Morgunblaðið - 12.10.1954, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.10.1954, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 12. okt. 1954 MORGVNBLAÐIÐ 7 Arni Einursson Múla- koti úttræður ARNI Einarsson, fyrrum bóndi í eystri bænum í Múlakoti í Fljótshlíð er áttræður í dag. Mér er bæði ljúft og skylt að minnast hans í fáum orðum. Kynni okkar Árna hófust fyrst vorið 1935, þegar það varð að ráði Einars E. Sæmunds'ens, skóg- arvarðar og hans, að komið var á fót ofurlítilli uppeldisstöð fyrir trjáplöntur í gömlum kálgarði undir berginu austan við bæinn í Múlakoti. Árna var áhugamál að bjarga hinum fjölmörgu reyniplöntum, sem árlega spruttu upp úr garði hans framan við bæinn, en Einar vildi fyrir hvern mun reyna að koma uppeldi trjá- plantna á rekspöl, en þá var eng- in gróðrarstöð á öllu Suðurlandi, nema ofurlítill vísir til slíks í Fossvogi. Árni lagði fram land endurgjaldslaust undir stöðina, og þegar stöðin var stækkuð fram í túnið hans síðar, var ekki horft í töðumissinn, þótt Þverá þrengdi að kostum jarðarinnar. Auk þess hófst hann handa um gróðursetningu á ýmsum trjáteg- undum í brekkunni umhverfis gamla kviabólið upp af gróður- stöðinni árið 1939 ásamt Einari E. Sæmundsen. Ég hafði að vísu oft heyrt minnst á Árna áður en kynni okkar hófust, sem f og ekki var að undra, því að hann var um ýmislegt á undan sínum tíma. Þegar A. F. Kofoed-Hansen, fyrrum skógræktarstjóri, beitti sér fyrir því að Þórsmörk yrði friðuð fyrir ágengni fjár um og eftir 1920, studdu þeir Björgvin Vigfússon, sýslumaður, og Árni í Múlakoti hann manna bezt. — Þórsmörk er eign Fljótshlíðar- hrepps, og þar hafði löngum vex- ið mikil beit og ýmsir höfðu bar fé á úíigagni. En svo var nú kom- ið um 1920, að gróðurlendið á Mörkinni var í stórri hættu, en mikill hluti hennar þegar eydd- ur.. Eins og gengur voru skoðanir manna skiptar um þörf og nauð- syn friðunar, enda áttu sumir hagsmuna að gæta. Þá fór Árni á hvern bæ í Hlíðinni og fékk alla Fljótshlíðarbændur til þess að láta landið af hendi til friðun- ar. Þetta mun hafa verið 1923, því að 1924 er hafizt handa um friðun Merkurinnar. Friðun Þórsmerkur er langtum merkara starf en flestir hyggja að lítt athuguðu máli. Án frið- unar og með áframhaldandi beit og landnotkun, eins og tíðkast hafði, væri nú allur gróður horf- inn úr Mörkinni og af Goðalandi. Þá mundi Þórsmörk ekki þykja yndislegi og fagri staður, sem hún er. Hún væri svipur hjá sjón, en nú mun hún sennilega af flest- um vera talinn fegursti staður landsins. Þrátt fyrir að friðunin hefur ekki ávallt verið eins góð og skildi, er landið sem óðast að gróa upp og það verður fegurra og betra með hverju árinu sem líður. Eiga því þessir þrír menn, sem höfðu forgöngu um friðun landsins, heiður og þökk skilið. Þeir hafa íorðað verðmætum frá glötun, sem aldrei hefði verið unnt að endurheimta. Ástæðan til þess að Árni lét sig Þórsmörk nokkru skipta er án-efa.sú, að hann hefur næm- ara auga og betri skilning á lifi og starfi náttúrunnar en flestir aðrir. Honum er í blóð borin afar næm athyglisgáfa, sem hann hef- ur þroskað bg þjálfað af langri lífareynslu. Árni Einarsson er fæddur í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, og ólst hann þar upp fram á full- orðinsár. Var hann bróðir Sæ- mundar bónda og hreppstjóra Einarssonar, sem bjó allan aldur sinn í StóruMörk en er nú ný- látinn. — Árni kvæntist Þórunni Olafsdóttur í Múlakoti, systur Sigurþórs Ólafssonar, sem um fjölda ára hefur verið oddviti þeirra