Morgunblaðið - 02.07.1954, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.07.1954, Blaðsíða 10
10 MQRGUlSBLAÐIfí Föstudagur 2. júlí 1954 Bjarni Kristmimdsson j í DAG verður til moldar borinn i í Fossvogskirkjugarði, Bjarni Kristmundsson síðasti bóndi í i Hafragili í Laxárdal í Skaga- ' fjarðarsýslu. Hann var fæddur 2. ‘ maí 1887 á Ásbjarnarnesi í Húna- ! vatnssýslu. Sonur Kristmundar j Guðmundssonar síðar bónda í \ MelrakkadaL Kornungur sveinn j var hann tekinn til fósturs af ; Marínu Gísladóttur og Bjarna j manni hennar. Þau bjuggu i Ham j arsgerði í Lýtingsstaðahreppi. • Komu þau hjón sunnan úr Norð- í urárdal með síra Jóni Magnús- > syni, er hann flutti að Mælifelli og byggði hann þeim hjáleiguna Hamarsgerði. Þar missti Marín mann sinn, en reisti aftur bú 1 með Bjarna fóstursyni sínum í Stapa í Tungusveit. Þá var hann 14 ára gamall. Mætti því segja að snemma byrjaði starfsdagur hans, en með umsjá fóstru sinnar ’ íórst hinum unga sveini búskap- urinn vel úr hendi, enda var Marín dugmikil kona, drenglund- uð og ágæt. Ekki voru efni þeirra mikil en blómguðust eftir því, sem Bjarna óx vinnuþrek. Rúmlega tvítugur að aldri gekk Bjarni að eiga eftirlifandi konu sína, Kristínu Sveinsdóttur, dug- lega og ágæta stúlku. Ég, sem þessar línur rita kynnt- . dst þeim nýgiftu hjónum, því að -• þau bjuggu á móti mér á Nauta- . • búi í Tungusveit fyrstu tvö bú- .•skaparár mín. Féll mér ágætlega . i vel sambýlið við þau og má ég •lætíð vera Bjarna þakklátur fyr- ir hans ágætu bendingar og til- sögn um fjárhirðingu. Ég var ó- vanur fjármennsku, en hann var snillingur við það starf og svo •mikill skepnuvinur, að ég hefi . • ekki þekkt aðra taka honum fram •á því sviði. Hann umgekkst allar rskepnur með ástúð og nærgætni, enda bjargaði það honum síðar og hans mikla barnahóp að hann hafði ávallt góðan arð af búfé sínu, þótt það væri fremur fátt • og óhæg aðstaða hans í tvíbýli '> é Reykjum í Tungusveit, þar sem hann bjó leiguliði í mörg • ár, en seinna keypti hann afdala- • • jörð, Grímsstaði í Svartárdal og 'sflutti þangað frá Reykjum. Sú •jörð er mjög afskekkt og var hún ’Hiðurnídd og illa hýst og langt frá vegasambandi. Aðkoman var því ekki góð fyrir þau hjónin, er þau komu þangað, enda fór jörð- • ín í eyði er þau fluttu þaðan að Hafragili í Laxárdal, en þar bjuggu þau síðast og hættu bú- skap 1950 og fluttu til dóttur sinnar í Reykjavík, útslitin og uppgefin fyrir aldur fram. Þetta er ytra boriðið af hrakn- I ingssögu fátækra hjóna, sem þösluðu við búskap í meira en 40 ár, án þess að taka nokkurn tíma nokkra vandalausa mann- eskju í vinnu. Alltaf tvö ein að vinna, en eignu.