Morgunblaðið - 06.08.1954, Blaðsíða 6
6
MORGVN BLAÐIÐ
Föstudagur 6. ágúst 1954
Fuglafræðingur og skóg
Sr. Sigurður Eiðiarsson:
ræktarmaður í heimsókn
Scgja st'.íllega frá dvöl ristni ttér
HÉR á landi hafa um nokkurt
skeið dvalizt tveir Bandaríkja-
menn. Er annar þeirra prófesor
við háskólann í Michigan, dr. Dow
Baxter að nafni, prófesor í plöntu-
fræði við háskólann, og hinn er
tmgur maður, fuglafræðingur,
Richard Zusi að nafni. — Hann
Baxter.
tbýr sig nú undir að semja doktors-
ritgei'ð. Hann kvaðst vera hingað
ikominn af alþjóðlegum fundi
plöntu- og skógarfræðinga, sem
íhaldinn var í París. — Maðurinn,
sem vakti athygli mína á Islandi,
var Fairfield Osbome, höfundur
íbókarinnar Heimur á heljarþröm.
— Þá bók íslenzkaði Hákon skóg-
ræktarstjóri Bjarnason. — Fór
Osborne miklum viðurkenningar-
orðum um Hákon við próf. Baxter
og taldi hann í tölu fremstu skóg-
ræktarmanna. Hér hefur hann
kynnt sér skógræktarmálin og til-
raunir Islendinga til þess að koma
upp nytjaskógi í landinu.
GÓÐIR KUNNÁTTUME'NN
Kvað hann Skógrækt ríkisins
hafa unnið hreinasta þrekvirki á
þessu sviði. Þekking íslenzkra
skógræktarmanna væri mjög mikil
og góð. — Sem dæmi nefndi hann
frætekjuna í Alaska, þar sem trén
vaxa við svipuð skilyrði og hér. —
Þá þótti honum skjólbeltin fyrir
nytjaskóginn sýna þekkingu á
þessum málum hér. — Með skjól-
beltunum ættuð þið að geta komið
upp nytjaskógi á nokkrum áratug-
um. Þið ættuð sjálfir að geta fram-
leitt allan þann við, sem þarf til
girðinga í sveitum landsins, sagði
hann.
FRÓÐLEGT AÐ KOMA í
STÖÐVARNAR
Prófessor Baxter hefur ferðast
milli skógræktarstöðvanna í land-
inu og kvað þær vera hverri ann-
arri betri og fróðlegri að heim-
sækja. Þar er unnið markvíst að
vísindalegum athugunum á því,
hvernig landnemunum vestan frá
Alaska eða öðrum löndum vegnar
í moldu hér. Þá hafði hann orð á
því, að sér þætti merkilegt, hve
kynbótum á sviði trjáræktunar
virtist miða vel áfram.
Evrópa í septemhersól
Einhleypur, miðaldra iðn-
aðarmaður óskar eftir
HlERBERGB
sem næst miðbænum. Tilboð,
merkt: „Strax — 271“, legg-
ist á afgreiðslu Morgunbl.
3—-4 herbergja
ÍBÚÐ
óskast til leigu 1. sept. eða
síðar. Fyrirframgreiðsla. — ;
Tilboð, merkt: „Ibúð - 268“,
sendist afgr. blaðsins fyrir
8. þ. m.
Peircirsgalás!
200 þús. til 300 þús. kr. lán
óskast í 2 ár, Góð trygging
í fasteigr.um, Tilboð sendist
á afgr. Mbl. fyrir hádegi ,
laugardag, merkt: „Þag-
mælska — 267“.
Hafrícu*f|érdi?r
Mig vantar 2 til 3 herbergi
og eldhús sem allra fyrst.
Upplýsingar í síma 4939.
PENINGALAKf
60 þúsund kr. lán óskast
gegn I. veðrétti í íbúðarhúsi
á einum bezta stað í Kéfia-
vík. Tilboð leggist inn á af-
greiðslu Mbl. fyrir hádegi á
laugardag, merkt: „K. N.
— 270“.
, BEZT AÐ AUGLfSA £
‘ / MORGUISBLAÐINU T
R. Zusi.
Mjög rómaði hann alla fyrir-
greiðslu starfsmanna Skógræktar-
innar. -- Hér hefur prófessorinn
einnig kynnt.sér sjúkdóma í trjám,
en það er sérgrein hans, — Taldi
hann sig hafa fundið þrjár skað-
legar sveppategundir. Myndi hann
senda Skógræktinni skýrslur um
það, er hann kæmi heim. En það
var skoðun hans, að væntanlegum
skógum landsins myndi ekki stafa
hætta af sveppum eða annarri
sýkingu, þar eð aðfluttu trén vaxa
upp af fræi.
