Morgunblaðið - 13.10.1954, Side 2

Morgunblaðið - 13.10.1954, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. okt. 1954 jfkesti réð off við nefndarkosningar á á Sþingi "j GÆR fóru fram á Alþingi nefndakosningar bæði í Sameinuðu Á þingi og í deildum. Alþýðuflokksmenn, kommúnistar og þjóð- varnarmenn höfðu nokkuð samstarf um nefndarkosningar í Neðri ■deild, en hinsvegar ekki í Efri deild. Varð hlutkesti að ráða kosn- ingum í nokkrar nefndir. SAMEINAÐ ÞING í fjárveitinganefnd, sem í eiga sæti 9, var stungið upp á eftir- •töldum: Pétur Ottesen, Jónas Rafnar, Magnús Jónsson og Jón Kjartansson frá Sjálfstæðis- flokknum, Helgi Jónasson, Hall- dór Ásgrimsson og Karl Kristj- ánsson frá Framsókn, Hannibal Valdimarsson frá Alþýðuflokkn- um og Lúðvík Jósefsson frá kommúnistum. Þessir urðu sjálf- kjörnir þar sem ekki var stung- ið upp á fleirum en sæti skyldu «iga í nefndinni. í utanríkismálanefnd, sem er 7 manna nefnd, voru þessir með sama hætti sjálfkjörnir: Jóhann I*. Jósefsson, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson frá Sjálf- síæðisflokknum, Hermann Jónas- son og Jörundur Brynjólfsson frá IFramsókn, Gylfi Þ. Gíslason frá Alþýðuflokknum og Finnbogi R. Valdimarsson kommúnisti. Jafnmargir varamenn í utan- ríkismálanefnd voru og sjálf- kjörnir: Björn Ólafsson, Gunnar •Thoroddsen, Jóhann Hafstein, Eysteinn Jónsson, Páll Zóphonías son, Haraldur Guðmundsson og Einar Olgeirsson. í Allsherjarnefnd urðu sjálf- kjörnir: Jóhann Þ. Jósefsson, Jón Sigurðsson og Sigurður Ágústs- son frá Sjálfstæðisflokknum, Bernharð Stefánsson og Eiríkur I'orsteinsson frá Framsókn, EmVJ Jónsson frá Alþýðuflokknum og Karl Guðjónsson fyrir kommún- ista. STTÓÐ í STAPPI MILLI ANDSTÖÐUFLOKKANNA Þegar lokið var nefndarkosn- ingum í Sameinuðu þingi, hófust þingfundir í deildum og skyldi kjósa átti nefndir. Varð það Tjr að Alþýðuflokksmenn, iommúnistar og þjóðvarnarmerin unnu saman í Neðri déild, en í Efri deild varð hlutkesti að ráða mifíi Alþýðuflokksins og komm- únista, utan í þremur nefndum þar sem einn Framsóknarmaður greiddi Alþýðuflokknum at kvæði. Tveir þingmenn Sjálf stæðisflokksins, báðir í Efri deild, voru fjarstaddir, Jóham>Þ. Jósefsson, sem er erlendis og Lárus Jóhannesson, sem var veikur. í NEÐRI DEILD í fjárhagsnefnd urðu sjálf- kjörnir: Jón Pálmason, Jóhann Hafstein, Skúli Guðmundsson, Oylfi Þ. Gíslason og Karl Guð- jónsson. f samgöngumálanefnd náðu kosningu: Sigurður Bjarnason og Magnús Jónsson með 13 atkv. Ásgeir Bjarnason með 10 atkv., en hlutkesti varð milli Eiríks IÞorsteinssonar, Emils Jónssonar «g Karls Guðjónssonar, sem voru með' 5 atkv., Eiríkur og Emil lcomust upp í landbúnaðarnefnd réði einnig lilutkesti. Þar náðu kosningu Jón Sigurðsson og Jón Pálmason frá Sjálfstæðislistanum með 14 atkv., Ásgeir Bjarnason frá Framsókn ldaut 10 atkv. og Sigurður Ouðnason 6 (mun Þjóðvörn hafa fitutt hann) en hlutkesti varð itiilli Hannibals Valdimarssonar og Gísía Guðmundssonar, báðir með 5 atkv. og vann Hannibal. í sjávarutvegsnefnd urðu sjálf- körnir: Pétur Ottesen og Sigurð- lir Ágústsson, Gísli Guðmunds- son og Eiríkur Þorsteinsson og Lúðvík Jósefsson, sem andstöðu- tflokkarnir studdu. f iðnaðarmálanefnd urðu einn- ið sjálfkjörnir: Gunnar Thorodd- sen og Einar Ingimundarson, Skúli Guðmundsson og Eggert Horsteinsson. Þar var enginn konunúnisti í framboði en þeir stilltu fram Bergi Sigurbjörns- syni. í heilbrigðis- og félagsmála- nefnd voru sjálfkjörnir: Jóhann Hafstein og Kjartan J. Jóhanns- son, Helgi Jónasson og Páll Þor- steinsson og Hannibal Valdi- marsson. í menntamálanefnd: Gunnar Thoroddsen og Kjartan J. Jó- hannsson, Páll Þorsteinsson og Halldór Ásgrímsson og kommún- istinn Karl Guðjónsson. í allsherjarnefnd: Björn Ólafs- son og Einar Ingimundarson, Jörundur Brynjólfsson og Ásgeir Bjarnason og kommúnistinn Gunnar Jóhannsson. í EFRI DEILD í Efri deild eiga bæði Alþýðu- flokkurinn og kommúnistar 2 þingfulltrúa og varð því hlut- kesti jafnan að ráða milli þeirra, nema í þremur nefndum, þar sem Framsókn ýtti undir kratana. Kosningar til fjárhagsnefndar fóru svo að kosningu hlutu: Gísli Jónsson og Lárus Jóhannesson, Bernharð Stefánsson og Karl Kristjánsson. Haraldur Guð- mundsson vann hlutkesti móti Brynjólfi Bjarnasyni. í samgöngumálanefnd: Sig- urður Ó. Ólafsson, Jón Kjartans- son, Vilhjálmur Hjálmarsson, Andrés Eyjólfsson. Brynjólfur Bjarnason vann hlutkesti móti Haraldi Guðmundssyni. í landbúnaðarnefnd: Jón Kjartansson og Sigurður Ó. Ólafsson, Páll Zophoníasson og Andrés Eyjólfsson. Finnbogi Rútur Valdimarsson vann hlut- kesti af Guðmundi í. Guðmunds- syni. í sjávarútvegsnefnd: Jóhann Þ. Jósefsson og Ingólfur Flygenring, Vilhjálmur Hjálmarsson, Bern- harð Stefánsson og Framsókn ýtti Guðm. í. Guðmundssyni upp fyrir Brynjólf Bjarnason. í iðnaðarnefnd: Gísli Jónsson og Jóhann Þ. Jósefsson, Her- mann Jónasson, Páll Zóphonías- son og Framsókn ýtti Guðm. í. u.pp fyrir Brynjólf. í heilbrigðis- og félagsmála- nefnd: Gísli Jónsson og Ingólfur Flygenring, Vilhjálmur Hjálmars son, Karl Kristjánsson og Fram- sókn ýtti Haraldi Guðmundssyni upp fyrir Finnboga Rút. í menntamálanefnd: Ingólfur Flygenring og Sigurður Ó. Ólafs- son. Bernharð Stefánsson, Andrés Eyjólfsson og Haraldur Guð- mundsson vann hlutkesti móti Finnboga Rúti. í allsherjarnefnd: Lárus Jó- hannesson og Sigurður Ó. Ólafs- son, Páll Zóphoníasson og Her- mann Jónasson og Guðm. í. Guð- mundsson vann hlutkesti móti Finnboga R. Valdimarssyni. í dag hefjast svo umræður á þingi. Verða þar tekin til 1 umr. m. a. mörg hinna merku stjórn- arfrumvarpa, sem skýrt hefur verið frá hér í blaðinu. Söngskemmtun Hönnu Bjarnadétfur í Gamla bíói UNG söngkona, frú Hanna Bjarnadóttir, efndi