Morgunblaðið - 24.07.1954, Síða 8

Morgunblaðið - 24.07.1954, Síða 8
8 MORGUNBLAÐ1Ð Laugardagur 24. júlí 1954 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. UR DAGLEGA LIFINU f SiiineiniiHj þýiku þjóðarínnar FYRIR nokkru er lokið hinu sjötta þingi lúthersku kirkj- unnar í Þýzkalandi. Slík þing þar sem lærðir og leikir menn koma saman til að ræða um vandamál kristinnar kirkju hafa verið hald- í Vestur Þýzkalandi og Vestur Berlín, en það sem sérstaklega setti svip sinn á þetta þing var, að það var haldið í Austur Þýzka- landi. Yfir Þýzkaland þvert er dregið strik, sem skiptir landinu milli austurs og vesturs. Upphaflega var til þess ætlazt, að þessi deili- lína væri aðeins til málamynda, skipting milli hernámssvæða. Beggja vegna lifði sama þjóðin — sumsstaðar var línan jafnvel dregin þvert yfir bæi eða þorp, og menn ætluðu að þess yrði ekki langt að bíða að allt landið yrði sameinað á ný. En raunin hefur orðið önnur. Við þessa takmarkalínu hefur myndazt æ dýpra bil milli austurs og vesturs. Þegar landshlutarnir eru bornir saman gæti mönnum dottið í hug að hér væru tveir óskyldir og fjarlægir heimar, svo breitt og óbrúandi hefur bilið virzt. í Vestur Þýzkalandi hafa borgirnar risið úr rústuni, glaðvær dynur skjótvirkra verksmiðjuvéla hefur búið fólkinu betri kjör en nokkru sinni fyrr. Þetta hefur verið nefnt töfraverkið í Vestur Þýzkalandi og umheimurinn hefur getað fagnað því að hin gáfaða þýzka þjóð hefur þrosk azt í birtu frelsis og lýðræðis. En handan einnar línu er ástandið því miður annað. Þó þar búi hin sama þjóð, er það staðreynd að flestu hefur miðað þar aftur á bak. Ríkisstjórn tek- ur þar við völdum með stuðningi erlendra drottna, hún nýtur ekki stuðnings fólksins og meðan blómaöld rennur upp yfir Vestur Þýzkaland, verða austur-þýzku valdhafarnir að viðurkenna að í hinum miklu landbúnaðarhéruð- um Prússlands sé hungursneyð. Slíkur er ávöxtur þess að sjálf- stæðir bændur eru teknir og smalað saman á samyrkjubú stjórnarinnar. Þótt efnahagsmálin séu þýð- ingarmikil eru það þó ekki þau sem gera bilið breiðast. Hitt er verri staðreynd að austur- þýzka stjórnin hefur í fylgis- leysi sínu orðið hin versta kúgunarstjórn. Minnismerki hennar eru og verða járni girtar fangabúðir í öllum hér- uðum. Hún hefur sáð ótta og öryggisleysi um hverja sveit. „Öryggis“-lögregla hennar hefur sótt margan saklausan mann heim að næturlagi og flutt á brott með sér. Dóm- stólarnir eru verkfæri í hönd- um hennar til að framkvæma pólitískar ofsóknir. Eðlileg stjórnmálastarfsemi er bönn- uð. Við kosningar Iiggur frammi aðeins einn listi komm únistaflokksins. Verkalýðnum er meinað að viðlögðum dauða refsingum að bera fram rétt- látar kröfur um kjarabætur. Uppeldis- og kennslumálum er komið í það horf að allt miðar að því að gera æsku landsins að auðsveipum þjónum vald- hafanna. Þannig hafa Austur Þjóðverjar stöðugt fjariægzt bræður sína í vestri, þar til erfitt er að sjá nokkra leið, sem geti sameinað þá. Lífskjör þeirra og þau forlög, er þeim hafa skapazt eru svo andstæð, að það virðist geysilegt verk að jafna það upp eða bæta úr neyð nágrannans. Á kirkjuþinginu í Leipzig sást það gerla hve mikil trúarvakning gengur um Austur Þýzkaland. Svo virðist sem í þrengingum og neyð undanfarinna ára hafi þjóð- in tekið að sækja líkn