KYNNTI SÉR EINKUM
ITETTUMÁFINN
Fnglafræðingurinn Richard Zusi
kvaðst hér hafa notið mikillar og
góðrar hjálpar Finns Guðmunds-
sonar. Hefur Zusi m. a. brugðið
sér norður að Mývatni og út í
Vestmannaeyjar. Um nokkra hríð
var hann úti í litlum grasi grónum
hólma undan landi Korpúlfsstaða.
Þar verpir hettumáfurinn. —
Kvaðst Richard Zusi hafa reynt
að kynna sér lifnaðarháttu hans
þar og annað í sambandi við dokt-
j orsritgerð í fuglafræði um hettu-
. mávinn, sem hann vinnur að und-
irbúningi að. Fuglalífið almenpt í
landinu kynnti hann sér að sjálf-
sögðu.
Hann kvaðst vilja nota tækifær-
ið til þess að vekja athygli al-
mennings á hinu frábæ*-a fugla-
safni Kristjáns Geirmundssonar á
Akureyri. — Það vrari leitt til þess
að vita, ef Akureyringar ekki nota
sér þetta safn Kristjáns. Fugla-
safn þetta er ómctanlegt, og ættu
Aureyringar að forða því frá
glötun og evðileggingu, sagði hann.
Þeir félagar eru nú á förum
heim. — Báðu þeir Morgunblaðið
I fyrir kveðjur til þeirra fjölmörgu,
sem á einn eða annan hátt hefðu
greitt götu þeirra hér. 1
ETTA er í sjálfu sér ekki ann-
að en dauð runa af nöfnum
úr landafræðinni. Og þó fer það
eftir því, í hvaða sambandi þau
ber manni fyrir augu. Þegar ég
las þau á dögunum í sambandi
við fyrirhugað ferðalag Ferða-
skrifstofu ríkisins um Evrópu,
sem ráðgert er að hefjist frá
Reykjavík 4. sept. n.k., þá tóku
sýnir og minningar að rísa upp
í huga mínum, sumar ógieyman-
legar og óendanlega fagrai, aðrar
fróðlegar og lærdómsríkar Og ég
fór að hugsa um það, að septem-
ber er skemmtilegasti ferðamán-
uðurinn í Evrópu, hitinn ekki
lengur til baga, fegurð náttúr-
unnar aldrei auðugri og tilbreyt-
ingaríkari í litum lofts, skóga og
fjalla, og hið iðandi, alþjóðlega
líf á hinum miklu ferðamanna-
leiðum aldrei fjörugra né bland-
aðra. Evrópa í septembersól er
Evrópa í sparifötunum. Og ég
fór að huga um það, hvað þeir
ættu gott, sem án þess að taka
verulega nærri sér, gætu tekið
þessar rúmar sex þúsund krón-
ur, sem ferðin kostar alla leið
frá Reykjavík og heim aftur, og
veitt sér tuttugu og sex ógleym-
anlega síðsumardaga, áður en
veturinn leggst að á Islandi.
Ég hefi verið að virða fyrir
mér þessa ferðaáætlun Ferða-
skrifstofu ríkisins, og gera mér
grein fyrir, hvað hún hefur uppá
að bjóða. Ég sleppi siglingunni
með m/s Gullfossi til Edinborg-
ar og Kaupmannahafnar og dvöl-
inni í Kaupmannahöfn. Þetta er
orðið okkur íslendingum svo
skemmtilega gamalkunr.ugt. —
Og þó er svona sjóferð dæma-
laust góð hressing frá hversdags-
arginu. Og engum, sem dvalið
hefir í Kaupmannahöfn, getur
dulizt, að hún er einn þekkiieg-
asti bærinn í norðanverðri
Evrópu, ekki stórfengleg, en
vinaleg og notaleg og skemmti-
lega glaðvær.
Frá Kaupmannahöfn verður
ekið í stórum, traustum lang-
ferðabíl, sem nú um skeið verð-
ur annað heimili ferðafólksins.
Ekið suður Sjáland og Falstur,
ferja til Grossenbrode og síðan
ekið um Lubeck til Hamborgar.
Liibeck er afar einkenniieg borg
með allar sínar kirkjur og sína
gömlu, fögru turna.
