Morgunblaðið - 25.05.1954, Side 9

Morgunblaðið - 25.05.1954, Side 9
Þriðjudagur 25. maí 1954 MORGVNBLABIB 9 Yfir vígslu úburðurverksmiðjunnur hvíldi blær bjurt- sýni og trúur ú frumtíðinu Innlend óburðarframleiðsla mun auðvelda ræktunlna og skopu bændum auklð öryggá Háfíðleg afhðfn í Gufunesi s.l. laugardag. ÞEGAR vígsla áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi hófst kl. 2 s. 1. Iaugardag gengu milðar gróðrarskúrir yfir staðinn og um- hverfið. Fjöldi gesta var samankominn í sekkjunarsal verksmiðj- | unnar, þar sem vígsluatböfnin fór fram. Þar lagði forseti íslands homstein að verksmiðjunni með því að múra hólk með sögu bygg- j ingarmálsins inn i einn vegg hússins. Ennfremur studdi Stein- grímur Steinþórsson landbúnaðarráðherra á hnapp sekkjunarvél- ar og fyllti með því fyrsta áburðarpokann, eftir að hann hafði form- lega lýst því yfir að verksmiðjan væri opinberlega tekin í notkun. Yfir allri þessari athöfn hvíldi blær bjartsýni og trúar á fram- tíðina. Ekki reyndist unnt að segja frá henni í sunnudagsblaðinu, vegna þess að blaðið fór í prentun kl. 4 á laugardaginn. Verða hér á eftir rakin aðalatriði þess er þar gerðist. HORNSTEINN LAGÐUR Vilhjálmur Þór form. áburðar- verksmiðjustjórnarinnar bauð gesti velkomna. Voru þarna við- staddir auk forsetahjónanna, ráð- herrar, margir þingmenn, sendi- herra Bandaríkjanna á íslandi, Edward B. Lawson, borgarstjór- ínn í Reykjavík, og margir þeirra, sem unnið hafa á einn eða annan hátt að byggingu Áburðarverk- smiðjunnar. Forseti íslands lagði nú horn- stein verksmiðjunnar með því að múra hólk með byggingarsögu hennar inn í einn vegg hússins. Að því loknu flutti forsetinn ávarp. Minntist hann á það í upp- hafi að allur iðnaður og iðja hefði farið stórlega vaxandi í landinu hina síðustu áratugi. En hér væri í fyrsta sinn stofnað til stóriðju. Hér hæfist nýr kafli í iðnaðarsögu landsins. Því fögn- uðu allir íslendingar af heilum huga. Forsetinn lauk máli sínu með þessum orðum: ÁRNAÐ HEILLA „Vér erum fámenn þjóð, og völdum ekki hinum stærstu verk- efnum, nema allir leggi saman. „Sterkur fór um veg, þá var steini þungum lokuð leið fyrir; ráð at hann kunni, þó ríkur sé, og hefðu þrír um þokað.“ Það eru samtök allrar þjóðarinnar, sem hafa þokað þessu verksmiðju máli áfram þangað „þar sem nú stöndum vér“. Sá sem ekki hefur komið hér tvö síðustu árin mun varla þekkja Gufunesið aftur fyr- ír sama stað. Slík afköst í bygg- ingariðnaði hafa ekki þekkzt áð- ur hér á landi. Að vísu er forsagan löng og margir ágætir forustumenn, sem ég skal hvorki nefna né gera upp á milli, en það eru einhuga sam- tök þjóðarinnar á Alþingi, sem hafa reist þessa stofnun til hags- bóta fyrir landbúnað og þjóðar- heild. Það sem hér er unnið fyrir eina stétt kemur öllum að notum. „Bera bý bagga skoplítinn hvert að húsi heim, en þaðan koma ljós hin logaskæru á altari hins göfuga guðs“. Það finnst máske einhverjum full hátíðlegt, að vitna í þetta undurfagra Ijóða- lagavers í sambandi við áburðar- verksmiðju, en Jónas orti það um atkvæðisréttinn og endurreisn Alþingis, og það á við bæði sam- kvæmt efni og uppruna, hvenær sem vér gleðjumst sameiginlega yfir alþjóðar átaki og afreki. Áburð er ekki að foragta! Hóf- uðskepnurnar vatn, loft og orka hafa hér verið beizlaðar til þjón- ustu við moldina, gróandann, Bú- kollu og Ljómalind, landsins börn og íslenzka menningu. Ég órna Áburðarverksmiðjunni allra heilla í starfi fyrir land og lýð.