Morgunblaðið - 08.05.1954, Page 11

Morgunblaðið - 08.05.1954, Page 11
Laugardagur 8. maí 1954. MORGVNBLAÐIÐ 11 Jón Ólafur Stefánsson ÍÞRÓTTER S™rfGr rrar I Hinnfnearorð Vatnsholti í Staðarsveit, Jón Ól- afur Stefánsson. hátt kominn á Félaffsheimili Víkings í SmáíbúðahverF 79. aldursárið. Kom andiát hans éngum á óvart, enda aldurinn orðinn hár. Síðastliðið "haust kom hann til Reykjavíkur að leita sér lækninga og gekk undir skurð- aðgerð mikla á sjúkrahúsi. Komst hann heim fyrir jól og var það meira af vilja en mætti. Bana- mein hans var krabbamein, sem ekki varð við ráðið. — Alla ævi hafði Jón verið heiisugóður og, — sem betur fór, — þjáðíst hann áðeins nokkra mánuði af hinum illa sjúkdómi og var oftast, hægt að lina kvalir hans, svo að þær voru ekki óbærilegar. Jón fæddist á Steiná í Svartár- dal í Húnavatnssýslu 17. maí 1875. Foreldrar hans voru Stefán Magnússon, bóndi þar, og kona hans Ingibjörg Magnúsdóttir. Var það mikið myndarheimili. Eru ættir þeirra kunnar þeim er um ættfræði hirða og mun ég því ekki rekja þær hér. — Jón var um fermingaraldur við nám hjá móðurbróður sínum, síra Jóni Magnússyni á Mælifelli, eftir það aflaði hann sér menntunar í tungumálum og varð vel mennt- aður maður, þótt aldrei færi hann í neinn skóla. Seytján ára gámall gerðist hann verzlunar- maður, lengst við Gránufélags- vérzlun á Sauðárkróki, sem þá var undir stjórn hins merka vérzlunarstjóra Stepháns Jóns- sonar, Hallssonar prófasts. Var það mikið menningarheimili og hafði Jón mjög gott af að um- gangast þá fjölskyldu. — Síðar varð Jón útgerðarmaður á Sauð- árkróki og rak þar smáverzlun um skeið, en um aldamót fór hann til bróður sins, Magnúsar kaupmanns og bónda á Blönduósi (Magnús bjó jafnframt stórbúi á Flögu í Vatnsdal). Var Jón við verzlun þessa meira en tug ára. Eftir það fluttist hann vestur á Snæfellsnes, fyrst að Bjarnarhöfn í nokkur ár en keypti Vatnsholt í Staðarsveit. góða og mikla jörð, órið 1918 og bjó þar til dauðadags, hin síðustu árin að nokkru leyti ásamt sonum sínum eftir að þeir komust upp. Árið 1913 kvongaðist Jón eftir- lifandi konu sinni Jónínu Þor- steinsdóttur frá Egilsstöðum á Völlum, mestu ágætiskonu að dugnaði, skapprýði og öðrum mannkostum. Varð hún honum hinn bezti og tryggasti lífsföru- nautur og stundaði hann nú að síðustu af einstakri alúð og um- hyggju. Börn eignuðust þau átta, öll mannvænleg. Tvö dóu, hin elztu, á bezta aldri, en þau voru Kon- ráð, kvæntur Hjördísi Sigurðar- dóttur og Ingibjörg ógift. Á lífi eru: Stefán, múrarameistari í Vatnsholti, kvæntur Þorbjörgu Jónsdóttur. Margrét, gift Þórði Gíslasyni bónda og kennara á Ölkeldu. Rannveig, heitbundin Hirti Gíslasyni, bifreiðarstjóra og bónda á Fossi. Magnús Gunnar, bóndi í Vatnsholti, heitbundinn Auði Guðmundsdóttur. Þorsteinn stúdent, kennari nú í Reykjavík, Jón Helgi, heima í Vatnsholti. Jón Olafur Stefánsson var mikill hugsjónarmaður sem ætíð hafði margt á prjónunum, sem til framfara og menningar mætti verða bæði í einkamálum sínum og til almenningsheilla. Hann hafði brennandi áhuga fyrir því, að kippa því í lag sem honum fannst miður fara bæði í einka- lífi manna og í stjórn sveita og lands. Hann kom jafnan djarf- lega fram við alla og óttaðist aldrei að láta skoðanir sínar. í Ijós við hvern þann er hann mælti við og þá helzf við þá er mest höfðu völdin. Ætíð var hug- ur hans fullur af alls konar áætl- unum og uppástungum um marg- vísleggi; frapifarir, Sjálfur var Jón jafnan fremur fátækur, enda Ómegð mikil, auk þess varð hann