Morgunblaðið - 27.01.1955, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. jan. 1955
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanland3.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
Hergn ýr á Gula hafi
BORG ARAST YR J ÖLDINNI
miklu í Kína er langt frá því lok-
ið enn. Mao Tse-tung og komm-
únistar hans hafa sem kunnugt
er náð á sitt vald öllu megin-
lands-Kína og stóru eynni Hain-
an, suður undir Indó-Kína, en
Þjóðernissinnar ráða enn yfir
eynni Formósa, Fiskimannaeyj-
um og hundruðum smáeyja, sem
liggja meðfram allri Suður Kína-
strönd mjög skammt undan landi.
Meðal þessara smáeyja, sem
Þjóðernissinnar ráða enn, er hið
öfluga virki Quemoy, sem er að-
eins 5 km frá ströndinni í hafnar-
mynni Amoy-borgar. Er þar að
finna samskonar rifu í járntjald
kínverskra kommúnista og Berlín
arborg hefur verið í járntjald
Austur-Evrópu kommúnista. —
Þangað sækir mikill fjöldi flótta-
fólks, sem flýr ógnir hinnar
kommúnísku herstjórnar. Og það
hefur verið kínverskum komm-
únistum mikill þyrnir í augum
að vitneskja er um það á megin-
landi Kína að lífskjör fólks á
Quemoy-eyju eru miklum mun
betri en undir stjórn kommún-
ista. Enn ber að nefna það, að
fréttir Peking-útvarpsins bera
það með sér að enn séu allöflugir
skæruliðaflokkar Þjóðernissinna
á ferli í nokkrum héruðum, þó að
þeim verði baráttan að sjálfsögðu
stöðugt erfiðari.
Það er ekkert vafamál að
Þjóðernissinnar halda eylendum
sínum enn fyrir þá sök eina að
þeir hafa ráðið yfir tiltölulega
öflugum herskipaflota, sem
kommúnistar hafa ekki. — Með
honum hafa þeir verið alráðir á
hafinu. Að þessu leyti hafa þeir
í bækistöðvum sínum á Formósa
haft líka aðstöðu og Bretar í síð-
ustu heimsstyrjöld og eins hafa
þeir vonað að sá dagur kæmi að
þeir gætu snúið vörn í sókn yfir
sundið.
En nú fyrir nokkru gerðist sá
atburður, að kommúnistar gerðu
út dálítinn innrásarflota til Tac-
hen-eyjaklasans, og tóku þar
eina smáeyju, en þetta eru nyrztu
eyjarnar, sem Þjóðernissinnar
ráða yfir. Sennilegt virðist af
fréttum, að Þjóðernissinnar hefðu
getað brotið þessa landgöngutil-
raun á bak aftur, ef ekki hefði
komið nýtt atriði í leikinn. Það
kom sem sé í ljós, að kommún-
istarnir réðu yfir urmul af hrað-
fleygum nýtízku þrýstiloftsflug-
vélum, bæði orustuflugvélum og
sprengj uf lug vélum.
Tilkoma þessara nýtízku,
stórvirku urápstækja, gerir
alvarlegt strik í reikninginn.
Flugvélar þessar eru allar
smíðaðar í Rússlandi og má
segja að það eitt, að Rússar
afhenda kínverskum kommún
istum slík hergögn í stórum
stíl, sé alvarleg íhlutun í kín-
versku borgarastyrjöldina. —
Með því einu valda Rússar
hættu í Asíu, sem ekki v^rður
ýkt.
Þjóðernissinnar hafa ekki
þrýstiloftsflugsveitir, sem geti
mætt þessari nýju hættu og
er það nú álit hernaðarfræð-
inga, að eftir þetta sé þýðing-
arlaust fyrir Þjóðernissinna
að ætla sér að halda smáeyj-
unum við ströndina.
Þeir hafa nú þegar ákveðið að
yfirgefa Tachen-eyjarnar og hafa
þeir fengið aðstoð bandarískra
skipa til að flytja herlið og íbúa
á brott þaðan. Er það í sjálfu sér
enginn stórviðburður, þótt þeir
láta lausar nokkrar af smáeyjum
þessum. Þær eru dreifðar með-
fram 2000 km strandlengju og
því ákaflega óhægar til varnar.