Fljótshlíðinga. Þórunn er látin fyrir allmörgum árum. — Árni var síðari maður hennar. Þeim varð ekki barna auðið, en stjúpbörnum sínum gekk Árni í föðurstað. Jörðina hefur hann nú látið í hendur Guðmundi stjúp- syni sinum, og hjá honum býr hann með fáeinar skepnur. Árni kom upp fögrum trjá- garði á bæ sínum eins og sam- býlisfólk hans, þau Túbal og Guðbjörg í vestri bænum, og enn er hann að koma upp garði aust- an við gröðrarstöðina í Múlakoti. Reynitrén í garði Árna munu nú þegar eiga afkvæmi svo tugum þúsunda skiptir víðsvegar um land, og undan handarjaðri Árna hefur og komið mesti sægur ann- arra trjáa. Gömul kínversk sögn hermir að sá, sem gróðursetji tré, muni lengi lifa, og að andi hans taki sér bólfestu í trjánum, þar sem hann vakni á ný í hvert sinn þegar trén laufgast í dýrð vorsins. Ef þetta er rétt hermt mun Árni ekki þurfa að kviða framtíðinni þótt elli fari nú brátt að sækja hann heim. Óska ég Árna vini mínum Ein- arssyni langra og góðra lii'daga og býst ég við að margir munu taka undir þá ósk með mér, því að Árni á marga kúnningja og vini, en enga óvini, því að hann er svo vandaður til orðs og æðis að af ber. Ilákon Bjarnason. — Mæ ði veikin Framh. af bls. 1 legu tali hafa menn vanizt að nefna mismunandi tegundir eða afbrigði þessarar veiki með sama nafni þó að líkindum sé hér um tvennskonar sjúkdóma að ræða. — Borgfirzka veikin, sem gerði vart við sig árið 1934 og gerði mestan usia í fé bænda. En einkenni hennar er mikið vatns- rennsli úr vitum hinna sýktu Aiþingi Framh. af hls. 1 Kosning kjörbréfanefndar, skipuð 5 mönnum fór og fram í S.þ. Þar sem aðeins var stung- ið upp á fimm mönnum, voru þeir sjálfkjörnir: Lárus Jóhann- esson, Einar Ingimundarson, Hermann Jónasson, Gísli Guð- mundsson og Sigurður Guðnason. Á þessum fundi var útbýtt nokkrum nýjum stjórnarfrum • vörpum. Meðal þeirra má nefna frumvörp um breytingu á bif- reiðalögum, þar sem reglur eru settar um reiðhjól með hjálpar- vél, um breytingar á hegningar- lögum, sem fjallar um heimild til að skilyrðsbinda frestun ákæru, um breytingu á prentfrelsistil- skipun, sem er um nafngreiningu kinda. En hin þurra mæðiveiki er menn kenna aðallega við Þing eyjarsýslur hagar sér með allt öðrum hætti. Vota mæðin drepur kindurnar venjulega á nokkrum vikum, en þær geta lifað með þurramæðina í 3—4 ár, Enda kom það greinilega í ljós í upp- hafi að þurramæðin gerði greini- lega vart við sig á árunum 1939— 1940, en votamæðin var farin að drepa féð nokkrum árum áður. Nú er komið nýtt upp á ten- inginn er leiðir greinilega í ljós, hve mikillar varúðar og aðgæzlu þarf í mæðiveikivörnunum. — Lungu úr kind hafa verið send í Keldnastöðina frá Hlíð í Hjaltadal. Við rannsókn hefur það komið í ljós, að kind sú hefur haft mæðiveiki í nokkur ár. Kom sú kind í Hjaltadal vestan af Ströndum úr hólfinu umhverfis Hólmavík. Telja læknar líklegt, að hún hafi verið flutt mæðiveik í Hjaltadalinn þar vestan að, en fé af Ströndum var kevpt í Hjaltadal árið 1950. eftir að grun- ur var kominn upp um mæði- veiki í því fjárskiptahólfi. í samtalinu við dr. Björn, Sig- urðsson lét hann í Ijós þá skoðun sína, að það væri einstakt happ, ef hægt væri að útrýma svo bráð- smitandi sjúkdómi sem mæði- veikin er, með einu átaki í fjár á útgefendum sakamálatímarita, um afnám veitingaskatts, um nýya skiptum. Ekki sízt vegna þess að ríkisborgara, um nýjan kennaru vitaÍ5 er hve lítið ber á kindum við stýrimannaskólann, nýjan sem ganga árum saman með hina prófessor í læknisfræði og fium- þurru tegund