“ Að lokinni ræðu forseta Islands söng tvöfaldur kvartett úr karla- kórnum Fóstbræður. SAMEIGINLEGT ATAK Þá flutti Vilhjálmur Þór, fpr- maður áburðarverksmiðjustjórn- arinnar ræðu. Skýrði hann frá undirbúningi verksmiðjumálsins og rakti byggingarsögu verksmiðj unnar. Kvað hann miklar vonir tengdar við þetta glæsilega mann Steingrímur Steinþórsson, land- búnaðarráðherra, flytur vígslu- ræðuna. virki, bæði meðal islenzkra bænda og þjóðarinnar í heild. Þá minntist hann Marshull-stofnun arinnar og þeirrar mikilsverðu aðstoðar, sem hún, alþjóðabank- inn í Washington, Bandaríkja- stjórn og ýmsar þjóðir Evrópu, sem hlut áttu að efnahagssam- vinnú hinna vestrænu þjóða, hefðu veitt íslendingum í þessu mikla framfaramáli þeirra. Aa þeirrar aðstoðar væri Áburðar- verksmiðjan í Gufunesi ekki ris- in. Þakkaði formaður áburðar- verksmiðjustjórnarinnar öllum þessurh aðiljum, Alþingi og ríkis- stjórnum og öllum þeim, sem unnið hefðu að framkvæmd þessa mikla mannvirkis. Gaf hann síð- an landbúnaðarráðherra, Stein- grími Steinþórssyni orðið og bað hann að lýsa því yfir að verk- smiðjan væri formlega opnuð og tekin til starfa. RÆÐA LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA Landbúnaðarráðherra komst m. a. að orði á þessa leið: „Það er vor í lofti í dag. Hlýr vorblær og gróðurangan fyllir loftið og gróðrarskúrir vekja frjómögn jarðar til orku og lífs. Sú athöfn, er hér fer fram í dag — það er vígsla og opnun Áburð- arverksmiðjunnar — fyrstu verk- smiðju á Islandi, er vinnur áburð úr lofti og vatni og er stærsta iðnfyrirtæki íslenzku þjóðarinnar er tengd vori og gróandi lífi. Það er því mjög vel farið, að þessi hátíð farl fram að yori til, þegar gróðúröfl náttúrúnrtar eru að leys ast úr læðing — nýtt líf að vakna og þroskast til yndisauka og hagn aðar fyrir þjóðina alla“. í lok ræðu sinnar féllust Vilhjálmur Þór, formaður verk- smiðjustjórnarinnar flytur ávarp. Steingrími Steinþórssyni orð ó þessa leið: „Ég mun nú ijúka þessum fáu orðum. Verksmiðjan hefur undanfarna mánuði starfað að framleiðslu köfnunarefnisáburðar —■ og hef- ur náð fullum afköstum — það er þess vegna nú þessa dagana víðsvegar um land, í fyrsta skipti í sögu þjóðar okkar, verið að frjóvga íslenzka jörð með alinn- lendum verksmiðjuáburði. — Það er hin rétta og um leið virðu- legasta vígsluathöfn sem fram getur farið. — Það eru jarðrækt- armennirnír — bændur íslands, sem framkvæma þá vígslu — þeir biðja þess um leið og þeir dreifa áburðinum um vorhlýja gróðurmoidina að gróðurstarf þeirra verði þeim sjálfum og þjóð sinní til blessunar. HELG ATHÖFN Allir þeir er skilja innsta eðli ræktunar og ræktunarmenningar, vita að það er helg athöfn sem þar fer fram. Eða eins og eitt af góðskáldum okkar orðar það í ástaróði til ræktunar og ræktun- arstarfa: Ef ég mætti yrkja ýrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmannskirkja, sáning bænargjörð. Vorsins söngvaseiður sálmalögin hans: Blómgar akur breiður blessun skaparans. Þessi