ðust 15 börn. Þar ‘áf eru 13 börn þeirra á lífi nú, ' er bóndinn er hniginn í valinn. Alltaf voru þau hjónin fremur veitandi en þurfandi"og borguðu skilvíslega alla skatta og skyldur ,en fengu aldrei neinn styrk, sem þjóðfélagið er þó farið að sjá sóma sinn í að greiða. Þrjú börn þeirra hjóna voru rtekin í fóstur af vinafólki þeirra. Ekki var það gert sem ölmusa heldur af góðvild og hjálpfýsi. ,Tíu börn sín ólu þau upp alein og má nærri geta að ekki hefur verið legið á liði sinu, hvorki af hjónunum sjálfum eða börnun- ,Um, er þau fóru að geta hjálpað Kennaraskólanem- endur komnir úr til við bústörfin. Að vonum sneiddi ekki fátækt og erfiðleikar hjá garði á heimili Bjarna og Kristinar með allan barnahópinn sinn, en sundurlyndi og úlfúð kom aldrei við á heimili þeirra. Þau unnu hvort öðru og studdu hvort annað í lífsbaráttunni með ótrúlegu þreki og aldrei mun að þeim hafa hvarflað að gefast upp. Og sigur unnu þau og komu öll- um sínum börnum til góðs þroska og eru þau hinar mannvænleg- ustu manneskjur, greind, hraust og myndarleg, enda ekki alin upp við sælgætisát, heldur sparsemi og reglusemi, en hjartahlýju og ástúðar munu þau hafa notið í uppvextinum ekki síður en börn ríkismanna, því að þau hjón voru öllum góð og velviljuð, bæði mönnum og málleysingjum, enda virt og velmetin af öllum, sem þau þekktu. Börn Kristínar og Bjarna, sem nú eru á lífi, eru þessi: Gislíana, Gautlöndum í Mývatns- sveit, Páll í Reykjavík. Ingibjörg í Reykjavík. Baldvin, á Húsavík. Kristmundur, Sjávarborg. Elín, í Reykjavík. Sigríður, í Reykja- vík. Guðmundur í Reykjakoti í Ölfusi. Sólborg, Skatastöðum í Austurdal. Sveinn, Hafragili í Laxárdal. Pétur, Ánastöðum í Lýtingsstaðahreppi, Sólveig, nú í Reykjavík og Eyþór; í Reykjavík. Á síðastliðinu sumri tóku þau gömlu hjónin sér sitt fyrsta og eina sumarfrí. Fóru þau norður í land að finna börn sín, sem þar búa. Aldrei höfðu þau áður getað tekið sér eins dags hvíld frá störfum og ekkert ferðast, nema stöku sinnum í kaupstað- inn. Þau voru glöð og ánægð, er þau kormi heim til sín úr ferðinni, en ekki mátti hún seinna farin, því skömmu síðar kenndi Bjarni þess lasleika, er dró hann til dauða eftir stutta legu 24. dag júnímánaðar s.l Þegar ég renni huga um það, sem mér er kunnugt af æviferli Bjarna Kristmundssonar nú að leiðarlokum, virðist mér að hann mundi hljóta mjög góða ágætis- einkunn úr reynsluskóla lífsins fyrir hegðun, þrek og dugnað, fyrir kærleika og trúmennsku í öllu sínu mikla og óeigingjarna starfi. | Ég votta sæmdarkonunni Krist- ínu Sveinsdóttur og börnum þeirra hjóna innilega samúð mína I við fráfall og jarðarför hins mæta ' manns. Megi sem flestir afkom- endur hans verða honum líkir. Blessuð sé minning hans. Sigurður Þórðarson. FYRIR nokkru er kominn heim úr námsferð til Norðurlanda, Frakklands, Þýzkalands og Bret- lands 18 manna hópur nýbraut- skráðra Kennaraskólanemenda. Létu þeir vel af ferðinni, sem tók 20 daga. Héðan var farið til Bretlands, höfð þar viðdvöl í Edinborg og Lundúnum, síðan farið til París- ar. Og 1 Versölum var hópurinn um hvítasunnuna. Síðan var haladið norður á bógðinn til Ham borgar, þaðan til Kaupmanna- hafnar og dvalizt þar í um viku- tíma. Hafði sendiherra Dana hér, Bodil Begtrup, haft