Morgunblaðið - 13.10.1954, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.10.1954, Qupperneq 14
' u MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 13. okt. 1954 ] -■ N I C O L E Skaldsaga eftir Katherine Gasin i Framhaldssagan 65 .— alls þess, sem þú sjálf óskar þér“. Hann brosti, sneri sér hvat- lega við. Dyrnar lokuðust á eftir honum. Nicole sat grafkyrr. Hann var ‘ farinn .... Lloyd, hann, sem hún þráði svo mjög að kæmi aftur, hann, sem hún hafði kallað á í hljóði. Hann var farinn. Hún hafði vísað honum á dyr. Hún hugsaði hratt — stökk á fætur og ekkert heyrðist þó hún á inni- skónum þyti niður teppalagða stigana. Hún heyrði að hann var að fara út um útidyrnar. Adams sást hvergi. „Lloyd!“ kallaði hún. „Lloyd!“ Hann sneri við og gekk aftur að stiganum. Hún greip í stiga- riðið; kverkar hennar voru þurr- ar. Hann kom upp stigann og sagði: „Hvað viltu?“ „Ég vil fara með þér“, sagði hún lágri en ákveðinni röddu. Hann horfði fast á hana; hún var föl og augu hennar stór og hiðjandi. „Farðu þá og klæddu þig. Ég skal bíða“. Nicole kinkaði kolii og þau gengu saman upp stigá^p. Hún vísaði honum aftur inn í vinnu- herbergið. „Ég skal ekki verða nema tíu xnínútur“, sagði hún og hljóp að herbergisdyrum sínum. Ellen varð höggdofa af undr- un. „Það er óhugsandi, úngfrú Nicole, það er það sem það er. Og hvað skyldi írænka yðar segja?“ „Ó, Ellen, tefðu ekki“, sagði Nicole. „Ég ætla aðeins að borða rneð honum hádegisverð". „Aoeins!“ hrópaði Ellen um leið og hún bisaði við að loka renniiás. „En hvað um Lanford greifa? Hann býst éinnig við að borða með yður“. „Honum er alveg sama um það, þó hann borði heima einu sinni“. „Hvað á ég að segja honum, þegar hann kemur, ungfrú Nic- ole?“ „Að ég hafi farið út með dr. Eenton. Hann kemst að því nógu snemma". „Og lady Gowing? Á ég að segja henni það sama?“ Nicole kastaði morgunskónum af fótum sér. „Þegar þú segir Iris frænku frá því þá skaltu krossleggja fingurna. Það getur verið að ég muni iðrast gerða minna — en það er þess virði. Það er aðeins í nokkrar klukku- stundir. Það getur ekki skipt svo rniklu máli“. „Ég veit ekki, ungfrú Nicole. Ég held að það sé samt ekki rétt. Dr. Fenton.... ja.... það sem ég á við er það, að ég gæti ekki ímyndað mér að nokkur annar rnaður, sem þér þekkið, gæti einu sinni stungið upp á svo vit- leysu“. „Þeir hinir myndu gera það — en þeir eru bara ekki svo snið- ugir að þeim detti slíkt í hug“. „Ameríkumenn eru svo hraðir í öllu, sem þeir gei'a“. „Já, Ellen, það eru þeir. Þeir láta ekki grasið gróa undir fót- um sér“. Hún greip til töskunn- ar sinnar og hanzkanna og þreif kápu úr opinni ferðatöskunni. Ellen gapti. „Ungfrú Nicole. Þetta er nýja kápan yðar! En .... hún átti að vera í brúðkaiips ferðina!“ „Ellen“, sagði Nicole um leið og hún klásddist kápunni. „Ég hef oft komið þér á óvart í morg- un.-Og ég geri það kannski eínu fiinni enn, því ég skal segja þér, sendisveinn óskast strax 3ílci*öiml>JaMÍ) Sími 1600 að ég hugsaði hvorki um David né brúðkaupsferðina, þegar ég keypti þessa kápu“. Hún gekk að dyrunum og opnaði. „Ég var að hugsa um það, hversu mjög dr. Fenton mundi dást að mér, þegar hann sæi mig í henni“. Dyrnar lokuðust að baki henn- ar. „Mér dettur í hug að við för- um til Ishvans", sagði Lloyd um leið og þau óku frá húsinu. „Það er kyrrlátara þar“. Hann leit til hennar með ertnissvip. „Þú vilt að sjálfsögðu ekki láta nokkurn mann sjá að þú sért að fara út að I borða með mér. Hvað mundi fólk segja?