Morgunblaðið - 03.04.1954, Qupperneq 16
Veðurúflii í dag:
Vaxandi A-átt, allhvass og hvoss
síðdegis með rigningu.
klfa er eki hæg)
Sjá grein á bls. 9.
IFrurnv. Sig. Ó. Ólafssonar
um kirkjubyggingarsjóð
orðið að lögum
ÍGÆR afgreiddi Efri deild sem lög frá Alþingi frumvarp Sig-
urðar Ó. Ólafssonar, 2. þingmanns Árnesinga, um Kirkjubygg-
ingasjóð. Sigurður flutti þetta frumvarp á síðasta þingi, en þá
ráði það ekki fram að ganga. Tók Sigurður það því upp á ný
sásamt þingmanni Mýramanna. Löginn um sjóðinn öðlast gildi
1. janúar 1955.
KiuakkuÆsaai
fiýtt
Ugafrumvarp um brunatrygg-
iigar Wm ufan Reyhjavfkur
Ingélfur Flygenrlng og
Jóhann Jósefsson flyfja
INGÓLFUR FLYGENRING, þingmaður Hafnfirðinga og Jóhann
Þ. Jósefsson, þingmaður Vestmanneyinga flytja á þingi frum-
varp til laga um brunatryggingar utan Reykjavíkur. Eru í því
ákvæði um að bæjar- og sveitarstjórnum utan Reykjavíkur sé
heimilt að semja við eitt vátryggingarfélag eða fleiri um bruna-
tryggingar á þeim húseignum í umdæmi sinu sem tryggingaskyldar
eru. Eru um þetta nánari ákvæði í frumvarpinu, sem alls er í
5 greinum.
J LUTVERK SJÓÐSINS
Samkvæmt lögunum á ríkis-
f jóður að greiða í kirkjubygging-
arsjóð 500 þús. krónur árlega í
J æstu 20 ár. Hlutverk sjóðsins
í kal svo vera að veita þjóðkirkju
jsöfnuðum vaxtalaus lán til kirkju
bygginga í sóknum landsins og
til varanlegra endurbóta á eldri
■Jcirkjum. Biskup landsins er for-
jnaður sjóðstjórnar, en tveir
ídjórnarmenn skulu kosnir af
Synodus til þriggja ára í senn.
í UTANRÍKISÞJÓNUSTU
FRÁ 1927
Starfsferill hans hjá utanríkis-
þjónustunni bandarísku er glæsi-
legur. Varð hann fyrst viðskipta-
fulltrúi í Jóhannesborg 1927.
Seinna sat hann í Lundúnum,
Prag, Managua, Nicaragua og
Ankara. Var hann sendiráðunaut-
tir í Ankara, er hann var skipað-
ur sendiherra hér, 22. júlí 1949.
TILKYNNING FRÁ EDWARD
B. LAWSON, SENDIHERRA
„Mér var í morgun tilkynnt
með símtali frá Washington, að
Eisenhower forseti hafí sent þing-
inu tilkynnirigu um að ég hafi
orðið fyrir vali hans sem sendi-
herraefni (ambassador) Banda-
xíkjanna í ísrael.
fCefiðvík:
Sundmót
ásunnudag
Á SUNNUDAGINN kl. 3 fer fram
í Sundhöll Keflavíkur fjölbreytt
og glæsilegt sundmót. Það er
Knattspyrnufélag Keflavíkur er
fyrir mótinu stendur. Verða kepp
cndur þar um 60 talsins, þeirra á
xneðal flestir beztu sundmenn og
lconur landsins.
Til mótsins koma sem gestir
sundmenn frá Akranesi og
i Reykjavík. Má nefna m. a. þá
! Pétur Kristjánsson Á, Helgu
Haraldsdóttur KR, Kristján
Þórisson ÍR og Jón Helgason
Akranesi, er setti Islandsmet
í baksundi á dögunum. (Þá
■ var hann sagður Árnason. Leið
I réttist það hér með).
Keppt er um afreksbikar á mót
inu. Vinnur hann sá sundmaður
eða sundkona er flest stig hlýtur
tamkvæmt sænsku stigatöflunni.
Handhafi hans er Magnús Guð-
xnundsson. Bikarinn er aðeins
yeittur Keflvíkingi.
Lánsupphæðin miðast við
stærð kirkjunnar og má nema
allt að 200 krónum á hvern ten-
ingsmetra, en þó ekki meiru en
1000 kr. á hvern fermeter gólf-
flatar. Byggingarlánin greiðast
með jöfnum árlegum afborgun-
um á 50 árum.
