Morgunblaðið - 03.10.1954, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.10.1954, Qupperneq 8
8 fl<0KG(J N « L AOI0 Sunnudagur 3. október 1954 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Vinnustaðurinn í ísafold hefir verið mitt aðaSheimili Sfyfi samlai við Fríðu á bókbandinu í fiiefni af 50 ára sfarfsafmæii hennar Jeppar og skattar EINS og kunnugt er samþykkti ríkisstjórnin í samræmi við til- iögur nefndar beirrar, sem rann- sakaði hag togaraútgerðarinnar, að lagður skyldi hár aukaskattur á innflutning fólksbifreiða til iandsins. Skyldu tekjurnar af skattinum ganga til stuðnings togaraútgerðinni. Hinsvegar var ákveðið, að þessi nýi skattur skyidi ekki lagður á vöruflutningabifreiðar. Mun hafa verið litið svo á, að þar sem þessi tæki væru fyrst og fremst notuð í þágu atvinnulífsins til lands og sjávar þá bæri síður að hækka verð þeirra með nýjum skattaálögum. Nokkur dráttur varð á því að ákveðið væri, hvort hinn nýi skattur skyldi lagður á jeppabifreiðar. Kom til ágrein ings um bað innan ríkisstjórn- arinnar. Eins og skýrt hefur verið frá hér í blaðinu töldu þeir Ólafur Thors forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra að ekki væri sanngjarnt að lækka verð á jeppum til bænda verulega frá ísraelsverðinu á sama tíma, sem um verulega hækkun væri að ræða á fólks- bifreiðum, sem fólk í kaupstöð- um og sjávarþorpum keypti. Bentu þeir jafnframt á, að þeg- ar nýr skattur væri á lagður til stuðnings útflutningsframleiðslu þjóðarinnar þá væri eðlilegt að öll þjóðin greiddi hann. Ósann- gjarnt væri að láta t. d. efna- lítinn mann í kaupstað, sem þyrfti á bifreið að halda greiða hinn nýja skatt en láta efnaðan bónda í sveit, sem keypti jeppa- bifreið, sleppa við hann. Ingólfur Jónsson viðskipta- málaráðherra taldi hinsvegar að taka bæri fleiri atriði með í reikn inginn í þessu máli. Jepparnir væru bændunum meira en venju legar fólksbifreiðar væru kaup- staðafólki. Þeir væru fyrst og fremst tæki, sem notuð væru í þágu framleiðslunnar, til rækt- unar, heyskaparstarfa og sam- gangna í þágu búrekstursins. Þess vegna bæri að líta á inn- flutning þeirra svipuðum augum og á innflutning vörubifreið- anna, sem talið hafði verið eðli- legt, að hinn nýi skattur ýrði ekki lagður á. Það væri þvi sann- gjarnt og eðlilegt að sleppa jepp- unum við hinn nýja skatt. Um það þarf engin launung að rika, að innan Sjálfstæðisflokksins munu fuiltrúar sveitakjördæm- anna yfirleitt hafa aðhyllst sjón- armið viðskiptamálaráðherrans í þessu máli. Hinsvegar töldu þingmenn flokksins í kaupstaða- kjördæmunum óeðlilegt að láta ekki eitt yfir alla ganga, hvort sem þeir bjuggu í sveit eða við sjó, gagnvart hinum nýja skatti. Niðurstaðan hefur svo orðið sú, að tillögur viðskiptamála- ráðherrans um að jeppunum yrði sleppt við umræddan skatt, hafa orðið ofan á. Er, það enn ein sönnun þess, að það er satt og rétt, sem Jón á Reynistað sagði í útvarps- umræðum fyrir nokkrum ár- um, að þegar um er að ræða hagsmunamál sveitanna lætur Sjálfstæðisflokkurinn sveita- þingmenn sína marka stefn- una. ¥ Sjálfstæðisflokkurinn á sjö börn í sjó og sjö á landi. Hánn á fylgi meðal fólks úr öllum stétt um hins íslenzka þjóðfélags, í sveitum og við sjó. Þess vegna verður hann að freista þess að samræma hin andstæðu sjónar- mið, sem stundum koma fram meðal stéttanna innan flokksins. Samheldni flokksins og styrkur nú, er greinilegasta sönnun fyrir þvi að það hefur tekizt á liðnum árum. j Tíminn hefur haldið uppi rætn um árásum á Sjálfstæðismenn undanfarið í sambandi við jepp- 1 ana, innflutning þeirra og út- hlutun. Sá rógur mun engin á- i hrif hafa í sveitum landsins. — Bændur vita, að það voru Sjálf- stæðismenn, sem höfðu forgöngu um það á sínum tíma, að inn- flutningur þessara þörfu tækja var hafinn. Hafa sennilega engin tæki orðið eins vinsæl í sveitum landsins og einmitt jepparnir. — Þeir hafa létt störfin á miklum fjölda sveitaheimila og munu halda áfram að gera það. Sjálfstæðismenn munu halda áfram að beita sér fyrir bættri aðstöðu sveitafólksins1 í starfi bess og baráttu. Inn- J flutningur góðra tækja í þágu búrekstursins, ræktunar, hey- skapar og samgangna, er einn þátturinn í þeirri viðleitni. Slyðjið S.Í.6.S. IDAG er berklavarnadagurinn, dagur Sambands íslenzkra berklasjúklinga. Þennan dag sel- ur sámbandið merki sín og kveð- ur þjóðina til samstarfs og sam- taka um það merkilega starf, sem unnið er í Reykjalundi. Það eru engar ýkjur að Reykja lundur og vinnuheimili SÍBS sé ein merkilegasta og þjóðnýtasta stofnun í þessu landi. Þar hafa samtök þess fólks, sem orðið hefur fyrir barði berklaveikinn- ar einhverntíma á ævinni, byggt upp starfsemi, sem síðan hefur átt ríkan þátt í að hjálpa því til þess að komast til heilsu á ný. Jafnframt hefur þar verið hag- nýtt vinnuafl fólksins um leið og því voru fengin störf við sitt hæfi. ★ Berklaveikin er á undanhaldi á íslandi. Það er allri þjóðinni hið mesta fagnaðarefni. En sókn- in gegn henni verður að halda áfram. Þar má aldrei slaka á. Starf SÍBS er snar þáttur í þessari baráttu. Þess vegna ber alþjóð að styðja það og taka þátt í því. Við íslendingar tölum oft um að við séum fáir og lítils megn- ugir. En reynslan sýnir engu að síður, að þar sem þessi litla þjóð leggst á eitt og einbeitir kröftum sínum, þar getur hún náð undra- verðum árangri. ★ Reykjalundur er eitt dæmi þess, hverju góð forysta og i samhugur þjóðarinnar fær. áorkað. Við skulum halda áfram að treysta samtök okkar um hið, þjóðnýta og merkilega heil- brigðis- og mannúðarstarf, J sem SÍBS viimur. „OH, allt er nú þetta sami graut- ur í sömu skál, þegar 50 árunum og öllu er á botninn hvolft — þó að reyndar hafi ekki allt borið upp á sama daginn“ — segir hún Fríða á bökbandinu, en svo er hún jafnan kölluð og betur þekkt meðal Reykvíkinga þannig, held- ur en með sinu rétta nafni: Ein- fríður Guðjónsdóttir. Hún hefir alið allan sinn aldur í Rvík og bandinu, þegar ég byrjaði, nú erum við um 20. Þá var allt unnið í höndum, brotið og saumað, og vinnudagurinn 10 tímar — og oft miklu lengri. Til að byrja með vann ég í prentsmiðjunni, við að leggja í prentvélina, sem þá var knúin með steinolíumótor. Stund um átti hún það til að bila, þegar verst gegndi og þá varð að fá verkamenn til að snúa henni með handafli. Mikil bót var að því, er benzínmótorinn kom í staðinn fyrir gamla olíumótorinn. KUNNI VEL VIí) SIG í AUSTURSTF.