Morgunblaðið - 12.12.1954, Qupperneq 1
32 síður (2 blöð)
40. árgangur
284. tbl. — Sunnudagur 12. desember 1954
✓ - ■ - -------------------------------------—
■ ■
Onoss/s skipin:
LLOYDS
veiðar að borga
LIMA, 11. des.: — Góðar heim-
ildir hér herma að fulltrúi
LLOYDS vátryggingafélagsins
hafi fengið fyrirmæli um að
greiða Perústjórninni 3,3 millj.
sterlingspunda (um 140 millj. kr.)
en þessarar upphæðar krafðist
stjórnin fyrir Onassis hvalveiði-
skipin.
Nú er senn mánuður síðan að
herskip og flugvélar frá Peru
skutu á skipin og vörpuðu
sprengjum nálægt þeim og her-
tóku síðan verksmiðjuskipið
Olympic Challenger og fjögur
veiðiskip.
Skipin höfðu verið að veiðum
innan 200 mílna landhelgi, sem
Perustjórn hefir helgað.
Onassis hefir verið að því
spurður hvort hann hafi búizt við
vandræðum er hann hóf hvalveið
arnar á þessu bannsvæði. „Vissu-
lega“ sagði hann, „þessve<ma
keypti ég sérstaka tryggingu
(hjá LLOYDS)“.
Onassis er marg milljónari, 48
ára gamall og á yfir 100 skip.
Eflir veðurofsann
REUTER, 10. des. (yfiriit): — í
stórviðrinu, sem gengið hefir
víðsvegar í Evrópu undanfarin
dægur hefir víða orðið mikið tjón.
Sextíu og fjögurra franskra
sjómanna er saknað og er óttast
að þeir hafi allir farist.
f Suður Frakklandi hefir orðið
tjón af flóðum, fjölskyldur hafa
orðið að yfirgefa heimili sín, og
miklar umferðatruflanir hafa
orðið.
í írlandi er um áttatíu fer-'
kílómetra svæðf á Shannonsvæð-1
inu undir vatni, björgunarstarf
fer þar fram á bátum og mörg |
hundruð fjölskyldur hafa orðið
að yfirgefa heimili sín.
í Englandi hefir vcrið boðið út
hermönnum til þess að styrkja
flóðgarða.
í Austurríki brá til þíðviðris í
dag eftir snjckomu undanfarinna
daga og er þar því all mikil
skriðuhætta.
Skipstjórinn á „Queen Mary“ |
(81.000 smál.) segir að 20 metra
háar öldur hafi gengið yfir hið
stóra skip. f veltingnum urðu I
skemmdir á innbúi og nokkrir |
farþegar hafa verið undir læknis-
hendi vegna minniháttar meiðsla.
7x2
ÚRSLIT leikjanna á 40. getrauna
seðlinum urðu:
Arsenal 3 — Charlton 1 1 j
Burnley 2 — Manch. Utd 4 2
Cardiff 0 — Sunderland 1 2
Chelsea 4 — Aston Villa 0 1 i
Everton 3 — Sheff. Wedn 1 1 1
Leicester 1 — Wolves 2 2
Manch. City 0 — Tottenham 0 x |
Newcastle 2 — Portsmouth 1 1
Preston 2 — Huddersfield 3 2 i
Sheff. Utd. 2 — Bolton 0 1 |
W.B.A. 0 — Blackpool 1 2 j
Leeds 1 — Fulham 1 x I
Fer á „eigin álsyrgð“
f Chu En Lai
samþykkir
NeW YORK, 11. des.
AG HAMMARSKJÖLD, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, heíir boðizt til þess að fara til Peking til viðræðna við
Chou En Lai, forsætisráðherra kínversku kommúnistastjórnarinnar, I
um málefni amerisku flugmannanna ellefu, sem sitja þar í fang-
elsi, sumir með 4ra ára dóm og allt upp í lífstíðardóm.