fyrir tjónum sem eríitt var að bæta. En duglegur var hann til verka, meðan kraftar entust, og það var lengi. Laghentur var I hann og útsjó.iarsamur með vél- ar, t. d. smiðaói hanrí, er hann var { unglingur heima á Steiná, hjól er ! hann setti í læk þar og lét snúa 1 hverfisteini, þotti þetta vel gert af barni, er enga fyrirmynd hafði aðra en þá, að hann hafði séð vatnsmyllu. En sökum fjárskorts kom hann mörgu af því, er hug- urinn stóð til, aldrei í verk og tókst ekki að vinna það stórvirki í ræktun er hann jafnan hafði í huga, allt fram á efstu ár. Aidrei skorti Jón kjark né áræði á hverju sem gekk. Er hann var unglingur um tvítugt á Sauð- árkróki bjargaði hann eitt sinn manni frá drukknun með snar- ræði og áræði. Bát hafði hvolft undir manninum í stormi, frosti og vondum sjó. Jón varpaði sér til sunds og tókst að ná mannin- um. Var þetta hið mesta þrek- virki. Á Blönduósi tókst honum, einnig með áræði og lífshættu að bjarga mönnum úr sjá ^arháska. Þótt Jón væn engin iv^aita-jötun var hann harosterkur og mjog liougur og snar í snúningum, hlífði sér ekki er á þurfti að taka og var fljótur að framkvæma það sem hann sá að þurfti. Hann var vissulega aldrei að tvítóna við það, sem hann ætlaði að gera, hvort sem það var að vinna eitt- hvert verk, halda ræðu á mann- íundum eða fara í ferðalag. Ég held að Jón hafi fyrstur manna stungið upp á því í blaða- grein um aldamót eða áður að ull yrði metin eftir gæðum, þótt aðr- ir kæmu því máii auðvitað í fram kvæmd. Það var margt sem hon- um datt í hug á undan öðrum mörínum er til framfara horfði og nú er talið sjálfsagt til almenn- ings heilla. Þessum fátæka en hugsjónaríka bónda verður aldrei getið í sambandi við þau mál, þegar sumt af því, sem kallaðir voru loftkastalar hjá honum verður orðið að bjargföstum veruleika. Það var alltaf eitlhvað hressi- legt og bráðlifandi í fari Jóns Ó. Stefánssonar. Aldrei svefn né drungi. Ætíð nýjar áætlanir, ætíð sami ódrepandi áhuginn. En svo kom endirinn, eins og ætíð. — Hann var jarðaður í heimagrafreit og fylgdu honum margir til moldar. — Hvíli hann í Guðs friði. Þorsteinn Jónsson. BarnlaLic eidri hjón óska eftir 1 herbergi og eld- liúsi, helzt í risi á rólegum stað, helzt í austurbænum. Standsetning eða fyrirfram- greiðsla, ef óskað'er.' Uppl. í síma 5G94 á morgun eftir kl. í og næstu daga fyrir hádegi. BEZT .40 AVOL2SA I MORGVNULAÐINU KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Vík- ingur heldur um þessar mundir hátíðlegan 46 ára afmælisdag sinn. í deyfð og dimmu vetrai- ins hefur átt sér stað undravert framtak í Víkíng. Frá því í haust hefur fámennur hópur dugmik- illa Víkinga unníð í kyrrþey að reisa stórt og fallegt félagsheim- ili, sem þegar er að komast und- ir þak á svæðí félagsins, sem liggur hjá hitaveitustokkunum milli Bústaðahverfis og Smá- I húsahverfis. Með komu sumarsins er rétt ! að minnast á starfsemi þessa, sem er heillavænleg öllu íþrótta- lífi í höfuðstaðnum. Þessvegna höfum við snúið okkur til formanns félagsins, Gunnars Más Péturssonar, og beðið hann að greina frá starf- semi þessari. — Víkingur var kallað „Suðui - götufélagið“, er það ekki? — Jú, það er rétt, og margir eldri meðlimir félagsins óskuðu þess vegna, að við reyndum að hafa félagið í námunda við Suð- urgötu, þ. e. a. s. í Vatnsmýr- inni. — En hvers vegna, fluttuð þið þá starfsemi félagsins í úthverfi bæjarins. Hvenær átti það sér stað? — Til þess liggja ýmiss kon- ar ástæður. Við áttum í brösum við bæjaryfirvöldin vegna um- sóknar