Morgunblaðið - 11.07.1954, Qupperneq 6
6
MORG II f»BLAÐIÐ
Sunnudagur 11. júlí 1954
Verknómsskólinn í Reykjnnesi
heíur fnrið mjög vel nf stnð
EINS og kunnugt er var héraðs- |
skólanum í Reykjajnesi við ,
ísafjarðardjúp breytt í verknáms
skóla fyrir 2 árum. Er aðaláherzla
lögð þar á kennslu í verklegum
efnum, bæði fyrir pilta og stúlk-
ur. Skólinn starfar í tveimur
deildum, eldri og yngri deild, og
stendur yfir í þrjá mánuði á vetri.
Þessi breyting á skólanum hef-
ur gefizt mjög vel. Hefur skólinn
undanfarna tvo vetur verið ágæt-
lega sóttur af nemendum víðs-
vegar frá af landinu.
Mbl. hitti í gær Pál Aðalsteins-
son skólastjóra Reykjanesskól-
ans og leitaði tíðinda hjá honum
af starfi skólans. En hann annast
einnig kennslu við skólann í
hinum verklegu námsgreinum
pilta. Kona hans, frú Guðrún
Hafsteinsdóttir sér hins vegar um
verkleea kennslu stúlknanna.
Þriðji kennarinn við skólann er
Guðni Jónsson, sem kennir bók-
legu námsgreinarnar.
MIKILL ÁHUGI Á VERKLEGA
NÁMINU
— Hvaða námsgreinar eru
kenndar við skólann?
IJnga fólkið sýnir mikinn
áhuga á verkefnum sínum
S!c*f %mk\ við Pá! ASalsíeSnsson skéEasljéra
— Verklegu námsgréinarnar
fyrir pilta eru smíðar, bókband
og vélfræði, en fyrir stúlkur út-
saumur, kjólasaumur, vefnaður,
sniðteikningar, prjón og hekl.
Bóklegu námsgreinarnar eru ís-
lenzka, reikningur, eitt tungumál
eftir vali, enska eða danska, saga
heilsufræði, hjáip í viðlögum og
félagsfræði. Auk þess eru svo
kenndar íþróttir.
— Hafa nemendur mikinn
áhuga fyrir verklega náminu?
— Já, alveg sérstaklega mikinn.
Unglingarnir vilja helzt vera sí-
vinnandi að verkefnum sínum.
Vig upphaf skólatímans byrjar
hver nemandi á þremur skyldu-
stykkjum. Verður hann að ljúka
þeim á námstímanum. Þegar
Páll ABalsteinsson
þessum verkefnum er lokið hafa
nemendurnir frjálst val um það,
hvað þeir taka sér næst fyrir
hendur.
— Hvaða stykki ráðast flestir
í að smíða?
— Piltarnir vinna flestir að
smíði húsgagna, bæði í setustofu
og borðstofu. Hafa margir þeirra
smíðað sér ágæt og traust hús-
gögn.
Stúlkurnar hafa hins vegar að-
allega saumað kjóla og pils og
ennfremur hafa þær ofið.
— Hve mörg stykki luku pilt-
arnir við á sl. vetri?
— Piltarnir í yngri deild, sem
voru 13, smíðuðu í vetur samtals
103 smærri og stærri stykki. Eldri
deildin, sem í voru 6 nemendur,
smíðuðu hins vegar 38 stykki. En
það voru flest stór stykki, ein-
göngu húsgögn.
Stúlkurnar í yngri deild, sem
voru í vetur 4, luku 76 stykkjum,
en þær í eldri deild, sem voru 3,
luku 53, þar af 19 ofnum stykkj-
UNNU FVRIR KOSTNAÐNUM
VIÐ SKÓLAVISTINA
Þessir munir eru smíðaðir í yngri deild skólans af Maríusi Gröndal
árið 1953. j
— Hve’ mikill var kostnaður-
inn við skólavistina hjá hverjum
einstökurtí nemanda í vetur?
— Harm varð kr. 3083,25. En
Framh. á bls. 10
Skrifborð og stólar úr mahogný, smíðað í eldri deild Reykjanesskólans, af Maríusi Gröndal, Rvík,
árið 1954. Lampinn á borðinu, sem smíðaður er af sama nemanda, er úr íslenzku birki.