orð vil ég gera að mínum kynslóð, og þær, sem á eftir koma. Ég leyfi mér að lýsa því yfir að Áburðarverksmiðjan tekur hér með íil starfa undir stjórn verksmiðjustjórnarinnar. Megi góðvættir íslands — Lands vor Guð — vernda þau störf er hér verða unnin til hagsbóta fyrir land og lýð“. Er Steingrímur Steinþórsson hafði lokið máli sínu gekk hann' að sekkjunarvél í verksmiðju- salnum, studdi þar á hnapp og fyllti þar með fyrsta áburðarpok- ann, eftir að verksmiðjan hafði formlega tekið til starfa. Þá söng tvöfaldur kvartett Fóstbræðra að nýju og lúðrasveit Reykjavíkur lék. RÆÐA INGÓLFS JÓNSSONAR Þá flutti Ingólfur Jónsson iðn- aðarmálaráðherra ræðu. Kvað hann Áburðarverksmiðjuna vera hvatningu til frekari fram- kvæmda á sviði stóriðnaðar í landinu. Bygging mannvirkjanna í Gufunesi gæfi þjóðinni aukna trú á landið og hina miklu mögn- leika þess. Bað hann þess að lok- um að Áburðarverksmiðjan mætti alltaf uppfylla vonir land- búnaðarins og iðnaðarins í land- inu og verða allri þjóðinni til blessunar og hagsældar. Hefur ræðu ráðherrans áður verið getið hér í blaðinu. Fulltrúi efnahagssamvinnustofn- unarinnar, Matthías Þorfinnsson, flytur ávarp. um leið og Áburðarverksmiðjan er vígð og tekur til starfa. Bænd- ur íslands — ræktunarmennirnir — eru nú daglega að vígja þetta mikla og glæsilega atvinnutajki til starfa fyrir komandi kvn- slóðir. — Til þess að létta ok eþf- iðis af þreyttum herðum þeirrar stéttar er sinnir því mikia og göf- uga verkefni að rækta íslenzka mold — vekja gróðurmagn henn- ar til lífs fyrir þig, núverandi Ingólfur Jónsson, iðnaðarmálaráð herra, flytur ávarp. ÁVÖRP OG KVEÐJUR Þá lýsti framkvæmdastjóri verksmiðjunnar Hjálmar Finns- son því yfir að nokkrir aðilar myndu flytja kveðjur og árnaðar óskir. Tók þá fyrstur til máis Gunnar Thoroddsen borgarstjóri og komst m. a. að orði á þessa leið: „Árnaðaróskir vil ég flytja Áburðarverksmiðjunni á þessum degi frá bæjarstjórn Reykjavikur og stjórn Sogsvirkjunar. Um*Ieið eru það hamingjuóskir til allrar íslenzku þjóðarinnar með þetta langþráða framleiðslutæki, sem verða skal lyftistöng landbúnað- ar á íslandi og öndvegisfyrirtæki íslenzks iðnaðar.“ „Undirstaða áburðarframleiðsl- unnar er ódýr raforka. Samn- ingar hófust því snemma milli stjórnar Sogsvirkjunar og Áburð - arverksmiðju um sölu raforku til fyrirtækisins. Ég ætla, að í því efni hafi niðurstaðan einnig orðið hagstæð báðum aðiljum. Áburð- arverksmiðjan fær næga raforku með hagkvæmum kjörum og sleppur við stofnkostnað eigin aflstöðvar. Á hinn bóginn selur Sogsvirkjunin verksmiðjunni mikið af afgangsorku utan mestu álagstíma. Það grunnafl, sem Áburðarverksmiðjan fær frá Sogi, er allt að 4000 kw. af 56.000 kw., sem Sogsvirkjunin og Raf- magnsveita Reykjavíkur hafa nú yfir að ráða. Svara þessi 4 þús. kw. grunnafls til 30 milljóna kílówattstunda á ári, en auk þess fær verksmiðjan þrefalt meira, eða 90 millj. kílówattstunda af- gángsorku, aðallega næturorku, sem ekki væri hægt, a. m. k. fyrst um sinn, að nýta á annan hátt. Af þessum ástæðum gengur hin mikla rafmagnsnotkun verk- smiðjunnar ekki út yfir almem- ingsnotkun á orkuveitúsvæði Sogsins, SAMSTARF SVEITA OG KAUPSTAÐA Áburðarverksmiðjan er ánægjn legt tákn um