Morgunblaðið - 01.05.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.05.1954, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐ1Ð Laugardagur 1. maí 1954 5—6 þúsund fet af mótafivnbri óskast til kaups. Mætti vera óhreinsað og ónagldregið. Líka mætti það vera minna magn, ef svo stæði á. Tilboð leggist in á afgr. Morgun- blaðsins fyrir þriðjudags- kvöld, merkt „Þörf — 821“. SkUR með eldavél til sölu. Stærð: röskiega 3X5 m. — Verð kr. 5000,00. Er á afskekktum stað ná- lægft bænum. Einnig hæfur til flutnings. Tilboð leggist inn hjá Mbl., merkt: „Skúr nálægt bænum — 818“. íbúð óskast Barnlaus hjón, sem vinna bæði úti, óska eftir 1 her- bergi með eða án eldunar- pláss, nú þegar eða 14. maí. Tilboð, merkt: „Sjómaður — 815“, sendist blaðinu fyr- ir miðvikudagskvöld. Allir þeir, sem hafa GarðSónd í landi nu'nu, geri mér að- | vart laugardag og sunnu- j dag. — Ný garðlönd til leigu og úrvals-útsæði á stuðnum. ! Uppl. í Engihlíð við Engja- j veg. — Þórhallur. -BÓKHALÐ - , Tökum að okkor bókhald f fullkomnum vélum ásamt uppgjöri og ýmaum skýrslu- gerðum. Veitum ailar frek- ari upplýsingar. IREYKJ4VÍK HAFNARHVOLI — StMI Su28 -A i sfíri RIKISINS „Esjn“ vestur um land í hringferð hinn 7. Jx m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Eaufar- hafnar á mánudag og þriðjudag. Farseðlar seldir árdegis á fimmtu- dag. M.s. Herðubreið austur um land til Þórshafnar hinn 7. þ. m. Tekið á móti flutn- ingi til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Mjóafjarðar, Borgarf jarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og Þórshafnar á mánudag og þriðju- dag. Farseðlar seMir á fimmtu- dag. JL BEZT AÐ AVGLÝSA A T / MORGUNBLAÐIIW T Sextugur á morgun: Péinir Flnnbogason, Sijöllum i Ögursveit Á MORGUN, 2. maí verður Pétur Finnbogason bóndi á Hjöllum í Ogursveit sextugur. Hann er son- ur hjónanna Soffíu Þorsteinsdótt ur og Finnboga Péturssonar bónda á Litlabæ. upp fjölmenna barnahóp sínum til þroska og manndóms. Eitt aðal einkenni Hjallafjöl- skyidunnar er, hve samhent hún er. Enda þótt elztu börnin séu farin að heiman standa þau þó jafnan í nánu sambandi við æsku heimili sitt og dvelja þar löngum þegar tóm gefst til. Ég flyt Pétri Finnbogasyni og fjölskyldu hans beztu heillaóskir í tilefni sextugsafmælis hans. Vona ég að honum endist lán og lífsgleði sem lengst fram á hin efri ár. S. Bj. Þriðji kjarnorkukafbáturinn. WASHINGTON — Á þessu ári ætlar bandaríski flotinn að hefja smíði á þriðja kafbátnum, sem knúinn er kjarnorku. Híaai hæstii einkunn, sem tekin hefir verið í Verzlunarskóianum SKÓLASLIT Verzlunarskólans, verzlunardeildar, fóru fram í Sjálfstæðishúsinu í gær. Flutti dr. Jón Gíslason skólastjóri skýrslu um starf skólans á s.l. vetri, sem var 49. starfsár skólans. Alls stunduðu 337 nemendur í 12 bekkjardeildum nám við skólann í vetur. 78 nemendur brautskráð- ust úr verzlunardeild. —- Hæstu einkunn á burtfararprófi hlaut Helgi Gunnar Þorkelsson, fyrstu ágætiseinkunn, 7,69 og er það hæsta einkunn sem nokkru sinni hefur verið tekin við skólann. Annar var Sverrir Bergmann Bergsson, hlaut einnig fyrstu ágætiseinkunn, 7,51, og þriðja Helga Tryggvadóttir með fyrstu einkunn, 7,47. — Einnig sýndu þeir Eiríkur Alexandersson sem hlaut 7,28, Auður Eir Vilhjálms- dóttir, er hlaut 7,14 og Grétar Á. Pétur Finnbogason hóf búskap sinn að Litlabæ en fluttist siðan yfir fjörðinn að Hjöllum. Mun hann hafa búið þar s.l. tæp 20 ár. Jafnframt búskapnum hefur hann jafnan stundað sjósókn á Mörg félög segja samnmgiim upp