Morgunblaðið - 01.05.1954, Blaðsíða 16
Veðurútlif í dag;
NA-kaldi, léttskýjað.
98. tbl. — Laugardagur 1. maí 1954
t.Haí
Sjá grein Friðleifs L Friðriks-
sonar á bls. 9.
Kommúnisfar hindruðu ein-
ingu um l.maí háfíðahöldin
Æfluðu að beifa andsfæðinga sína skoðanakúgun
INOKKUR undanfarin ár hefur orðið mikill ágreiningur í verka-
lýðsfélögunum í Reykjavík um 1. maí ávarpið. Þessi ágrein-
ingur hefur stafað af því, að kommúnistar og nokkur hluti Alþýðu-
flokksins hafa sameinazt um það að gera 1. maí ávarpið að komm-
únistísku áróðursplaggi, sem ekkert hefur átt skylt við hagsmuna-
kröfur launþega. — En aldrei hafa þó kommúnistar gengið lengra
í þessu efni en einmitt að þessu sinni, þar sem ávarp dagsins nú
er fyrst og fremst samansafn af slagorðum hins alþjóðlega komm-
únisma, og upptuggðum glamuryrðum Þjóðviljans.
VtLDU RÁÐA EFNI
RÆÐNANNA
Kommúnistar kröfðust þess,
að allir fulltrúar lýðræðissinna
skrifuðu undir þetta ávarp og
þeir gengu lengra.
Þeir kröfðust þess einnig, að
eá fulltrúi Sjálfstæðismanna er
ftytti ræðu- 1. maí á útifundin-
um, skuldbyndi sig til þess að tala
í anda þessa ávarps og þar með
"taka undir áróður alþjóðasam-
bands kommúnista.
Sjálfstæðismenn í 1. maí nefnd
og í stjórn verkalýðsfélaganna
höfnuðu með öllu þessari frá-
leitu kröfu og neituðu að til-
nefna ræðumann á þeim grund-
velli að kommúnistar fengju að
ráða nokkru um efni þeirrar
ræðu, er fulltrúar Sjálfstæðis-
manna flyttu.
„EININGIN“ ER AÐ
KOMMAR RÁÐI
Niðurstaðan 'varð því sú, að
kommúnistum tókst með einræð-
isbrölti sínu að hindra einingu
ura hátíðahöldin í dag og mun
enginn Sjálfstæðismaður tala á
útifundinum og margir lýðræð-
issinnár í 1. maí nefnd og í stjórn
um verkalýðsfélaganna ekki
skrifa undir ávarp dagsins.
Framkoma kommúnista í öll-
um þessum málum er með end-
emum og sýnir vel að hverju
þeir stefna.
Þeir ætlast til þess að þeir ein-
ir fái að ráða því sem sagt er
og gert, „eining“ þeirra byggist
á því að andstæðingar þeirra láti
í öllu stjórnast af þeirri stefnu,
sem kommúnistar hafa til mál-
anna að leggja í það og það
skiptið og þjónar bezt þeirra
ílokkshagsmunum.
SKOÐANAKÚGUN
Slíka skoðanakúgun munu
launþegar almennt ekki sætta
sig við og munu þessar vinnu-
aðferðir kommúnista vissulega
opna augu enn fleiri launþega
fyrir því að hverju kommúnist-
ar raunverulega stefna í verka-
lýðsfélögum og þjóðfélaginu.
Er vissulega leitt til þess að
vita að kommúnistum skuli tak-
ast margsinnis að hindra sam-
starf launþega á þessum hátíðis-
degi verkalýðsins vegna póli-
tiskrar togstreitu og ofbeldis-
kenndar.
Það verður í framtíðinni að
hindra það að pólitískum ævin-
týramönnum takist að svívirða
þennan hátíðisdag verkalýðsins
með áróðri erlendrar ofbeldis-
stefnu, sem vinnur að því að
svifta alþýðuna frelsi.
Tvær stutiar ferðir
Ferðafélagsins
Á MORGUN efnir Ferðafélagið
til tveggja stuttra ferða. Verður
önnur farin suður á Reykjanes,
gengið verður um nesið og m. a.
farið út í vitann. Lagt verður af
stað kl. 9 frá Austurvelli.
Hin ferðin verður út í Viðey.
í hana verður lagt af stað kl. 1,30
frá Loftsbryggju við gömlu ver-
búðirnar.
Kvöldvðkum Fóst-
bræðra fer fækkandi
KARLAKÓRINN Fóstbræður hef
ur undanfarið efnt til kvöld-
skemmtana í Sjálfstæðishúsinu
og hafa þær verið mjög vel sótt-
ar.
Næstkomandi sunnudag verður
næsta kvöldvaka kórsins, í Sjálf
stæðishúsinu. — Kvöldvökunum
fer nú fækkandi og fer hver að
verða síðastur að hlusta á þá
félaga syngja og skemmta, en
kvöldvökurnar eru mjög skemmti
legar, og fjölbreyttar.
