Morgunblaðið - 24.08.1954, Síða 2
MORGIJTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. ágúst 1954 ]
Sverrir líunólf sson kona hans janet
í FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ halda ung hjón söngskemmtun í
Gamla-Bíó. Eru það þau Sverrir Runólfsson og kona hans,
Janet, bandarísk að œtt og uppruna. Hafa þau hjónin stundað
tónlistarnám vestan hafs i allmörg ár og komu hcim fyrir skömmu
samt þremur börnum sínum og hyggjast nú halda hljómleika hér
í Reykjavík og e. t. v. einnig á Akureyri.
FÓR VESTUR 1945 ! son, hefur stundað píanóleik í
Sverrir hefur lagt stund á ] mörg ár bæði í tónlistarskóla og
söngnám síðan hann fór vestur ] hjá einkakennurum, m. a. hjá
um haf árið 1945. Hefur hann ] Elisabeth De Averett, sem er
biæfagra og þjálfaða tenórrödd. | frægur píanókennari í Los Ang-
Kona hans mun leika undir og i eles. Hefur frúin oft komið fram
þar að auki flytja sjálfstæð*
píanóverk. Þau hjónin hyggjast
halda aftur til Bandaríkjanna
innan skamms og halda áfram
tónlistarnámi sínu þar í landi.
Sverrir Runólfsson fór til
Ameríku árið 1945 og hóf söng-
nám hjá sama kennara og Guð-1
mundur Jónsson lærði hjá um
skeið. Var Sverri þá boðið að
srtunda söngnám við tónlistar-
deild háskólans í Long Beach,
borg sem er skammt fyrir sunn-
an Los Angeles, en hann hafði
sungið á samkomu, þar sem við-
staddir voru forráðamenn tón-
listardeildar skólans. Var hann
við ná-m í þessum skóla nokk-
urn tíma, en naut jafnframt
kennslu einkakennara.
KOMST I URSLIT
Um tíma varð þó Sverrír að
leggja söngnámið á hilluna veg.ia
atvinnu sinnar, en tók aftur til
við námið fyrir um það bil tveim-
ur árum, og lærði m.a. hjá Hans
Klemenz, sem áður var söngv-
ari bæði við Covent Garden og
Metropolitan, en þó mest hjá
Paul Thomsen, en hjá honum
hafa lært fjölmargir kvikmynda-
leikarar í Hollywood.
Sverrir hefur margoft komið
fram sem einsöngvari við ýmis
tækifæri. Eitt sinn tók hann þátt
í söngkeppni, sem í voru um
2500 þátttakendur og varð einn
af 17 er í úrslit komust.
LEIKINN PÍANÓLEIKARI
Kona Sverris, Janet Runóifs-
Sverrir Runólfsson og kona
hans Janet.
opinberlega sem einleikari. í
keppni, sem félag tónlistarkenn-
ara í Los Angeles efndi til var
hún ein af þrem píanóleikurum,
er valdir voru til að leika á tón-
listarhátíð á vegum félagsins.
Á hljómleikunum á fimmtu-
dagskvöldið mun Sverrir m.a.
syngja lög eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Sigurð Þórðar-
son og Pál ísólfsson. Þá mun
hann og syngja aríur úr Pagliacci
eftir Leon Cavallo og aríur úr
La Bohéme.
Frú Runólfsson munl eika lög
eftir Lizt, Bach og Chopin.
SIÐASTLIÐINN laugardag var
vígður nýr ferðamannaskáli í
Þórsmörk, sem Ferðafélag ís-
lands hefur látið reisa þar í
minningu Kristjáns Ó. Skag-
íjörð. Er þetta áttundi ferða-
mannaskálinn, sem félagið hefur
látið reisa síðan fyrsti sitáli þess
reis af grunni í Hvítanesi 1930.
Er þessi skáli stærstur og veg-
] legastur þeirra allra og stendur
í Langadal í Þórsmörk, einum
fegursta stað íslenzkra öræfa.
VEGLEGT
FERÐAMANNAHÚS
I Stjórn Ferðaíélags íslands, á-
. samt gestum og fréttamönnum,
héldu af stað frá Reykjavik á
laugardaginn í tveim langferða-
bifreiðum áleiðis til Þórsmerk-
ur. Var komið að hinum nýreista
skála um 9 leytið um kvöldið,
eftir ánægjulega ferð í góðu
veðri. Kemur skálinn fyrst í ljós
er komið er að Krossá, en hann
stendur norðanmegin árinnar,
neðst í Langadal. Glampaði þar
á glugga hans og þil í kvöldsól-
inni, er bifreiðarnar staðnæmd-
ust á árbakkanum. Var síðan
ekið heim á hlað og skömmu síð-
ar um kvöldið fór vígsluathöfnin
fram.
REISTUR TIL MINNINGAR
UM KR. Ó. SKAGFJÖRÐ
Lárus Ottesen, framkvæmda-
stjóri Ferðafélags íslands bauð
gesti velkomna, en þvínæst tók
Jón Eyþórsson, ritari félagsins,
til máls og skýrði aðdraganda
BlfSÍl
Eldur í 500 hesia hlöðu á sunnudag,
VÍK, í MÝRDAL, 23. ágúst.
