Morgunblaðið - 03.04.1954, Blaðsíða 8
MORGUNtíLAÐlÐ
Laugardagur 3. apríl 1954
Út*.: H.f. Arvakur, ReykjavDc.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstióri: Valtýr Stefánsson (ábyrfðarm.)
Stjórnmálarit»tjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Lesbók: Árni óla, sími 3049.
\ Auglýaingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritatjöm, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Simi 1600.
Áskrjftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintaklO
! UR DAGLEGA LIFINU \
Raforkuframkvæmdir
strjálbýlisins
EINS og kunnugt er hét núver-
andi ríkisstjórn því í málefna-
samningi sínum að hraðað skyldi
byggingu orkuvera, dreifingu raf
orku og fjölgun smástöðva vegna
byggðarlaga í sveit og við sjó,
sem ekki hafa rafmagn eða búa
við ófullnægjandi raforku. Jafn-
framt skyldi tryggt fjármagn,
sem svaraði 25 millj kr. á ári til
þessara framkvæmda á næstu
árum.
Ríkisstjórnin hefur nú efnt
þetta fyrirheit sitt með frum-
varpi því um viðauka við raf-
orkulögin frá 1946, sem lagt
var fram á Alþingi í gær. —
Þar er ákveðið, að á næstu 10
árum skuli verja að minnsta
kosti 250 millj. kr. til þess að
koma upp raforkuverum utan
orkuveitusvæða So.gs- og Lax-
árvirkjunarinnar og gera aðal
orkuveitur og dreifiveitur fyr-
ir kaupstaði, kauptún og
sveitir víðsvegar um landið.
Ennfremur skal fé varið til
að veita bændum lán til þess
að koma upp smárafstöðvum,
vatnsafls og mótorstöðvum.
í frumvarpinu er einnig ékveð-
ið, hvernig fyrrgreindri fjárupp-
hæð skuli skipt milli fram-
kvæmda á árunum 1954—1963.
Skal 35 millj. kr. varið árlega til
framkvæmdanna á árunum 1954
—1956, 25 millj. kr. á árunum
1956—1959, 20 millj. kr. á árun-
um 1960—1961 og 15 millj. kr. ár-
lega á árunum 1962—1963. Auk
þess koma svo framlög frá hlut-
aðeigandi héruðum.
Hér er vissulega um að ræða
stórkostlegustu framkvæmda-
áætlun, sem nokkru sinni hefur
verið lögð fram um raforku-
framkvæmdir í þágu strjálbýlis-
ins. Mun hún vekja fögnuð al-
þjóðar og þá ekki hvað sízt
þeirra, sem lengst hafa orðið að
bíða eftir úrlausn í raforkumál-
um sínum.
A síðasta landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins voru samþykktar til-
lögur, sem mjög fóru í sömu átt
og þær, sem nú getur að líta í
frumvarpi ríkisstjórnarinnar. —
Aðalatriði þeirra voru þessi:
1. Að framlag til raforkusjóðs
verði stóraukið frá því sem nú er.
2. Að framlag á fjárlögum til
nýrra raforkuframkvæmda verði
margfaldað, enda flestum Ijóst
orðið, að þessi liður fjárlaganna
er mun lægri miðað við kaup-
mátt krónunnar, heldur en var
fyrst eftir að raforkulögin komu
til framkvæmda.
3. Fundurinn telur, að afla
megi fjár til að hraða fram-
kvæmdum með lántökum, innan
lands eða utan og Helur miður
farið að ekki skyldi verða sam-
þykkt frumvarp það um lántöku
handa Rafmagnsveitum ríkisins,
sem borið var fram af Sjálfstæð-
ismönnum á nýafstöðnu Alþingi.
Fundurinn telur lántökur óhjá-
kvæmilegar í þessu skyni vegna
þess, hversu nauðsynlegt er að
hraða framkvæmdum, en
greiðslugeta ríkisins takmörkuð.
Það er Sjálfstæðismönnum
mikið fagnaðarefni, að fram-
kvæmd þessara tillagna skuli nú
blasa við. Allt frá því, að Jón
Þorláksson og Jón á Reynistað
settu fram fyrstu til-
lögurnar um hagnýtingu vatns-
aflsins í þágu sveita Og sjávarsíðu
he'fur flokkur þeirra barizt fyrir
framkvæmd þeirra. — Þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráð-
ið einn, eins og í bæjarstjórn
Reykjavíkur, hefur hann beitt
sér fyrir stórframkvæmdum á
sviði raforkumála. Árangur þeirr
ar forystu eru hin miklu raforku-
ver við Sogsfossa. Frá þeim fær
Reykjavík, kaupstaðir, kauptún
og sveitir Suðvesturlands raf-
orku. Þau hafa einnig gert bygg-
ingu og rekstur áburðarverk-
smiðju mögulegan.