Til endurbóta eldri kirkna má
eigi veita hærri lán en sem svar-
ar % kostnaðar, samkv. reikn-
ingum. Lánin endurgreiðist á 20
árum með jöfnum afborgunum.
Mér er auðvitað mikill heiður
að því að forsetinn skuli hafa
valið mig til þess að gegna þessu
mikilvæga starfi. En bæði ég og
kona mín munum yfirgefa ísland
með miklum söknuði.
Á þessum fjórum og háfu ári,
sem við höfum dvalizt hér á
landi, höfum við eignazt vini, er
Edward B. Lawson
sendiherra.
við munum aldrei gleyma. Hug-
ir okkar munu ávallt fylltir fögr-
um endurminningum héðan, og
vonandi fáum við einhvern tím-
ann tækifæri til þess að endur-
nýja þær fögru minningar.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvenær við leggjum af stað héð-
an og líklegt er að það verði ekki
fyrr en í fyrsta lagi í lok apríl-
mánaðar.
Ég hef ennþá enga hugmynd
um hvarn Eisenhower forjeti
muni velja sem eftirmann minn
I hér.“
NÚ UM þessa helgi verður tekinn
upp sumartími á íslandi. Verður
klukkunni flýtt um eina klukku-
stund. Er svo rág fyrir gert að
klukkan 2 aðfaranótt sunnudags
verði klukkunni flýtt, þannig, að
hún verði þrjú.
Skattafnimvarpið
deildar
SKATTAFRUMVARP ríkis-
stjórnarinnar hefur nú fengið
afgreiðslu í Neðri deild og verið
sent til Efri deildar. Frumvarp-
ið tók engum veigamiklum breyt-
ingum. Þó voru samþykktar þær
breytingartillögur, er fjárhags^
nefnd bar fram. Var þar um að
ræða mest minni háttar lagfær-
ingar og orðalagsbreytingar.
Kvöldvaka leikara
i síðasta sinn í kvöld
KVÖLDVAKA leikar verður í
Þjóðleikhúsinu í kvöld og hefst
kl. 11,15.
Tvær sýningar hafa verið á
kvöldvökunni, á mánudag og
þriðjudag við mikla aðsókn og
hrifningu, en vegha mikilla anna
leikaranna verður þetta síðasta
sýning hennar.
Skemmtun þessi er hin fjöl-
breyttasta, og koma þar fram
margir af vinsælustu leikurum
bæjarins.
Iðnaðarmálastofnun
fær styrk
frá Bandarljum
SENDIRÁÐ Bandaríkjanna í
: Reykjavík hefur tilkynnt ríkis-
stjórninni, að Foreign Operation
; Adminstration í Washington hafi
ákveðið að veita Iðnaðarmála-
stofnun íslands 317 þús. króna
t styrk á þessu ári. Er hér um að
I ræða samskonar aðstoð og
Bandaríkjastjórn veitti Búnsiðar-
félagi íslands og Fiskifélagi ís-
í lands fyrr á þessu ári til stuðn-
ings rannsóknum og fræðslu-
I starfsemi þessara samtaka.
| Fjárveitingu þessari verður
| varið til kaupa á nauðsynlegum
áhöldum og tækjum fyrir Iðn-
aðarmálastofnunina og enn-
i fremur til greiðslu á rekstrar-
kostnaði stofnunarinnar. Þessi
aðstoð kemur því til með að
bæta stórum starfsskilyrði Iðn-
aðarmálastofnunarinnar og gera
henni auðveldara að gegna hlut-
verki sínu í þágu íslenzks iðn-
aðar.
(Frétt frá ríkisstjórninni).
AÐ undanförnu hefur flug-
félagið Loftleiðir haldið uppi 1
áætlunarferð í viku með Sky-
master flugvélum milli megin-
landa Evrópu og Ameríku, með
viðkomu í Reykjavík. Frá og með
deginum í dag verður sú breyt-
ing á að þessum áætlunarferðum
fjölgar upp í 2 á viku. Viðkomu-
staðir eru hinir sömu og fyrr,
Hamborg, Kaupmannahöfn, Osló
og Stafangur á austurleiðinni, en
Gander og New York í Vestur-
heimi.
Eftir 27. maí er ráðgert að
TIL HAGSBÓTA FYRIR
BÆJARFÉLÖGIN
Ingólfur Flygenring fylgdi
frumvarpinu úr hlaði er það kom
Ingólfur Flygenring
til 1. umræðu í Efri deild í gær.
Rakti hann að nokkru efni frum-
varpsins og til hverra hagsbóta
það yrði bæjarfélögunum úti á
landsbyggðinni.