IGÆRDAG kom upp eldur í hlöðunni í Skaftárdal á Síðu,. en þar
er eitt stærsta fjárbú hér í sýslunni. Urðu þar miklar skemmd-
ir á heyi.
Það var síðari hluta dags í gær,
að 'fólk i Skaftárdal varð vart
við að eldur var í hlöðunni þar
á bænum, en hún getur tekið um
500 hesta og var full, en mikið
af því var hey frá sumrinu, en
einnig voru talsverðar fyrningar.
Bóndinn hafði veitt því eftir-
tekt, að hitnað hafði í heyinu,
sem fyrst var hirt í sumar. Hafði
hann þó ekki talið neina eld-
hættu á ferðum.
FIMMTA HLUTANUM TÓKST
AÐ BJARGA
Strax og eldsins varð vart, var
tekið til við slökkvistarfið, og
komu margir menn til aðstoðar
af næstu bæjum. Var slökkvi-
starfið allerfitt, enda varð að
bera mest allt heyið út úr hlöð-
unni. Eldurinn var ekki að fullu
elökktur fyrr en seinnihluta dags
í dag. Hafði þá verið unnið sleitu
laust við slökkvistarfið í um það
bil sólarhring. Um fimmta hluta
heysins tókst að bjarga, en helm-
ingur þess brann til ösku, en hitt
er stórskemmt.
T.IÓNID MIKIÐ OG TILFINN-
ANLEGT
Heytjónið er mjög mikið og
tilfinnanlegt, því að í hlöðunni
Framh. á bls. 12
Sjónarvottinn
vantar ©g dreng-
mn a
li
jólimi
Fyrsti ferðamannahópurinn, sem gisti skála Ferðafélags fslau s S
Langadal í Þórsmörk.
manns geta rúmazt þar í einu, án
þess að þröngt sé. Er bygging
hússins hin vandaðasta og smekk
legasta í alla staði og herbergin
björt og rúmgóð. Þessi ferða-
mannaskáli mun sem önnur slík
hús, verða látinn standa opino
og er heimill ferðamönnum til
gistingar, en þó munu félags-
menn, sem að líkum lætur, hafa
nokkur forréttindi um gistingu
þar.
HÉT Á FERSAMENNINGU
FÓLKS
Jón Eyþórsson kvað það hafa
verið álit stjórnarinnar að eitt
hús Ferðafélags íslands í óbyggð-
um landsins skyldi verða tengt
nafni Kristjáns Ó. Skagfjörðs, og
þar sem hann hafði látið sér
Skáli Ferðafélags íslands í Tindafjöllum.
AÐSTANDENDUR fimm ára
drengs, Þorsteins J. Karlssonar,
Framnesvegi 1, hafa kært til rann
sóknarlögreglunnar yfir því, er
á að gizka 12 ára drengur, sem
var á reiðhjóli, hjólaði á litla
drenginn. Hlaut hann allmikil
meiðsl, þó ekki hættuleg, er hann
varð fyrir reiðhjólinu og rann
það yfir höfuð hans. Gerðist
Fraxnh. á bls. 13
þess að húsið hefði verið reist
og lýsti skálanum. Hann er sem
áður hefur verið sagt, reistur í
minningu Kristjáns Ó. Skag-
fjörðs. Kvað hann félagið hafa
ráðgert fyrir 10 árum síðan að
láta byggja skála í Þórsmörk, og
hefði Kristján Ó. Skagfjörð verið
einn aðal hvatamaður þess. Fjár-
festingaleyfi hefði þó ekki feng-
ist fyrr en á síðastl. ári, en þá
var strax hafizt handa um fram-
kvæmdir og var þá steyptur
! grunnur skálans. Þá gat hann
! þess, að skömmu eftir lát Krist-
jáns Ó. Skagfjörðs, hefði Þor-
|steinn Kjarval afhent félaginu
10 þús. kr. til sæluhúsbyggingar
og um sama leyti hefði félaginu
borizt 5 þús. kr. gjöf frá Vest-
mannaeyjum í sama tilgangi.
Ákvað þá stjórnin að skálinn í
Þórsmörk skyldi reistur til minn-
ingar um Kristján, en hann var
eins og kunnugt er einn mesti
brautryðjandi ferða- og íþrótta-
mála hér á landi og vann ómetan
legt starf á því sviði. í sumar
var síðan lokið við smíði skálans.
