Morgunblaðið - 20.01.1955, Side 1
16 sáður
42. árgangur
15. tbl. — Fimmtudagur 20. janúar 1955.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
DULLES AÐVARAR KÍNASTJÓRN
EISENHOWER VILL
ÞÓ BÍÐA ÁTEKTA
VOPNAGNÝR VIÐ KÍNASTRENDUR
SAMTÍMIS því, sem Hammarskjöld, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, heldur áfram að vinna að því að ná sáttum
út af fangelsun amerísku flugmannanna ellefu, sem hafðir
eru í haidi í Kína, hafa kínversku kommúnistarnir byrjað
ákafar hernaðaraðgerðir við Kínastrendur, en hætt er við
að hernaðaraðgerðir þessar leiði til vaxandi sundrungar
milli Bandaríkjanna og Kínastjórnar.
Tvö hundruð flugvélar kínversku kommúnistanna, þ. á m.
nokkrar þrýstiloftsflugvélar, gerðu í dag loftárás á Tachen-
eyjar, aðeins einum degi eftir að sjólið hafði náð einni þess-
ara eyja á sitt vald.
Stjórnin í Peking hefir lýst yfir því, að markmiðið með þessum
hernaðaraðgerðum sé að ná öllum Tachen eyjaklasanum úr hönd-
um þjóðernissinnastjórnarinnar.
Opinberir aðilar í Bandaríkjunum hafa lýst yfir því, að eyjar
þessar séu ekki hernaðarlega mikilvægar.
Eisenhower forseti sagði á
blaðamannafundi í Washington í
dag að hann vildi gjarnan að
Sameinuðu þjóðirnar notuðu að-
stöðu sina til þess að ná sam-
komulagi um að bardagar undan
ströndum Kína yrðu stöðvaðir.
Forsetinn sagði að sér væri ekki
kunnugt um nein hernaðaryfir-
völd, sem teldu eyjarnar, sem nú
væri barist um, mikilvægar fyrir
varnir Formósu.
SÁTTASTARF S.Þ.
I svari við spurningu um mögu
leikana á því að stöðva með öllu
hernaðaraðgerðir milli kínversku
kommúnistanna og þjóðernis-
sinnistjórnarinnar, sagði forset-
inn, að sér væri ekki kunnugt um
hvort Sameinuðu þjóðirnar gætu
gert nokkuð í því efni, en það
væri þess vert fyrir þær að rann-
saka málið.
Eisenhower kvaðst ekki geta
sagt um, hvað gerðist næst í átök-
unum við Kmastrendur og vildi
þessvegna ekkert um það segja
hvaða ráðstafanir Bandaríkin
kynnu að gera. Hann kvaðst ekki
vita um fyrirætlanir Chiang Kai
Sheks.
EKKI ÁRANGURSLAUS
Um för Hammarskjölds, aðal-
ritara Sameinuðu þjóðanna til
Kína, sagði forsetinn, að hún
gæti ekki talist hafa borið árang-
ur þar til hermennirnir, sem þar
væru ranglega hafðir í haldi,
væru komnir heim tii sín.
Hann sagði að ekki væri hægt
að telja að sendiförin hafi verið
árangurslaus á meðan að maður
með skapgerð Hammarskjölds
teidi að ser miðaði í rétta átt.
Hammarskjöld ræddi í hálfa
aðra klukkustund við John
Foster Duiles í dag. Að við-
ræðunum loknum lét Dulles
svo um mælt að hugur manna
í Bandaríkjunum hneigðist
mjög í þá átt, að Bandaríkin
byrjuðu beinar aðgerðir til
þess að fá fangana ellefu
leysta úr haldi.
Hann sagði að ameríska þjóð-
in biði ,,af ákafa og með nokkr-
um kvíða eftir því sem næst gerð
ist í þessum málum.“
Hann sagði að það væri á hinn
bóginn stefna Eisenhowers for-
seta, að biða átekta og sjá hvað
Hammarskjöld yrði ágengt.
Sumir líta svo á heimsókn
Hammarskjölds til Washington,
að hún bendi til þess að kín-
verska stjórnin sé reiðubúin til
þess að láta flugmennina lausa
gegn vissum skilyrðum.
í Moskva var í dag látið í veðri
vaka að Hammarskjöld hefði sagt
við Chou En Lai, að kínverska
stjórnin myndi fá aðild að
Sameinuðu þjóðunum á þessu ári.
Snjór og flóð
B'
REZK yfirvöld leita nú allra ráða — hafa sent þyril-
vængjur, könnunarfugvélar og jafnvel þrýstiloftsflug-
vélar — til þess að reyna að koma í veg fyrir að fólk, sem ein-
angrað hefir verið vegna snjóa í marga daga á norðurhluta Bret-
landseyja, verði hungurmorða.