Hammarskjöld hefir sent Chou En Lai skeyti, þar sem hann
segir að framkvæmdastjóri S. Þ. verði að þessu sinni, að taka
á sig „sérstaka ábyrgð." Er þetta orðatiltæki skilið svo sem för
hans til Peking hafi sætt nokkurri andspyrnu innan Sameinuðu
þjóðanna. Mun brezka stjórnin m. a. hafa verið andvíg ferðinni.
Dagur Hammarskjold
í skeytinu býðst framkvæmda-
stjórinn til þess að koma til Pek-
ing þ. 26. þ.m. eða næsta dag, ef
Chou En Lai telur það heppilegt,
Hann biður um svar um hæl.
Förin getur ekki dregist leng-
ur, þar sem Hammarskjold á að
gefa allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna skýrslu um árangurinn
af starfi sínu til hjálpar amerísku
föngunum fyrir lok þessa mán.
Hammarskjold lýsti yfir því er
hann tók við þessu starfi sam-
kvæmt sérstakri samþykkt þings-
ins að hann gerði það „með
djúpri ábyrgðartilfinningu".
45 þjóðir greiddu atkv. með
samþykkt þingsins, en sovétsam-
steypan á móti.
Mendés France
sigraði - naumlega
PARÍS, 11. des. — Enn hjaðn-
1 aði meirihluti Mendes-France i
| atkvæðagreiðslunni, sem fór fram
eftir næturlangar umræður um
stefnu hans í málefnum Norður-
Afríku. Að þessu sinni var meiri-
hlutinn aðeins 29 atkv. (294:
265).
Næst á undan hafði Mendes
147 atkv. meirihluta. í lokaræðu
sinni lagði Mendes áherzlu á að
ástandið í Marokko færi batn-
andi.
Menn liía þéif
lifriit sé háli
HAMBORG 11. des.: — (DPA) —
Menn geta lifað heilbrigðu lífi
jafnvel þótt menn hafi ekki nema
hálfa lifur.
Frá þessum tíðindum var sagt
á 74. ársþingi nciðvesturþýzkra
lækna, sem lauk í dag. 400 læknar
sátu þingið, bæði frá vestur og
austursvæðinu.
Það sem fyrir ári síðan var ó-
hugsanlegt, að gera skurðaðgerð
á lifrinni, sem ekki hefði í för
með sér alvarlegustu innri blæð-
ingar, hefir nú tekizt.
Z'
rafaíl á Is
sefta í png í dag
IDAG kl. 3 verður opnuð í
Góðtemplarahúsinu í Hafnar-
firði sýning, sem Rafveita og
bæjarstjórn Hafnarfjarðar standa
að. Er sýningin haldin í tilefni
50 ára afmælis fyrstu rafveitu á
íslandi. Jóhannes J. Reykdal
byggði árið 1904 rafstöð í Hafn-
arfirði og var hún sett í gang
í fyrsta sinn 12. des. sama ár.
Var hún 9 kw. Sýningin er fólg-
in í því að sýna þróun rafmagns-
málanna fram á þennan dag og
verður þar sýndur hinn fyrsti
rafall Jóh. J. Reykdals*. Á sýn-
ingunni er — ef svo mætti að
orði kveða — sýnd ljósatækni ís-
lendinga frá landnámstið: stein-
kola, lýsiskola, kertamót o. m. fl.
Einnig eru myndir gamlar og
nýjar svo og nýtizku rafmagnsvél
ar o. fl., sem Rafha h.f. í Hafn-
arfirði framleiðir.
Jóhannes J. Reykdal var fædd-
ur 18. jan. 1874 að Vallakoti í
Reykjadal í Suður-Þingeyjar-
sýslu og var hann yngstur 15
systkina. Um tvítugt fór Reyk-
dal til Akureyrar og lagði stund
á trésmíðanám og árið 1898, þá
24 ára gamall sigldi hann til
Kaupmannahafnar til að full-
numa sig í trésmíði og dvaldi
þar í 2% ár
Jóhannes Reykdal átti systur,
sem gift var Norðmanni og
bjuggu þau í Stavangri í Noregi.