Verkameíifi gera ekki kaupkröfur GlSyiu sildarsamningum sagf upp I^JÖLDI verkalýðsfélaga um land allt hafði í gærkvöldi klukkan 6 * sagt upp samningum sínum við Vinnuveitendasamband íslands. eigin bát. á síðari árum lengstum meg sonum sinum. Hann er ! — Ekki höfðu lcomið fram kaupkröfur frá nema einu félagi. Samningunum hafa félögin sagt upp frá 1. júní n. k., til þess að geta haft samninga lausa hvenær sem er. kvæntur Stefaníu Jensdóttur, ágætri konu og myndarlegri hús- móður. Hafa þau átt 9 börn og eru 8 þeirra á lífi. Pétur á Hjöllum er mesti dugn- aðarmaður, hjálpfús og trygg- lyndur. Eins og áður segir hefur hann stundað sjó og land jöfnum höndum. Sennilega hefur honum þó verið sjósóknin hivstæðari en landbúnaðurinn. Hann hefur gengið að hverju starfi með áhuga og dugnaði. Hefur honum og farnast vel og komið hinum Góð aðsókn að gamanleik KEFLAVIK, 30. apríl: — Ung- mennafélag Keflavíkur hefur að undanförnu sýnt gamanleikinn „Þrír skálkar" eftir Gandrup, við mjög mikla aðsókn og hrifningu áhorfenda. Ingibjörg Steinsdóttir er leik- stjóri og hefir leikritið nú verið sýnt þrisvar fyrir fullu húsi og verður fjórða sýning í dag, 1. rnaí. — Ingvar. Sarnkvæmt upplýsingum frá Vinnuveitendasambandinu þá voru þessi félög hin helztu er sagt hafa upp samningum. Er þess þó fyrst að geta, að um land allt, nema í Vestmannaeyjum, hefur öllum síldveiðisamningun- um verið sagt upp. Iiér í Reykjavík hafa þessi fé- lög sagt upp samningum: Dags- brún, sem sagt hefur öllum samn ingum upp, en þeir eru fjórir sem félagið hefur við Vinnuveitenda- sambandið. Þá Trésmiðafélag Reykjavíkur, Sveinafél. járniðn- aðarmanna, pípulagningasveinar, prentarar og bókbindarar. — Prentarar gera m. a. kröfu til greiðslu fullrar vísitölu og að vinnutími þeirra verði styttur. — Sveinafél. húsgagnasmiða, Iðja fél. verksmiðjufólks, farmenn á kaupskipaflotanum, togarasjó- menn, blikksmiðir, Mjólkurfræð- ingarfél. og Verzlunarmannafé- lag Reykjavíkur. Meðal félaganna utan Reykja- víkur eru þessi: Akranesi, þar sem verkamenn og konur hafa sagt upp samningum og þar hef- ur reknetjasamningi einnig veirð sagt upp. — Á Akureyri öllum samningum karla og kvenna. — Hlíf í Hafnarfirði hefur aðeins sagt upp samningi verkamanna. — Á Siglufirði höfðu verkamenn sagt upp samningum. — í Kefla- vík hefur samningum verka- manna og verkakvenna verið sagt upp. — Á ísafirði hafa verka menn og vélstjórar í frystihúsun- um sagt upp. — í Vestmannaeyj- um og í Sandgerði hefur samn- ingum karla og kvenna verið sagt upp. Richard Floer jr. A/S Honningsvág — Norge Sími: 20-53-270 — Símnefni: Floer. Miðlun — Sjóvátryggingar — D/S-eksp. Sfelur: Salt, vatn, benzín, dieselolíur, brennsiuolíur, smurningsolíur. — Afgreiðsla allan sólarhringinn. ,Transitlager“ — Útvegun allra matvæla til skipa. Tilkynning frá ritsímastöðinni í Reykjavík um fermingarskeyti. Fermingarskeyti Til þess að greiða fyrir móttöku fermingarskeyta og tryggja það, að þau verði borin út á fermingardaginn, verður framvegis byrjað að taka við skeytum á laug- ardaginn fyrir fermingardaginn og eru símnolendur því vinsamlega beónir að senda skeytin á laugardag eða snemma á sunnudag. Fermingarskeytatímar ritsímans eru 03 (13 línur) og 1020 (5 línur). Snjóaði á Sigiufirði SEYÐISFIRÐI, 30. apríl: — Veðr- ið hefur verið dásamlegt hér und anfarnar vikur, alltaf sólskin og hiti. í dag og nótt brá þó til norð- austanáttar og hefur gengið hér á með smáéljum en þó svo lítið að varla festir á jörð. Nú er að koma sá tími að