Morgunblaðið - 08.05.1954, Page 1
16 síöur
Dien Bien Phu fnllin eftir tveggjn mánnðn nmsátnr
Vörn gefin upp eftir 20
Mikill mannfjöldi var á hafnarbakkanum í gærdag er Gullfoss lagðist upp að til að fagna forsetahjón-
unum við heimkomu þeirra. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
nu ucim úr Noríhir-
i gær i legursta veðri
klst. stanzlausan hardaga
Kommúnistar beittu rúss-
neskum eidflaugabyssum
París og Saigon 7. maí. Einkaskeyti frá Reuter.
L A N I E L forsætisráðherra Frakklands kvaddi sér hljóðs í
franska þjóðþinginu í dag. Hann skýrði deildinni frá því að
Dien Bien Phu, fjallvirki Frakka í Indó-Kína væri fallið eftir 20
klukkustunda látlausa návígisbardaga. Þar með er lokið 57 daga
hetjulegri umsátursvörn, sem hefur vakið athygli og aðdáun víða
um heim, því að verjendur áttu við margfalt ofurefli að etja.
Beran sektaður
LONDON, 7. maí — Aneurin
Bevan fo.ringi vinstriarms brezka
verkamannaflokksins var í dag
dæmdur í 1000 króna sekt fyrir
árekstur, of hraðan akstur og fyr-
ir að aka brott af árekstursstað
án þess að gæta að hvaða afleið-
ingu áreksturinn hefði haft. —
Samtímis var hann sviftur öku-
leyfi í þrjá mánuði. —Reuter.
Forseti bæjjarstjórnar bai?3 þaa
vclkomin til höfuðborgarinnar
1|/I I KI L L mannfjöldi fagnaði forsctahjónunum, er þau
komu með Gullfossi til Reykjavíkur í gærmorgun, eftir
hina opinberu heimsókn sína til Danmerkur, Svíþjóðar og
Finnlands. — Forseti bæjarstjórnar, frú Auður Auðuns, bauð
forsetahjónin velkomin heim í nafni Reykjavíkur.
Á HAFNARBAKKANUM ------------------------
Gullfoss var kominn upp að
hafnargarðinum fyrir klukkan
10. Voru þar mættir handhafar
forsetavalds: forsætisráðherra,
forseti Hæstaréttar og forseti
Sameinaðs Alþingis svo og utan-
ríkisráðherra, þar voru einnig
sendimenn erlendra ríkja, borg-
arstjóri og forseti bæjarstjórnai:.
— Þar stóðu skátar með fána og
Lúðrasveit Reykjavíkur lék með-
an Gullfoss var að leggjast að
hafnarbakkanum. Bakkinn var
skreyttur veifum í íslenzku fána-
litunum, en Gullfoss hafði fána-
borg við hún og í aftursiglu
blakti fáni forseta.
MOTTOKURÆÐA FORSETA
BÆJARSTJÓRNAR
Lítilli stundu eftir að Gullfoss
hafði laggzt að hafnarbakkanum,
steig frú Auður Auðuns í ræðu-
stól og bauð forsetahjónin vel-
komin og mælti hún á þessa leið:
Herra forseta, virðu-
lega forsetafrú!
Um leið og þér nú innan
stundar stígið á land hér í
Reykjavík leyfi ég mér í nafni
höfuðborgarinnar að bjóða yð-
ur vclkomin heim úr hinni
opinberu heimsókn yðar til
vina- og frænþjóða vorra á
Norðurlöndum, sem jafnframt
er hin fyrsta heimsókn ís-
lenzks þjóðhöfðingja til þess-
ara þjóða, sem bæði menning-
arlega og sögulega standa
okkur öðrum þjóðum nær.
Þær glæsilegu móttökur, er
þér hafið hvarvetna hlotið,
Framh. á bls. 12
LONDON, 7. apríl. — Það
var tilkynnt seint í kvöld
að Vesturveldin þrjú hafi
sent samhljóáa orðsending-
ar til Rússa, þar sem þau
hafna tillögu Rússa um svo
nefnt öryggisbandalag Evr-
ópu. — Rússar báru tillögu
um það fram á Berlínarráð
stefnunni, og var efni henn
ar að öll ríki Evrópu bæði
austan og vestan járntjalds
skyldu ganga í hernaðar-
bandalag. Það fylgdi tillög-
unni að Bandaríkjamenn
mættu ekki koma nálægt
og að Vestur-Evrópuríkin
gætu ekki búizt til varnar
gegn væntanlegum „banda
__ mönnum" sínum Rússum. __
S H
Hví ckki klullaust
Fjórir rússneskir rit-
höfundnr reknir á dyr
Skrifuðu ekki eins og valdhöfunum
þóknaðisf nú
— Reuter.
MOSKVA, 7. maí. Það var
opinberlega tilkynnt í dag, að
rússneska rithöfundafélagið
hefði rekið fjóra kunna rit-
höfunda úr félaginu.
Skýrt var frá því að rithöf-
undar þessir hefðu framið ó-
siðsamleg þjóðfélagshættuleg
brot í ritverkum sinum, sem
ekki gætu samrýmst köllun
sovétskra rithöfunda.
Tveir þessara rithöfunda, A.