En nú er röðiiu-'komin að
strjálbýlinu, sem lengst hefur
beðið úrlausnar í raforkumál-
um sínum. Það er von Sjálf-
stæðismanna að núverandi
ríkisstjórn og flokkar hennar
beri giftu til þess að koma hin
um stórhuga ráðagerðum sín- 1
um um rafvæðingu þess í
framkvæmd á sem skemmst-1
um tíma.
Fæddisf iífil mús.
ÞAÐ hendir ekki ýkja oft, að
allir minnihlutaflokkarnir í bæj-
arstjórn Reykjavíkur verði sam-
' mála um flutning mála á fundum
bæjarstjórnarinnar. En það kom
þó fyrir s.l. fimmtudag.
J Ætla mætti, að það hefði verið
’ eitthvert stórmál, sem hinir sund-
urleitu glundroðabræður sam-
| einuðust um. En því var þó ekki
að heilsa. Það var lítil mús, sem
fæddist þegar fjöllin tóku jóðsótt.
Minnihlutaflokkarnir fluttu lit-
j lausa yfirborðstillögu um að láta
„rannsaka“ ástandið í húsnæðis-
málum bæjarbúa. — Þeir bentu
| ekki á neina leið til úrbóta i
| þessum þýðingarmiklu málum.
j Hjá þeim örlaði hvergi á sjálf-
stæðri skoðun á því, hvernig
j vandræði mikils fjölda fólks, sem
býr við lélegt eða heilsuspillandi
húsnæði skuli leyst. Nei, það átti
bara að „rannsaka“ vandræði
þess. Annað og meira höfðu
glundroðabræðurnir ekki upp á
að bjóða, þrátt fyrir allar þeirra
fullyrðingar um að þeir búi yfir
lausnarorðum í þessum ■ miklu
hagsmunamálum Reykvíkinga.
Sjálfstæðismenn hafa bæði nú
og á liðnum árum haft allt ann-
an hátt á í húsnæðismálunum.
Þeir hafa haft forgöngu um raun-
hæfar aðgerðir, sem stuðlað hafa
að miklum umbótum í húsnæðis-
málum bæjarbúa. Og þeir vinna
nú að undirbúningi tillagna, sem
þeir hyggjast framkvæma til
frekari úrbóta. Að sjálfsögðu
telja þeir að fullkomnar upplýs-
ingar þurfi að liggja fyrir um
heilsuspillandi húsnæði. En slík
rannsókn getur aldrei verið neitt
aðalatriði þeirra aðgerða, sem
framkvæmdar verða. — Sjálfar
framkvæmdirnar skipta auðvitað
meginmáli.
Sjálfstæðismönnum er það
ljóst, að í húsnæðismálunum
dugir ekkert yfirborðskák og
fálm. Það er ekki nóg að láta
rannsaka ástandið í þessum
málum, eins og kommúnistar
og glundroðabræður þeirra
hafa sífellt flutt tillögur um.
Það verður að framkvæma
eitthvað áþreifanlegt, sem
bætir aðstöðu þess fólks, sem
við mesta erfiðleika á að etja
af völdum húsnæðisskortsins
og heilsuspillandi húsnæðis. f
því felst hin jákvæða og raun
hæfa umbótastefna.
★ Ölvaður eldhúsguð
slúðrar ekki
Á mörgun býlum í innsveitum
Kína finnast enn í eldhúsum
höggmyndir litlar af „eldhúsguð-
inum“. — Og styttunum er þann-
ig fyrir komið að guðinn getur
séð, hvernig konan tilreiðir mat-
inn.
Sérhvern nýársdag er skipt um
styttu, og hin gamla brennd. Er
það gert til þess að guðinn geti
stigið upp til himna og skýrt frá
því þar uppi, hversu vel konan
hafi vandað til matartilbúnings-
ins á liðnu ári.
En ef fjölskyldan óttast, að
skýrsla guðsins verði ekki sem
fallegust, dýfa þeir styttunni í
vínanda, áður en þeir brenna
hana. Þá . kemur guðinn „undir
áhrifum" að himnahliðinu og
verður af þeim sökum að sjálf-
sögðu neitað um aðgang.