Bandaríkjamenn hafa ekki far-
ið dult með það, að þeir láta sig
þessa atburði í Kína, miklu máli
skipta, eftir að átökin fóru að
snerta eyjarnar. Enda er þess
skemmst að minnast að Banda-
ríkin urðu að heyja harða
styrjöld um gervallt Kyrrahaf til
að bægja ófriðarhættu frá dyrum
sínum.
Sérstaklega tóku Bandarík-
in að veita þessum málum
nákvæma eftirtekt síðan út-
þenslu- og ofbeldisstefna kín-
verskra kommúnista varð lýð-
um ljós, í Kóreustyrjöldinni
og fleiri athöfnum þeirra. —
Hafa forustumenn þeirra síð-
an lýst því itrekað yfir, að
þeir muni ekki sitja hjá að-
gerðalausir, ef kommúnistar
geri tilraunir til að ráðast á
Formósu. Þessi afstaða Banda-
ríkjamanna er byggð á því
sjónarmiði, að hér sé um að
ræða öryggismál allra þjóða
Austur-Asíu, Ástralíu og
Kyrrahafssvæðisins og um
leið sé þetta alheimsvandamál,
þar sem ásókn kínverskra
kommúnista er aðeins einn lið
urinn í heimsveldisstefnu
kommúnismans.
Það er kunnugt úr heimsfrétt-
unum, að á stundum þegar kín-
verskir kommúnistar hafa verið
framhleypnastir eða sært sið-
ferðisvitund umheimsins með
villimannlegum aðgerðum, hafa
heyrzt háværar raddir í Banda-
ríkjunum um að grípa verði í
taumana. Er þess t.d. skammt að
minnast að Knowland, öldunga-
deildarþingmaður, krafðist þess
að hervaldi yrði beitt til að knýja
fram iausn flugmannanna ellefu,
sem réttarglæpur var framinn á.
Hin ábyrga ríkisstjórn Banda-
ríkjanna hefur hins vegar jafnan
verið hófsamari í aðgerðum sín-
um eins og sást bezt af því að
hún setti ekki hafnbann á Kína,
á sama tíma og yfirgangur
kommúnistanna var þó mestur í
Kóreustyrjöldinni.
Það hefur verið nokkuð ó-
ljóst á undanförnum árum hve
langt Bandaríkjamenn munu
ganga í ákvörðun sinni um að
stöðva útþenslu kommúnista á
þessu svæði. En í byrjun þess-
arar viku hafa þeir loks kveð-
ið upp úr með það, að vernd
þeirra mun ná til Formósu og
Fiskimannaeyja. Þessi ákvörð-
un sýnir enn að sú stefna er
enn ráðandi í Washington að
fara hóflega í málið. Það er
ekki ætlun Bandarikjamanna
að stofna að fyrra bragði til
árekstra. En það er kostur að
stefna þeirra liggur nú ljós
fyrir í öllum meginatriðum.
Iðnaðarmannafélðg
Akureyrar 50 ára
Indriði Helgason
heiðraðnr
AKUREYRI, 25. jan. — Laugar-
daginn 22. þ. m. minntist Iðnað-
armannafélag Akureyrar 60 ára
afmælis félagsins með hófi að
Hótel KEA. Ræður fluttu for-
maður félagsins, Karl Einarsson,
f" rakt.i sógu félqgsins eg skýrði
frá hverjir hefðu verið hvata-
. menn að stofnun þess.
I Jóhann Frímann mælti fvrir
minni Akureyrar og Albert
Sölvason fyrir minni fósturjarð-
arinnar. Aðrir ræðumenn voru:
: Jónas Rafnar, alþm, Indriði
! Helgason, Kristján S. Sigurðsson
og Jón Sigurgeirsson.
Þá var Indriði Helgason gerð-
ur heiðursfélagi og honum af-
hent skrautritað ávarp. Indriði
var í fjölda ára formaður féiags-
ins, og hefur setið á 16 þingum
Landssambands iðnaðarmanna,
eða allt frá stofnun þess. Þá hef-
ur hann átt sæti í skólanefnd
Iðnaðarmannafélagsins og verið
formaður þess í mörg ár.
