Morgunblaðið - 20.01.1955, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 20. jan. 1955
l
iúsmM Rvk. minnis! 20 ára Mikíi aðiókn a?
NÆSTKOMANDI þriðjudag, 25. þ. m., er Húsmæðrafélag Reykja-
víkur 20 ára. — Mun félagið minnast afmælisins n. k. mánu-
dagslcvöld með veizlufagnaði í Þjóðleikhúskjallaranum. Mun sam-
koman hefjast kl. 7 um kvöldið.
TILDRÖG AÐ STOFNUN FF.L.
Formaður Húsmæðrafél., frú
Jónína Guðmundsdóttir, ásamt
stjórn félagsins, áttd viðtal við
fréttamenn í gær viðvíkjandi af-
mælinu. Skýrði hún frá tildrag-
anda að stofnun félágsins, sem
yar sá, að er hin nýja mjólkur-
íöggjöf var sett 1935 og Mjólkur-
félag Reykjavíkur var lagt niður,
en Mjólkursamsalan tók til
starfa var lögð niður heimsend-
ing mjólkur hér í Rvík. Urðu
vegna þess ýmsir erfiðleikar á
vegi húsmæðra.
KONUR GERÐU VERKFALL
Boðuðu þá nokkrar konur til
fundar í Nýja bíói, sem varð
mjög fjölmennur, og mynduðu
með sér félagsskap. Voru á þess-
um fundi kosnar nokkrar konur
tifþess að ganga á fund Mjólkur-
sölunefndarinnar til þess að
að kippa þessu í lag. Er það tókst
ékki tóku konur sig saman um að
kaupa ekki mjólk í fimm daga.
umraða, verið saumuð milii 3'—4
þúsund' stykki þar. Er kennara-
liðið nú sem stendur: Hrönn
Hilmarsdóttir matreiðslukennari,
Jónína Guðmundsdóttir
afmæiishéfi Davíðs
Á LAUGARDAGSKVÖLDIÐ
verður glæsilegt afmælishóf er
ýmsir vinir Davíðs Stefánssonar
halda honum í Sjálfstæðishús-
inu í tilefni sextugs afmælis
skáldsins.
Aðsókn er nú þegar mjög mik-
il eftir því, sem blaðið hefur
fengið upplýsingar um frá Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
er annast sölu aðgöngumiða, en
aðgangur er opinn öllum almenn-
ingi.
Meðal þeirra, sem tilkynnt
hafa þátttöku, eru forsetahjón-
in, ráðherrar, borgarstjórinn í
Reykjavík og ýmsir sendiherrar
erlendra ríkja. — Meðal ræðu-
manna verða Bjarni Benedikts-
son, menntamálaráðherra, Stein-
grímur Þorsteinsson, prófessor og
. Þórarinn Björnsson, skólameist-
ari, en ávörp flytja: Þorsteinn
M. Jónsson, forseti bæjarstjórnar
I Akureyrar, Valur Gíslason, for-
maður Fél. ísl. leikara, Þóroddur
Guðmundsson, formaður Fél. ísl.
rithöfunda og Helgi Hjörvar,
formaður Rithöfundafélags ís-
, iands.
Þeir aðdáendur skáldsins, sem
vilja tryggja sér aðgang, ættu að
ná sér í miða í dag. Veizlugestir
munu yfirleitt verða hátíða-
klæddir.
AKUREYRI, 19. jan.
TJÓNIÐ, sem orsakast hefur af því, að Laxárvirkjunin er
óstarfhæf, er gífurlega mikið. Allur iðnaður hér í bæ hefur
að mestu stöðvazt og svo og verkstæði og önnur þau verk er að
meira og minna leyti byggjast á notkun rafvéla.
STOKKSEYRI, 14. jan. — Aðal-
fundur Sjálfstæðisfélags Stokks-
eyrarhrepps var haldinn að
Hótel Stokksevri í gærkveldi. —
Formaður var kosinn Magnús
Sigurðsson. Aðrir í stjórn voru
kjörnir: Guðjón Jónsson, Vikt-
oría Ketilsdóttir, Bjarnþór
Bjarnason og Steingrímur Jóns-
son. Rædd voru ýmis mál á fund-
inum og að honum loknum var
sameiginleg kaffidrykkja.
— M. S.
^ Hús þau, sem hituð eru með
, rafmagni, eru háif-köld og eðii-
j lega er margskonar önnur ó-
I þægindi af þessu á heimilunum,
þótt rafmagn sé að vísu á 4 klst.
fresti, fjórar stundir í senn. —.
Spennan er lág, 170—190 volt og
stundum lægri.
Gömtu olíulamparnir hafa
verið sóttir upp á háaloft og
hreinsaðir og lýsa þeir nú á
heimilum manna, mikinn
hiuta sólarhringsins, eins og
þeir gerðu í gamia daga.
©Á Kviknað hefur nú vonar-
neisti um að brátt muni ástandið
fara batnandi, því mjög hefur
dregið úr frostinu í dag og spáð
er þíðviðri.