til kristin- dómsins í æ ríkara mæli. Slíkt er engin nýung, að þegar á reyn- ir, þá sæki menn stuðning til guðdómsins. Og það er athyglis- vert að þetta hefur gerzt einmitt á tímum þegar kristin kirkja hefur verið ofsótt af valdhöfun- um. Það varð sem sé ljóst að þó flest annað bresti, — þótt tengslin miili þjóðarbrotanna séu rofin á flestum sviðum hins ytra efnis- heims og þó sjálfstæður andi sé hrakinn af opinberu sviði menn- ingarlífs þjóðarinnar, þá hafa valdhafarnir ekki megnað að kveða niður kristindóminn. Þessvegna er það staðreynd sem vert er að athuga, að þýzka þjóðin er enn sameinuð í kristindómnum. Trú hans og vonarneisti er bæði austan og vestan járntjalds. Þar skipta engar ímyndaðar línur neinu máli. Og það er fleira sem þessu fylgir og einnig sameinar fólk- ið. Þráin eftir frelsi stefnir því á sömu leið. Hún verður aldrei þögguð niður nema um stund-1 arstakir. Þó að ógnarstjórn leggi höft á starfsemi fólksins á opinberum sviðum, verður það seint að henni takist að kveða niður þá kröfu, sem hver maður ber í brjósti, að hann fái að lifa í frelsi, laus 1 undan ógnum lögregluríkisins.' INÚGILDANDI áfengislögum Finnlands, segir, í einni meðal fyrstu greinanna, að eftir- lit með áfengisneyzlu í landinu skuli vera með þeim hætti, að auk þess, sem öll óleyfileg sala áfengis sé bönnuð, þá skuli „dreg ið úr neyzlu áfengis, svo sem unnt er og reynt að hindra hinar skaðvænlegu afleiðingar, sem ölvun hefvir í för með sér.“ — Þessi lög voru gefin út hinn 9. febrúar 1932, af hinu mjög svo óvenjulega Ríkisþingi, sem kom saman hinn 19. janúar að aflok- inni þjóðáratkvæðagreiðslu, sem fór fram hinn 29. og 30. desember 1931. 85% Á MÓTI Úrslit þessarar þjóðaratkvæða- greiðslu kom mjög mörgum stór- lega á óvart, og sennilega hafa þeir, sem allra mest urðu undr- andi verið meiri hluti þingmanna, sem sannfærðir þóttust um, að úrslit atkvæðagreiðslunnar yrðu algeru vínbanni í vil. En allt ann- að kom á daginn við talningu at- kvæðanna, 85% þeirra voru á móti banninu, sem þá hafði verið í gildi undanfarin 13 ár að vísu ekki óbreytt, því að á hverju þinginu eftir annað kom til end- urskoðunar á þeim og ýmis kon- ar breytinga, aukins lögreglueft- ann um uínL ocj. Lindincli i ddinnlandi irlits og herðingar á hegningar- ákvæðum og hvers konar höft- um. Vanþóknun og óánægja al- mennings fór jafnt og stöðugt vaxandi. Almenningur annars vegar og þingið hins vegar stóðu á öndverðum meiði. GAGNGER BREYTING Lögin frá 9. febrúar 1932 höfðu í för með sér gagngerða breytingu á allri áfengislöggjöfinni. Allt frá því, er þau gengu í gildi, hefur aðalatriðið verið þetta: að hinn öruggasti mæli- kvarði um ástandið í áfengis- málunum hefur verið talinn, hve mikils áfengismagns hefur verið neytt það og það árið. Innihald laganna var eins og þegar er sagt það, að draga úr áfengis- neyzlu, sem leiddi aftur af sjálfu sér, að komið yrði í veg fyrir hin skaðlegu áhrif ölvunar. Einn- VeU andi óhrifar: Heyrt á tal ungra stúlkna EG varð heyrnarvottur nú á dögunum að samtali milli tveggja ungra stúlkna — sætar og laglegar voru þær báðar — sem höfðu heldur en ekki nóg um að tala. Þær létu móðan mása, hlógu og hjöluðu, hvískruðu og pískruðu — svona eins og ungar stúlkur gera. „Heyrðu mig annars“ — sagði önnur þeirra, við getum gjarnan kallað hana Dísu. — „Hvað ætlar þú að gera í sumarleyfinu þínu — eða ertu búin að taka það?