Hófið fór fram með miklum
myndarbrag. — H. Vald.
100 millj. franka
fi líknarstarfa
PARlS, 26. jan.: — Franska
stjórnin hefur hafizt handa um
ýmsar ráðstafanir til hjálpar bág-
stöddu fólki, er beðið hefur tjón
af völdum hinna geysi miklu flóða,
er hafa hrjáð Frakkland undan-
farið. M. a. verður um 100 milljón-
um franka varið til líknarstarfa.
Flóðin fara nú óðum sjatnandi alls
staðar í Frakklandi nema í ná-
grenni Rhone-fljótsins.
Stefán Kristjánsson í svigkeppni
Fyrsta skíðamót ársins
um næstu heSgi
FYRSTA skíðamót vetrarins fer
fram um næstu helgi, ef veður
og aðstæður leyfa. Er það hið
svonefnda „Stefánsmót" og fer
það fram við Skíðaskálann í
Hveradölum.
Á mótinu verður keppt í svigi
11 fyrir rétti
LONDON, 26. jan.: — Ellefu
mönnum var stefnt fyrir rétt í
dag í London og ákærðir fyrir þátt
töku í óeirðum þeim, er áttu sér
stað fyrir utan þinghúsið í gær-
kveldi. Múgurinn mótmælti endur-
hervæðingu V.-Þýzkalands. Tveir
mannanna voru sektaðir, aðrir
tveir sýknaðir. Hinir voru látnir
lausir gegn ábyrgð. Brezka friðar-
nefndin stóð fyrir óeirðum þess-
um. Nefndin er félagsskapur
kommúnista.
Vefud andi óhripar:
Heyrt á hárgreiðslustofu
RÍTUG móðir skrifar eftirfar-
andi:
j „Er ég sat á hárgreiðslustofu
um daginn, var ég rækilega
minnt á, hversu kjarnyrt íslenzk-
an getur verið. Þar var fyrir önn-
ur kona, sem vissi kynstrin öll
um náungann — og helzt það,
Isem miður fór. Notaði hún mikið
af blótsyrðum frásögn sinni til
áherzlu. Það kom einnig í ljós, að
, hún var húsmóðir og móðir. Kona
þessi leit vel út, sennilega eitt-
hvað yfir þrítugt.
Er hægt að búast við
því betra?
MUNNSÖFNUÐUR konunnar
vakti mig til úmhugsunar —.
ég fór að hugsa um hvernig
munnsöfnuður nútímabarna er —
og af hverju, og hvernig blöskrazt
er yfir uppeldisleysi þeirra,
Þá skaut þessi spurning upp
kollinum: Er hægt að búast við
öðru af þeirri kynslóð, sem við
erum að ala upp? Ekkert barn
virðir foreldri, sem sýnir óvirðu-
leik og stráksskap í framkomu á
einn eða annan hátt og það hlýð-
ir því þar af leiðandi ekki. Meira
að segja ómálga barn getur skilið
tón og fas foreldranna.
Með uppeldi barna er hægt að
hafa áhrif á framtíð þjóða, góð
eða ill eftir því, hversu til er
stofnað.
| Foreldrar, lítið í eigin barm,
hversu er uppeldi barna yðar hátt
að, hvað hafið þið fyrir þeim
sjálf? — Þrítug móðir“.
Mikilvæg staðreynd.
i ijIN unga móðir vekur hér máls
H
á efni, sem margt og mikið
! hefir verið um fjallað fyrr og
siðar. Margir vitrir menn hafa í
ræðu og riti leitt almenningi það
fyrir sjónir, að í hverju þjóðfé-
lagi, þá er það heimilið, sem er
undirstaðan. Þetta liggur raunar
svo í augum uppi, að merkilegt
er, hve margir láta sér sæma að
líta algerlega fram hjá þessari
mikilvægu staðreynd. Það er
ánægjulegt að heyra þessa rödd
frá ungu konunni, bréfritara mín-
um. Henni er sýnilega ljóst,
hvaða þýðingu fordæmi foreldr-
anna hefir fyrir börnin þeirra,
heimilið — og þjóðfélagið. —
Foreidrar, sem sláið barnið ykk-
ar á munninn fyrir ljótt orð, sem
því varð á að segja, orð, sem það
hafði heyrt sjálfan pabba eða
mömmu segja í gær eða í dag,
eða rétt áðan — gerið þið ykkur
samt von um góðan árangur af
uppeidisaðferðum ykkar?