mæðiveikinnar. varp að lagabálki um natturu- j Komi; segir hann þurramæði Hæsíu viimingar í 10. flokti Happ- drætiis Háskólans í DAG verða aðeins birtir hæstu vinningarnir í 10. flokki. Happ- drættis Háskólans, 1000 kr. vinn- ingar og þar yfir. 50 þús. kr. - 5155 10 þús. kr. * 14127 * 5000 kr. 26873 2000 kr. 4397 4719 5303 6137 7908 21440 29498 30394 32705 33261 34442 1000 kr. 984 1080 2645 3267 5474 8733 8997 9006 9418 12950 13260 13869 16130 18190 18531 19771 21134 21911 288411 27037 29203 29278 30771 33564 34944 Aukavinmingar, 2000 kr. 5154 5156 ipnar vernd. Þá hafa og verið lögð fram frumvörp um framlengingu á ýmsum heimildum ríkisstjórnar innar og leitað staðfestingar á tvennum bráðabirgðalögum, um yfirstjórn varnarmálanna og um aðstoð við togaraútgerðina. Magnús Símonarson á Stóru-Fellsöxl 60 ára MAGNÚS Símoarson,- bóndi á Stóru-Fellsöxl í Skilmanna- hreppi, er sextugur í dag (12. okt.). Hann er Borgfirðingur að ætt, fæddur á Iðunnarstöðum í Lundarreyk j adal. Á léttasta skeiði vildi Magnús sjá sig um í heiminum og sigldi í slóð feðra sinna — til Noregs. Þar vann hann á búgörðum og lærði margt nytsamlegt. — Um skeið var hann á Brjánslæk á Barðaströnd hjá séra Bjarna Sím- onarsyni, bróður sinum, þeim öðlingsmanni, en hefur búið búi sinu á Stóru-Fellsöxl s.l. 20 ár. Það er ekki ætlunin að segja sögu Magnúsar á Stóru-Fellsöxl að þessu sinni. Til þess er hann of ungur, eins og hann líka ber með sér, flestum kvikari og snar- ari, og leynir sér ekki, að þar fer íþróttamaður vaxinn upp úr jarð- vegi ungmennafélaganna gömlu, sem báru hugsjónaeldinn í bak og fyrir á sinni tíð. Magnús á Stóru-Fellsöxl er mikill vinur og aðdáandi íslenzkr ar moldar og gróðurs, og hefur hann ekki legið á liði sínu að bæta og prýða jörð sína. Getur Magnús litið yfir vítt land og fagurt, sem er ávöxtur framtaks hans og iðju. Vinmargur er hann og vinsæll af sveitungum sínum, enda drenglundaður og félagslyndur, með afbrigðum hjálpíús og ör á að greiða götu annara. Slíkir menn eru ávallt sveitarprýði — Magnús er menntaður maður í þess orðs beztu merkingu, í senn þjóðlegur og þjóðhollur, drengi- legur á alla lund, réttnefndúr kjarnviður, sem íslenzkt þjóðlíf má aldrei án vera, ef dáð og drengskapur á að búa í landinu. Magnús Símonarson er kvænt- ur góðri konu, Þórhildi Sigurðar- dóttur, og eiga þau fjögur börn. Margar hlýjar óskir berast þeim upp í fé þar sem fjárskipti hafa farið fram, er næsta líklegt að ekki ýerði vart vcikinnar fyrr en hún hefur verið svo lengi í kind- unum, án þess að á beri, að þær geti verið farnar að smita út frá sér svo um munar, áður en nokk- uð verður að gert. Þess vegna eru líkur til að t.d. smitaðrr kindur í Valþúfustofninum hafi leynzt érum saman. Sama máli er að gegna mcð féð frá Hlíð í Hjaltadal. Hins vegar er það eðlilegt og skiljanlegt að bændur er hafa árum saman haft tækifæri til þess að ala upp hraustan fjár- stofn séu farnir að telja sér trú hjónum i dag og heimili þeirra. um, að sauðfjárstofninn. sé laus Magnús. Megi eldurinn, sem við þenrian ófögnuð. Þeir eigi enn brennur hið innra og við fullt í fangi með þegar frá líður merkjum í göfugmannlegum svip ' að gera sér ljóst hve skæð þessi þínum og finnum snerta okkur 1 pest er í sauðfénu, og vilji því i traustu handtaki þínu — megi slaka á kröfunum til varkárni og hann loga sem lengst. Þá ósk á aðgæzlu við mæðiveikivarnir. En ég bezta fyrir sveit þina og sveit- 1 eftirgjöf og linkind í þessu efni unga, hérað og sjálfan mig. Þér j virðist hin