Morgunblaðið - 20.01.1955, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.01.1955, Qupperneq 11
Miðvikudagur 20. jan. 1955 MORGUNBLAÐIÐ 11 2 sentimefra sjötugur ■ dag: vantaði á A INNANFELAGSMOTI IR í fyrrakvöld náði Daníel Halldórs- \ 1 son ÍR, mjög góðum árangri í j þrístökki án atrennu. Stökk hann ! 9,74 metra eða 2 sm. styttra en gildandi met Torfa Bryngeirs- sonar. — Hefur Daníel verið í stöðugri framför í stökkunum að Olafur Jónsson frá Elliiaey ÓLAFUR JÓNSSON frá Elliða- ey, eins og hann jafnan kallar sig, er sjövugur í dag. Hann er fæddur að Garðsstöðum í Ögur- hreppi í Norður-ísafjarðarsýslu, undanförnu og má mikils af hon- j ai>nn UPP a efnaheimili við Djúp, um vænta í vetur. Annar í keppninni varð Vil- hjálmur Ólafsson, sem stökk 9,40 m. Einnig hann hefur náð góð- um árangri í atrennulausum stökkum, einkum þó langstökki. Fleiri stökkmenn eru í ÍR núna og er mikill áhugi þar ríkjandi á þessum greinum, er frjáls- íþróttamennirnir búa sig undir sumarið. Á myndinni sjást þeir Iðnskólanemar er skipuðu sundsveit skól- ans er sigur bar úr býtum í boðsundi framhaldsskólanna er fram fór skömmu fyrir jólin. Með þeim á myndinni er skólastjóri Iðn- skólans, Þór Sandholt, arkitekt. Fyrirliði sveitarinnar situr hon- nm á vinstri hönd. Það er Daði Ólafsson og heldur hann á verð- laununum — keramikstyttu. Flestir liðsmanna æfa sund hjá ein- Itverju sundfélaganna. (Ljósm. Ragnar Vignir). Heimsmet í hástökki innanhúss | þar sem landbúnaður og sjávar útvegur var stundaður jöfnum höndum. Naut hann þar upp- fræðslu í betra lagi eftir þeirra tíðar hætti. Strax um fermingar- aldur byrjaði hann að stunda sjó- róðra á árabátum, og seinna á vélbátum, ýmist sem háseti eða formaður og hafði hann sjó- mennsku að aðalatvinnu fram yfir tvítugt. Ekki kveðst Ólafur hafa þekkt þann harða aga og skort, sem sumum samtíðarmönnum hans verður svo tíðrætt um. Vöndur- Gunnar Nielsen 2 sek. frá heÍMsmeti á mílunni Sigraði mefhafann Ðwyer á innanhúsmóti í Boston MEÐ GEYSISTERKUM endaspretti, sem kom mörgum áhorfand- anum úr jafnvægi, sigraði danski hlauparinn Gunnar Nielsen í míluhlaupi í innanhússkeppni í Boston. Meðal þeirra, sem Gunn- ar sigraði í þessu hlaupi var heimsmeistarinn Fred Dwyer. Tími Gunnars var 4:07,9 anhúss). aðeins 2 sekúndur frá heimsmetinu (inn- 'ic STÓR SIGUR 1 Þetta er hinn stærsti sigur fyr- ir Gunnar Nielsen, að sigra Dwyer, sem er reyndasti allra millivegalengdarhlaupara Banda- sem f upphafi héldu að þetta hlaup yrði ekki spennandi. Menn höfðu óttast að hinn þykki tóbaksreykur frá áhorf- endum í húsinu myndi draga úr getu hins óreynda Dana. En það var hins vegar Bandaríkjamað- urinn, sem þoldi ekki reykinn. Var það sýnilegt, er hann hóf síðasta hringinn — en einmitt þá hóf Gunnar sinn geysilega enda- sprett. Er Dwyer hafði hlaupið yfir endamarkið hneig hann niður og var borinn til búningsher- bergja á sjúkrabörum, þar sem læknir beið hans. Náði hann sér fljótlega. Bandarísk blöð láta í ljósi undrun sína yfir þessu afreki Gunnars, sem þau telja einstætt vera, ef tillit er til þess tekið að þetta sé fyrsta hlaup hans á innanhúsbraut. Þau rekja hve margir af stórhlaupurum Evrópu hafa í fyrstu verið óheppnir á innanhúsbrautum í Bandaríkjun- um. Segja sum blöðin, að eng- inn annar íþróttamaður er kom- ið hafi sem gestur til Bandaríkj- anna hafi undirbúið sig svo vel sém Gunnar Nielsen. Hann hafi reynt eftir mætti að venjast tré- brautum og tóbaksreyk. ríkjanna. Þetta var fyrsta keppni Gunnars vestra, en þar er hlaupið á trégólfi og lofar þessi fyrsti sigur hans góðu um áframhald. HLAUFIÐ Dwyer hafði forystuna lengst af og ekki leit út fyrir annað en að hann myndi hlaupa alla keppinauta sína af sér og jafnvel bæta heimsmetið 4:05,3 mín. % úr mílu hljóp