HI
Jarðarfarir og útvarpið.
VERNIG stendur á því —
spyr K. K. — að kirkjuat-
hafnir við útfarir, sem útvarpað
er eru aldrei kynntar fyrirfram?
Hlustendur vildu mjög gjarnan
fá að vita, hvern er verið að jarð-
syngja í það og það skiptið. Ef til
vill er það einhver, sem ég eða
þú hefir þekkt til, ef til vill ekki.
En hvað um það, hví má ekki
kynna jarðarfarirnar eins og
hvert annað útvarpsefni? Ég á
ekki við, að þær séu auglýstar
fyrirfram í hinum föstu dagskrár-
auglýsingum, heldur um leið og
þær hefjast, hverju sinni. Vildi
ekki Ríkisútvarpið taka þessa at-
hugasemd til vinsamlegrar athug-
unar eða eru einhverjar sérstak-
ar ástæður fyrir því, að þessi
háttur er hér hafður á? — K.K.“
Enginn er garð
ur án illgresis.
— öllum flokkum karla og
kvenna.
Meðal keppenda í A-flokki
karla má nefna Ármenningana
Ásgeir Eyjólfsson og Stefán
Kristjánsson, ÍR-ingana Eystein
Þórðarson, Guðna Sigfússon og
Þórarinn Gunnarsson, og Magnús
Guðmundsson KR. Af þeim er
hér hafa verið upp taldir eru þrír
núverandi íslandsmeistarar í ein-
hverri grein skíðaíþróttarinnar.
í öðrum flokkum er og búist við
mikilii þátttöku.
BrunaJrygs ignar í
Vík lækka að mun
HREPPSNEFND Hvammshrepps
í Vestur-Skaftafellssýslu hefur
fyrir nokkru gert samning við
Samvinnutryggingar um bruna-
tryggingar á öllum húsum í Vík í
Mýrdal, og lækka allar húsatrygg
ingar í Vík um 40%, þegar samn-
ingurinn gengur í gildi 15. okt.
1955. Er Víkurkauptún þar með
örðið fyrsta kauptúnið eða kaup-
staður á íslandi, sem notfærir
sér heimild laganna, sem sett
voru á síðastliðnu ári þess efnis
að sveitaríélög utan Reykjavík-
ur mættu semja við hvaða aðila,
sem þeim þóknast, um bruna-
tryggingar.
Jafnframt var samið um bruna
tryggingar húsa í Hvammshreppi,
sem eru utan kauptúnsins, og
fengu þau öll 16—25% lækkun,
enda voru tryggingariðgjöld í
sveitum miklu lægri en í kaup-
túnum, og ríkti í þeim efnum
óeðlilegt ósamræmi, þar sem
brunavarnir í sveitum eru engar,
en slökkvitæki til í flestum eða
öllum kauptúnum og kaupstöð-
um.
UndtrbúniRgsnám-
skelð fyrir Norræna
sumarháskólann
NÁMSKEIÐ til undirbúnings
þátttöku í Norræna Sumarhá-
skólanum, er haldinn verður að
þessu sinni að Ási í Noregi, hefst
í byrjun febrúar n.k. Námskeið
þetta er að venju ætlað jafnt
stúdentum sem kandidötum, og
verður því hagað með svipuðu
sniði og gert verður í öðrum há-
skólabæjum á Norðurlöndum.
Þeir, sem kynnu að óska eftir
þátttöku í námskeiðinu, eru
beðnir að snúa sér fyrir 1. febr.
n. k. til Ólafs Björnssonar, pró-
fessors, eða Sveins Ásgeirssonar,
hagfræðings, sem gefa allar nán-
ari upplýsingar.
Þátttakendur í undirbúnings-
námskeiðinu sitja fyrir um styrki
sem fást kynnu til dvalar á Sum-
arháskólanum. ,