SUMAUIIÚSNÆÐI FYRIR
I’ÁTÆKAR KONUR OG BÖRN
Þetta var fyrsta málið sem
Húsmæðrafél. Reykjavíkur hafði
með höndum. Síðan hafa þær
látið til sín taka á ýmsum svið-
um. 1936 tók félagið á leigu veiði-
mannahús tvö við Elliðaárnar til
sumardvalar fyrir fátækar kon-
ur og börn. Skömmu seinna lét
félagið byggja hús í sama augna-
miði og höfðu afnot af því fjöl-
margar konur yfir sumartímann.
Hafði félagið þá til umráða þrjú
hús, en í stríðsbyrjun missti fé-
lagið þetta hús, þar sem her-
menn tóku það til afnota. Höfðu
þarna dvalizt 87 konur með 327
börn. Um líkt leyti hætti félagið
sumarstarfsemi í Hveragerði
fyrir fullorðnar mæður.
NÁMSKEIÐ
Þá hefur félagið einnig geng-
izt fyrir námskeiðum ýmiskonar
á vetrum í mörg ár. Hafði það
til dæmis á stríðsárunum í þrjá
vetur kvöldnámskeið fyrir ungar
stúlkur tvisvar í viku. Voru nám-
skeið þessi mjög vel sótt. Kenndu
féiagskonur þar sjálfar og gáfu
vifanlega kennslu sína. Háði þó
Imsnæðisskortur kennslunni tals-
vert. Eftir þetta snérist starf-
semin inn á þá braut að hafa
námskeið fyrir húsmæður, en
eíhs og fyrr hamlaði húsnæði.
RÆTIST ÚR MÁLUNUM
1949 fékk Húsmæðrafélagið
húsnæðið Borgartún 7 til umráða
og um leið framlag frá bæjarsjóði
til styrktar starfseminni. Hefur
félagið síðan haldið á hverjum
vetri bæði matar- og saumanám-
skeið, verkleg og sýningarnám-
skeið. Hafa þau staðið yfir þrjá
daga, viku, hálfan mánuð og
múnuð. Hafa á þessum árum síð-
ad félagið fékk þetta húsnæði til
Þrjú umferðanlys
í gær
ÞRJÚ umferðarslys urðu hér í
bænum í gær, en hvergi var þó
um alvarleg meiðsli að ræða.
*Sex ára drengur, Sverrir
Kristjánsson, Smiðjustíg 4, varð
fyrir bíl fyrri hlutann í gær. Þá
víjrð Björn Líndal, Njálsgötu 25,
.íypr bíl í gærkveldi á horni
Skúlagötu og Klapparstígs.
Sjcarst hann nokkuð á höfði. Loks
var Elín Einarsdóttir, Úthlíð 6,
fyrir bíl á mótum Lönguhlíðar og
.. -Míkliíb'rautar.
Helga Finnsdóttir saumakennari
og Fanney Friðriksdóttir sauma-
kennari.
FYRSTA STJÓRN FÉLAGSINS
Meðlimir félagsins eru nú 250,
og er meðlimum alltaf að fjölga.
Var fyrsta stjórnin skipuð þess-
um konum: Guðrún Lárusdóttir,
formaður, Jónina Guðmundsdótt
ir, María Maack, Unnur Péturs-
dóttir, Eygló Gísladóttir, Guðrún
Jónasson og Ragnhildur Péturs-
dóttir.
NÚVERANDI STJÓRN
Núverandi stjórn skipa: Jónína
Guðmundsdóttir, formaður, og er
hún eina konan, sem hefur verið
í stjórn frá stofnun félagsins.
Aðrar í stjórn eru: Inga Andreas-
sen, Soffía Ólafsdóttir, Margrét
Jónsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir,
Þórdís Andrésdóttir og Þóranna
Símonardóttir.
Kom með ágætan afla eftir 10
Oaga veiðar við Austur-Grænland
H’
PATREKSFIREI, 19. jan.
INGAÐ til hefur sú skoðun ríkt að við strendur Austur-Græn-
lands sé engin veiðivon um hávetur vegna íshafsstrauma og
ísalaga. Þessari staðhæfingu hefur nú togarinn Ólafur Jóhannesson
frá Patreksfirði hnekkt, þar sem hann kom hingað í morgun eftir
10 daga veiðar með 300 lestir af fiski, mest karfa.
ENGIN STAÐAEÁKVÖRÐUN
Má telja þennan árangur von-
um framar, þar sem engin staðar-
ákvörðun er fáanleg vegna bruna
sendistöðvarinnar í Angmagssalik
síðast liðið haust, og veiðistöðin
of fjarri heimaströndum. — Hefur
áhöfn skipsins undir stjórn Krist-
jáns Péturssonar skipstjóra, sýnt
Póll Aroson skipnleggur hóp-
ierðir nllf snðnr til sikileyjor
í morz og npríl n.k.
HINN 1. marz n. k. mun Páll Arason leggja af stað með fyrsta
ferðamannahópinn á árinu, út fyrir landsteinana. Er þetta
þriðja árið, sem Páll skipuleggur hópferðir íslendinga til útlanda.
