Morgunblaðið - 27.06.1954, Page 1
16 síður og Lesbók
I 41 > árgangu
143. tbl. — Sunnudagur 27. júní 1954
Prentsmiðja Morgunblaðsim
Sólin alniyrkvuð. — Korona sést utan við turiglskífuna.
1 jósmyRd&ssm
Mlil.:
Vefðkunum heitið
myrkvonum
MORGUNBLAÐIÐ hefur ákveðið að efna til samkeppni meðal
Ijósmyndara og áhugamanna um ljósmyndir um beztu mynd-
ina frá sólmyrkvanum á miðvikudaginn kemur. 300 krónum sr
heitið fyrir þá mynd er ritstjórinn telur bezta. Myndirnar þurfa
að sendast ritstjórninni sem fyrst eftir sólmyrkvann.
EINSXAKUR VEÐBURÐUR
Sólmyrkvinn 30. júní n. k. er
einstakt náttúrufyrirbrigði. Næsti
sólmyrkvi sem gengur yfir milli
Bandaríkjanna og Evrópu verður
ekki fyrr en eftir 200 ár.
Ljósmyndataka og framköllun
mynda er tómstundastarf fjöl-
margra manna hér á landi. Mikill
f jöldi manns á nú orðið vandaðar
myndavélar og kann vel til
ihyndatöku. En fyrirbæri eins og
sólmyrkvi er ekki daglegur við-
burður og hér eru því nokkrar
leiðbeiingar:
kringluna sem geislahjúpur —
breytileg að skærleik frá miðju
og út eftir. Það sem reynt er að
ná mynd af í ytri-korona, er
straumlínur, frá miðbaug sólar og
sem geta náð mörg sólarþvermál
út frá henni. í innri-korona eru
blossarnir aðalatriðið.
SKRIFIÐ NIÐUR
Nokkurt atriði — en ekki aðal-
atriði — er að geta séð á hvaða
hraða, með hvaða ljósopi og á
hvaða filmu myndin er tekin.
DEILDA RMYSKVI
Deildarmyrkvi er eitt af þeim
fyrirbærum, sem athugandi er að
reyna við. Um það bil klukku-
stund fyrir almyrkva, sést tungl-
kringlan smáfærast yfir sól-
kringluna, og klukkustund eftir
sést hvemig skugginn minnkar.
Skemmtilega „seríu“ mætti fá (ef
tækist) með röð mynda á sömu
filmu, t. d. með 5 eða 10 mínútna
millibili fyrir og eftir almyrkva.
Þetta er nokkrum vanda bundið,
því það, sem sézt af sólkringlunni
á meðan deildarmyrkvi stendur,
er jafn skært og birtumikið, sem
venjulega að degi til. Sjálfsagt
er að deifa ljósið eins og kostur
er.
SKUGGARÁKIR
Síðustu 2—3 mínúturnar fyrir
Og fyrstu 2—3 mín. eftir almyrkva
hafa oft sézt einkennilegir skugg-
ar hreyfast yfir jörðina (líkast
skugga og Ijós rákum, sem oft
sjást á botni í grunnu vatni, þeg-
ar það gárast). Rákirnar eru frá
ZVz—5 cm. breiðar og um 15 cm.
á milli þeirra. Þær sjást bezt á
hvítum grunni. Mjög erfitt er að
ná myndum af þessum rákum,
vegna lélegrar birtu og hreyfing-
unnar. En sjálfsagt er að nota
stuttan tíma (t. d. 1/100) og fullt
ljósop. Sjálfsagt er og heppilegast
að nota næmar filmur.
KORONA
Korona sést umhverfis sól-
í Atlanlshafs-
bandalagið
PARÍS, 26. júní. — Beneluv-
löndin Belgía, Holland og Lux-
emborg hafa samþykkt sín á
milli, að þau leggi til, að Vest-
ur-Þýzkaland verði boðið að taka
þátt í Atlantshafsbandalaginu.
Utanríkisráðherrar landanna
komu saman á fund í Luxem-
borg á fimmtudaginn og komust
þeir á að þessari niðurstöðu og
var hún þegar í stað tilkynnt til
frönsku ríkisstjórnarinnar. Hinir
þrír ráðherrar komu saman á
fund þennan án þess að um það
væri nokkuð tilkynnt opinber-
lega. Þeir eru Spaak frá Belgíu,
Bech frá Luxemborg og Beyen
frá Hollandi.