^abbað v\b ueiðimenrL
NÚ mun kominn lax í flestar
ár sunnanlands og v°stan,
] flestar árnar norðanlands einnig,
nema e. t. v. á norðausturkjálk-
I anum. Veiði hefur þó víða verið
frekar lítil ennþá og mun það
stafa af þurrkunum undanfarið.
Elliðaárnar eru langbeztar og
veiði þar ágæt dag hvern. Þetta
frá 15—30 laxar á dag. Heildar-
veiðin til þessa er 416 laxar og
fluttir hafa verið í efri ána um
1 550 fiskar.
1 í Korpu hefur verið reitingur,
en rigningardaginn (6. júlí) gekk
mikill lax í Korpu og var svo
óður í göngunni, að hann leit
varla við færi. Korpu veiðimenn
fá nú sennilega góða veiðidaga
fram eftir mánuðinum.
I í Laxá í Kjós mun veiðin und-
anfarið hafa vsrið um 8 laxar á
dag til jafnaðar, og má það sæmi-
legt teljast.
| í Laxá í Leirársveit hefur ver-
: ið reitingsveiði og 7 laxar feng-
ust einn daginn fyrir stuttu.
Telja veiðimenn að vel horfi
með veiði þar á næstunni.
Norðurá er ennþá dauf. Síðasti
veiðiflokkur náði aðeins 19 Iöx-
um á 5 dögum og sá aldrei veru-
lega hreyfingu á lax laxi í hyljun-
um. Þetta getur þó hafa breytzt
skjótlega við nýja vatnið, því
frétzt hefur um ágæta neta-
veiði í Hvítá fyrir helgina sið-
ustu. Þá er ekki ólíklegt að eitt-
hvað hafi hresst upp á Grímsá
og Stóru-Þverá, en þær hafa
verið óvenju daufar til þessa.
Annars virðast Borgarfjarðar-
árnar vera að setja ofan,
um leið og ýmsar ár annars stað-
ar fara árlega batnandi. Stórlax
er orðinn sjaldgæfur og skýrslur
undanfarinna ára sýna minnk-
andj veiði.
Ekki er kunnugt um veiðj í
Árnessýslu ennþá, enda lítið
reynt af stangveiðimönnum. —
Netaveiði mun þó einhver í Ölf-
usá og upp úr miðjum mánuði
ætti eitthvað af laxj að vera
komið á stangaveiðisvæðin.
I Laxá í Þingeyjarsýslu höfðu
veiðst 84 laxar í fyrradag (6.
júlí). Flestir fyrir neðan Æðar-
fossa og þar var nokkuð jöfn
veiði síðustu daga. Laxinn er
vænn, 14—18 pund að jafnaði,
en þyngsti fiskur, sem á land
hefur komið 23 pund. Bezti dag-
urinn var 1. júlí, en þá veiddust
13 laxar og 6. júlí 10 laxar. —
Þrálát norðanátt og kuldabræla
er ennþá á þessum slóðum.
„Veiðimaðurinn" 28. tölublað
var að koma út. Þótt „Veiðimað-
urinn“ sé og eigi að vera mál-
gagn stangaveiðimanna á fslandi,
þá eru þó alltof fáir ennþá, sem
kaupa hann og lesa, miðað við
þann fjölda er fæst við stanga-
veiði. Blaðið er eign Stangaveiði-
félags Reykjavíkur og hefur ver-
ið því nokkur fjárhagslegur
baggi, svo raddir hafa verið uppi
um það, að félagið hætti útgáf-
unni eða léti blaðið óstutt. Á
aðalfurlöi varð þó hitt ofan á, sem
betur fór. Það er að vísu alldýrt
að gefa út slík blöð sem þessi,
því lesendafjöldinn verður aldrei
stór, en þetta er nokkurt menn-
ingaratriði og helmingi fleiri
kaupendur ætti „Veiðimaðurinn"
hæglega að geta fengið en hann
hefur nú, ef veiðimenn gerðu
skyldu sína. Hver og einn fórnar
allmiklum fjármunum á hverju
ári í þetta sport sitt og sú skömm
hendir þá varla að láta blaðið
lognast út af vegna fjárskorts,
einkanlega þegar blaðið hefur nú
hreppt áhugasaman og ritfæran
mann, Víglund Möller, sem rit-
stjóra. Það er vandfundinn mað-
ur, sem nennir að standa í þessu,
og berjast við ýmsa erfiðleika og
tómlæti manna.
