaup
1 dag verða gefin saman í hjóna-
"band af séra Jakobi Jónssyni
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, Eskihlíð
14, og Bjarni Einarsson, húsgagna-
smiður, Einholti 11. Heimili ungu
Kjónanna er að Teigagerði 10.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
-band af séra Cskari J. Þorláks-
«yni ungfrú Bryndís Jónsdóttir,
>Gunnlaugssonar, stjórnarráðsfull-
Ilírúa og Geir Geirsson
meistari, Selfossi.
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir sænska kvikmynd „Heití
brenna æskuástir“, er hlotið hefir miklar vinsældir. Myndin er
rafvirkja-! frá Nordisk Tonefilm og eru Maj-Britt Nilsson og Folke Sundquist
í aðalhlutverkunum.
Gamla Bíó mun nú sýna nokkrum sinnum kvikmyndina „Saga
Forsytanna“ (Ríki maðurinn), er birtist sem framhaldssaga hér
í blaðinu fyrir skemmstu. — Mynd þessi var sýnd hér fyrir einu
og hálfu ári við ágæta aðsókn, en að þessu sinni verða sýningar
aðeins fáar. Greer Garson og Errol Flynn fara með aðalhlutverk-
in (Irene Forsyte og Soames Forsyte).