GREINARGERÐIN
í greinargerð komast flutnings
menn svo að orði:
í neðri deild Alþingis hafa
þingmenn Reykjavíkurbæjar bor
ið fram frv. til laga um bruna-
tryggingar í Reykjavík, sem kunn
ugt er.
Reykjavík, hefur, eins og vitað
er, þá sérstöðu í brunatrygginga-
málum, að henni er eigi skylt að
brunatryggja hjá Brunabótafé-
lagi íslands. Eru því brunatrygg-
ingamál hennar Brunabótafélag-
inu óviðkomandi.
í neðri deild var samþykkt
breytingartillaga við þetta frv.
um það, að öll bæjar- og sveitar
félög sem nú er skylt að bruna-
tryggja húseignir sínar hjá Bruna
bótafélagi íslands, skuli undan-
þegin þeirri skyldu framvegis og
að um þau skuli gilda sömu
ákvæði og með frv. eru fyrirhug-
uð Reykjavík.
Við, sem stöndum að flutningi
þessa frv., er hér liggur fyrir,
teljum miður þinglegt að sam-
þykkja þá breytingu gagnvart
Brunabótafélagi Islands, sem
fjölga ferðunum enn og verða þá
farnar 3 ferðir í viku með 2 Sky-
masterflugvélum, og bætist þá
Gautaborg við fyrri viðkomu-
staði.
f dag kl. 18.30 er flugvél
Loftleiða væntanleg hingað til
Reykjavíkur í fyrsta sinn sam-
kvæmt nýju áætluninni. Flug-
vélin kemur frá Hamborg, Kaup-
mannahöfn, Osló og Stafangrc
Gert er ráð fyrir að haldið verði
áleiðis til New York eftir 2 klst.
viðdvöl hér.
felst í umræddri breytingartil-
lögu, þann veg, sem það er gert,
enda vísast, að hinu upphaflega
I frumvarpi Reykjavíkurbæjar sé
stefnt í hættu með þess konar
vinnubrögðum. Virðist vel mega
koma fram öllum breytingum til
bóta fyrir baejar- og sveitarfélög
utan Reykjavíkur í þessu efni,
þótt eigl sé því blandað að ófyr-
irsynju í öviðkomandi mál og
framgangi þeirra af þeim orsök-
um teflt í tvísýnu.
Þar sem við erum fylgjandi
því, að bæjar- og sveitarfélög
utan Reykjavíkur geti notið svo
góðra tryggingarkjara sem unnt
er að fá með auknu samnings-
frelsi varðandi tryggingarnar, höf
um við flutt þetta frumvarp sem
sérstakt mál, óháð tryggingar-
málum Reykjavíkurbæjar. Við
teljum hæfilegt, að bæði Bruna-
bótafélagið og bæjar- og sveitar-
félögin hafi rúman tíma til und-
irbúnings þeirra breytinga, er
þörf kann að þykja á tryggingar-
fyrirkomulaginu, og höfum því
gert ráð fyrir, að lögin gangi ekki
í gildi fyrr en á næsta ári.
ísólfur iandaSI
30 foniium 1
NESKAUPSTAÐ, 2 apríl. —
Togarinn Austfirðingur kom hing
að í gærkvöldi til að taka olíu og
salt. Fór hann aftur á veiðar í
morgun. — ísólfur landaði hér
tæpum 30 tonnum fisk í frystihús
en tók olíu og ís í dag.
Flugfélag íslands hóf áætlunar
flug hingað í dag. — Fréttaritari.
Smyslov vinnur á
MOSKVU — Eftir átta um-
ferðir i skákkeppni þeirra
Botvinniks og Smyslovs, hef-
ir sá fyrrnefndi fimm vinn-
inga en Smyslov 3. — Áttunda
umferðin fór í bið í fyrradag,
og hafði Botvinnik þá betri
stöðu. f gær héldu þeir áfram
við skákina, og sömdu þá
jafntefii eftir 50 Ieiki.
— NTB.
Skákeinvígið
KRISTNES
VlFILSSTAÐIR I
4. leikur Vífilsstaða:
c2—c3
Edward B, Lawson skipaSar
ssndiherra Bandarife i Israef
Hefir gegnt embælti hér fíáll á 5. ár.
Ij’DWARD B. LAWSON, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandí,
J hefir verið skipaður sendiherra í ísrael. Lawson er 59 ára að
aldri. Hann hefir gegnt sendiherraembætti hér á landi hátt á
fimmta ár.
Loftleiðir fjölga Ameríkuferðum