Brennur ofan af fveim
heimilum í Laugarnesbúðum
Skálinn aklda er fólkiS vaknaði
ELDSNEMMA í gærmorgun
brann ofan af tveim fjölskyld
Um í Laugarnesbúðum, er íbúðar-
*káli gjöreyðilagðist af eldi og
allt sem í honum var. AIls voru
í skála þessum átta manns. Innbú
heimilanna og skálinn var vá-
tryggt.
AIiELDA ER FÓLKIÐ
VAKNAÐI
Það var klukkan fimm sem
fólkið vaknaði við að skálinn
virtist alelda. — Allt fólkið bjarg
aði sér út um gluggana á skálan-
um og mátti ekki tæpara standa
um að fólkið kæmist út óskaddað.
Allt var það fáklætt upp úr rúm-
unum og enginn tími var til að
bjatga nokkru með sér.
j Á skömmum tíma brann skál-
inn allur að innan og allt sem í
honum var, en skálabogarnir
standa og bárujárnið hangir uppi.
TVÆR SYSTUR BJUGGU ÞAR
Tvær systur bjuggu í skálan-
um, önnur þeirra Jóna Svanhvít
Árnadóttir er með þrjú börn sín
og hjá henni voru rosknir for-
eldrar hennar. Systir hennar Ásta
var með eitt barn sitt, en maður
hennar Kristófer Kristjánsson,
var ekki heima er þetta gerðist.
Fólkið hefur orðið fyrir miklu
tjóni, þó trygging á innanstokks-
munum og skála bæti það að
nokkru. Talið er ser.nilegt að
kviknað hafi í út frá rafmagni.
Magnús Jónsson heldur
söngskemmtun á mánud.
Hefur stundað söngnám á Italíu síðan 1951
MAGNÚS JÓNSSON tenórsöngvari ætlar að halda söngskemmt-
un í Gamla Bíó á mánudaginn kemur. Hann hefur stundað
söngnám í Mílanó síðan 1951 og er enda flestum kunnugur al
ýmsum hljómplötum, sem hann hefur sungið inn á.
Kall í veðri
næslu daga
Snjókoma norðan og
austan lands.
EFTIR HLÝINDIN að undan-
förnu hefur nú kólnað allmjög
hér á landi. f allan gærdag var
frost norð-austan-Iands, en næt-
urfrost hefur verið um allt Norð-
urland og á Vesturlandi. Á Norð-
austur-landi var nokkur snjó-
koma í gær og föl á jörð. Kl. 6
í gærkvöldi var kaldast á Gríms-
stöðum á Fjöllum, 6 stiga frost.
Er líða tók á dag í gær tók
að kólna meira hér sunnan lands.
T. d. var 2 stiga frost á Kirkju-
bæjarklaustri kl. 9 í gærkvöidi og
hiti aðeins 2 stig hér í Reykjavík,
en hafði verið 5 stig kl. 6. Má
því búast við að frost hafi verið
hér í nótt.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk hjá Veðurstofunni i
gærkveldi, var þá ekki sýnilegt
að nokkuð hlýnaði hér í veðri
næstu daga.
„Pressu"-liðið
vamt „úrvaiið”
f GÆRKVELDI fór fram leikur
í handknattleik miiii úrvalsliðs
Reykjavíkurfélaganna og ,pressu‘
liðs, þ. e. liðs, sem íþróttafregn-
ritarar blaðanna völdu úr hópi
þeirra, sem ekki komust í úrvals-
liðið.
Leikar fóru þannig, að „pressu“
mennirnir reyndust hinum snjall-
ari og unnu með 26:24, eftir mjög
fjörugan og tvísýnan leik.
Iv\ eiuiadeildiii
gaf 25.300 kr.
afmælisgjöf
Á 24 ÁRA afmælisdegi Slysa-
varnadeildar kvenna í Reykja-
vík s.I. miðvikudag, afhenti frú
Guðrún Jónasson, formaður
kvennadeildarinnar, Guðbjarti
Ólafssyni, forseta Slysavarnafé-
lags íslands, samtals kr. 25,300,00
— sem afmælisgjöf frá deildinni
og skyldu kr. 20.000,00 ganga tii
greiðslu á nýju sjúkraflugvélinni
en kr. 5,00,00 til kaupa á útbún-
aði handa brimróðrabáti Slysa-
varnafélagsins á Vopnafirði.
A' SUNNUDAGINN kemur, 2.
maí, verður í Háskóla íslands
opnuð sýning, sem haldin er í
tilefni af tveggja alda afmæli
Columbiaháskólans í New York.
Mun rektor Háskóla íslands, próf.
Alexander Jóhannesson, opna
sýninguna.
