Morgunblaðið - 06.08.1954, Blaðsíða 16
Veðurúflil í dag:
NA og A kaldi, skýjað. Sumstað-
ar dálítil rigning.
176. tbl. — Föstudagur 6. ágúst 19954.
Fiskirannsóknir
Dana og íslendinga. — Sjá bls. 9.
Framsókn rígheldur í leyfa
braskið og höftin
Dánarfregn
Sjálfslæðísmenn lögðu til að bifreiða-
innflutniiigurinn yrði gefinn fr jáls um
leið eg nýr skattur yrði á lagðar
GUNNAR AKSELSON umboðs-
sali, sem Reykvíkingum er að
góðu kunnur, einkum öllum
áhugasömum íþróttamönnum,
andaðist í Ríkisspitalanum í Osló
í gær, samkvæmt skeyti er barst
hingað frá systur hans. — Gunn-
ar Akselson var nýlega sextugur
að aldri.
Nelson fiygkappi fér héðan í fyrradag
TÍMINN er nú orðinn hræddur við haftastefnu sína, bæði gagn-
vart bifreiðainnflutningnum og á öðrum sviðum. Þessvegna
slær hann í gær fram þeirri fáránlegu fullyrðingu, að Ingólfur
Jónsson, viðskiptamálaráðherra, hafi hindrað frjálsan innflutning
bifreiða, eins og Sjálfstæðismenn hafa alltaf stefnt að. Jafnframt
heldur blaðið þeirri blekkingu fram, að Sjálfstæðismenn hafi vilj-
að láta skattleggja allar bifreiðar, einnig vörubifreiðar.
Sannleikurinn í þessu máli er
sá, að samkomulag varð um það
strax innan ríkisstjórnarinnar að
léggja ekki aukaskatt á stærri
vörubifreiðar, sérleyfisbifreiðar
og strætisvagna, vegna þess að
augljóst var frá upphafi, að slíkt
myndi hafa áhrif á dýrtíðina í
landinu, valda hækkun á vísitöl-
•unni og íþyngja atvinnulífinu.
En fyrrgreind blekking Tímans
er í samræmi við annað, sem
liann leyfir sér að halda fram um
samstarfsflokk sinn.
TILLAGA SJÁLFSTÆÐIS-
MANNA
Varðandi innflutningsfrelsið er
það að segja, að viðskiptamála-
ráðherra og aðrir ráðherrar Sjálf
stæisflokksins lögðu fram tillögu
nm það að innflutningur á hinum
skattlögðu bifreiðum yrði gefinn
frjáls. Framsóknarmenn máttu
ekki heyra það nefnt en kröfðust
þess að viðskiptamálaráðherra
tryggði yfirlýsingu frá bönkun-
um um tafarlausa yfirfærslugjald
eyris fyrir bifreiðum. Töldu þeir
að ekki væri um frjálsan inn-
flutning að ræða nema slík yfir-
lýsing lægi fyrir.
Þessi krafa var að sjálfsögðu
gerð vegna þess, að það var fyrir-
fram vitað, að slík yfirlýsing var
með öllu ófáanleg, enda fór við-
skiptamálaráðherra aldrei slíks
á leit við bankaana.
I þessu sambandi má benda
á, að um 70% af innflutningi
til landsins er á frílista og
hafa Framsóknarmenn aldrei
áður krafist þess, að yfirlýs-
ing lægi fyrir frá bönkunum
um yfirfærslu fyrir þeim vör-
um. Eigi að síður hafa bank-
arnir yfirfært fyrir þeim með
hæfilegum fyrirvara eftir því,
sem gjaldeyrisástæður hafa
leyft. Það sama hefði vitan-
lega gerst ef bifreiðar hefðu
verið settar á fríiista.
EKKERT LÆRT OG ENGU
GLEYMT
Fullyrðingar Tímans um að
viðskiptamálaráðherra hafi hindr
að frjálsan innflutning bifreiða
eru því blygðunarlaus blekking,
sem þó er haldlaus fyrir Fram-
sóknarflokkinn, þar sem alþjóð
er það ljóst orðið, að hann hefur
ekkert lært og engu gleymt.
Hann vill ríghalda í höftin og
leyfabraskið. Það eru hans ær
og kýr.
Vínveifinpr í Sjálf-
sfæðishúsinu og
Röðli um helgina!
NÚ HEFUR fjórum veitingahús-
um í Reykjavík verið veitt leyfi
til áfengisveitinga. Hótel Borg
hefur þegar hafið þær, sem
kunnugt er, en um næstu helgi
munu Sjálfstæðishúsið, Röðull
og Þjóðleikhúskjallarinn einnig
hefja veitingar áfengis, en þessi
hús uppfylla allar kröfur sem
gerðar eru til 1. fl. veitingahúsa
og hlutaðeigandi aðilar hafa
samþykkt að vínveitingar megi
hefjast á þeim stöðum.