til söng- skemmtunar í Gl. bíói s.l. fimmtu dagskvöld með aðstoð Fritz Weisshappels. Frúin hefur dval- ið í Bandaríkjunum og stundað þar söngnám að undanförnu. ■— Hún hefur háa og blæfagra só- pranrödd og beitir henni smekk- lega, enda virðist frúin góðum hæfileikum gædd til að túlka lýr- iskan skáldskap í tónum. Þannig var túlkun hennar á verkefnun- um svo og öll framkoma hennar á söngpallinum einkar geðþekk, og aðlaðandi. Frú Hanna söng lög eftir Pergo lesi, Donaudy, Sarti, Schumann og Reger; Einnig fjögur íslenzk lög eftir Kaldalóns, Sigfús Ein- arsson og Eyþór Stefánsson; þá lög eftir Harriet Ware og Beach og loks aríur eftir Puccini og Verdi. Frú Hönnu skortir enn innri þrótt til að móta aríurnar, en þeim mun be.tur lét henni með ferð lýrisku sönglaganna, sem fyrr segir, og nutu þau sín mjög vel í meðferð hennar. Söng frúarinnar var mjög vel tekið og bárust henni kynstrin öll af blómum. —P. í. — Isl náttúruvernd ö!i IRU UM ÞESSAR mundir er stúkan Einingin að hefja vetrarstarfsemi sína. Sú nýbreytni verður nú upp tekin í starfsemi hennar, að stúk- an verður með skemmtikvöld í Góðtemplarahúsinu annan hvern miðvikudag. Þar verður spiluð félagsvist og sýndir verða leik- þættir, sungnar gamanvísur, kvik mvnd, getraunir, píanóleikur, spurningaþættir og dægurlaga- söngur, þetta tvö til þrjú atriði á kvöldi. Fyrsta kvöldið af þessu tagi verður í Gt-húsinu í í kvöld kl. 20,30. Spiluð verður félagsvist og síðan verður sýndur nýr leik- þáttur og gamanvísnasöngvari mun skemmta. Töfl og bridge- spil rnunu iiggja frammi í saln- um uppi á lofti. Ráðgert er að kvöldinu ljúki fyrir miðnætti. Öllum, jafnt innan stúku sem utan, er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis. Verðlaun verða veitt í félagsvistinni. Bílar skemmast af cldi Byggingu íiskiðju- versins á Seyðisfirði SEYÐISFTRÐI, 12. okt.: — Unnið er nú stöðugt að byggingu fisk- iðjuversins hér. Þessa dagana er verið að slá upp fvrir viðbótar- byggingunni, og miðar verkinu vel áfram. Veður er ágætt, þó nokkuð kalt, en þurrt og gott að athafna sig við útivinnu. Framh. af bls. 1 ræsta mýri í sumum héruðum, svo að seinni tíma menn geti vit- að, hvernig gróðurfari og öðru ásigkomulagi mýranna var hátt- að þar fyrir framræsingarnar. Bílvegir og brýr, jeppar og flug- ! vélar hafa opnað öllum lands- I mönnum greiðan aðgang að stór- ' um landsvæðum, sem áður voru 1 nærri ósnortin. Meiri hluti lands- ! manna býr nú í bæjum og kaup- ! túnum, og án alls samanburðar ' milli bæjar- og sveitamenningar | er þess ekki að dyljast, að viðhorf 1 bæjarbúa til náttúrunnar er oft annað en sveitafólks og náttúr- unni minna í hag. HVERNIG GRÆNAVATN VAR EYÐILAGT Þá eru nokkur dæmi nefnd til að sýna, hve mikil þörf er fyrir náttúruvernd. Suður í Krýsuvík er lítið stöðu- vatn, — Grænavatn. Dregur það nafn af sérkennilegum grænum lit