Morgunblaðið - 11.07.1954, Page 16
Yeðarúilii f dag:
NA kaldi, léttir til.
155. tbl. — Sunnudagur 11. júlí 1954
Reykjawliiíliréf
cr á bls. 9.
Ungur muður hrupur
iil bunu í V.m.-eyjum
Var að lundaveiðum í Stórhöfða
VESTMANNAEYJUM, 10. júní.
ÞAÐ HÖRMULEGA slys vildi til hér í morgun laust eftir kl. 8,
að Gunnar A. Ragnarsson að Kirkjubæ, hrapaði til bana í Stór-
1‘öfða. Gunnar var 32 ára að aldri, kvæntur og átti tvö ung börn.
'Hann var ættaður úr Reykjavík, en fluttist hingað 1944.
VAR Á LUNDAVEIÐUM
Gunnar heitinn var að lunda-
veiðum við annan mann, er slys-
að vildi til, og ætlaði niður í
•svokallaða Stórutó, sem erlunda-
veiðistaður austan í Stórhöfða.
>arna megin í höfðanum er mjög
-laust niður í tóna og bratt, en
neðst er þverhnýptur hamar í
.«jó fram. í morgun var ennfrem-
•ar mjög sleipt þarna vegna rign-
'iogar í nótt.
•XiEIT BAR EKKI ÁRANGUR
Strax var brugðið við og sig-
ið niður á slysstaðnum og einn-
ig farið þar að á báti, en sú leit
har engan árangur, enda allmik-
ið brim þarna við klettana.
Ekki ier laust við að óhug hafi
■slegið í menn vegna þessa sorg-
lega atburðar, þar sem þetta er
4 annað sinn á þessu ári, sem
jnaður hrapar hér til bana. Á
íyrra ári létu einnig tveir menn
lífið, er þeir hröpuðu fyrir björg.
Bj, Guðm.
Ilæsfu vinningar
í Háskólahapp-
dræffinu
J3REGIÐ var í 7. flokki happ-
drættis Háskólans í gær. Hæstu
vinningar eru:
Kr. 50 þús.: 27108 (seldur í
Bækur og ritföng, Laugavegi 39).
2Cr. 10 þús.: 34512 (heilmiði,
jwjldur í Hveragerði). Kr. 5 þús.
24434 (fjórðungsmiði, seldur á
Akureyri, Borðeyri, Þingeyri og
a»já Helga Sivertsen, Rvík).
«>------------------------
Allverulegri f jár-
hæð stolið frá
konu
FULLORÐIN kona varð hart úti
í fyrradag, en stolið var frá henni
2200 krónum í peningum.
Er hún fór til vinnu sinnar á
föstudagsmorgun voru pening-
arnir í veski hennar, en um
kvöldið er hún kom heim, hafði
einhver komizt inn í herbergið,
leitað þar að peningum og fundið
fyrrnefnda peninga konunnar og
haft þá á brott með sér.
Konan bjó í kjallaraherbergi
einu í Austurbænum. Smekklás
var á hurðinni, en ekki þurfti
þjófurinn að sprengja hann frá,
því konan hafði gleymt að krækja
glugganum í herbergi sínu aftur,
og það fann þjófurinn út og fór
inn um hann.
Minningargjöf
GÆRDAG var Rauða krossi
íslands færð minningargjöf um!
Einar Markússon ríkisbókara,
sem látinn er fyrir nokkrum ár-
um, en hann hefði orðið níræður
í dag. Gefandinn er „Vinur“ hins
látna. — R. K. í. hefur beðið Mbl.
að færa gefanda beztu þakkir.
Sumir bændur hafa þegar
sleóð helmins túna sinna
MYKJUNESI, 6. júlí. — Um það
"bil mánuður er nú liðinn síðan
*>láttur hófst hér í Holtum. Þeir
tfyrstu byrjuðu að slá 9. júní.
ASdrei fyrr hefur heyskapur haf-
*zt svo fljótt. Sumir eru nú búnir
a8 slá helming túnanna, aðrir
meira, sumir minna. Grasið er
■«m það bil mánuði fyrr á ferð en
venj ulegt er. Og þótt kalt hafi
verið í veðri síðustu vikurnar,
befur haldið áfram að spretta á
•túnum. Engjar munu verða verr
«prottnar sökum vatnsskorts.
SUMIR HAFA HIRT ALLMIKIÐ
Taðan hefur yfirleitt náðst upp
4 sæti eftir hendinni og flestir
-wiunu véra búnir að hirða og
su.mir allmikið. í dag er svo stór-
vigning og má búast við að hik
•komi á heyskapinn nema þá að
reean fari að setja í vothey, en
til þess eru menn yfirleitt ekki
íarnir.
MARGHÁTTAÐAR
FRAMKVÆMDIR
Þeir sem hafa byggingarfram-
kvæmdir á prjónunum taka þá
til við þær, og sumir eru að
byggja heyhlöður og liggur á að
fata að koma þsim upp. Þá eru
&JIfc .„SSBfe
sumir að byggja fjós og aðrir
íbúðarhús. Og þannig er það,
að margháttaðar framkvæmdir
krefja fáar hendur mikilla átaka
og mjög er erfitt að fá fólk að
til verka og hefur aldrei verið
verra en nú. Margir verða því að
leggja mjög hart að sér til að
geta komið áfram því, sem þeir
hafa við að fást hverju sinni.