Lúðvík Hjálmtýsson, formað-
ur Sambands veitinga- og gisti-
hússeigenda, skýrði blaðinu svo
frá í gær, að enn væri ekki kom-
in reglugerð frá ráðuneytinu um
fyrirkomulag vínveitinganna, en
hún er væntanleg á næstunni, og
geta þá vínveitingar hafizt á
' áðurnefndum stöðum.
Lungun úr Njálsstsðakindinni
vcru ósýfcf af
JGÆR átti Mbl. tal við Sæmund
Friðriksson forstjóra Sauð-
fjárveikivarnanna, um sjúkdóm
þann sem kom upp í kindinni að
Njálsstöðum, og skýrt var frá hér
i Mbl. í gær, að menn þar nyrðra
grunuðu um að vera með mæði-
veiki. — Sæmundur upplýsti það
að Guðmundur Gíslason læknir
væri búinn að rannsaka lungun.
Hefði sú rannsókn leitt í ljós, að
ekki var um mæðiveiki í lung-
unum að ræða. — Kvað Sæmund-
ur Guðmund Gíslason lækni
munu síðar gera nána grein fyrir
máli þessu. — Sæmundur kvað
það rangar uppl. er Keldur gáfu
Mbl. að læknar sauðfjárveiki-
varnanna tveir við Keldnastöð-
ina, væru í sumarleyfi. — Þeir
eru önnum kafnir við eftirlit við
sauðfjárslátrunina í Borgarnesi
og Hofsósi.
Sæmundur Friðriksson gat
þess, til þess að upplýsa ástæð-
una fyrir því að Njálsstaðabónd-
anum hafði ekki borizt svár um
árangur rannsóknanna, að
Keldnastöð fengi nær því á hverj
um degi fleiri eða færri lungu
til rannsóknar. — En bændum
væri ekki gert viðvart nema sér-
stakt tilefni gæfist til. — En um
þetta mun Guðmundur væntan-
lega ræða í greinargerð sinni.
Þess má geta, að forstjóri
stofnunarinnar, Björn Sigurðsson
læknir, er í sumarleyfi á vegum
ísl.-rússneska félagsins austur í
Moskvu, að því er talið er.
Hvalfirði
VÉLBÁTURINN „Þórarinn“
frá Rvík, var á veiðum í Faxa-
flóa og varð þá var við margar
síldartorfur er óðu uppi í Hval
fjarðarmynni út af Akranesi.
Ennfremur urðu menn á
trillubáti er var í róðri í fyrri
nótt, varir við mikla síld í
torfum er óð á Sviðinu. Fengu
þeir um 1400 kg af þorski og
ufsa er elti torfurnar og vall
síldin, bæði hafsíld og smásíld
upp úr fiskinum.
Saltað í 50110
tunniir á Húsavík
Ljósmyndin er tekin á Reykjavíkurflugvelli, rétt áður en Erie
VElson iagði af stað héðan álciðis til Kaupmannahafnar með flug«
vél LoftlEiða. Með Neison eru ýmsir, sem einkum önnuðust mót-
tökur hans hér. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Bergur G.
Gíslason, fuiltrúi Flugfélags íslandS, Sigurður Magnússon, fulitrúl
Loftleiða, Agnar Kofoed Hansen flugmáiastjóri, Eric Nelson, Jótt
Eyþórsson, fcrseti Flugreáiaíélags íslands, Hákon Guðmundssoni,
ritari Flugmalafélagsins og Jón N. Pálsson, sem er í stjórn Flug-
málafélags íslands. Myndina tók Vigfús Sigurgeirsson.
IMóg að gera í söltunar-
stöðvunum í gærdag —
Veiði var engin í gær
FRÉTTARITARI blaðsins á Raufarhöfn skýrði blaðinu svo frá
að allmörg skip hefðu seinni hluta nætur í fyrrinótt og í gær-
morgun fengið góðan afla austur af Langanesi, en þar fann síldar-
leitarflugvélin síldina. Dreifðust skipin á ýmsar hafnir, Raufarhöfn,
Húsavík (þar var allt fullt), Eyjafjarðarhafnir og víðar. í gæt;
voru saltaðar á Raufarhöfn 2000—2500 tunnur.
HÚSAVÍK, 5. ágúst: — Hér á
Húsavík eru nú starfandi 5 sölt-
unarstöðvar og hafa þær saltað
í um 5000 tunnur alls. í gær áttu
stöðvarnar von á 1000 málum
síldar. — Gott veður hefur verið
undanfarna þrjá sólarhringa norð
ur þar, en þoka á nóttum.
Himdruð gesta á
Þjóðhátíð
Vestmarniaeyja
ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmannaeyja
hefst í dag. En eins og fyrr hefur
verið frá sagt í blaðinu hefur
undirbúningur hátíðarinnár stað-
ið lengi yfir. Látlaus straumur
flugvéla með Þjóðhátíðargesti
frá Reykjavík hefur verið í dag
til Eyja. Voru ails farnar 15 flug-
ferðir og ráðgerðar eru 10 ferðir
á morgun. Ráðgert er að flytja
gesti til Eyja á laugardaginn.