ÆTI 8 — Er ekki mikill munur á vinnuskilyrðunum síðan þið flutt uð í þetta nýja og rúmgóða hús- næði? — Jú, víst er hér bjartara og skemmtilegra — víðara til veggja, en alltaf kunni ég nú samt vel við mig í holunni niðri frá í Austurstræti 8. Þar var oft skemmtilegt, þó að þröngt væri um okkur — og svo var maður þarna hreint í miðjunni á öllu, sem var að gerast í bænum, með Austurvöll á aðra hönd og AustT urstræti á hina — það var hægt um vik að kíkja út á lífið, svo Framh. á bls. 12. UU andi áhrijar: — — Ég hef alltaf kunnað hér prýðilega við mig----- síðan hún var 16 ára gömul hefir hún verið starfandi í ísaföldar- prentsmiðju — lengst af í bók- bandinu enda er hún fyrsta •— og eina íslenzka konan hingað til, sem hefir sveinsréttindi í þeirri grein. Á morgun eru sem sé 50 ár liðin, síðan hún hóf starf sitt í ísafold og áreiðanlegá hefir henni ekki leiðst það starf, eða það er að minnsta kosti ekki sjáanlegt, því að hún leikur enn við hvern sinn fingur, hvik og létt upp á fótinn sem tvítug væri. STUNDUM HFFIR ROKIÐ — Já, ísafold — vinnustaður- inn — hefir verið mitt annað — og aðalheimili, segir hún, er hún lítur yfir liðna tíð — og víst man ég tímana tvenna. Fjóra hefi ég haft húsbændurna, fyrst Björn Jónsson ráðherra, síðan Ólaf son hans, þá Herbert Sigmundsson og nú síðast hann Gunnar.----- Jú, þeir hafa allir verið prýði- legir, bara svona stundum — •— hefir rokið dálítið — og stundum rækilega, enda gildir það líka einu, því að lítið væri varið í það, að lífið væri ein eilifðar lognmolla. BETRA AÐ LIFA í DAG — Var nú Revkjavík ekki fullt eins skemmtileg í gamla daga og hún er nú? — Ekki tvil ég nú segja það, mér finnst. hún miklu betri og skemmtilegri eins og hún er nú og ég vildi ekki með nokkru móti skipta. Þetta var hálfgerð kuldakröm, sultur og ræfildóm- ur á manni í gamla daga, vatns- burður, .köld og léleg húsakynni — nei það er ekki sambærilegt, ég vildi nokkru heldur getað lif- að mína æsku núna, heldur en þá sem ég átti fyrir 50—60 árum. Það er líka auðséð á unga fólk- inu í dag, hvað því líður miklu betur en í þá daga, bæði frjáls- legra og glaðlyndara, betur íætt og betur klætt ÍSAFOLD FYRR OG NÚ — En hvað um ísafold, áður fyrr og nú? — Ekki er munurinn ógreini- legri þar. Við vorum fjögur í bók Góða vorið tekið út í reikning. JÁ, svona er þetta — nú erum við að borga fyrir góða vorið, maí og júní, sem við fengum í vor — það hefur svo greinilega verið tekið út í reikning! Ýmsa grunaði það og sögðu fyrir hart haust og langan vetur. Jú, þetta með harða haustið er að vísu komið fram, að minnsta kosti muna elztu menn ekki mörg dæmi þess, að hann hafi lagzt að með kulda og hretum svo snemma haustsins. Fréttir berast af margháttuð- um erfiðleikum bænda um allt land, vegna illveðranna: lang hrakin hey liggja undir snjósköfl unum, gangnamenn lenda í