Morgunblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.12.1954, Blaðsíða 16
Yeðurúllif í dag: SV-kaldi, éljaveður. 289. tbl. — Laugardagur 18. desember 1954 dagar til ióla Glófaxi varð að nanðlenda á Akureyri vegna ísingar Völlurinn lýstur upp með olíulýrum , Akureyri, 17. des. UM klukkan 7.39 í gærkvöldi urðu menn varir við að flugvél var á sveimi yfir bænum og fór hring eftir hring. Fannst mönnum þetta að vonum gegna nokkurri furðu, þar sem hér á Akureyrarflugvelli er ekki leyft að lenda eftir að dimmt er orðið, »ema þá í neyðartilfellum. — Það kom á daginn, að hér var um að ræða Douglas-flugvél Flugfélagsins. Var það Glófaxi, er var kominn hingað til að nauðlenda. héðan hélt Glófaxi áfram Jón E. Bergsveimson lézl í gærdag VARÐ AÐ NAUÐLENDA VEGNA ÍSINGAR Hafði Glófaxi farið frá Egils- •stöðum kl. 6.30 og ætlaði beint til Reykjavíkur. Var hann með um 10 farþega innanborðs. Er hann var kominn nokkuð á leið, urðu flugmenn þess varir, að mikil ísing settist á flugvélina, og það svo mjög, að flugvélin, sem átti að vera með 140 mílna flug- hraða, var komin niður í 90 mílur vegna ísingarþungans. Vegna íss- ins var radíóáttaviti óvirkur orð- og ferðinni til Reykjavíkur í gær- morgun. Hægt hefði verið að fljúga beint áfram í gærkvöldi, því að nægan benzínforða hafði flugvélin og engin bilun varð í hreyflum. Það var af öryggis- ástæðum talið sjálfsagt að lenda hér, einkum vegna þess, að vélin gat ekki notað stefnuvitana á leið sinni suður, þar sem ísingin hafði sezt á loftnet radíóáttavitans. | Af þessu má sjá, að nauðsyn- legt er að flýta raflýsingunni á lellri deiid lauk störfum í gær áfgreiddi Ivenn lög oin kvöldið 1 FUNDUR hófst í Neðri deild Alþingis kl. 9 í gærkvöldi. Hélt nefndin sarntals fjóra fundi um kvöldið og afgreiddi tvenn lög, frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um al< mannatryggingar og frumvarp Sigurðar Bjarnasonar og fleiri um að heimila listaverkauppboð. — Þá var tekið fyrir frumvarp, sem menntamálanefnd flutti í gær fyrir hönd rikisstjórnarinnar um framlengingu laga um heimild til þess að innheimta skemmtana- skatt með viðauka árið 1955. Var það afgreitt út úr deildinni á þremur fundum og til Efri deildar. inn. Ákvað flugstjórinn, Sverrir flugvellinum hér, svo að lenda Jonsson, þá að snúa við til Egils- staða og lenda þar aftur. En þeg- ar þangað kom, var ólendandi þar, vegna þess hve lágskýjað var þá orðið. Tók hann þá það ráð að fljúga hingað, því að hér ■Voru öll skilyrði til að leiðbeina flugvélinni til lendingar, þar sem er hin nýja flugratsjá. — Nýi fiugvöllurinn er ekki enn raf- lýstur, svo að bornar voru út með flugbrautinni olíutýrur. Til frekara öryggis var slökkvilið Akureyrar kallað á vettvang, ef flugvélinni myndi hlekkjast á í lendingu, og sjúkrabifreið var þar einnig. — Þá var og til taks flugvél til að senda af stað og leiðbeina Glófaxa við lending- una. VARÐ AÐ ÞÍÐA FRAMRÚÐ- UNA TIL ÞESS AÐ GETA LENT Svo mikil var ísingin orðin á flugvélinni, að nær ekkert sást út um glugga stjórnklefans. Voru flugmennirnir að reyna að þíða af rúðunum, er þeir hringsóluðu yfir bænum. Þegar klukkuna vantaði 10 mín. í átta, freistaði flugstjórinn þess að lendá, og hafði honum þá tekizt að þíða svolítið gat j ísinguna á framrúðunni, svo að hann sá út. Tókst lendingin vel, megi hvort heldur er að nóttu eða degi, því að hvergi á landinu eru öryggistæki fullkomnari en hér nema á Keflavíkurflugvelli. — Vignir. 