Dwyer á 3:03,2 og var þá langt á undan Gunnari. En stuttu síðar jók Gunnar hrað- ann og dró Dwyer uppi og kom um 5 m á undan í mark, við geysileg fagnaðarlæti áhorfenda, BOSTON — A sama íþróttamóti og Gunnar Nielsen vann sinn frækilega sigur í míluhlaupi, setti bandarískur hermaður, Herman Wyatt, nýtt heimsmet í hástökki innanhúss. Stökk hann 2,07 m. Eldra metið var 2,06 m. og átti það Ken Weisner. Ítalía sigraði Belgíu BARI, ftalíu: — Á sunnudaginn fór fram landsleikur í knatt- spyrnu milli ítaliu og Belgíu. Fóru leikar svo að Ítalía sigraði með 1 marki gegn engu. Úrslitin eru í kvöld í KVÖLD eru úrslit „Hverfa- keppninnar“ í handknattleik. Leika fyrst í kvennaflokki „Vest- urbær“ og „Austurbær“ — en bæði liðin hafa tvö stig og slær því til harðrar úrslitabaráttu. | í karlaflokki leika til úrslita I „Vesturbær" og „Austurbær" og I auk þess leika „Kleppsholt" og í „Hlíðar“. Er keppni karla afar- hörð. „Vesturbæ" nægir jafntefli til sigurs í keppninni, en bæði „Austurbær" og „Kleppsholt“ geta sigrað í keppninni ef „Vest- urbær“ ekki vinnur lið „Austur- bæjar“. K\ef-influenza og inislingar BÆ, Höfðaströnd, 18. jan.: - Undanfarið hafa verið hér hörð frost, en lítið hefur sett niður snjó. Hefur frostið verið dag hvern 12—17 gráður. Um héraðið er yfirleitt all- greiðfært á hlnðnum vegum, og er bílfært að Tjörnesi í Sléttu- hlíð. Bátar hafa róið, og aflað mjög sæmilega, er þeir þurfa að sækja langt út. Heilsufar í héraðinu hefur verið afar slæmt undanfarið, en slæmt kvef geisar eða jafn vel inflúenza. Þá hafa misl- ingar látið nokkuð á sér bera. Er læknirinn Guðmundur Helgi Þórðarson, stöðugt á ferðinni að heita má nótt sem dag, enda er sjúkleiki til jafn- aðar á öðrum hvorum bæ. Allir þeir sem á Hofsósi búa og í Haganesvík og geta farið suður í atvinnuleit, hafa verið að tínast suður undanfarið og standa hús þeirra auð, með hlerum fyrir gluggum. —B. Flugvél fers! við Hýfundnaland VORNAR BROOK, Nýfundna- landi, 17. jan. — Fjögra hreyfla Constellation flutningaflugvél, eign bandaríska flotans, hrapaði í dag í hafið suðvestur af Ný- fundnalandi. Með flugvélinni voru 13 manns. Leitarflugvélar hafa sveimað yf- ir staðnum þar sem slysið varð, en ekki orðið vart við neitt lífs- mark. Er talið að allir hafi far- izt. Flugvélin var á leið frá Harm- an-flugvelli á Nýfundnalandi til Bandaríkjanna. — Flugstjórinn skýrði frá því í útvarpi eftir tveggja tíma flug, að hreyflar vélarinnar hefðu stöðvazt. Síð- an heyrðist ei meira frá honum. Á sjónum hafa sést gulir gúmmíbátar, en engir lifandi í þeim. — Reuter. inn var ekki til á hans heimili, enda áleit faðir hans slíka upp- eldisaðferð fjarstæðu. í frjálsum leikjum höfðu hin sjö systkini ærið svigrúm, og var lítt fengist um þó þau yrðu stundum nokkuð ærslafengin. Heimilið var stórt, um 20 manns í heimili. Eftir tvitugsaldurinn varð Ól- afur að leggja sjómennskuna á hilluna vegna heilsubrests og fór þá á Vífilsstaðahæli. Kveðst Ól- afur þá er hann kom út af hæl- inu hafa verið mjög hugsandi um hvað fyrir sig skyldi leggja, því atvinnumöguleikar voru fá- breyttari en nú. En svo var það veturinn '1911 að hann las bók, sem varð þess valdandi að hann gerðist Breiðfirðingur. Þessa bók hafði Einar bróðir hans komið með frá Kaupmannahöfn og hét hún Mennesker og Dyr, eftir þýzka dýragarðseigandann Karl Hagenback. Loðskinn hafa lengi verið verzlunarvara og hér á ís- landi aðallega refaskinnin. Fóru þau fremur hækkandi í verði um þessar mundir. Taldi Ólafur, að eins og dýr ykju kyn sitt í dýra- görðum myndu þau engu síður auka kyn sitt, ef þau gengju frjáls í eyjum. Kom honum því til hugar að þarna væri vænleg- ur atvinnuvegur. Til að fram- kvæma þessa hugmynd sína keypti hann ásamt Jóni Auðunni bróður sínum, þá bankastjóra á