“ Veitingastofa Ishvans var svo til auð og tóm svo snemma morg- uns. Þar inni var bjart. Það var tendrað á borðlömpunum og þau vörpuðu skemmtilegri birtu um- hverfis. Úti var grátt og helli- rigning. Ishvan kom að borðinu til þeirra. Andlit hans ljómaði og hann var heldur ófrýnilegur á- sýndum, því birtan frá borðlamp anum féll þannig á undirhökur hans. „Dr. Fenton!" sagði hann. „Það gleður mig óumræðanlega að sjá yður hér aftur! Það er svo óra- langt síðan að þér komuð hingað, að ég hélt að þér væruð farinn heim, er konan mín sagði að þér munduð ekki fara án þess að koma hingað og kveðja". „Kona yðar hefur rétt fyrir sér, Ishvan. Það mundi ég ekki gera“. Ungverjinn brosti. „Hvað má bjóða þér, Nicky?“ spurði Lloyd. i „Ég veit það ekki“, svaraði . hún. „Ég er .... ég er ekki mjög ' svöng“. j Lloyd leit til hennar spurul- um augum. „Hefur matarlystin skyndilega horfið? Það var slæmt“. Síðan sneri hann sér að ■ Ishvan og pantaði og Ishvan hvarf fram í eldhúsið. Nicole leit í kringum sig. „Hér hefur ekkert breyzt, finnst þér það?“ „Nei, hér hefur ekkert breyzt. Það er ósköp heimilislegt og þægilegt hér. Þess vegna breyt- ist það ekki. Aðeins það, sem er óvenjulegt breytist. Þú hefur breytzt". Hún svaraði engu. Henni fannst sem hún gæti ekkert sagt. „Þú ert ekki hamingjusöm, er það, Nick?“ „Ef ég segði þér, að ég væri óumræðilega hamingjusöm, mundir þú þá trúa mér?“ „Ég mundi segja að þú segðir ósatt“. Hún leit niður á borðdúkinn. „Ég hef aldrei getað sagt þér ó- satt, er það?“ Hann teygði sig yfir borðið og tók um hendi hennar. „Um leið og ég sá þig í morgun, sá ég þeg- ar, að þú hefur ekki öðlast ham- ingjuna. Hvað er það. Nick? David .... elskarðu hann ekki?“ „Ég hef aldrei elskað hann“. „En hvers vegna fórstu þá....? Nick, ég held að ég muni ekki skilja þig núna — og enginn ann- ar mun skilja þig! “ Framreiðslustúlka kom með súpu. „Þú ert í dálítilli klípu, Nick“, sagði hann. „Ef þú ert skynsöm þá kannski komumst við að ein- hverri niðurstöðu. Ef ekki....“ hann yppti öxlum. „Elskar þú mig ennþá?“ spurði hann án þess að líta upp. Spurningin kom henni á óvart. „Já“, sagði hún ákveðið. „Ertu viss um það?“ spurði hann. „Manstu eftir stráknum sem alltaf hrópaði að hann hefði séð úlfinn?“ „Lloyd, gerðu ekki að gamni þínu. Ég tala í alvöru“. „Það gerir allt dálítið auðveld- ara viðfangs". Hann þagnaði og leit á hana. „Ég geri ráð fyrir að þú vitir þetta með Lucille Bour- donney. Það var hún sem sendi mig hingað. Hún hélt að það f bökliint segrtr frá fiinm hct.ium, sem I janðnrraánufíi 192S Iff KÍtt 1 hættu til nft h.jarmi hörnunum 1 Nome f Alaska frá þvf ah veriJa barnaveikisöttkveikjunnf afi bráti. — Eiim þessnrn manna var Leonard Seppala, sem mést hér 6 mynilinni meb tvo af uppáhaldsliiinduiu sínum. Hunn fæddftst í Sjervöy fl Itofoten f Noregi áriíí 1878. Áriö IJMH) för hnnn