Efni blaðsins að þessu sinni er
fyrst og fremst sumarhugleiðing
ritstjórans, er hann flutti á kafti-
kvöldi félagsins í apríl síðast-
liðnum. Ýmsar þýddar greinar
eru í heftinu, og grein um laxa-
merkingar 1947—1950 eftir veiði-
málastjóra. Margt er þar auð-
vitað fleira og þar á meðal grein
er nefnist „Hvimleiðir gestir'*.
Fjallar hún um mál, er ég drap
lítillega á í rabbinu um dagirin,
— ófriðinn við Elliðaárnar, sem
veiðimenn verða fyrir af for-
vitnum áhorfendum og „aðstoð-
armönnum". Menn ættu að afla
sér blaðsins og lesa greinina með
athygli og láta sér hana að kenn-
ingu verða.
Hjá okkur veiðimönnum hef-
ur oft þótt skorta nokkuð á um
háttvísi, og þó sannarlega sé
leiðinlegt að vera oft að nöldra
um þá hluti, þá veitir ekki af á
meðan fyrir kemur slík bjánaleg
ókurteisi hjá íslenzkum veiði-
mönnum, að annað eins þekkist
ekki annars staðar. Ég tek hér
upp úr „Veiðimanninum" dálitla
klausu, sem nefnist „Ósæmileg
hegðun“ og er áþreifanlegt dæmi
um það, sem að framan er sagt.
„Síðasta sagan um ósæmilega
hegðun við Elliðaárnar er frá
áreiðanlegum heimildarmanni,
sem sjálfur var sjónarvottur að
því sem gerðist.
Með aðra stöngina var þennan
dag vanur veiðimaður, sem hefur
veitt í ánum um fjölda ára og
þekkir þær því mjög vel. Árang-
urinn var líka eftir því. Hann
hafði fengið 6 laxa þegar hér var
komið sögu.
Með hina stöngina voru tveir
menn, að vísu ekki viðvaningar,
en mikið til ókunnugir í Elliða-
ánum. Þeir höfðu fengið 1 lax
og voru að renna í Fossinn þegar
sögumann blaðsins bar þar að. En
í sama mund kemur maðurinn,
sem búinn var að fá 6 fiska,
gengur að fossinum hinum megin
og fer að kasta þar líka — yfir
línu hinna veiðimannanna.
Hér er um svo einstæðan dóna-
skap að ræða, að maður þessi
verðskuldaði fyllilega, að nafn
hans væri birt. Honum skal þó
hlíft við því í þetta sinn, en verði
hann staðinn að svipaðri hegðun
aftur, má hann búast við að blað-
ið kynni hann betur fyrir les-
endum sínum. Honum skal einnig
bent á það, að mönnum er stund-
um vikið úr félagsskap þegar
þeir hegða sér ósæmilega."
Það er trúlegt að stórrigning-
ingardagurinn í fyrradag (6. júlí)
hafi hresst verulega upp á árn-
ar. Regnið mun hafa náð um land
allt og hér sunnanlands var vatns
veður víðasthvar. Lax, sem legið
hefur við ósa, hverfur fljótlega
í árnar við slíkan skvett.
Menn fara nú sem óðast í sum-
arfrí og má því búast við að allir
beztu veiðistaðir verði fullsetnir
allan mánuðinn. Lítið eða ekk-
ert mun vera fáanlegt af veiði-
leyfum í beztu ánum, og ekki
hefur tekizt að fá haldgóðar upp-
lýsingar um veiði, fyrir þá er
langar til að skreppa í einhverja
sprænu án mikils undirbúnings.
Hafi einhverjir veiðisvæði af-
lögu, ættu þeir einmitt nú að
koma því á framfæri með smá-
auglýsingu hér í blaðinu. Sumar-
fríið er einmitt sá tími, er menn
geta farið lengra um landið en
venjulega, og margir vilja gjarn-
an renna, um leið og þeir skoða
sig um.
Áin streymir ár og síð,
eitthvað öllum geymir.
Stöngin titrar, löng og þýð,
lax úr djúpi teymir.
Þessi staka fannst einu sinni í
veiðibók og á vel við tímabilið.
K. S.
★★★★★★★★★★★★★
★ ★
★ Morgunblaðið ★
★ ★
★ með ★
★ Ttr ★
★ ORGUNKAFFINU ★
★ ★
★★★★★★★★★★★★★