^JJrinaeh
nn^enfan
'k Kaldranaleg örlög
Hann var kallaður Gamli Jack
og var frá Texas. Alla sína æfi
hafði ha'nn ár-
F&' £
angurslaus leit
að að oliulind-
um. Hann gróf
og gróf þar til
að hann með
bogið bak og
brostnar vonir,
lézt í hárri elli.
Jarðneskar eig
ur hans þá
nægðu aðeins
fyrir fátæk-
legri útför — en varla höfðu lík-
grafararnir stungið skóflu sinni
til að aka gröfina, er olíubunan
ULl andi óLn^ar:
H
Um dúfur og ketti.
ALLÓ, Velvakandi!
isem vafalaust og eðlilega eru
I djarftækastir til smáfuglanna.
Þar sem margt hefur verið
skrafað í dálkum þínum og víðar
um dúfurnar og herferð á hendur
þessum fallegu og saklausu fugl-
um, langar mig til að leggja orð
í belg um annað mál — og aðra
herferð. Á ég þar við kettina í
bænum. Ég vil láta gera herferð
gegn þeirri plágu — og það sem
allra fyrst, áður en smáfuglarnir
fara að hugsa til hreiðurgerðar,
svo að litlu væntanlegu ungarnir
fari ekki beint í kattarkjaftinn.
Hver sem ann fegurð og fugla-
söng vorsins mun verá mér sam-
mála um, að ekkert getur óyndis-
legra og í meiri mótsögn við
fuglasönginn heldur en mjálm-
andi kettir. Þeir eru til leiðinda,
greyin og til tjóns fyrir fuglalífið,
hvar sem þeir ala aldur sinn. Ég
er á móti öllu, sem læðist aftan
að því fagra og saklausa til að
tortíma því. Burt með kettina úr
bænum. Ertu ekki á sama máli,
Velvakandi góður? — Ráðrík“.
Kisu til sektar?
SAMMÁLA og sammála ekki.
Ég felli mig ekki við hina
fjandsamlegu afstöðu, sem „ráð-
rík“ tekur til kisutetranna. Mér
finnst, að hægt sé að þykja vænt
um dúfur, smáfugla og ketti ailt
í senn, jafnvel þó að okkur þyki
sárt að sjá saklausa smáfugla
verða rándýrseðli kisu að bráð.
En getum við reiknað henni það
til sektar? Hún gerir ekki annað
en að þjóna því eðli, sem henni
er áskapað og fullnægja lífsþörf
sinni, alveg eins og þegar sól-
skríkjan og grátitlingurinn í ölhi
sínu yndislega „sakleysi" drepa
flugur og orma sér til viðurværis
og eins og við mennirnir leggj-
umst á fugla og fénað í sama
tilgangi.
Útrýming flækingskatta
— mannúðarverk.
ÞAÐ er nú einu sinni svo, að
þetta jarðlíf byggist að miklu
leyti á ránum og drápum því til
viðhalds og framdráttar; ég hef
enga trú á, að það breytist þó
að undravísindi nútímans kunni
að finna upp einhverjar krafta-
pillur, sem komið geti í fæðustað
— þá held ég, að verði lítið gam-
an að lifa!
En svo að aftur sé vikið að
köttunum, þá tel ég, að ganga
beri að því með oddi og egg að
lóga flækningsköttunum, sem
sjást of víða á þvælingi um bæ-
inn, hungraðir, skítugir og heim-
ilislausir. Það er mannúðarverk,
sem dýravinir og dýraverndarar
ættu ekki að leiða hjá sér. Og
það eru einmitt þessi olnbogadýr,
ORGARI“ skrifar:
„Gatna- og gangstéttagerð
er einn aðalþátturinn í hinum
margþættu framkv. Reykjavíkur-
bæjar þessi árin, og verður svo
vafalaust áfram um næstu ár. —
Mér datt í hug í þessu sambandi'
hvort ekki mætti skapa dálitla
fjölbreytni í gangstéttirnar með
því að hafa þær tíglóttar — með
rauðleitum og gráum tíglum á
víxl, eitthvað svipað og er þegar
á einum stað í bænum — fyrir
framan Útvegsbankann. Nóg er
til af rauðamöl, sem blanda
mætti í steypuna, svo að ekki
þyrfti að kaupa sérstakt litar-
efni.
Fyrir Parísar-Ieik
barnanna.