Um síðustu helgi fór U.M.F.
Ingólfur í skemmtiferð til Hvera-
valla. Fékk fólkið leiðinda veður
og naut ferðarinnar fyrir það ver
en ella. Um 50 manns tóku þátt í
ferðinni. — M. G.
Var kveikt
í bílnam?
SNEMMA í gærmorgun var
slökkviliðið kallað að horni Miklu-
brautar og Rauðarárstígs. Þar
var mikill eldur í litlum fjögurra
manna bíl, Jo-2117. Bíllinn var
alelda að innan og bæði sætin
stóðu í björtu báli. Fljótlega tókst
að kæfa eldinn. Eldsupptök eru
ókunn, en ekki er ósennilegt að
einhver skemmdarvargur hafi
kveikt í bílnum.
Séra Jónmundur
j Halldórsson láfinn'
I r
SÉRA JÓNMUNDUR Halldórs-
son fyrrverandi prestur að Stað
í Grunnavík lézt í Landsspítal-
anum kl. 6 eftir hádegi s.l. föstu-
dag. Eins og kunnugt er hafði
hann legið rúmfastur undanfarn-
I ar vikur, fyrst á sjúkrahúsinu á
ísafirði en síðan á Sólvangi í
Hafnarfirði.
| S.l. sunnudag átti hann átt-
ræðisafmæli. Var hann þá sæmi-
lega hress og tók á móti fjöida
vina sinna. En fyrri hluta vik-
unnar elnaði honum sóttin og
I var hann þá fluttur á Lands-
j spítalann. Þar andaðist hann eins
og fyrr segir, s.l. föstudag.
Héraðsmóf SjáH-
sfæðhmanna við
Djúp 1. ápsl.
HIÐ árlega héraðsmót Sjálfstæð-
ismann við ísafjarðardjúp verð-
ur að þessu sinni sunnudaginn 1.
ágúst að héraðsskólanum í
Reykjanesi og verður með sama
sniði og undanfarin ár. Verða
fluttar þar ræður og skemmti-
atriði og að lokum verður dans-
að.
Kappreiðar „Glaðs"
að Nesodda
Hestamannafélagið
„Glaður“
í Dalasýslu hélt hinar árlegu
kappreiðar að Nesodda, á sama
tíma og jafnan áður, þ. e. fyrsta
sunnudag í júlí. Keppt var í
stökki 300 m., skeiði og góðhesta-
keppni.
Verðlaun voru veitt þannig;
fyrir stökk:
Glófaxi, 1 verðlaun, tími 23.2
sek. Eigandi Gunnar Jósefsson,
Mjóabóli, Haukadal, Dal.
Vinda, 2. verðlaun, tími 23.3
sek. Eigandi Jón Hallsson, Þor-
bergsstöðum, Laxárdal, Dal.
Andvari, 3. verðlaun, tími 23.4
sek. Eigandi Gunnar Jósefsson,
Mjóabóli, Haukadal, Dal.
Stjarni, 4. verðlaun, tími 23.8
sek. Eigandi Eysteinn Eymunds-
son, Ketilsstöðum, Hörðudal,
Dal.
Skeiðhestum fataðist, hlupu
upp af skeiðinu.
í góðhestakeppni hlutu verð-
laun:
Tinna, eigandi Baldvin Þórar-
insson, Svarfhóli, Miðdölum.
Skuggi, eigandi Jón Ólafsson,
Kvennabrekku, Miðdölum.
Hrafnkell, eigandi Elísabet
Jónsdóttir, Breiðabólstað, Mið-
dölum.
Eftir kappreiðarnar skemmtu
leikararnir Valur Gíslason og
Klemens Jónsson með leikþátt-
um, við almenna hrifningu á-
heyrenda. Munu margir óska að
fá aftur svo „góða gesti“. *
Miklor fmmhvæmdir
í Grunnavíkurhreppi
Akiært orðið yfir Sfaðarheiði.
ÍIMIKLAR iramkvæmdir hafa í sumar verið í Grunnavíkurhreppl
í Jökulfjörðum vestra. Hefur verið unnið þar mikið meffl
jarðýtu að ræktunarframkvæmdum og hafa stór svæði verið tekina
til ræktunar. Ennfremur hefur verið unnið að vegagerð úr Grunna-*
vík yfir Staðarheiði inn á sveitina. Er nú orðið akfært frá Sætúns-
bryggju yfir heiðina inn að Höfða. Hefur vegagerðin gengið sér-
staklega vel. Þá er og ráðgert að byggð verði í sumar ný brú yfip
Staðará.
890 hafa synf I Sund-
höll Hafnarfj.