tii Alaska á vegum Jafets Lindeberg, þess er fyrstur fann gull í Alnskn. I*ar byrjnbi hann sem ^iillftgrafari og var um hrtfi verkstjöri hjá fgullnámufélagi. — I»á för liann ab taka þátt f kappakstri meV hundasleöa, sem fram för á liverju ári meU þátttakend- iim fir öllu Alaska. I*rjfi ár í rö* varö hann slgurveKari f þess- iim Alaska-kappakstri. Ekib var næstum 70 norskar mflur, osr feröin stöö yfir í 78 kliikkiistundir. Ilann varö einnigr HlRurvegari f slíkum kappakstri vifta 1 Randaríkjuniim og varö fræ^ur sem mesti liundasleöaekill heimsins. hefur unniö fleiri slíka knppakstra opr sett fleiri met en nokkur annar á þessarl jörö. En sfna mestu hetjudáö drýgbi hann áritl 1925, er hnnn hnuö byrginn hinum miklu vetrarhörkum f Ai- nskn ogr flutti ásamt fjör- um öttrum mðnnum barna- vefkimebul til Nome »g bjnrgnbi þannig; hundruö- um mannslffu. f»essi sncra um knppakst- nrliin fl Alnska hefur tvisv. ar verib grefin fit á þýzku, bæöi f Ilerlfn og’Wien. — Auk þess hefur hfin veriö þýdd á bfilfgörsku og króa- tflsku. Útvarpsleikrit: hefnr veritf sumiö upp fir henni og fitvnrpaö þrisvar á tékknesku og einu sinni á máll Slóvaka. — Og hér í fitvarpinu voru lesnir kafl- ar fir bókinui fyrir nokkr- iim árum og vöktu mikla hrifningru ungrra sem gam- alla. — ftókin fæst f öllum bðkaverzlunuin. Hann 1 Verzlunarstarf Piltur 15—17 ára óskast til verzlunarstarfa nú þegar. — Tilboð merkt: „Skóverzlun — s 506“ leggist inn á afgr. blaðsins fyrir laug- ardagskvöld. Jóhann handfasti tHmrnd ENSK SAGA 37 Mér tókst að komast til Englendingsins. Hann var lifandi, en meðvitundarlaus og ég tók hann og hálfdró hann í skjói undir bogagöngum. Svo hljó ég út í ryskingarnar aftur. Nú kvað við hófadynur og Ríkarður konungur kom þeys- !andi að með nokkra af riddurum sínum. Bardagalýðurinn þurfti ekki annað en sjá hann þar sem hann fór hár og' fyrirmannlegur, þá eefaðist hann óðara. Þarna stóð hann í ístöðunum og kallaði til þeirra með sinni djúpu, þrótt- miklu, hreimfögru röddu og skipaði þeim að hætta að berj- ast. Hann leiddi þeim það fyrir sjónir méð hógværð, en | jafnframt með konunglegri tign, að þeim bæri að sýna hver | öðrum sáttfýsi og vinarþel, og hann lýsti því yfir að hann væri kominn til Sikileyjar í friðsamlegum erindagjörðum, aðeins til að vinna að pílagrímsför sinni. Þessi vitru og góðu orð þessa volduga konungs sefuðu reiði bæði pílagríma og eyjarskeggja, svo að þeir dreifðust sneyptir á svip. Margir voru með blóðug höfuð, aðrir voru haltir og enn aðrir báru burtu vini sína, sem höfðu særzt höfðu í róstun- um. Konungur beið þangað til torgið var orðið mannlaust. þá kallaði hann mig til sín og sagði, að það hefði verið rétt Igert af mér að senda eftir sér. | Þannig var friði komið á aftur, en hann stóð ekki lengi, ! því að djöfullinn, hinn forni óvinur mannkynsins, gerði öli j hin góðu verk konungsins að engu, því að hann er aldrei ánægðari heldur en þegar kristnir menn tortíma hver öðrum, og strax daginn eftir þrutust út ennþá banvænni róstur á milli borgarmúgsins og manna okkar. ,S A F sl V E ít K 5 M I Ð J A N „SJ 0: F N ý AK l> R E Y R \'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.