ísafirði, jörðina Elliðaey á Breiðafirði. Kveðst hann þakka látinni heiðurskonu, frú Jarð- þrúði Jónsdóttur, konu Hannes- ar próf. Þorsteinssonar, að sú jörð var föl, en hún átti hálfa jörðina móti frænku sinni, Þóru, I dóttur Péturs biskups. ! Fluttist Ólafur þá til Breiða- fjarðar og gjörðist bóndi á nefndri jörð og rak þar umfangs- mikið refabú, sem kunnugt __ er ; um fjórtán ára skeið. Refaræktin reyndist Ólafi bæði tap og gróði eins og svo mörgum, sem þann búskap reyndu. Sá atvinnuvegur gaf að vísu arð um 10 ára bil, en svo var það búið. Á þeim árum. hafði Ólafur viðskipti við marga úti um byggðir landsins og fór margar ferðir í þeim verzlunar- erindum. Þekkir hann marga frá þeim ferðum. Ýmis opinber störf hafa Ólafi verið falin, en þau verða ekki talin hér. Hann var eitt ár í Flensborgarskóla og tók þaðan. burtfararpróf. Víðlesinn og fróð- ur um fornar sögur er Ólafur og hefur yndi af mörgum íslend- ingasögunum. Ólafur kvæntist árið 1920, Theódóru Daðadóttur frá Dröng- um á Skagaströnd, mætustu og myndarlegustu konu. Eiga þau einn son uppkominn. Theódóra hefur um mörg ár átt við mikla sjúkdóma að stríða og er það að- dáunarvert hversu kjarkur henn- ar og þrek hefur aldrei bugast, heldur vaxið í hverri þraut. Ólafur las kornungur verald- arsögu Páls Melsted. Oft dáist hann að setningunni frægu yfir hofinu í Delfi: Ekkert um of. Tel ég sem nákunnugur Ólaíi, að líf hans hafi í mörgu mótast af þessari setningu. Enda kveður hann nú sjötugur: Engu get ég af mig stært er mín fábreytt saga - meðalhófið mér er kært mun svo alla daga. En ég get ekki lokið svo þess- ari afmælisgrein, að ég minnist ekki sterkasta þáttarins í lífi Ólafs, en það er drengskapurinn og einlægnin. Það er ofið svo inn. í hans dagfar, að hver maður finn. ur það ósjálfrátt. Gleði hans og ræðni hefur mörgum lyft frá drunga hversdagsstritsins. Ég óska honum allrar blessun- ar á ófarinni æfibraut. Árni Helgason. o—♦—° Á KÖLDUM haustdegi árið 1951 gekk ég sem oftar niður stiginn frá skólanum í Stykkishólmi, ný- kominn í staðinn, kunnugur fá- um. Allt í einu gengur í veg fyrir mig maður, hvatlegur í spori, en þó sérkennilegur nokkuð og ávarpar mig umsvifalaust þessum orðum: Komdu sæll og velkom- inn, ég heiti Ólafur Jónsson. — Engar tókust orðræður milli okkar þarna á götunni, því að maðurinn var að flýta sér. Samt skýrði hann mér frá, að hann myndi heimsækja mig innan skamms, langaði til að ræða við mig bókmenntir, þjóðlegan fróð- leik og sögu. Hann var horfinn sjónum áður en ég fengi ráðrúm til að kveðja. En kunningja minn einn spurði ég síðar þennan dag, hvað manna þessi Ólafur Jóns- son væri. Hann bætti við nafn hans orðunum: frá Elliðaey, og vissi ég þá þegar nokkur deili á manninum. Mér hefur oft þótt sem í bess- um fyrsta fundi okkar Ólafs krystölluðust þeir eiginleikar, sem mest eru áberandi í fari hans: einlægnin, áhuginn, hisp- ursleysið; sá dásamlegi eiginleiki að tvínóna aldrei yfir verki, sem krafðist framkvæmdar, erifidi, sem krafðist orða. Oft höfum við Ólafur hitzt, siðan þennan dag. Marga vísuna hefur hann lesið mér, margan fróðleik sagt mér. Hann er einn þeirra manna, sem ég tel mér mestan ávinning af, að hafa orðið samferða á þessari okkar jarðreisu, sérkennilegur og mikill persónuleiki og það sem meira er um vert: góður maður. Það færist því honum til skuld- ar eða tekna, að mér hefur ekki enn tekizt að gleyma einum köldum haustdegi árið 1951. Ó. H. Á. NEW YORK: — Gloría Vander- bilt, 30 ára gömul, sem nefnd hefur verið „vesalings litla ríka stúlkan“, er skilin við eiginmann sinn, hinn heimskunna hljóm- sveitarstjóra, Leopold Stokowski, 67 ára gamlan. Þau giftust 1945. Hún er þriðja kona hans, en hann annar maður hennar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.