Upphafið af Briisselfundinum
kom síðan frá þessum þremur
ráðherrum, en boðinu til þess
fundar hafnaði franska stjórnin.
— Reuter-NTB.
Mercedes-Benz
BERLÍN — Hið fræga þýzka bif-
reiðafirma Mercedes-Benz mun
nú í fyrsta sinn taka þátt í kapp-
akstursmóti frá stríðslokum.
Fvrst í franska bílahlaupinu 4.
úlí og síðan í því enska 17. júlL
Öryggisráðið vlll ekki
Guatemnla-málið að sm
ræða
stöddu
Þyrilvængja
leiiar larzans
Loltárásir gerðar á
höfuðborg Guatemala
NEW YORK, 26. júní — frá NTB-Reuter.
STOKKHOLMI, 26. júní. — Hinn
sænski bófi og skammbyssumað-
ur, Rolf Johannsen, sem nefndur
hefur verið Tarzan og skýrt var
frá hér í blaðinu, er enn á flótta
undan lögreglunni. Dylzt hann
í skóglendinu í nágrenni Stokk-
hólms, og leita hans 300 lög-
reglumenn. Tarzan hefur setið
Framh. á bls. 2
ORYGGISRÁÐIÐ hefur ákveðið með 5 atkvæðum gegn 4 (2 sátu
hjá) að ræða ekki kæru Guatemala um aðstoð Honduras og
Nigaragúa við uppreisnarherinn, sem sækir inn í Guatemala, fyrr
en bandalag Ameríkuríkja hefur fjallað um málið. Þetta þýðic
ekki að ráðið hafi vísað vandanum á bug. Þeir sem greiddu atkvæði
með því að málið yrði rætt voru Rússland, Nýja Sjáland, Dan-
mörk og Lebanon. Þeir, sem greiddu atkvæði á móti voru Banda-
ríkin, Brasilía, Columbía, Tyrkland og þjóðernissinnastjórn Kína.
Bretland og Frakkland sátu hjá.
Bretar vilja
í leikinn i
I
ekki skerast
^AFSTAÐA MEIRIHLUXANS
Meirihluti fulltrúanna töldu að
Öryggisráðið og Sameinuðu þjóð-
iirnar gætu ekki tekið afstöðu til
málsins á þessu stigi. Töldu þeir
að Mið-Ameríkuríkin ættu að fá
tækifæri til að leysa deilur sínar
án afskipía annarra.
Eden ákveðinn við Eisenhower.
NEW YORK, 26. júní — frá NTB-Reuter.
ÍMNN AF þekktustu blaðamönnum New York Times skrifar í
J dag um viðræður þeirra Edens, Churchills og Eisenhowers.
Segir fréttaritarinn að Eden hafi í upphafi gert Eisenhower það
ljóst, að Bretar óskuðu ekki eftir því að grípa inn í leikinn í Suð-
austur-Asíu, svo að það yrði ekki til að koma í veg fyrir eða tefja
friðarsamninga í Indó-Kína.
Eden sagði að Bretar vildu gjarna athuga möguleika á sameigin-
legum aðgerðum frjálsra þjóða í Asíu, en hann lagði áherzlu á
að Frakkar yrðu að fá tækifæri til að reyna að komast að friðar-
samningum um í Indó-Kína. — Dulles utanríkisráðherra bendir a
að þó brezkt-amerískt bandalag sé gert um Asíumálin muni það
fremur flýta fyrir en tefja friðarsamninga þá er Frakkar beita
sér nú fyrir.
Ákveðin níu héraðsmót
ismanna í sumar
o'
AKVEÐIN hafa nú verið héraðsmót Sjálfstæðismanna á níu
stöðum í sumar víðsvegar um landið. Nokkur fleiri mót eru
undirbúningi og verður tilkynnt um þau jafnóðum og þau verða
endanlega ákveðin.