VÍGORÐ SKÓLANS
Sýningin á að segja í stórum
dráttum sögu þeirrar baráttu,
sem þjóðirnar hafa orðið að hefja
fyrir þekkingarfrelsi og réttind-
um til frjálsrar notkunar þekk-
ingarinnar. Einmitt þetta hefur
frá öndverðu verið vígorð Col-
umbíaháskólans, sem er í tölu
mestu háskóla Bandaríkjanna. —
Um 9—10,000 stúdentar stunda
árlega nám við háskólann, þar af
er venjulega um tíundi hlutinn
nemendur frá öðrum löndum.
Á 27 MYNDASPJÖLDUM
Sýningin er í fyrstu kennslu-
FYRSTA SÖNGNÁM
IIJÁ PÉTRI JÓNSSYNI
Magnús skýrði Mbl. svo frá, að
hann hefði byrjað 18 ára að læra
Magnús Jónsson
söng hjá Pétri Jónssyni og eftir
nokkurra ára nám var hann einn
þriggja nemenda Péturs, ásamt
Guðmundi Jónssyni og Bjarna
Bjarnasyni, sem héldu söng-
Þessi bók Hösts hefir hvar-
vetna vakið mikla og verðskuld-
aða athygli, en hún hefir nú ver-
ið gefin út í 13 þjóðlöndum og
þýdd á 12 tungumál.
stofu háskólans og samanstendur
af 27 myndaspjöldum með skýr-
ingartextum á íslenzku og auk
þess liggur frammi fyrir gesti smá
rit til enn frekari skýringar á
sýningunni og efni hennar.
Sýningin mun standa hér yfir
í hálfan mánuð. — En samtímis
eru slíkar sýningar, sem þessi
haldnar í flestum löndum Vestur
Evrópu og víðar út um heim.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 4—9 og á sunnudögum kl.
2—9 og er aðgangur ókeypis.
Múrarar sagja upp
MÚRARAFÉLAG Reykjavíkur
hefur samþykkt að segja upp gild
andi kjarasamningum við Múrara
meistarafélag Rvk. að undan-
genginni allsherjar atkvæða-
greiðslu í félaginu í gær og i
fyrradag.
skemmtun sameiginlega með
Pétri. Minnast menn hér í bæ3
enn þeirrar söngskemmtunar.
í MÍLANÓ
Magnús söng síðan um skeið I
útvarpskórnum meðan hann var
starfandi og í byrjun ársins 1951
fór hann til söngnáms á ítalíu,
Þar hefur hann verið síðan að
undanteknum stuttum sumarleyf-
um, er hann hefur komið heim.
Lengst af hefur Magnús verið
í Mílanó. Hefur hann haft þrjá
söngkennara og nú síðast kunnais
söngvara að nafni Primo Mont-
anari. Hefur Magnúsi líkað mjög
vel við kennslu hans og hefur i
hyggju að fara aftur til hans I
haust. Meðan hann dvaldist á
Ítalíu söng hann m. a. á einum
stað hlutverk hertogans í Rigo-
letto.
I
SÖNGSKEMMTUN
ÁMÁNUDAG
Á söngskrá Magnúsar í Gamla
Bíó á mánudag kl. 7,15 eru m. a.
gömul ítölsk lög (Cansonur),
íslenzk lög m. a. eftir Kaldalóns3
Pál fsólfsson og Emil Thorodd-
sen og aríur úr óperunum Louise
Miller eftir Verdi og Cavalleria
Rusticana eftir Mascagni.
Það er Guðrún Brunborg, sem
gefur þessa bók út, en Hjörtur
Halldórsson hefir íslenzkað og
búið undir prentun. Ágóðinta
af sölu bókarinnar rennur til
kaupa á tíu herbergjum fyrir ís-
lenzka stúdenta í Stúdentaheim-
ilinu að Sogni, en fyrir því mál-
efni berst frú Brunborg nú.
Per Höst hefir einnig tekið
kvikmynd í ferðum sínum, og
mun Guðrún Bunborg sýna hana
hér í sumar. Fjallar myndin ura
sama efni og bókin. Gafst blaða-
mönnum kostur á að sjá þá kvik-
mynd í gær og er hún mjög
fróðleg og skemmtileg, ekki síz®
dýralífsmyndirnar, sem eru að
vissu leyti einstæðar í sinni röð.
Skákeinvígið |
KSISTNES
VfFILSSTAÐIR
14. leikur Kristness:
Dd8—Í6 J
Columbíaháskóli efnir
ti! sýningar í háskólanum
Stórmerk bók eftir Per
Höst komin út á íslenzku
KOMIN er út á íslenzku hin stórmerka bók norska dýrafræð-
ingsins og landkönnuðarins Per Hösts, „Frumskógar og íshaf“.
en þar sem höfundurinn m. a. frá ferð sinni með selföngurum f
Vesturísnum og kynnum sínum af indíánakynþáttum í landmæra-
héruðum Panama og Colombla, sem voru því nær með öllu ósnortn-
ir af menningu hvítra manna. í bókinni er mikill fjöldi ágætra
mynda efninu til skýringar.