Samtimis berast fregnir frá meginlandi Evrópu um áfram-
haldandi stórrigningar. í París hlaða menn sandpokum í þeim
borgarhlutum, sem lægst liggja, til þess að koma í veg fyrir að
vatnsflaumurinn úr Signu flæði inn í kjallarana og handan við
landamærin í Bonn, hefir verið hlaðið 40 þús. sandpokum um-
hverfis þinghússbygginguna (Bundestag) en samt sem áður er
\ atnsflaumurinn úr Rín kominn þar inn í fordyri.
Frá Vínarborg berast fregnir um 20 stiga kulda og snjókomu,
en frá Holandi herma fregnir að þar hafi í dag verið glaða sól-
skin.
- I
BONN, 19. jan.: — Mótmælaald-
an sem skipulögð hefir verið í
Þýzkalandi gegn endurhervæð-
ingu þýzku þjóðarinnar virðist
magnast. Á næstu dögum hafa
verið boðaðir 6000 mótmæla-
fundir víðsvegar um landið, en
fundir þessir ná hámarki í
Frankfurt am Main eftir 10 daga,
en á fundi þar verður aðalræðu-
maðurinn Ollenhauer, formaður
sósialdemokrata.
Stjórnin í Bonn hefir brugðist
hart við og þýzki innanríkisráð-
herrann sagði í dag að fundahöld
þessi væri „smánarlegt lýð-
skrum“.
LONDON 19. jan.: — Kuldakastið
í norðurhluta Skotlands virðist
ekki vera í rénum og á hverri
klukkustundu berast fregnir frá
fjölskyldum í sveit og jafnvel
frá heilum þorpum, um að hung-
ursneyð sé þar yfirvofandi.
Auk flugvélanna, sem sendar
hafa verið til þess að varpa nið-
ur matvælum og skepnufóðri, er
nú brezki flotinn einnig kominn
til skjalanna. 14 þúsund smálesta
flugvélaskip, „Glory“, er komið
til norðurstrandar Skotlands og
hefir sent flugvélar til þess að
leita uppi neyðarmerki Skotanna.
AÞENA í gær: — Gríska þingið
hefir staðfest Parísarsamningana.
Eru Grikkir fimmta ríkið af 15,
sem staðfesta samningana (áður
höfðu gert það Bretar, Frakkar,
íslendingar og Tyrkir)
- á meginlandinu
REUTER 19. jan.: — Vatnsmagn-
ið í Signu heldur áfram að stíga.
í Marne er nú meira flóð en þar
hefir komið síðastliðin 44 ár og
er búist við að flóð þetta núi
París á föstudaginn,
Fólkið í lægstu hlutum Parísar
borgar notar sandsekki og annað
efni, sem hendi er næst til þess að
reyna að koma í veg fyrir að
vatnið streymi inn í kjallara
sína.
Ekki er gert ráð fyrir að flóð-
in í Signu nái hámarki fyrr en á
sunnudag. í dag hefir mörgum
brúm í borginni verið lokað.
Fregnir um stórflóð í ám hafa
einnig borizt úr öðrum lands-
hlutum í Frakklandi og þúsundir
manna hafa orðið að yfirgefa
heimili sín.
Rhone hefir flætt yfir bakka
sína og akrar eru undir vatni,
á einum stað á 5 km. svæði.
NTB-Reuter.
Sundrung ítalskra kommúnista
ROMABORG, 19. janúar: —
Togliatti var í gær endurkjörinn
formaður ítalska kommúnista-
flokksins. En hann hafði áður
átt hendur sínar að verja á flokks
þingi kommúnista, sem staðið
hefir yfir undanfarna daga. Hann
hefir verið sakaður um að vera
of ,,vægur“ í baráttu sinni gegn
ítölsku stjórninni.
Annar þeirra flokksleiðtoga,
sem helzt hafa haldið upp ádeil-
um á Togliatti, Luigi Longo,
„hinn sterki maður flokksins“,
var einnig endurkjörinn í mið-
stjórn flokksins. En hinn, Pietro
Secchia, varaformaður flokksins
og skipulagsstjóri hans, verður
nú ekki lengur í miðstjórninni, en
hefir fengið það hlutverk að
skipuleggja starfsemi flokksins í
Norður-Ítalíu.