Hamborg er og verður senni-
lega alltaf eir þýðingarmesta
borgin á nor r+rönd megin-
W-. *?-■
Neuschwansteinkastalinn.
landsins, viðskiptadrottningin við
hina rpiklu Saxelfi. Hún er nú
óðum að rísa úr rústunum, er
aftur að fá sinn annríka stór-
borgarbrag, og ná sinni gömlu
giaðværð. Þegar ég fór frá Ham-
borg 1950, var ég undrandi yíir
því, hvað búið var að endurreisa
þar á fimm árum.
Frá Hamborg er ráðgert að
fara um Westfalen til Dusseldorf.
Þá er komið í hjartastað náma-
og þungaiðnaðarins. Viðreisnar-
máttur Þýzkalands skilst engum,
sem ekki hefur séð „svarta land-
ið“, land stáls og kola, háofnana
og iðjuverin. Þarna verður dval-
izt daglangt og skoðað hið helzta.
Þá hefst það, sem ég mundi
vilja kalla hinn rómantíska þátt
ferðalagsir.s, farið til hinnar
fornu nýlenduborgar Rómverja,
Köln, með allar sínar gömlu
minjar, og suður um Rínardalinn
til Heidelberg. Þarna er hver
borgin annarri yndislegri með-
fram Rín og landslag óviðjafnan-
lega fagurt. Farið í gegnum vín-
yrkjusvæðin, einmitt á þeim
tíma, þegar uppskerunni er að
ljúka og glaðværð og hátíðahöld
einkenna líf fólksins.
„Hast du geliebt am schönen
Feneyjar; Gondólar á Stóra-síkinu. í baksýn Ponte Rialto.
Rhein, bei Sang und Wein, bei
schönen Frauen, dann Bursche
stell dein Wandern ein. Die Welt
hat schöneres nicht zu schauen.“
Þannig hefur fólkið sungið kyn-
slóð eftir kynslóð í uppskerugleði
haustdaganna á þessum slóðum.
Heidelberg er undrafögur og
gamalfræg, þar sem hún teygir
sig upp um þrekkurnar upp frá
ánni Neckar. Hún slapp við það,
sennilega ein allra þýzkra borga,
að verða fyrir loftárás í síðasta
stríði, geymir allar sínar gömlu
menjar. Þar á meðal vínámuna
frægu, sem tekur 220 þúsund
lítra, háskólann og sínar fögru
kirkjur og söfn.
Ef ég ætti að rekja þessa fyrir-
huguðu leið, eins og mig larigaði,
yrði það allt of langt mál.
Frá Heidelberg liggur leiðin
inn í Sviss um Freiburg og Basel
til Luzern. Luzern er miðstöð
ferðamannalífsins í Sviss; stend-
ur við VierWaldstatter-vatnið,
sem af ýmsum er álitið fegurst
allra hinna fögru Alpa-vatna.
Yfir borginni, sem umgirt er
fornum múrum, gnæfir Pílatus,
í gegnum hana rennur Reuss-
fljótið, og liggja yfir það margar
fagrar brýr, sumar reyndar ein-
hverjar merkilegustu miðalda-
minjar í byggingarlist, eins og
t. d. Kappelenbrúcke. Dvölinni í
Luzern verður eytt í skemmti-
siglingu um Vierwaldstattervatn
og til þess að skoða þessa fögru
borg og umhverfið.
Frá Luzern verður farið um
Axenstrasse og St. Gotthardskarð
til Lugano, sem liggur á undur-
fögrum stað umgirt fjöllum og
vötnum. Á næstu grösum eru
Como vatnið og Lago Maggiore,
S. Salvatore og önnur stórfögur
fj.öll gefa allri útsýn hrikalegan
tignarsvip, sem þó er mildaður
af því, að þarna er komið inn í
suðrænan heim. Háalparnir eru
að baki og framundan á næstu
grösum Ítalía. Þarna er ætlunin
að dvelja heilan dag.
Frá Lugano verður ekið um
hinar fornfrægu borgir Vicenza
og Padúa til Feneyja, og dvalizt
þar í þrjá daga.
Feneyjum er ekki hægt að lýsa
í fáum orðum. Menn verða að
koma þangað, láta borgina verka
á sig með sinni undursamlegu
og sérkennilegu fegurð, anda að
sér sögu hennar og list.
Til þess að komast til Feneyja,
sem liggja úti í Adríahafi, verður
að aka eftir 5 km. löngum garði,
sem er hið stórkostlégasta mann-
virki. Svo rís borgin upp úr haf-
Framh. ö bls. 11