forgöngu um að Norrænafélagið í Danmörku bauð hópnum í heimsókn í kenn- araskólann 1 Emdrupborg og marga barnaskóla í Danmörku, bæði nýtízkuskóla og elzta barna skólann í Kaupmannahöfn. Þá voru Kennaraskólanemendurnir gestir danska kennslumálaráðu- neytisins í samsæti í Studenter kiilden. Aðfaranótt þjóðhátíðar- dagsins var haldið til Gautaborg- ar og komið þangað snemma morguns. Tóku þar á móti hópn- um á brautarstöðinni þrír stjórn- armenn Sænsk-íslenzka félagsins. Einn þeirra, frú Sigrún Jónsdótt- ir, bauð löndum sínum heim í morgunkaffi og síðan bauð félag- ið kennurunum að skoða sjóferða safnið og í hringferð um borg- ina. Helzta blað Gautaborgar, Göteborgs handels ock sjöfarts- tidning, sagði frá komu íslend- inganna. Fararstjóri var Ámi Böðvarsson cand. mag. Hamlet í síðasia sinn KAUPMANNAHÖFN, 29. júní: — Á sunnudagskvöldið var leikritið Hamlet eftir enska skáldið William Shakespear leikið í síðasta sinn í hinni fornu höll Krónborg, þar sem skáldið læt- ur leikinn gerast. Hamletsýningar hafa Tarið þar fram á hverju sumri og hafa leikflokkar frá frægustu leikhúsum álfunnar far- ið með hlutverkin. Nú neyðist félag það, sem að sýningunum hefur staðið í Dan- mörku „Frilufts-Scenen:: til þess að hætta þeim sökum fjárskorts og vegna þess að tæknileg skil- yrði þykja hin erfiðustu við sýn- ingarnar, sem fara fram undir beru lofti í hallargarðinum. f sumar hefur Old Vic félagið frá Lundúnum leikið Hamlet og lék Richard Burton Hamlet en Clairé Bloom Ófelíu. — Reuter-NTB ★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ Morgunblaðið ★ ★ ★ ★ MEÐ * ★ Morgunkaffinu ★ ★ ★★★★★★★★★★★★: KaupmeiHi — Kaupfélög Við höfum fjölbreytt úr- val af brjósthöldurum úr nælon og satíni. Slankbelti, 3 breiddir. Mjaðmabelti 4 teg. Sokkabandabelti fyrir unglinga. Heildsala: LADY K.F. lífstykkjaverksmiðja. Barmahlíð 56 — sími 2841 líveiikápur vandaðar — fallegar — ódýrar. Peysufatafrakkar í þrem litum — ávallt fyrirliggjandi. Verð frá kr. 790.00. Kápuverzlunin, Laugavegi 12 (efri hæ>3). ÞELPLOTIIR - KROSSVIÐIiR Nýkomið: Birki-krossviður 3—4—5—6 10 mm Gaboon-krossviður 205 x 80 cm. Þilplötur Vs” olíusoðnar og óolíusoðnar. Þilplötur: texgerð %” Mahogni-krossviður, hurðarstærðir, kemur næstu daga. HANNES ÞORSTEINSSSON & CO. — Laugaveg 15. Byggingafélag verkamanna í Reykjavík Aðalfundur verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 5. þ. m. klukkan 3,30 e. h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. — Önnur mál. Ath:. Sýnið skírteini við innganginn. Stjórnin. H U S Hús, húshelmingur eða góð 5—6 herbergja ibúð óskast keypt. — Upplýsingar í síma 82945 um hádegið og 81175 eftir kl. 6 í dag og næstu daga. HAPPDRÆTTI KARLAKORINN FOSTBRÆDUR" Happdrætti Fóstbræðra VINNJNGAR: Nýtt, vandað sumarhús og norskur bátur. Gjörið svo vel að skoða húsið og bát- ijnn við Arnarhól, gegnt Fcrðaskrif- stofunni. rf’ % ■■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.