varhugaverðasta eins og þinum óska ég alls hins bezta og sjúkdómstilfellin í Dölum vestur og i Hjaltadal bera vott J. M. G. um. í bráð og lengd. Skipstjórinn á Trölla- fossi ekki siglt í því líku fárvihri í október UM MIÐNÆTTI aðfaranótt sunnudagsins kom Tröllafoss á ytri höfnina, allmikið á eftir áætlun, frá New York. — Hafði skipið lent í fárviðrinu mikla i lok fyrri viku, en sem kunnugt er urðu viða skiptapar í því mannskaða-veðri. MILLI GRÆNLANDS OG ÍSLANBS Ef veður hefði verið skaplegt, átti Tröllafoss að vera hér á föstudaginn. Ferðin gekk vel frá New York og austur yfir hafið, unz komið var á móts við Græn- land. — Þar brast fárviðrið á, er hélzt svo alla leiðina. — Var veð- urhæðin 12—13 vindstig og stór- sjór, svo sjólag var hið háska- legasta, sjórinn var svo óreglu- legur, eins og við sjómennirnir köllum það, sagði Egill Þorgils- son skipstjóri á Tröllafossi, í sam- tali við Mbl. í gær. EgiJl skipstjóri gat þess, að hann minntist þess ekki í sinni sjómannatíð, að hafa hreppt slíkt fárviðri á þessum tíma árs, í þau 40 ár, sem hann hefur vcrið í siglingum. LÉTU REKA ÞRISVAR Þrívegis urðum við að láta þetta stóra skip reka og varðist það furðanlega vel hinum ægi- legu sjóum. — í eitt skiptið er við urðum að leggjast, vorurn við á lensi, sagði skipstjórinn. Þrátt fyrir erfiða ferð, í mann- skaðaveðri þessu, varð ekkert sérstakt að hjá Tröllafossi og lagðist hann við Ægisgarðinn fullur af vörum á sunnudags- morguninn. FYRSTU reglulegu tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar á þessu hausti fóru fram í Austur- bæjarbíói þriðjudaginn er var, undir stjórn Olavs Kiellands. — Efnisskráin var ágætlega sam- stillt. D-dúr sinfónia Haydns (nr. 86), Coriolart-forleikur Beeíhov- ens, og áttunda sinfónía hans mynduðu samfellda stígandi frá hinni heiðu Jífsspeki öðlingsins Jóseps Haydns, um svið storms og stríða Coriolan-harmleiksins fram til gleðinnar, — hinnar há- leitustu gleði eins og hún birtist í áttundu sinfóníu Beethovens en hún var flutt af slíku íjöri, að lófataki áheyrenda Jinnti ekki fvrr en löngu cftir að verkinu lauk. Sinfóníurnar tvær hljómuðu nú í fyrsta sinn í tónleikasal hér- lendis, og mætti raunar segja hið sama um Coriolan-forleikinn, þótt í óeiginlegri merkingu sé, því að þegar Olav Kielland held- ur á taktsprotanum fá tónverkin jafnan nýjan hreim, jafnvel þau, sem við þóttumst áður þaul- þekkja. Hann á þá innri glóð, sem lífgar og vermir; veldur hugarróti með hlustendum og veitir þeim nýja sýn og nýjan skilning. Við vitum nú, að það er rangt, sem hermt er, að minnst sé í áttundu sinfóníuna spunnið þeirra systranna níu, þótt hún sé þeirra bjartieiutst; í henni birtist sú himinsýn, sem Beethoven hlaut að sigurlauhum eftir sína þungu þrautagöngu um lífsins veg og níunda og síðasta sinfón- ían lýsir einnig, að vísu með öðr- um og dramatískari hætti. Um Beethoven má með sanni segja að hann var „guðlegt skáid“, en það er aðeins á fárra i útvaldra færi að koma okkur hiustendum í fullan skilning um það. En því meiri þakkir eiga. þer skilið, sem þess eru megnug- ir. — Hljómsveitin getur hrósað happi yfir samvinnunni við Olav Kielland. Vegur hennar vex við hvert átak, og þáttur hennar í lífi okkar hinna vérður æ ríkari. N.jóti hún heil handa! Vikar. VATIKANIÐ. — Utvarp Vatí- kansins hefur tekið að útvarpa á sænsku, dönsku og norsku á hverjum miðvikudegi. Útvarpið bendir á, að ástæðan sé aukinn fiöldi babólskt trúaðra manna á Norðurlöndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.