Að þessu sinni hyggst hann fara tvær slíkar ferðir, þá fyrri þriggja
vikna og hina síðari sex vikna ferð.
við erfið skilyrði, að enn eru Vest
lendingar þess umkomnir að sækja
í vesturátt sem Eiríkur rauði fyrr-
um.
FRYSTUR OG HERTUR
Fiskurinn er unninn hér bæði í
frystingu og í herzlu og mun skip-
ið sennilega fara annað kvöld til
Grænlandsmiða. Segja skipverjar
engan ís á þeim slóðum er skipið
var. Hinn Patreksfjarðartogarinn,
„Gylfi“, kom af veiðum í dag eft-
ir 8 daga útivist og var með 155
tonn, mest þorsk. Var hann á
heimamiðum.
Svo mikiil afli hefur borizt hér
á land þessa daga, að ekki hefur
hafst undan að vinna hann. í dag
var öllum skólabörnum gefið frí
til þess að vinna í fyrstihúsunum
og einnig hefur verið leitað til j
fólks í nærliggjandi sveitum um |
vdnnukraft. — Karl.
í DAG unairrituðu formaður
STEFs og útvarpsstjóri nýjan
samning milli STEFs og Ríkisút-
varpsins. Eftir hinum nýja sar.in-
ingi fær STEF sömu hundraðs-
tölu afnotagjalda og samkvæint
fyrra samningi, en vegna hækk-
unar afnotagjalda verða greiisl-
ur til STEFs fyrir flutningsvétt
mun hærri en áður.
Þá greiddi Ríkisútvarpið STEFi
einnig ákveðna upphæð fyrir
upptökuréttindi íslenzkra verka
til síðustu áramóta. Leiða sa nn-
ingar þessir til þess, að hægt
verður nú þegar að tvöfalda höf-
undalaun þau, er STEF greiddi
íslenzkum rctthöfum fyrir ára-
mót.
Að samningi þessum unnu. auk
útvarpsstjóra cg formanns STEFs
lögfræðingarnir Jóhannes Flías-
son og Sigurður Reynir Pé.urs-
son.
eo' r!
MÁLFUNDUR vcrður í kvöld
kl. 8,30 í Vonarstræti 4. — Þáít-
takendur eru beðnir að r.iæta
stundvíslega.
STYTTRIFERÐIN
í styttri ferðina verður lagt af
stað með Gullfossi 1. marz n. k.
til Kaupmannahafnar. Þaðan suð-
ur um Þýzkaland til Sviss og
síðan norður eftir um París, en
þaðan verður flogið heim aftur.
Verður höfð um fimm daga dvöl
í París.
MÆTAST í PARÍS
Um miðjan marz leggur svo
síðari hópurinn upp í 6 vikna
ferðalagið. Verður flogið beint
til Parísar, svo að hóparnir mæt-
ast þar og dvelja samtímis. Frá
París verður ferðinni haldið á-
fram um Sviss til ítalju og þar
heimsóttar helztu borgir: Milanó,
Genúa, Pisa. Gert er ráð fyrir
að komið verði til Rómar fyrstu
dagana í apríl og mun ferðafólk-
inu því gefast tækifæri til að
skoða Norðurlandasýninguna,
sem þá mun standa yfir. Dvalið
verður fjóra daga í Róm.
NAPÓLI, CAPRI,
SIKILEY
Þaðan verður haldið til Napóli
og Capri og .þ.vi næst til Palei'ino.
á Sikiley og eldfjallið Etna skoð-
að. Verður staðnæmzt á Sikiley
í nokkra daga, þannig að þeir,
sem vildu geta brugðið sér til
Norður-Afríku á meðan, það er
aðeins 10 tíma sigling frá Sikiley
til Túnis.
Á heimleiðinni verður farið
um Feneyjar, Brennerskarð,
Austurríki, Þýzkaland og Kaup-
mannahöfn.
KOSTNAÐARHLIÐIN
Ferðazt verður á hinni nýend-
urbættu langferðabifreið Páls,
sem tekur 16 manns. Ferðakostn-
aður mun verða 5400 krónur fyr-
ir manninn í styttri ferðinni og
8800 í þeirri lengri. Er þar allt
innifalið: flugferðir, fæði, uppi-
hald og annar ferðakostnaður.
í sumar mun Páll efna til hóp-
ferða um ísland eins og undan-
farin sumur og verður þess nán-
ar getið síðar.
X BEZT AÐ AUGLÝSA M
T í MORGUNBLAÐINU T
FRÆNKA CHARLEYS — Myndin hér að ofan er af þeim Ray
Bolger í hlutverki „Frænku Charleys" og Horace Cooper, sem
leikur Spettigue málafærslumann, en þeir félagar hafa undaníarin
kvöld komið bíógestum í gott skap með leik sínum í hinni vin-
sælu kvikmynd, sem Austurbæjarbíó hefir nú sýnt á aðra viku.
Aðsókn að þessari bráðskemmtilegu og sérlega fallegu kvikmynd
hefir verið geysi mikil.