HAFNARFIRÐI — í gær höfðu
890 manns synt 200 metrana í
Sundhöll Hafnarfjarðar. — Eins
og kunnugt er, efndu Hafnar-
fjarðarbær, Akureyri og Reykja-
vík til keppni með sér í sam-
bandi við norrænu sundkeppnina
og ber sá bær sigur úr bítum,
sem nær mestri þátttöku, hlut-
fallslega af íbúum sínum. Hinn 1.
júlí höfðu 824 eða 14,5% synt í
Hafnarfirði, 8700 í Reykjavík,
14,5%, og á Akureyri höfðu 720
synt, eða 10%. Eins og tölurnar
bera með sér, ei keppnin mjög
tvísýn, og því erfitt að geta sér
til um úrslitin. — En til þess
að Hafnfirðingar sigri í keppni
þessari, verður hver og einn, sem
getur fleytt sér, að synda 200
metrana og það sem fyrst. — Þá
verðum við og að hafa það í huga,
að ísland verður að sigra í Sam-
norrænu sundkeppninni. — Herð-
um nú sóknina og syndum 200
metrana í sundlauginni í dag
sem er opin kl. 9—12 og 14.00—
16,30. —G.E.
Jafnt og þétt vex
í jökuláimi
EKKI dró til neinna sérstakra
tíðinda austur við Skeiðará í fyrri
nótt eða í gær. — Áin var enn í
vexti, en mjög hægum, að því
er fregnir að austan hermdu ár-
degis í gærdag.
BYGGING FÉLAGSHEIMILIS
UNDIRBÚIN
Mikill áhugi er fyrir því a®
byggt verði félagsheimili S
Grunnavík. Er fyrir nokkru haf-
inn undirbúningur að því. Senni-
lega verður þó ekki byrjað á þvS
í sumar.
Sími hefur verið lagður eftiþ
hreppnum og talstöð er í Reykja-
firði á Ströndum. En það er einl
bærinn, sem nú er í byggð norð-
an Skorarheiðar.
Prestslaust er nú á Stað síðats
séra Jónmundur Halldórsson fór
þaðan. Gera menn sér vonir ura
að prestur fáist þegar presta-
kallið verður auglýst. \
i I
VIRKJUNARSKILYRÐI
ATHUGUÐ
Þá hefur raforkumálastjórnira
heitið því, að í sumar verði rann-
sökuð virkjunarskilyrði í Grunna
vík. Hafa hreppsbúar mikinra
áhuga á að fá raforku, ef mögu-
leikar eru á því.
Aðeinsfáskip ;
fengu góð köst
í FYRRINÓTT fengu mörg síld-
veiðiskip meiri og minni síid á
miðsvæðinu, að því er fréttarit-
ari Morgbl. skýrði frá í gærdag,
Aðeins fá skip munu hafa fengið
góð köst, en vitað var um að
Smári frá Hnífsdal fékk 50®
tunnur, Helga RE, milli 400—.
500 tn. og einnig var Keilir sagð-
ur hafa fengið gott kast.
í gærmorgun bárust fregnir til
Sigluf jarðar um litilsháttar veiðl,
en þá var komið austankul á mið-
unum.
„Veröldin eins og við
viljum nð hún sé“
DAGBLAÐIÐ New York Herald Tribune hefur tjáð ráðuneyt-
inu, að á vegum blaðsins verði efnt til alþjóðlegs kynningar-
móts framhaldsskólanemenda í New York frá 26. des. n. k. tll
31. marz 1955. Gert er ráð fyrir að þátttakendur, sem verða á
aldrinum 16—18 ára, verði frá 34 löndum. Tilgangur með móti
þessu er sá, að gefa ungmennum frá mörgum löndum tækifærí
til þess að kynnast. Ennfremur að kynna erlendu námsfólki skóla-
kerfi einstakra skólahverfa í Ameríku, efla þekkingu þess á
amerísku menningarlífi og siðast en ekki sízt gefa þátttakendum
tækifæri til þess. að kynna lönd sín í Bandaríkjunum.
Er svo ráð fyrir gert, að þátt-
takendur verði valdir með rit-
gerðasamkeppni. Ritgerðasafmð
er: „Veröldin eins og við vilj-
um að hún sé“. Lengd ritgerðar-
innar á að vera um 1500 orð.
Frá íslandi verður valinn einn
nemandi úr hópi þátttakenda í
ritgerðarsamkeppninni. Er það
sérstök nefnd, skipuð af ráðu-
neytinu og sendiráði Bandaríkj-
anna, sem dæmir ritgerðirnar.
Sá, sem sigrar, fær ókeypis far
til Bandaríkjanna og heim aft-
ur, svo og þriggja mánaða dvöl
þar, sér að kostnaðarlausu. Þaó
er Pan American flugfélagið, sem
lætur í té ókeypis flugfar.
Öllum framhaldsskólanemend-
um, sem fæddir eru hér á- landi,
eru íslenzkír ríkisborgarar, hafa
sæmilega þekkingu á enskri
tungu og orðnir eru fullra 16
ára fyrir 1. janúar 1955 og eigi
eldri en 19 ára þann 30. júní
1955, er frjálst að taka þátt í
ritgerðarsamkeppninni.
Ritgerðirnar eiga að vera á
ensku og skulu hafa borizt
menntamálaráðuneytinu fyrir,
15. október n. k.