Þau 9 héraðsmót, sem ákveðin
hafa verið, eru þessi:
4. júlí: Vestur-Skaftafells-
sýslu. — 11. júlí: Dalasýsla. —
18. júlí: Rangárvallasýsla. —
25. júlí: Skagafjarðarsýsla. —
1. ágúst: Egilsstaðir. — 8. ágúst:
Vestur-Húnavatnssýsla. — 15.
ágúst: Austur-Skaftafellssýsia.
— 22. ágúst: Snæfellsness- og
Hnappadalssýsla. — 5. sept.:
Austur-Húnavatnssýsla.
FJÖLREYTT DAGSKRÁ
Mjög verður vandað til dag-
skrár á mótum þessum. Ymsir
forustumenn flokksins munu
flytj.a þar ræður og þjóðkunnir
listamenn skemmta.
Héraðsmót Sjálfstæðismanna
hafa náð miklum vinsældum um
Agreinmgur
© c
WASHINGTON, 26. júní: —
Eisenhower forseti hefur nýlega
haldið fund með leiðtogum
beggja flokkanna, demókrata og
republikana í Hvíta húsinu. Að
fundi þessum loknum, en þar var
aðallega rætt um ástandið í Suð-
austur Asíu, var gefin út tilkynn-
ing, þar sem látnar voru í ljósi
áhyggjur um samstarf banda-
mannanna um þessi mál.
Til fundar þessa voru boðaðir
16 republikaþingmenn og 13
demókrataþingmenn og gaf
Bedell Smith utanríkisráðherra
skýrslu um Genfarráðstefnuna á
fundinum. — Reuter-NTB.
land allt og er ekki að efa, að
mótin í sumar munu einnig verða
fjölsótt.
Papagos ræðir
við Adenauer
BONN 26. júní: — Papagos for-
sætisráðherra Grikklands mun á
miðvikudaginn kemur koma til
Bonn. Heimsækir hann Adenauer
forsætisráðherra og geldur þar
með heimsókn Adenauers frá því
í vor.
Utanríkisráðherra Grikklands
verður í fylgd með Papagos og
fleiri stjórnarmeðlimir hans.
NFFNDIN F/ER EKKI
LAN DGÖNGULEYFI
Ríkisstjórn Guatemala hefur til
kynnt að hún muni ekki leyfa
nefnd frá sambandi Mið-Amer-
íkjuríkjanna að koma inn í landið
í því skyni að rsnnsaka ástandið
þar, Sagði fulltrúi Guatemala hjá
S. Þ. að ríkisstjórn sín tæki þessa
ákvörðun vegna þess, að hún teldi
að það væri Öryggisráðsins að
grípa inn í þessa deilu.
LOFTÁRÁSIR
Á HÖFUBBORGINA
Fulltrúar Guatemala hjá S. Þ.
hafa skýrt svo frá, að óvina-
flugvélar hafi ráðizt á höfuð-
borg landsins og varpað þar
sprengjum. Einnig hafi þeir
ráðist á járnbrautarlest og orð-
ið sjö manns að bana. Sama
fregn hermir að uppreisnar-
menn hafi tekið borg eina 79
mílur frá höfuðborg Guate-
mala. — í frétt frá uppreisn-
arhernum segir, að þessi borg
hafi verið í höndum uppreisn-
armanna á fimmtudag — og að
herinn haldi áfram sókn sinnl
á öllum vígstöðvum.
Brennivín
og peningar
OSLÓ, 25. júní: — Réttarhöld
standa nú yfir í Osló og er fyrir
réttinum norski kjarnorkunjósn-
arinn Ásbjörn Sunde, sem lét
Rússa hafa norsk ríkisleyndarmál
frá kjarnorkustöðvum Norð-
manna.
Sækjandi málsins er Dorenfeldt
hæstaréttarlögmaður og hann
krafðist 12 ára fangelsis fyrir
njósnarann. Lögreglan hefur
safnað miklum gögnum um sekt
Ásbjörns, en hann leiddi njónsna
hring, sem starfaði í sambandi við
sendiráð Rússa í Osló. Réttar-
höldin munu vera þau umfangs-
mestu sinnar tegundar, sem hald-
in hafa verið í Noregi frá upp-
hafi vega. Fram hefur komið við
réttarhöldin, að fyrir upplýsingar
þær, sem Sunde lét Rússana hafa
fékk hann brennivín og peninga
frá Rússum. — Reuter-NTB.