stór- V & hríðum á afréttinni og fá ekki athafnað sig við fjárleitirnar — hljóta vosbúð og verstu útreið. Vænleiki dilka til frálags reynist víða verulega miklu minni en venjulega og er því kennt um, að afréttarbeitin hafi sölnað miklu fyrr en vant er vegna þess hve ailur gróður var fljótur til i vor. Garðauppskera er miklum mun óverulegri en s.l. ár — og sums staðar iiggja kartöflur frosnar í jörðu. Hvernig myndi hita- veitan standa sig? JÁ, víst er þetta hálfgert hall- ærisástand — og verið þið viðbúin vetrinum, segja þeir, sem þykjast af vísdómi og lífs- reynslu geta eftir öllum sólar- merkjum dæmt, að hörkuvetur sé í nánd. Fyrsta spurningin, sem Reykvíkingar varpa fram er sú, hvort eða hvernig hitaveitan myndi standa sig, hvort pípurnar myndu þola 20 stiga frost dögum og vikum saman. Sumir hrista höfuðið í vonleysi: það væri á- reiðanlegt ekki — og hvað yrði þá um blessaða höfuðborgina og alla þá, sem í henni búa — hví- lík kuldakröm, sem biði þeirra. En hver er kominn til með að segja, að hitaveitan segði pass, þó svo færi nú, að hann hlypi í 20 stiga gadd og hver er kominn til með að segja, að sá gaddur komi nokkurn tíma? Hitt er ann- að mál, að það er engin furða, þótt glamri í tönnunum við til- hugsunina. Kirkja og kvikmyndir. KIRKJUGESTUR skrifar: „Oft er, og það ekki að á- stæðulausu, talað um hinar tjegu undirtektir, sem prestarnir fá í kirkjunum. Það er varla hægt að undrast þótt þeir missi smám saman kjark og áhuga frammi fyrir hinu dæmalausa tómlæti og deyfð sóknarbarna sinna. Iðulega er skuldinni allri skellt á prest- inn — að hann standi ekki í stöðu sinni sem skyldi, en sú ásökun á ekki nærri alltaf við rök að styðjast — sannleikurinn er 'sá, að messurnar eru einfald- lega hættar að ná til fólksins, það er svo margt, sem upp hefur komið þar á milli. Kvikmyndir í þjónustu kirkjunnar. EN hvað á þá kirkjan að gera til að geta beitt áhrifum sín- um meðal landslýðsins meir en nú er orðið á hinum síðari árum. Mér datt nokkuð í hug og ég hef taiað um það við ýmsa, sem finnst hugmyndin athyglisverð: hví skyldi kirkjan ekki taka kvikmyndirnar í sína þjónustu? Auðvitað hrökkva margir í kút er þeir heyra kvikmyndir og kirkju nefnt í sama orðinu — en hvers vegna? Þurfa kvikmyndir endilega að vera óguðlegar, í mótstöðu við allt, sem kristni til- heyrir? Nei, alls ekki — ég hygg að góðar kvikmyndir, kirkjulegs og kristilegs efnis, sem hefðu að flytja fagran og kristilegan boð- skap, myndu hafa holl og bæt- andi áhrif, að sama skapi sem hinar, sorp- og glæpamyndirnar, hafa skaðleg áhrif — ekki sízt á æskuna. í sambandi við messurnar. EF til vill myndi erfitt að afla siikra kvikmynda, sem ég hef minnzt hér á, það er vel Hklegt að framleiðsla þeirra í heimin- um hafi sokkið í allt moðruslið, en væri þetta samt ekki til at- hugunar? Ég segi ekki þar með að taka ætti upp bíó-sýningar í kirkjunum sjálfum en á kirkj- unnar vegum — jafnvel í sam- bandi við guðsþjónusturnar á sunnudögum. — Kirkjugestur“. Guðræknin er fólgin í góðum hugsunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.