1 GÆRDAG lézt í Landakots spítala helzti hvatamaður að stofnun Slysavarnafélags Islands og síðar erindreki þess, Jón E. Bergsveinsson. Varð hann 75 ára að aldri. I Jón var þjóðkunnur maður fyrir störf sín í þágu slysavarna- ! málanna hér á landi og var mjög árvakur í starfi sínu. j Undanfarið hafði Jón átt við , vanheilsu að stríða, en hafði ekki I lengi dvalizt í sjúkrahúsinu er hann lézt. SIÐASTI FUNDUR FYRIR JÓL Þar sem þetta var síðasti fund- ur Neðri deiidar áður en þingi skyldi frestað, ósxaði íorseti deildarinnar, Sigurður Bjarna- son, þingdeildarmönnum gleði- legra jóla og nýárs, um leið og hann þakkaði þeim ánægjulega samvinnu við sig, sem forseta á því ári, sem nú væri senn liðið. Jafnframt árnaði hann utanbæj- arþingmönnum góðrar heimferð- ar og heimkomu, og lét þá von í ljós að þingdeildarmenn mættu allir heilir hittast er Alþingi héldi áfram störfum á nýju ári. Einar Olgeirsson kvaddi sér þá hljóðs og þakkaði forseta góðar árnaðaróskir, óskaði honum gleðilegra jóla og nýárs og lét í ljós von um að þingmenn mættu hitta hann heilan á nýju ári. — Tóku þingdeildamenn undir orð hans með því að rísa úr sætum. ÞINGFRESTUN í DAG Síðasti fundur Efri deildar hefst kl. 1,30 í dag. En kl. 2 hefst fundur í Sameinuðu þingi. Er þar aðeins tillaga til þingsályktunar um þingfrestun til 4 febrúar á dagskrá. Nýbýlasfjórn kosin NÝBÝLASTJÓRN var kosin af Sameinuðu þingi í gær. — Hana skipa fimm menn, sem eru kosn- ir til fjögurra ára í senn. Stungið var upp á jafnmörgum og voru þeir því sjálfkjörnir, þeir Jón Pálmason, Jón Sigurðsson, Stein- grímur Steinþórsson, Haukur Jörundsson og Ásmundur Sig- urðsson. Nefnd kosin til að útliluta lista- mansiastyrkjum í GÆR voru endurkosnir í nefnd þá, sem úthluta á listamanna- styrkjum, þeir Þorsteinn Þor- steinsson sýslumaður, Þorkell Jó- hannesson háskólarektor og Helgi Sæmundsson ritstjóri. , Ettirlælis jólagjöf Jólasöfnun Hæðrastyrksnefnd- ar í ár tregari en í fyrra Mesf eftirspurn er eftir fatnaði FUNS og áður hefur verið frá skýrt í blaðinu, hófst jólasöfnun 1 Mæðrastyrksnefndar hér í bænum fyrir rúmri viku. Tilagngur ■söfnunarinnar er, sem kunnugt er, að gleðja fátækar mæður með fata-, matar- og peningagjöfum fyrir jólin. Mbl. spurði frú Jóníu Guð- mundsdóttur frétta af söfnuninni í gær. Kvað hún hana ganga sæmilega. Saínazt hafa nú um 40 þús. krónur, en það er samt sem áður mun minna en á sama tíma í fyrra. Mæðrastyrksnefnd hafa þegar borizt yfir 600 beiðnir, og er nefndin búin að úthluta á fimmta hundrað styrkjum. Eru það aðal- lega fata- og peningagjafir. Nefnd inni berast nú daglega 70—80 beiðnir og má búast við að þeim fjölgi er nær dregur jólum. Frú Jónína kvað mikla eftir- jpurn vera eftir fötum og þá sér- staklega drengjafötum. Kæmi það séF því ákaflega vel að þeir sem ættu drengjafatnað og vildu gefa til söfnunarinnar, hefðu þetta í huga, þótt öllum gjöfum til nefndarinnar sé veitt móttaka með þakklæti, en á þessu sviði virðist skórinn kreppa mest að. Nú er aðeins tæp vika til jóla, | og mörg hundruð heimili fátæks fólks, bíða í eftirvæntingu eftir jólaglaðningi frá Mæðrastyrks-' nefnd. Óefað eiga margir gamlir vinir Mæðrastyrksnefndar eftir að láta hana heyra til sín þessa fáu daga sem eftir eru, og von- ■ andi bætast margir nýir við. Leiðinlegt væri ef söfnunin gengi lakar en í fyrra. En ef allir legðu eitthvað af mörkum, þyrfti ekk- ert barn að vera illa klætt eða svangt um jólin hérna í Reykja- vík. Bæjarsljórnarfundur í 19 klsf. EINS og getið var um í blað- inu í gær fór fram atkvæða- greiðsla um fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1955 fram á fundi bæjarstjórn- ar í gærmorgun. Umræðan um fjárhagsáætlunina var lokið kl. 8 að morgni eftir að hafa staðið alla nóttina og hófst þá atkvæðagreiðslan. Stóð hún þar til fram undir hádegi. Þessi bæjarstjórnarfundur stóð nær því 19 klukkustundir og mun vera lengsti fundur, er um getur í sögu bæjar- stjórnarinnar.