RÚMAR 50 MANNS
j Skálinn er tvílyftur og er á
neðri hæð hans tvö herbergi með
föstum rúmum, eldhús og stórt
fordyri. Uppi á lofti eru tvö
fremur stór herbergi og eitt lítið
og einnig rúmgóður uppgangur,
sem hæglega má nota til gist-
ingar. Alls eru 27 föst legurúm
í skálanum, en talið er að 50
meira annt urn Þórsmörk en
marga aðra staði landsins í ör-
um, var þessi staður valinn fyrir
það hús er tengt skyldi minningu
hans. Nú hefur þetta hús verið
reist á einum náttúrufegursta
stað landsins í gróðursælli skóg-
arhlíð, sagði Jón Eyþórsson, og
er meira í þjóðbraut en önnur
hús félagsins, þar sem hópferðir
til Þórsmerkur eru stöðugt að
aukast. Kvaðst hann vona að
ferðamenning þeirra sem skálann
ættu eftir að gista í framtíðinni,
væri komin á það hátt stig, að
fólk gerði sér far um að vernda
bæði gróður og mannvirki á þess-
um stað, og kvaðst óska þess að
andi Kristjáns Ó. Skagfjörðs
mætti ávallt ríkja í húsinu,
meðal þeirra er þar dveldust.
EIRMYND AF
KR. Ó. SKAGFJÖRÐ
Velþekkt félag í Reykjavík
hefur ákveðið að gefa borð og
bekki í skálann, og munu þeir
verða fluttir þangað innan
skamms, og ennfremur verður
fest upp í skálann eirmynd af
Kristjáni Ó. Skagfjörð, sem er
nú í smíðum hjá Guðmundi Ein-
arssyni frá Miðdal. Þá hefur
ekkja Kristjáns, frú Emilía Skag-
fjörð, gefið vandaða gestabók til
skálans og var hún tekin í
notkun þetta kvöld, er fyrsti
ferðamannahópurinn gisti skál-
ann. Teikningu hússins hefur
Jón Víðis gert, yfirsmiður bygg-
ingarinnar var Sigurður Mag. ís->:
son, bóndi að Hvammi i: lir
Eyjafjöllum, en Eysteinn Ei. :."S-
son, verkstjóri, sá um flut.. Lng
efnis til skálans.
FYRSTA IIÚSMÓÐIRIN
í SKÁLANÚM
Eftir að vígsluathöfninn var
lokið, var gestum boðið upp á
hressingu. Var sezt að 1 " Ti-
drykkju og svignuðu þar fcor®
undir allskyns kræsingum. Hns-
móðir skálans þetta fyrsta kvold,
var frú Bíbí Gísladóttir, og veitti
hún af mikilli rausn. Var það
ærið starf þar sem gesLr voru
run 50 taisins. Aldrei þraut þó á
kaffikönnunni um kvöldiS ers
margar ferðir og tíðar voru farn-
ar eftir vatni til lögunarinnar.
Unöir borðum voru og ræður
fluttar. Tóku þar til ma s Guð-
mundur Einarsson frá Miðdal, en
hann er í stjórn félagsins. Þakk-
aði hann fyrir hönd gestanna, hús
móðurinni fyrir framúrskarandl
veitingar. Þá tók einnig til máls
Högni Torfason, fréttamaður, og
þakkaði fyirr hönd fréttamanna.
HÁLENDIÐ BRÚAÐ
FERÐAMANNASKÁLUM
Með byggingu þessa ferða-
mannaskálc í Þórsmörk, rná
I fjallajökuls og Eyjafjallajökuls
. hafi verið tengt með ferða-
| mannaskálum. — Ferðafélag
i íslands og Fjallamenn eiga
nú þrjá reisulega skála á þessu
svæði og hafa má þar að auki af-
not af leitarmannakofa á svæð-
inu. Félagið á skála í Tindfjöll-
um, en í þann skála mun vera
um 4 tíma gangur frá Múlakoti
í Fljótshlíð. Þaðan er síðan hægt
að fara niður að Markarfljóti,
en þar er leitarmannakeíinn,
ekki alllangt frá KanastaSagili.
Er nú í ráði að félagið
í samvinnu við Fljótshlíð-
armenn og Hvolhreppsmenn, láti
gera göngubrú á Markafljót, á
þessum stað, þar sem bændurnir
þurfa að hafa mikil afnot af leit-
armannakofanum og Ferðafélag-
ið einnig. Hefur Vegagerg ríkis-
ins lofað að útvega efni til brúar-
byggingarinnar ef til kemur, en
á Markarfljóti er þarna kláf-
ferja innan við Einhyrning og er
ennþá ekki ákveðið hvort hún
verði lagfærð og notast við hana
eða hvort brú verður byggð. —•
Mun verkfræðingur frá Vega-
gerðinni fara á staðinn í sumar
og athuga þetta nánar og eins
hvar heppilegt væri að brúa
Syðri-Emsturá.
FIMMV ÖRÐUHÁLS SKÁLINN 1
Ef torfæra þessi yrði brúuð,
væri hægt að gera eina langa
dagleið að tveimur stuttum, því
úr skálanum í Tindfjöllum er
ströng dagleið til Þórsmerkur.
Væri því æskilegt að skipta
henni í tvennt með því að hafa
viðkomu í leitarmannakofanum.
En frá honum til Þórsmerkurs-
skálans væri þá um 6 tíma gang-
ur. Þaðan má síðan fara til
Framh. á bls. 13 J