EINN hinn vinsælasti leikur
kaupstaðabarna er hinn svo
nefndi Parísarleikur. Væri ekki
úr vegi að taka tillit til þessa við
gangstéttagerðina, með því ein-
mitt að nota mislitu tíglana til að
afmarka Parísar-völlinn og gefa
til kynna „borgirnar" svoköll-
uðu. Fjöldi barna myndi fagna
þessari nýbreytni. Ég er á því, að
hinar grá- og rauðtíglóttu gang-
stéttir yrðu til mikillar prýði og
tilbreytingar og beini ég því þess
ari hugmynd bæjaryfirvöldunum
til athugunar. — Borgari".
„Sælir verið þér,
gemlingur góður“.
KARL missti prestseldi í dýi.
Hann fór til prestsins og
sagði honum frá slysinu á þessa
leið: „Sælir verið þér, gemlingur
góður. Prófasturinn drap sig í
dýinu í morgun, og lét ég þó ekki
sólina út, fyrr en gemlingarnir
voru komnir upp á háaloft".
B e t u r vinnst
með v i t i en
striti.
stóð upp úr jörðinni. Endalaus
buna þykkrar og verðmætrar
olíu.
Slík er kaldhæðni örlaganna
★ Pantanir afgreiddar
Nýlega sendi „Landsími Jap-
ans“ út tilkynningu um að innan
skamms myndu afgreiddar þær
pantanir er fyrir lægju um síma.
Elzta beiðin um síma er frá 1906.
★ Það er ótrúlegt
— en satt
Dýrafræðingar þekkja meira
en 900,000 dýrategundir, sem öll
lifa á jarðríki nú. Þar af eru skor-
dýrategundir 675.000.
Styrkleiki sólarljóssins er 4
milljarða milljarða milijarða
sinnum sterkara en styrkleiki
kertaljóss.
Um 25 milljónir sjónvarpsmót-
tökutækja eru í Bandarikjunum
Þar af eru 730 þús. í Boston-borg
einni. — í sömu borg er talið að
séu 719 þúsund baðkör.
★ í stuttu máli sagt
Einræðisríki er það ríki, þar
sem allt, sem ekki eru lagafyrir-
mæli um, er bannað.
Raunverulegur „diplomat" er
sá maður, sem skorið getur ná-
granna sinn á háls, án þess að
nágranninn veiti því eftirtekt.
(Tryggvi Lie).
★ Vél, sem hugsar
Fyrsta „vélin sem hugsar" og
sem sérstaklega er ætluð til skrif
stofustarfa var sýnd blaðamönn-
um um miðjan febrúarmánuð.
Vélum af þessari tegund hefur
verið gefið nafnið „LEO“
(skammstöfun fyrir Lyons elec-
tronic office). Vélar þessar geta
unnið 500 sinnum hraðar en með-
al skrifstofumaður sem notar all-
ar algengar skrifstofuvélar Vél-
in leysir af hendi alla algenga
skrifstofuvinnu — m. a. reiknar
hún eftir upplestri. Smíði vél-
arinnar hefur kostað 150 þúsund
sterlingspund og hópur manna
hefur unnið að þessari völundar-
smíði í 6 ár.
Fyrsta verkefnið sem lagt var
fyrir „Leo“-vélina var að reikna
út vikulaun allra starfsmanna
(1700) smíðisfirmans. Það starf
hefur að undaníörnu tekið 220
vinnustundir. „Leo“ leysir þetta
verkefni af hendi á 45 mínútum.
í fyrstu var „Leo“ aðeins látinn
yfirfara verk skrifstofumann-
anna. En nú þegar hann hefur
sýnt að hann er áreiðanlegur, þá
gerir hann þetta einn.
Smíðisfirmað telur að smíði
þessarar vélar sé upphaf bylting-
ar á sviði viðskipta og skrifstofu-
starfsemi Forráðamenn þess von
ast til að vélin geti leyst af
hendi alla reikningsstarfsemi
skrifstofunnar. Auk þess telja
þeir að „Leo“ geti með meiri full-
komnun leyst af hendi umfangs-
mikia pöntunarstarfsemi t d. fyr-
ir hótel o. fl.
„Leo“ hefur þegar verið reynd
ur á mörgum sviðum. T.d. vinnur
vélin nú í þágu matvælaráðuneyt
isins enska, að útreikningum fyr-
ir veðurfræðinga, að útreikning-
um fyrir atomfræðinga o. fl. Spar
ar vélin á þessum stöðum þús-
undir vinnustunda.
„Para"-keppni
a morpn
i
HIN árlega parakeppni Bridge-
félags Reykjavíkur og Kvenna-
deildar bridgefélagsins hefst á
morgun, sunnudagj, kl. 1,30 í
Skátaheimilinu.
I keppni þessari keppa saman
karl og kona. Búast má við mik-
illi þátttöku, eins og undanfarin
ár.