Það eru Douglasvélar Flugfélags
íslands sem flugferðirnar ann-
ast.
Margt fólk kom og með Esju
í morgun og eitthvað mun koma
með Stokkseyrarbátnum, og auk
þess eitthvað með flugvélum frá
Hellu og Skógasandi.
Vel lítur út með veður og er
mikið líf og fjör í Eyjum.
Blikupi fagnað
á Vesffjörðmn
ÞÚFUM, 2. ágúst: — Yfirreið
biskups og vísitasia lauk hér í
prófastsdæminu síðastliðinn
sunnudag. Var biskupi hvarvetna
vel fagnað og kirkjusókn við
messugerðir afbragðsgóð.
Þótti koma biskups hin ágæt-
asta og mikil ánægja fólks yfir
komu hans.
Messaði hann síðast í Hnífsdal
og skólahúsi í Skutulsfirði, við
mikla aðsókn safnaðarmanna.
Fylgja biskupi og frú hans hinar
beztu árnaðaróskir fyrir komuna
í héraðið og starf hans fyrir
kirkju og kristindóm. — P. P.
Skemmdarverk
unnin
á gosbrunninum
TVÆR stúkur, sem í sumar hafa
þann starfa með höndum að við-
halda hinum fallegu skrúðgörð-
um bæjarins komu að máli við
blaðið í gær. — Sögðu þær frá
dapurlegri reynslu af bæjarbú-
um — óheyrilegri skemmdar-
fýsn.
Sem kunnugt er, er nú búið
að gera mikið til þeás að fegra
Tjarnargarðinn við Fríkirkjuveg-
inn. Fyrir skömmu var lokið við
litla skál með gosbrunni í. Síðan
voru blóm sett niður allt um-
hverfis. —• Að morgni þriðju-
dagsins voru verksummerki öm-
urleg í garðinum. Skemmdar-
vargar höfðu verið í garðinum
um nóttina, slitið upp blóm-
plöntur umhverfis skálina og
gosbrunninn og hent þeim út í
skálina. Þá hafði vatnsdreifaran-
um í gosbrunninum verið stolið,
en hann var sérlega smíðaður.
Almenningur ætti að hjálpa
við að upplýsa hvaða vandræða-
menn hér hafa verið að verki,
svo hægt sé fyrir lögregluna að
hafa hendur í hári þeirra.
Anna hefir verið
sýnd í 122 skipti
HAFNARFIRÐI — Nú hefir Bæj-
arbíó sýnt ítölsku kvikmyndina
Önnu í 122 skipti, og hafa rúm-
lega 22 þúsund manns séð hana.
Hófust sýningar á henni annan í
hvítasunnu. — Mun það vera al-
gert einsdæmi, að mynd sé sýnd
svo lengi hér á landi, og það nær
ávallt fyrir fullu húsi.
Svo sem getið hefir verið um
hér í blaðinu, er hér um að ræða
einstaka úrvalsmynd, sem hvar-
vetna hefir hlotið miklar vin-
sældir kvikmyndagesta.
Helgi Jónsson bíóstjóri kváð nú
örfáar sýningar eftir. — G.E.
BETRI SlLD
Síldin, sem skipin fengu út
af Langanesi, var stærri og
jafnari en það, sem til þessa
hefur veiðzt. Fer því minna at
afla skipanna en áður I
bræðslu. Heilðarsöltun á Raut
arhöfn nam á miðvikudags-
kvöld 20400 tunnum, en all3
hafði verið tekið á móti 45
þúsund málum síldar.
5
FLUGVÉLIN FANN EKKI I
SÍLD
En um kl. 10 í gærmorguB
hvarf síldin út af Langanesi og
síðan hefur ekkert veiðst. Flug-
vélin flaug í kvöld, en hafði enga
síld fundið er síðast fréttist. —<
Ægir kom frá Kolbeinsey og
leitaði síldar með asdic-tækjum.
Fann hann ekkert utan lítið magil
við Kolbeinsey. Hann átti að hafa
stutta viðkomu á Húsavík, en
síðan að fara aftur út og leita
síldar austar.
Veður fór versnandi á Raufar-
höfn í gærkvöldi. Var veðurhæð-
in orðin 4—5 vindstig þar uin
tíuleytið. Er því útlitið ekki gott,
en þó var ekki hvasst á mið-
unum. j
Skriðdrekakaup U.S.A.
HEIDELBERG — Bandaríkin
hafa nýlega samið við brezk stál-
iðjufyrirtæki um smíði á skrið-
drekategundinni Centaurion
Mark V fyrir um 14.500,000 pund.
AUGLYSINGAR
*em birtast eiga I
Sunnudagsblaðinu
tmrfa aS hafa borlzt
fyrir kl. 6