vinsamlegt samstatf milli sveita og kaupstaða. Reykja víkurborg er aðaleigandi Sogs- virkjunarinnar, sem nú er sarti- eign Reykjavíkur og ríkisins. í virkjun Irafoss var ráðizt ágætum atbeina og fulltingi rík- isstjórnarinnar. En Reykjavíkur- kaupstaður telur sér Ijúft og skylt að geta stuðlað að því með sökt ódýrrar raforku, að Áburðar- verksmiðjan, þetta mikla nauð- synja fyrirtæki íslenzks landbún- aðar, geti komizt upp sem fyrst. Fyrir Reykjavíkurborg er hið öra aðstreymi hið mesta vanda- mál. Bezta ráðið til að draga úi* því er að bæta lífsskilyrðin úli á landi. Þannig fara saman hags- munir fólksins í sveit og við sæ, í borg og í strjálum byggðum. Gæfa fylgi starfi Áburðarverk- smiðjunnar um aldurdaga.“ FULLTRÚI EFNAHAGSSAM- VINNUSTOFNUNARINNAR Þá tók til máls Vestur-íslend- ingurinn Matthías Þorfinnsso-n, sem flutti kveðjur og árnaðar- óskir frá efnahagssamvinnustofn- uninni í Washington og Harolrl Stassen yfirmanni hennar. Lét hann í ljósi ánægju sína yfir þvi að Bandaríkin hefðu fengið tæki- færi til þess að styðja íslending’a í því að reisa áburðarverksmiðju og kVaðst vona að hún yrði ís- lenzkum bændum og þjóðinni allri til hins mesta gagns. Þá talaði fulltrúi erlendra verkfræðinga, sem að verksmiðju byggingunni hafa unnið, dr. Charles O. Brown. Kvað hann þetta vera hinn mesta gleðidag. Áburðarverksmiðjan væri aðeins byrjunin að stórfelldri iðnþróun á íslandi. íslendingar ættu óþrjót- andi vatnsafl og myndu hagnýta það til eflingar atvinnulífi sínu. BRAUTRYÐJANDI ÍSLENZKRAR STÓRIÐJU Þá tók til máls Árni Snævarr verkfræðingur og mælti fyrir hönd íslenzkra verkfræðinga, sem að verksmiðjubyggingunni hafa unnið. Kvað hann það öllum gleðiefni að sjá og kynnast þeim miklu mannvirkjum, sem risin væru í Gufunesi, ekki sízt þeim, sem á einn eða annan veg hefðu lagt þar hönd á plóginn. Síðan komst hann að orði á þessa leið: „Að vísu er hér í Gufunesi fórnað grænum grundum og blómlegum bölum, en kyngi- kraftur þess efnis, sem verk- sfniðjan hér framleiðir, mun á ókomnum árum skapa nýjar grundir, nýjar fagrar sléttur þúsund og aftur þúsundfalt stærri þeim, sem í sölurnar voru lagðar. Þannig verður gagns og gæða notið og náttúrufegurð end- urheimt. Ég_ gat um það áðan, að bygg- ing Áburðarverksmiðjunnar hef- ur verið þeim, sem að henni hafa starfað, mikið gleðiefni. Þeir vilja nú í dag flytja þessu fyrirtækj, brautryðjanda íslenzkrar stór- iðju, sínar beztu heilla- og ham- ingjuóskir. Þeir vilja og flytja þakkir fyrir það, að hafa átt þess kost að starfa hér, og fyrir ágæta samvinnu. í riafni þeirra íslenzkra verk- fræðinga, iðnaðarmanna og verka manna, sem með hug og hönd hafa lagt stein í þessa miklu byggingu, vil ég leyfa mér að flytja Áburðarverksmiðjunni þær heillaóskir, að héðan frá Gufu- nesi megi á komandi árum í sí- auknum mæli berast íslenzkri mold sá gróðurmáttur er breyti hverjum örfoka mel og hverri óræktar mýri í frjósama jörð, hverjum erjandi bónda til bjarg- ráða og hverjum vökulum veg- faranda til yndis og ánægju, Gangi svo Áburðarverksmiðjan allt til tírs og tima.“ HEILLAÓSKIR ALÞJÓÐABANKANS OG ÞAKKIR BÆNDA Þegar hér var komið las fram-i Framh. á bis. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.