“ „Nei“, — svaraði hin, við getum kallað hanaJslátt áfram Gunnu — hví ekki það? „Nei — sagði hún, heldur súr á svipinn — ég er ekk- ert sumarleyfi búin að taka mér enn. Ætli ég fari nokkuð burt úr bænum. í fyrra fór ég til útlanda, var á ferðalagi í heilar þrjár vikur — það var hreinasti draum- Skðmmfun kvödd STJÓRN brezka íhaldsflokksins hefur nú afnumið síðustu leif- arnar af skömmtun á nauðsynja- vörum. Síðan flokkurinn komst til valda eftir síðasta kosninga- sigur sinn, hefur hann lagt mikla áherzlu á það að draga úr skömmt unarkerfi því, sem verkamanna- flokksstjórnin hélt svo fast við öll eftirstríðsárin. Hinir brezku sósíalistar hafa hrokkið við í hvert skipti þegar hagga skyldi við ástfóstrum sósíalismans, höftum og skömmt- unarseðlum. Nú síðast voru þeir algerlega mótfallnir afnámi kjöt- skömmtunar. Spáðu þeir að kjöt- ið myndi hækka tvöfalt eða þre- falt í verði. Þessvegna kváðu þeir lífsnauðsyn fyrir þjóðina að við- halda ennþá kostnaðarsömu skömmtunarkerfi. Þrátt fyrir hrakspár sósíal- ista gerði stjórnin tilraunina og raunin hefur orðiS sú að þegar jafnvægi er komið á milli framboðs og eftirspurn- ar hefur verðið haldizt líkt og áður, varan er vandaðri en ] áður. Og meðan brezku hús- mæðurnar geta nú ráðið mat- seðli sínum sjálfar hefur hafta stefna sósíalismáns beðið enn1 eitt skipbrotið. Ekki minna til koma. HVAÐ skyldi maður geta gert hér — hélt Gunna áfram —, sem nokkuð er varið í hjá því að koma til þessara stóru borga í útlöndum: Kaupmannahafnar, Londonar eða þá Parísar, þar sem allt er bókstaflega fullt ag alls- konar skemmtilegum stöðum — og svo gasalega smart búðum, þar sem hægt er að kaupa allt milli himins og jarðar! — „Nú, það er aldrei, að þú ert orðin stór upp á þig — svaraði Dísa — með ögn af fyrirlitningu í málrómnum. Ég hefi nú líka farið í sumarleyfinu mínu til út- landa góða mín, og það oftar en þú og líka þó nokkuð víðar um en þú og þó finnst mér langt í frá minna til fslands koma eftir en áður. , , , Einkennilega gert fólk. EG get ómögulega skilið það fólk, hélt Dísa áfram, sem ekki getur farig út fyrir lands- steinana án þess að þykja skítur og skömm koma til alls, sem það hefir hér heima. Venjulega er lika þetta fólk það hið sama, sem í raun og veru sér minnst af því, sem merkilegt er og skemmtilegt til athugunar á þeim stöðum, sem það fer um erlendis. Það er fólkið sem eyðir tíma sínum og ferðafé í búðarráp inni í borgunum og droll og dubl á næturstöðum og „búlum“. Mér finnst það líka meira en lítið skrítið og einkenni lega gert fólk, sem brennur stöð- ugt í skinninu eftir því að kom- ast til útlanda, en virðist ekki langa vitundar ögn til að sjá og kynnast sínu eigin landi. Mér finnst ég aldrei hafa kunnað að meta það sem ísland á fegurst og yndislegast betur en eftir að mér hafa gefizt tækifæri til að sjá mig um í öðrum löndum." Hjartanlega sammála, Dísa litla! Allar bannaðar börnum. ER það. ef til vill tilviljun, að öll kvikmyndahús bæjarins að einu, einasta undanteknu, sýna þessa dagana kvikmyndir, sem bannaðar eru börnum? eða skyldi það bara vera tilviljun að ég rak mig á þessa óhugnanlegu stað- reynd, þegar ég fór yfir kvik- myndaauglýsingar dagblaðanna. Má vera, að hugsað sé sem svo, að börnin hafi annað að gera nú um hásumartímann en að fara í bíó, þeim sé nokkuð hollara að vera úti í góða veðrinu. En svip- að mætti nú ef til vill segja um fullorðna fólkið, og anzi virðist þetta samt neyðarlega aum frammistaða hjá kvikmyndahús- um höfuðborgarinnar og lítili áhugi á að gegna sæmilega því menningarhlutverki sem þeim er ætlað. 