Það hefir verið öllum ljóst á
undanförnum mánuðum, að
ítalski kommúnistaflokkurinn,
sterkasti kommúnistaflokkurinn
vestan járntjalds, væri að tapa
fylgi og einkum þó að missa tang
arhald í sumum greinum ítölsku
verklýðshreyfingarinnar. Ágrein-
ingur sá sem nú er kominn í ljós
meðal æðstu manna flokksins
staðfestir þessa skoðun mjög
Hæsta lausnar-
gjald sem sögur
fara af
menn úr vinstri armi sósíalista-
flokksins og stofnaði ítalska
kommúnistaflokkinn. Hann flúði
undan fasistum árið 1926 og sett-
ist að í Sovétríkjunum, en hvarf
aftur til Ítalíu árið 1944 og var
þá gerður formaður flokksins.
Togliatti hefir yfir að ráða
stærsta kommúnistaflokkinum
Framh. á bls. 12
• í FYRRADAG (þriðjud.) kom
til Madrid Juan Carlos, prins af
Bourbon, sonur þess manns, sem
gerir tilkall til konungserfða á
Spáni. f Madrid ætlar Juan
Carlos að byrja nám, sem á að
búa hann undir það að verða
konungur.
Kennsla hins 16 ára unga
manns verður undir handleiðslu
65 ára gamals spansks hershöfð-
ingja og aðalsmanns. Áður höfðu
Don Juan, faðir prinsins, og
Franco hershöfðingi, gert með sér
samkomulag um það hvernig
kennslunni skyldi hagað.
Konungssinnar á Spáni halda
því fram, að mjög hafi gengið
í áttina til samkomulags milli
þeirra Francos og Don Juans, er
þeir hittust á heimili spansks
aðalsmanns á Suður-Spáni 29.
des. Þeir ræddust við í níu
klukkustundir, en þetta var í
fyrsta skiptið sem Don Juan steig
fæti sínum á spanska grund frá
því að borgarastyrjöldinni á
Spáni, 1936—1939 lauk.
Konungssinnar eru jafnvel
farnir að gera sér vonir um að
Franco fallist jafnvel á að viður-
kenna erfðarétt Don Juans til
konungdóms á Spáni — ef sam-
búð þessara gömlu andstæðinga
heldur áfram að batna.
★
• Fyrir nokkrum dögum lézt úr
hjartabilun Louis de Rotschild
barón, en fyrir hann var á slnum
tíma greitt hæsta lausnargjald,
sem sögur fara af. Rotschild var-
72 ára gamall og lézt á sundi í
Jamaica flóa.
Rotschild ættin rak bankastarf
semi og um eitt skeið átti hún
banka í öllum helztu stórborgum
Evrópu. Louis de Rotschild stjórn
aði á sínum tíma banka í Austur-
ríki og var þá allra manna auð-
ugastur. í kreppunni 1931 lenti
banki hans í vandræðum og tap-
aðist Rotschild þá fé.
Nokkrum árum síðar réðust
nazistar inn í Austurríki. Rots-
child var þá tekinn í gæsluvarð-
hald og var fangi Gestapo í
Metropol gistihúsinu, þar til í
maí 1939. En þá var honum sleppt
eftir að fjölskylda hans hafði
greitt lausnargjald, sem samsvar-
ar 21 millj. dollara.
★
ð Eftir að þeir hittust í Baden
Baden fyrir skömmu, Mendes
France og Adenauer, lét Aden-
auer svo um mælt að ráðstefna
Framh. á bls. 12
BeEgískir útgerðarmenn
ætluðu að láta sjómenn
greiða íslenzkar sektir
áþreifanlega. Fram til þessa hef-
ir verið litið á Togliatti, sem
„vinsælasta“ leiðtoga kommún-
ista vestan járntjalds.
Togliatti er fæddur á pálma-
sunnudag fyrir sextíu og einu ári
og heittrúaðir foreldrar hans gáfu
honum nafn eftir deginum. Hann
stundaði guðfræði og lagánám og
hóf síðan feril sinn sem sósíalisk-
ur blaðamaður. Árið 1921 tók
hann höndum saman við aðra
BELGISKIR togaraeigendur
ákváðu fyrir nokkru að lækka
kaup sjómanna á togurum um
3% og skyldi það fé sem við
þetta fengist, renna til að
greiða sektir sem lagðar eru á
togarana fyrir ólöglega veiði
innan landhelgi.
Þessi ákvörðun togaraeigend-
endanna mun einsdæmi í rétt-
arsögu. í stað þess að sjá svo
um að togarar þeirra hætti
lögbrotum við fslandsstrend-
ur virðist sem þeir hafi álitið
áframhaldandi lögbrot svo
sjálfsögð, að viss hluti kostn-
aðar og kaups sjómanna færi
til að greiða sektir.
Enda kom það í ljós, eftir því
sem Fishing New segir, að tog-
arasjómennirnir undu ekki við
þetta. 80 þeirra gerðu verkfali
í eina viku unz útgerðarmenn
létu af fyrirætlun sinni.