okkar um svæði í Vatns- mýrinni, þessvegna ákvað stjórn félagsins vegna hvatningar ýmsra ágætra félaga, að athuga nánar, hvort heppilegt væri að hafa fé- lagssvæði í Vatnsmýrinni eða ekki. Við litum á kortið yfir Reykjavík’ og sáum, að þegar Valur á sínum tíma notfærði sér svæði við Hliðarenda, var það í úthverfi bæjarins og í dag teyg- ir bærinn sig allt inn að Gelgju- fanga að Elliðaám og Kópavogi, í stuttu máli vex bærinn hröð- um skrefum í austurátt. Hér var vert að gefa því gætur, að það var ekkert knattspyrnufélag handa unglingum þessara hverfa. Og árangurinn var sá, að Vík- ingur sótti 3. sept. 1952 til bæj- arráðs um svæðið við Hæðar- garð. Á TVEIMUR. STÖDUM — Hvernig litu bæjaryfirvöld- in á mál þetta? — Þrátt fyrir það að einstakir aðilar höfðu vissulega ekki gert sér fyllilega ljóst gildi íþróttar- innar nýju bæjarhverfunum, sættum við þó fullum skilningi frá hendi bæjaryfirvaldanna, sem vissulega ber að þakka, enda er þessi starfsemi okkur ekki einvörðungu til gagns fyrir Vík- ing, heldur og einnig fyrir bæj- arfélagið í heild. — Hvenær var ykkur úthlut- að hinu nýja svæði? — í febrúarmánuði 1953. Þrátt fyrir ánægju okkar og gleði, er við höfðum hlotið svæði handa félaginu, gerðum við okk- ur fyllilega ljóst, að þá hóist aðal verkið. Augljóst er, að fé- lögin í dag eru háð því, hvar meðlimir þeirra búa, að minnsta kosti yngri meðlimirnir. Hinir þrír opinberu knatt- spyrnuvellir bæjarins, sem félög- in hafa fengið afnot af,' eru hjá Háskólanum, og við getum ekki vænzt þess ,að drengirnir sæki svo langt æfingar. Hins vegar vilja eldri félagarnir ekki breyta til og æfa á ójöfnum grasvelli á svæðinu. Þess vegna urðum við að halda | áfram æfingu eldri drengjanna á Melavellinum og um leið að gera völl handa yngri drengjum, sem eiga heima í hverfum um- hverfis völlinn. Þetta var gert í lok maí 1953 og með aðstoð stjórnar ÍSÍ fékk félágið Axel Ándfésson, sendi- kehnará, tií að æfa ýrígsfú dreng- ina'. Vár 'Hann uríá fnánaðartfrha og vegna frábærra starfa hans * inu er nú orðið íokhel Reynt er nú að afla fjár til að fiEllgera húsið Myndin sýnir félagsheimili Víkings eins og það á að verða. Nn er fokheld orðin aðalbyggingin, tveggja hæða húsið. Víkingar er« staðráðnir i að halda byggingunni áfram hvildarlaust. gerðust um 100 drengir meðlim- ir í félaginu á þessum stutta tíma. En eins og kunnugt er, var Axel Andrésson einn af stofnend- um Vikings og forrríaður þess í 16 ár eða 1908—1924. Sem dæmi um vinsældir Ax- els má nefna ,að á morgnana kl. 9 sanfaðist ávallt hópur smá- drengja við dyr hans, enda þótt æfingin ætti ekki að byrja fyrr en kl. 10. HAFIZT HANDA — En Rvenær byrjuðuð þið að reisa félagsheimilið? — Mikil vandamál voru aftur á vegi okkar. Hvort áttum við að þurrka jarðveginn og gera velli eða hefjast handa um bygg- ingu félagsheimilis? Félag, sem flyzt í úthverfi, mætir meiri erf- iðleikum en önnur félög. Enn- fremur má ef til vill segja, að Víkingar hafi átt að sæta tölu- verðri torgtryggni meðal út- hverfisbúa, sem eru flestir ungir að árum. Við komumst að þeirri niðurstöðu, að ef við byggðum strax félagsheimili óg gerðum það nothæft, myndu íbúar hverf- isins lita á starf okkar af meiri skilningi og að líkindum styðja okkur, enda má segja, að þörf sé mikil fyrir félagsheimili hjá fólki þvi, er býr í úthverfunum. Sjálft verkið hófst 2. sept. í fyrra og Axel Andrésson stakk fyrstu skóflustunguna — en lítt var haldið á loft þessum merkis- atburði. Húsið er teiknað af Gísla Halldórssyni