______ Jólapóslurinn í bæinn PÓSTSTOFAN hefur beðið blað- ið að vekja athygli almennings á því, að til þess að öruggt sé, að jólapósturinn komist til viðtak- enda á aðfangadag, verði að skila honum í allra síðasta lagi mánu- daginn 20. desember kl. 24, og merkja hann orðinu „jól“. Þær 1 sendingar, er síðar berast, verða • ekki bornar út fyrr en 3. í jólum. I Enginn póstur verður borinn út í Reykjavík 1. og 2. dag jóla. Mánudaginn 20. verður af- greiðsla póststofunnar opin til kl. 24. — Frímerkið öll bréf í efra hornið til hægri. Þrjú innbrot I FYRRINOTT voru framin hér í bænum þrjú innbrot. Var alls stolið um 300 kr. í peningum og nokkru af munaðarvöru, vindling um og áfengi. Þjófar lögðu leið sína inn á Mjólkurbarinn, Laugavegi 162. Þar var stolið milli 20—30 10- pakka sígarettukössum, þrem koniaksflöskum og einni rauð- j víns og annari hvítvínsflösku, hálfum kassa af vindlum og nokkrum ávaxtadósum. 1 Nýju efnalauginni, Borgar-} túni, var stolið einni viskyflösku og 40 kr. í peningum. Þá var þriðja innbrotið framið í brauða- og mjólkurbúð við Langholtsveg-' inn og var stolið þar um 100 kr. í skiptimynnt. Sií kemur fíð að slík fré geta vaxið hér JÓLATRÉÐ, sem Oslóarborg' gefur Reykjavík um þessi jól,1 kom hingað með Gullfossi seinni- i hlutann í gær. Er búist við að tréð verði flutt í land í dag og það reist á venjulegum stað á Austurvelli. Fyrir nokkru síðan var geysi- stórt grenitré höggvið í almenn- ingsskóginum í Norðurmörk við Osló og það tré sent sem jóla- Vetrarmynd frá Norðurmörk við Osló, en þaðan er jólatréð, sem verður reist á Ausíurvelli í dag. gjöf til Lundúna og var reist á Trafalgar-torginu í Lundúnum. Var kveikt á því fyrir nokkrum dögum með mikilli viðhöfn. Slíkt jólatré hafa Norðmenn gefið á undanförnum árum. Að þesiu sinni senda þeir líka jólatré til Rotterdam, en þar er jafnan margt-norskra sjómanna um jól- in, enda er Rotterdam mikil siglingaborg sem kunnugt er. í norskum blöðum hefur mikið verið talað um jólatréð til Reykjavíkur og er það eftirlætis- jólagjöf Norðmanna þar eð þeir vita sem er, að sú gjöf þeirra þjónar tvöföldum tilgangi. Fyrst og fremst verður tréð hér í Reykjavík vegfarendum til ánægju og yndisauka. Jafnframt er tréð, sem hingað er sent frá Norðurmörk, verður nú í fram- tiðinni kveðja frá norskum skóg- um til hins skógsnauða íslands, er því miður auðnaðist ekki að fá hingað barrskóga í upphafi vega eins og Noregur. í hvert skipti, sem jólatré verður sent hingað, til hins íslenzka höfuð- staðar, á það að minna íslendinga á, að hægt er að rækta hér stór- viðarskóg, ef alúð og áhugi verð- ur lagður í það verk. Að þessu sinni sendir norski vinabærinn Álasund jólatré til Akureyrar í vináttuskyni og sem vott þakklætis fyrir að barna- kórinn frá Akureyri kom til Ála- sunds á siðastliðinu vori. Síðari hluta dags á morgun verður kveikt á Oslóartrénu á Austurvelli. Sendiherra Norð- manna mun segja þar nokkur orð og aíhenda tréð Reykjavíkur- bæ, en borgarstjóii þakkar. Ennfremur er búist við að sungnir veroi þar jólasálmar undir stjórn dr. Páls ísólfssonar, svo sem undanfarin ár. — Ný- lunda verður sú við þessa athöfn, að búist er við, að henni verði útvarpað jafnóðuin í norska út- varpinu. ( 7 lélu !(fið LUNDÚNUM 17. des. — Brezlc herflugvél steyptist í dag í sjóinn undan strönd Cornwall. Áhöfnin, sjö menn, lét lífið. — Reuter. AKUREYRI 1 jf IHÞ,...M Mffi^ M '' vmf' « I wmy Wm.&.wÁ i Jt IKI iÉj A * ** * F G ■ f REYKJAVÍK ) 37. leikur Akureyringa: I Í7—f6 j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.