vatnsins, er stafar af brenni- steinssamböndum. Vatn þetta er myndað við eldgos, sem orðið hefur með mjög sérstæðum hætti. Við gos þeyttust t. d. upp hraun- kúlur úr gabbró. En bergtegund- in gabbró hefur ekki fundizt ann- arsstaðar á SVlandi. Þetta litla vatn er vafalaust meðal merkustu náttúrufyrirbrigða í sinni röð. Það er og í sérkennilegu um- hverfi, við þjóðveg og í grennd við höfuðborgina, svo að ef er- lendir jarðfræðingar gista landið, þá þykir sjálfsagt að aka með þeim að vatninu og sýna þeim það. Fjöldi annarra ferðamanna innlendra og erlendra -fer um þennan sama veg, og auðvelt er að sýna nemendum í Reykiavík þessar merkilegu náttúrunitnjar. En á einu ári, 1949, var þessu merka náttúrufyrir- brigði spillt svo að jarðfræð- ingar munu blyggðast sín fyrir að sýna það. Fjós og tveir vot- heysturnar voru reistir á bakka Grænavatns. í sam- bandi við þær framkvæ'mdir var farið um stórt svæði með jarðýtum, alveg fram á bakka vatnsins. Með þessu umróti og hinum háu votheysturnum hef ur svip vatnsins verið ger- breytt. Ekki er annað sýnilegt en hægt hefði verið að velja mannvirkjum þessum annan stað en bakka Grænavatns, enda er landrými mikið á þess- um slóðum, eins og alkunna er. Og þó þessi staður hefði þótt stórum álitlegastur þeirra staða, er til greina komu, er mönnum torskilið, hver nauð- ur rak til að láta jarðýtu róta jarðveginum alveg fram á bakka vatnsins. Nú má bæta því við þessa lýs- ingu, að engu er líkara en nota eigi vatnið sem ruslakistu, þar sem ýmisskonar drasli hefur ver- ið hent niður yfir suðurbakka vatnsins svo að blasir við veg- farendum. Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ kviknaði í tveim bílum, sem tveir menn voru að vinna við, í skúr heima hjá sér. Þetta gerðist vest-1 ur á Marargötu 2. Annar bíllinn var jeppi ,en hinn allgóður fólks- 1 bíll. Kviknaði í benzíni, sem var í íláti, er Ijóspera í vinnuljósi sprakk. Varð mikið eldhaf í I skúrnum og var slökkviliðið kall- 1 að til hjálpar. Báðir bílarnir | skemmdust talsvert og einnig brann skúrinn nokkuð að innan.1 Mennina sakaði ekki. > 20. starfsár Húsmæðra- félags Reykjavíkur hafin Fyrsla mánaðarmafreiðslunámskeiðið hefsf á mánudag HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavíkur hefur nú hafið 20. starfsár sitt. Hefur félagið haft eitt saumanámskeið á haustinu og er annað um það bil að hefjast. — Næstkomandi mánudag hefst fyrsta matreiðslunámskeið félagsins í viðkunnalegum húsakynnum þess í Borgartúni 7. — Ráðinn hefur verið nýr matreiðslukennari, Guðrún Hilmarsdóttir. MIKIL ADSÓKN Geysimikil aðsókn er nú að öllum námskeiðum félagsins. .