5— Hollt er heima hvat. ig hafa hin ýmsu bindindisfélög unnið á sama grundvelli frá því er bindindishreyfingin var stofn- uð fyrir mörgum áratugum síðan. EKKI UNDIR LÍTRAFJÖLDA KOMIÐ Samt sem áður hefur einokun ríkisins á áfengi smám saman skapað annan mælikvarða, sem ekki setur ástandið í áfengismál- um í bsint samband við neyzlu- magn áfengis. Það er ekki lítra- fjöldinn af neyttu áfengi, né held ur fjöldi yfirlýstra bindindis- manna, sem gefur svarið við spurningunni um, hvort ástandið er slæmt eða gott í áfengismál- unum. . Rannsóknir, sem framkvæmd- ar hafa verið af starfsmönnum í vín- og áfengisráði ríkisins hafa leitt til ýmissa athugana, sem eru langt frá því að vera hinni stað- festu bindindisstefnu í vil. NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNANNA Niðurstaðan af rannsóknum þessum var fyrir skömmu látin uppi af einum stjórnarmeðlim of- angreindrar stofnunar, fil. mag. Pekka Kuusi, en hún var á þá leið, að fjöldi ölvaðra manna hefur farið minnkandi jafnframt því, sem áfengisneyzla hefur farið vaxandi, ástandið í áfengismál- um þjóðarinnar hefur farið batn- andi á sama tíma, sem tala bind- indismanna hefur farið minnk- andi, svo að þeir hafa aldrei verið færri, í Finnlandi en nú. Bindindismenn kvarta yfir að ástandið hafi farið versnandi eft- ir að bannlögunum var aflétt, en áfengisráðið staðhæfir, að það hafi farið greinilega batnandi á síðustu tveimur áratugum. Að vísu hefur neyzla áfengis aukizt um 40%, en slys af völdum áfengisneyzlu hafa hins vegar minnkað um næstum 30%. BÆTT LÍFSKJÖR Síðan árið 1935 hefur hand- tökum vegna ölvunar fækkað um 10—20% og fangelsishegningum um 40—50%. Á grundvelli ofangreindra rannsókna, dregur magister Kuusi þá ályktun, að það séu bætt lifskjör þjóðarinnar — eink- um eftir að styrjöldinni lauk, og aukin alþýðumenntun, sem vald- ið hefur breytingum á lífsvenj- um fólks. Fylking bindindis- manna meðal æskulýðsins virðist vera fámennari nú en nokkurn tíma fyrr, en skýrslur sýna, að drykkj uskapur unglinga hefur minnkað um 50—60% frá því árið 1935. VERST í AFSKEKKTUM HÉRUÐUM Athyglisvert er, að ástandið í áfengismálunum er verst í hinum eyðilegu skógarhéruðum og af- skekktum þorpum úti um landið, þar sem möguleikarnir á leyfi- legum áfengiskaupum eru mjög litlir. í Helsingfors og annars staðar í'borgum og þéttbýli, þar sem kaup og sala áfengis er eng- um erfiðleikum háð, er ástandið hins vegar mun betra. Draga má ýmsar ályktanir af tölum þeim, sem hér hafa verið tilgreindar, en ekki er ósennilegt, að niðurstaðan: aukin áfengis- neyzla — bætt ástand í áfengis- málum muni í framtíðinni vekja nokkra athygli og umræður. Bræðslusíldin á Raufarhöfn 35000 mál RAUFARIIÖFN, 23. júlí: — Síld- arverksmiðjan hér hefur nú unn- ið úr 35,000 málum síldar. — Mið- að vij framleiðsluna á sama tíma í fyrra, þá hefur verksmiðjan nú tekið á móti 10,000 málum meiri síld. — Einar. - 1 i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.