Surov og N. Vyeta, eru meðal
frægustu Ieikritahöfunda
Rússa á vorum dögum. Báðir
höfðu þeir áður fengið tvenn
Stalin-verðlaun fyrir ritsmíð-
ar, sem valdhöfunum féllu vel
í geð.
GENF, 7. apríl. — Webb, utan-
ríkisráðherra Nýja-Sjálands,
sagði í dag við umræður um
Kóreu-málin, að vonlaust væri að
reyna að komast að samkomu-
lagi um Kóreu-málin meðan N.-
Kóreumenn neituðú að hlíta því
að hlutlaus nefnd S.Þ. hefði eftir-
lit með væntanlegum þingkosn-
ingum í landinu. — Reuter.
Rússar vildu ekki við-
skipti er til kastanna kom
Vonbrigði af v iðskipf aráðsfef nu
Genf 7. maí. — Einkaskeyti frá Reuter.
NÝLEGA er lokið hér í borg viðræðum milli fulltrúa Vestur-
Evrópu og Austur-Evrópulanda um aukin viðskipti milli austurs
og vesturs. Ráðstefnan hefur orðið fulltrúum Vestur-Evrópu til
vonbrigða og hefur komið í ljós að yfirlýsingar Rússa um vilja til
að auka viðskiptin virðast ekki hafa verið af heilum huga.
VONUÐUST EFTIR
VIÐSKIPTUM
Fulltrúar Vestur-Evrópu komu
á fundinn vonbjartir um að tak-
ast mætti að koma á almennum
viðskiptum, þar sem Rússar og
aðrar Austur-Evrópu-þjóðir
keyptu ýmsar neyzluvörur og
seldu í staðinn t.d. timbur, kol og
korn.
RAUNVERULEGUR
ÁHUGI LÍTILL
En það kom í ljós að Rússar
höfðu ekki nema mjög lítið magn
af þeim vörum, sem Vestur-Evr-
ópu-menn hafa hug á. Sömuleiðis
kom í ljós, að þrátt fyrir allar
yfirlýsingar Rússa um að þeir
vildu kaupa neyzluvörur, til að
bæta lífskjör fólks í löndum sín-
um, að hinn raunverulegi áhugi
þeirra fyrir því á ráðstefnunni
var lítill.
Vörurnar, sem Rússar voru sí-
fellt að spyrja um voru skip,
kopar, vélar og raftæki, sem þeir
Framh. á bls. 2
★★★★★★★★★★★★★
★
★ 20 KLST. BARDAGI
★ 30 þúsund hermenn Viet-
★ minh hófu lokaáhlaupið að
★ kvöldi fimmtudags, eftir fjög
★ urra tíma stórskotahríð og á
★ næstu 20 klst. börðust þeir í
★ gegnum varnir Frakka frá
★ einu smávirkinu til annars.
★ Síðari hluta föstudags náða
★ kommúnistar miðvirkinu, þar
★ sem Christian de Castries
★ hershöfðingi hafði aðalbæki-
★ stöðvar sínar. Þar brutu þeir
★ síðustu varnirnar á bak aftur
★ í æðisgengnum návígisbar-
★ daga. Var barizt með hand-
★ sprengjum, byssustingjum og
★ gripið til hnífa.
★
★★★★★★★★★★★★★
12 ÞUSUND HERMENN
Þjóðarsorg er í Frakklandi
vegna þessa atburðar. Er Laniel
tilkynnti fall virkisins risu þing-
menn úr sætum, allir nema
kommúnistar, til þess að votta
hinum föllnu hetjum í Dien Bien
Phu virðingu sína.
Ekkert er vitað frekar um ör-
lög þeirra 12 þúsund franskra og
Indó-kínverskra hermanna, sem
vörðust í Dien Bien Phu, en síð-
ast þegar til var vitað, varðist
Isabelluvirkið skammt suður af
bænum enn. Það mun ekki hafa
möguleika til áframhaldandi
varnar.
I
ENGIN BREYTING
Laniel, forsætisráðherra, sagði
að kommúnistar hefðu lagt allt
kapp á að ná virkisbænum fyrir
Genfar-ráðstefnuna, til þess að
það gæti haft áhrif á samninga-
umleitanirnar. Þetta hefði þeim
mistekizt vegna hetjulegrar varn-
ar setuliðsins. Fall borgarinnar
nú mýndi enga breytingu hafa í
för með sér varðandi afstöðu
frönsku íulltrúanna á Genfar-
ráðstefnu. Frakkar óskuðu enn
sem fyrr eftir vopnahléi í Indó-
Kína. Svar kommúnista hefði ver
ið að herða á bardögum og mann-
vígum. Krefjast yrði þess af
kommúnistum, ef vopnahlé kæm-
ist á, að þeir gæfu fullkomna
tryggingu fyrir því aff vopnahlé
yrði ekki rofið.
★ Franska herstjórnin í Sai-
★ gon tilkynnti í dag, að í loka-
★ atlögunni hefðu uppreisnar-
★ mennirnir notað eldflauga-
★ byssur af rússneskri gerð. Er
★ þetta enn ein alvarlega sönn-
★ unin fyrir því hve mjög Rúss-
★ ar hafa hönd í bagga með
★ bardögum í Indó-Kína.