sauðburður fer að hefj- ast, hann hefst venjulega í fyrstu viku maí Vel lítur út með gróður ef ekki gerir vorhret. —Benedikt. Sigurðsson, er einnig hlaut 7,14 í aðaleinkunn, mjög góða frammi stöðu. í III. bekk voru 6 stúlkur hæst- ar, allar með yfir 7 í aðaleinkunn. Elín Gísladóttir var þeirra hæst, með 7,50. í II. bekk var efstur Gunnar Engilbertsson með 7,03 og í I. bekk var langsamlega efst Hulda Friðriksdóttir, með 7,47 í aðal- einkunn. VERÐLAUNAAFHENDINGIN Eins og að undanförnu var nem endum veitt verðlaun fyrir góðar einkunnir. Helgi Gunnar Þorkelsson hlaút sérstök verðlaun, 1000 kr., frá skólanum fyrir frábæra einkunn og einnig verðlaun úr Walters- sjóði. Þá hlaut Helgi svo verð- launabikara, Vilhjálmsbikarinn, sem veita skal þeim nemanda, er hæsta einkunn hlýtur í íslenzku, en hann hlaut hæstu einkunn, sem hægt er að fá, 6, sem gefur 8 stig, og bókfærslubikarinn, fyr- ir góða frammistöðu i bókfærslu og sömuleiðis fékk Helgi Gunnar bókarverðlaun fyrir vel unnin hringjarastörf. Verzlunarmannafélag Reykja- víkur hefur veitt 500 kr. til verð- launa og hlaut þau Sverrir Berg- mann Bergsson, fyrir ágætiseink- unn við þurtfararpróí. Fékk hann éinnig málabikarinn fyrir góða frammistöðu í erlendum málum. Tvenn verðlaun voru veitt úr sjóði kaupsýslumanna, og hlutu þau, Helga Tryggvadóttir og Ei- ríkur Alexandersson. Vélritunarbikarinn hlaut Ólaf- ur Egilsson. Þá fengu þau Auður Eir Vil- hjálmsdóttir og Grétar Á. Sig- urðsson bókarverðlaun og Skúli B. Sigurgrímsson fékk bókarverð laun fyrir vel unnin hringjara- stiirf. Síðan flutti dr. Jón Gíslason, skólastjóri ræðu og í lok hennar þakkaði hann nemendum sínum góða frammistöðu þeirra í skól- anum og árnaði þeim allra heilla í framtíðinni. GJÖF FRÁ 10 ÁRA NE.MENDUM Þá tók til máls fulltrúi frá 10 ára verzlunarnemendum, Ólafur í. Hannesson, en árgangurinn færði skólanum að gjöf veglega skuggamvndavél. — Flutti Ólafur þakkir 10 ára nemenda til kenn- ara, til Vilhjálms Þ. Gíslasonar útvarpsstjóra, og þakkaði honum góða leiðlaeiningu og árnaði dr. Jóni Gíslasyni, hinum nýja skóla stjóra allra heilla í starfi hans. Þakkaði síðan skólastjóri fyrir gjöfina og sagði skólanum slitið. Sfærsfa fuglasafn landsins í sýningarglugga Hálarans ISÝNINGARGLUGGA Málarans við Bankastræti er nú saman- komið eitthvert stærsta safn smáfugla, sem sézt hefur hér- lendis. Flugfélag íslands hefur gluggann á leigu þessa dagana, en þar hefur m. a. verið komið fyrir ýmsum trjágróðri, svo fuglarnir kunni betur við sig í þessu nýja umhverfi. Ton Ringelberg hefur annast skreytingu gluggans. Smáfuglarnir voru ekki nema um 20 í fyrstu, en í gær bætt- ust 40 i hópinn. Komu þeir fljúg- andi frá Kaupmannahöfn, að vísu ekki af sjálfsdáðum, því Guli- faxi tók af þeim ómakið og flýtti ferð þairra til Reykjavíkur. Flug- ferðin varð raunar nokkuð lengri eh undir venjulegum kringum- stæðum, þar sem Gullfaxi varð að snúa við til Prestvíkur á mið- vikudagskvöld, þegar hann átti skámmt flitg eftir til Reykjavík- ur, sökum þess að Reykjavikur- flugvöllur lokaðist skyndilega vegna þoku. Fuglarnir virtust kunna hið bezta við flugferðina, en þeir voru farnir að flögra um í sýn- ingarglugga Málarans ásamt fér lögum sínum aðeins klukkutíma eftir að, þeir komu til Reykja-' víkur. Fuglarnir eru flestir af. páfagaukakyni, og ennfremur eru nokkrir rísfuglar í hópnum. Einn af starfsmönnum Flugfélags ís- lands, ’ Ulrich Richter, verkstjóri, er eigandi þessa fríða fuglahóps.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.