— Saumanámskeiðin, en á hverju eru 18—20 konur, eru annað hvert kvöld. Eru þau sérlega vin- sæl meðal húsmæðra. þær geta fengið tækifæri til að sauma klæðnaði á börn sín fyrir jól t.d. Framh. á bls. 8 Allar horfur eru á að spjöllúmi hefði orðið afstýrt, ef notið héfði löggjafar um náttúruvernd, þeg. ar til þessara mannvirkja kom. NÁTTÚRUSPJÖLL OG SLÆM UMGENGNI Önnur dæmi, sem nefnd eru í greinargerð eru Rauðhólar, Grá- brók í Norðurárdal og Helgafell í Vestmannaeyjum. Yfirleitt er óþarflega mikið um náttúruspjöll og slæma umgengni í sambandi við mörg mannvirki hér, einkum eftir að jarðýtur og önnur stórvirk vinnutæki komu til sögunnar. Frágangur á mörg- um vegarköflum þar sem jarð- ýtur hafa verið notaðar er mjög vítaverður. Enn eru nefnd dæmi um náttúruspjöll: Hjá Brjánslæk á Barðaströnd eru einhverjac hinar fegurstu jurtaleifar frá tertier-tímanum. Sérhver ferðamaður, sem þangað kem- ur getur átölulaust rótað i þessum leifum og tekið með sér leirflögur, sem að jafnaði molna niður heima hjá honum5 engum til gamans né gagns. SP.TÖLL Á SURTSHELLI Ferðalangar gera sér gjarna að stundargamni að brjóta nið ur og hafa á brott með sér dropsteinsdröngla úr Surts- helli, sem eru aðalprýði hellis- ins og er hegar búið að stór- skemma hann og aðra hella landsins með slíkum aðförum. FRIÐUNARÁKVÆÐIN í frumvarpinu er gert ráð fyrip að heimilt sé að friðlýsa: a) sérstæðar náttúrumyndanir svo sem fossa, gígi, hella, dranga, fundarstaði steingervinga og sjaldgæfra steintegunda, b) jurtir eða dýr, c) landsvæði, sem mikilvægt er að varðveita sakir sérstæðs gróð- urfars eða dýralífs, d) landsvæði, sem sérstæð erU um landslag, gróðurfar eða dýra- líf, í því skyni að varðveita þart með náttúrufari sínu. Þá er gert ráð fyrir því að nátt- úruverndarnefndir geti tekið J taumana, þegar hætta er á a3 mannvirkjagerð geti spillt sér- kennilegu landslagi eða merkurrt náttúruminúum. Einnig að þær geti gripið í taumana ef ekki ep snyrtilega frá gengið. ! BANN VIB AÐ FLEYGJA RUSLI Á VÍDAVANGI Ákvæði er í frumvarpinu umí að menn megi ekki- kasta rusli á víðavangi, eða kringum þjóðveg- ina, eins og sumsstaðar sést og eru lögð refsiviðurlög við, ef út af þessu er brugðið. r BURT MEÐ AUGLÝSINGA- ' SPJÖLD Þá er þar einnig tímablær tillaga um bann við auglýs- ingaspjöldum, ekki aðeins við þjóðvegi, heldur hvarvetna útl í sveitum landsins. Einu und- antekningarnar eru auglýsing- ar um atvinnurekstur eða þjóil ustu á eign þar sem slík starf- semi eða þjónusta fer fram. r ÚTIVERA OG f BERJATÍNSLA Einnig er gerð tillaga um heimild gangandi fólks til að fara um óræktuð lönd manna utan þéttbýlis, bæði í skemmt! ferðum og til berjatínslu. Þá er og gert ráð fyrir að leyfi verði gefin til berjatínslu gegn ákveðnu gjaldi og að eftirlii sé haft með því að berjaleyfi séu ekki seld of dýrt. ÞJÓÐGARÐAR ) Þá er sérstakt ákvæði um það að heimilt sé að friða landsvæði og gera að þjóðgörðum eða al- menningssvæðum. Ákvæði eru um skipulagsmái náttúruverndarmála og að lokuni refsiákvæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.