Þessa systur sína heimsótti Reyk-
dal á námsárum sínum í Dan-
Frurnherjans Jóhannesar J. Reykdals minnst.
Fraroh. á bls. 2
Lækurinn, stiflan og yfirfall hennar. (Ljósm. Hjálmar Bárðarson).
Prentsmiðja Morgunblaðsim
Kr.
fyrir eitt skip
WASHINGTON, 11. des. —
Fyrir kr. 3.200.000.000 eignast
Bandaríkin á næsta ári 60 þús.
smálesta flugvélamóðurskip, sem
skírt var í dag og gefið nafnið
Forrestal (eftir Forrestal, her-
málaráðherra Bandaríkjanna í
nokkur ár eftir stríðið).
Skipið hefir verið hálft þriðja
ár í smíðum og enn mun líða
eitt ár þar til það verður tekið
í þjónustu.
Um skip þetta er sagt, að það
sé „margbrotnasta vopnið í
' kjarnorkuhernaði“, sem enn hef-
I ir heyrzt getið um.
ALLAR HELZTU
NÝJUNGAR
Ótal nýungar er að finna í
þessu skipi, endurbætt radarkerfi,
stórar loftvarnafallbyssur, tæki
til að skjóta stýranlegum eld-
flaugum og nýjustu tæki til að
senda þrýstiloftsflugvélar í loft
upp.
Helztu hermálaráðherrar
Bandaríkjanna voru viðstaddir
er skipinu var hleypt af stokkum,
en skírnina — með kampavíns-
flösku — framkvæmdi ekkja
Forrestals.
Thomas, flotamálaráðherra
benti í ræðu sérstaklega á hreyf-
anleik flugvélaskipsins „Hreyfan
legar flugstöðvar eins og Forre-
stal“ er hægt að nota á ýmsan
hátt, jafnt í varnarstyrjöld, til
gæzlu á höfum úti eða í stað-
bundnum styrjöldum.
I Þetta er stærsta skipið, sem
i smíðað hefir verið í Bandaríkj-
í unum, aðeins tvö skip hafa verið
' smíðuð stærri, Queen Mary og
| Queen Elisabeth (81.000 smál.)
bæði smíðuð í Englandi.
iapanar snúa
við blaðlnu
TÓKÍÓ, 10. des. — Tíu af 17
ráðherrum í hinu nýju ráðuneyti
Hatoyama vcru á lista Mac
Arthurs yfir „óæskilega" jap-
anska stjórnmáiamenn eftir
stríðið — og á meðal þeirra sjálf-
ur forsætisráðherrann. Listinn
var gerður yfir þá, sem brotið
höfðu af sér gagnvart banda-
mönnum í stríðinu og fyrr.
Hernámsyfirvöldin „hreinsuðu"
alla þessa menn síðar. Shige-
mitsu, hinn nýi utanríkisráðherra
hefir þrisvar áður fyrir stríð
gegnt þessu sama embætti og
auk þess verið sendiherra bæði
í London og Moskvu.
VILJA VERZLA VIÐ KÍNA
Hatoyama forsætisráðherra
sagði í dag: — Það sem Japanar
óttast fyrst og fremst er ný
heimsstyrjöld. Að gerast óvinur
kommúnistaríkjanna mun geta
leitt til styrjaldar, en að reka
verzlun við þau mun sennilega
koma í veg fyrir stríð.
Fjórir ráðherrar úr stjórn
Yoshidas eru í nýju stjórninni.
Sérstaklega vekur athygli til-
nefningin í embætti verzlunar-
málaráðherra, er fer með utan-
ríkisverzlun, en hann er meðlim-
ur í félagsskap, sem hefir að
markmiði að auka viðskiftin við
kommúnistaríkin. Maðurinn heit-
ir Ishibashi.