arkitekt og bygging- armeistari er Jón Bergsteinsson, sem er gamall og góður Víkingur. Þakkir okkar til hans eru miklar. — Hversu stórt er húsið? — 418 m2 eða 1800 m:!. Þar er forstofa, fatageymsla, stjórnar- herbergi, 100 m2 salur, eldhús, húsvarðaríbúð, 2 búningsher- bergi, böð, salerni, geymslu- herbergi o. fl. Það er erfitt fyrir eitt félag að koma upp slíku húsi. En ég vil minnast hér á ómet- anlegt gildi þess, að Bæjarsjóður Reykjavíkur, íþróttasjóður ríkis- ins og Félagsheimilissjóður styð- ur okkur allt að því 60% af by'gg- ingarkostnaðinum. Að vísu greið- ist þetta síðar, en við höfum not- ið ómetanlegrar hjálpar og skiln- ings þeirra fyrirtækja, sem vrí> höfum skipt við. Byggingarkostn- aðurinn verður um það bil 1 millj. króna. FJÁRÖFLUN — En hvernig aflið þið þcirra 400 þús. kr., sem hér þurfa bætast við? Félagið átti í sjóði kr. 80.000.00 og var hafizt handa með þá upp- hæð, en okkur er það fyllilega ljóst að stjórn félagsins og ungir. knattspyrnumenn geta ekki einir lyft þessu Grettistaki, en það (r. von okkar að allir þeir mörgu. Víkingar, sem minnast mtð ánægju gömlu daganna, þegar þeir störfuðu í félaginu, skilji vandamál okkar og styðji okkur fjárhagslega. Til þess að afla fjár hefur ver- ið stofnað til happdrættis. Miðar- eru samtals tvö þúsund og kostar hver miði kr. 100.00. Vinningar eru 20 farmiðar til Kaupmanna- hafnar og til baka (10 með skipi og 10 með flugvél), samtals að verðmæti kr. 55.000.00. 'Konur því einn vinningur á hverja hundrað miða sem út eru gefnir. Happdrætti eru óvinsæl um þessar mundir, en við vonum, að fólk hjálpi okkur, því að kostn- aðurinn við félagsheimilið er ó- kljúfanlegur án aðstoðar þess. — Hvað geturðu sagt mér um framtið félagsins? — Hversu fljótt það heppnast okkur að reisa félagsheimilið og knattspyrnuvellina, er auðvitað fjárhagslegt atriði, en það get ég sagt með vissu, að í dag er eng- inn efi á, að Víkingur hefur öll skilyrði til að verða öflugt knatt- spyrnufélag innan fárra ára. Að lokum vil ég segja ykkur, ungu Víkingum, að snjall kratt- spyrnumaður treystir á samleik, samleikurinn skapar samheldni og samheldnin góða félagsborg- ara. F V. Frjálsíþróttanámskeið S.R. hefst á merguzi ASUNNUDAGSMORGUNINN kl. 10 hefst námskeið það í frjáls- íþróttum, sem íþróttafélag Reykjavíkur efnir til. Stendur námskeið þetta í mánaðartíma, en kennara verða Guðmundur Þórarinsson þjálfari í. R. og hinir gömlu íþróttamenn félagsins Finnbjörn Þorvaldsson og Haukur og Örn Clausen. KVIKMYNDIR Æfingar verða þrisvar í viku á íþróttavellinum og á sunnudög- um verða sýndar íþróttakvik- myndir. Sýningarnar fara fram endurgjaldslaust í Trípólíbíói. — í námskeiðslok verður efnt til móts fyrir þátttakendur og keppt í öllum aldursflokkum. — Nám- skeiðið er opið öllum sem náð hafa 12 ára aldri. GOTT TÆIÍIFÆRI ÍR vill benda þeim utanbæjar- mönnum, sem ekki hafa tæki- fsériTil &ð sáékjk' ríárríákéiðið; 'að’ þeir geta fengið sendar þjálfunar- leiðbeiningar í pósti, ef þeir æskja þess og senda beiðni um það bréflega, merkta: íþrótta- námskeið ÍR, box 13. — Þátttak- endur fá starfsskrá yfir hóm- skeiðið en allar upplýsingar gef- ur íþróttavallarvörður, Baldur Jónsson. Óhætt er að hvetja alla áhuga- sama menn um íþróttir til þátt- töku í námskéiðinu og sérstak- lega vill félagið benda foreldr- um á að senda unga syni sína á námskeiðið og með því nota þc tta sérstaka tækifæri til að vekja 'áhtfga' þeirra* á likamsþjálfun og íþróttum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.