Morgunblaðið - 27.01.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.01.1955, Blaðsíða 16
► f I ► i I t r F \ r A að „hreinsa" lisfírælinií MIKILL kurr mun hafa komið upp í herbúðum kommún- ista að Þórsgötu 1, þegar uppvíst varð um hin alvar- legu „föðurlandssvik“ listfræðingsins Björns Th. Björnsson- ar, er hann „gerðist sekur“ um að kynna bandarískum mönn- um á Keflavíkur-flugvelli söfn hér í Reykjavík. Er litið mjög alvarlegum augum á þetta atferli listfræð- ingsins og herma lausafregnir að mikil og stöðug fundahöld hafi verið í gær í „fiokknum“ Má búast við því að hinum seka hafi þegar verið formiega vikið úr „Æskuiýðsfylking- unni“, „Andspyrnufylkingunni“ (Gegn herílandi) og „Frið- arfylkingunni“. En fregnir hafa ekki borizt um hvort flokk- urinn heimilaði honum áframhaldandi setu í útvarpsráði. Þrenn fjölbýlishítsahverfi : vom skipulögð og fjallað um bæjarráðhús og þurrkví SKRIFSTOFA bæjarverkfræð- fræðings hefur látið gera ítar- lega ársskýrslu um hinar fjöl- naörgu starfsgreinar í almennings þágu, sem þar hafa sameiginleg- ar skrifstofur. Meðal þeirra deilda, sem heyra undir bæjar- Verkfræðingsstofnuniná eru allar Kiælingar og kortagerð, skipulag bæjarins, gatna- og holræsagerð, Áhaldahús bæjarins o. fl. í skýrslunni gerir skipulags- deildin grein fyrir störfum sínum á sviði skipulagsgerðar og segir þar m. a. svo: Tillögur, ekki endanlegar, voru gerðar að skipulagi gatna við Rauðarárvík, milli Sigtúns og sjávar. Skipulag sunnan Miklubrautar og austan Stakkahlíðar, var sam- þykkt og tekið til bygginga að nokkru leyti. Um skipulag fyrir íbúðir aust- an Sjómannaskólans voru tillög- ur gerðar, en svæðið var ekki til- búið til bygginga strax, og því ekki gengið endanlega frá skipu- laginu, né tekin ákvörðun um svæðið. Breytt var skipulagi fyrirhug- aðra fjölbýlishúsa milli Eskihlíð- ar og Reykjanesbrautar. Þá var skipulag milli Hofsvalla götu og Kaplaskjólsvegar fyrir fjölbýlishus og staðsetning sund- laugar Vesturbæjar samþykkt. Skipulag fyrir íbúðir við Gran- skjól norðanvert var og sam- þykkt. Skipulagt var svæði fjölbýlis- húsa milli Fjallhaga og Hjarðar- haga og það samþykkt og tekið til bygginga. Um skipulag við Vatnagarða voru tillögur gerðar að legu gatna, í námunda við væntanlega ]»urrkví þar. — Ekki var gengið endanlega frá svæðinu, m. a. af þcim sökum að beðið var áætlana og ákvarðana um rýmisþörf þurr- kvíar o. fl. Gerðar voru all ýtarlegar til- lögur að skipulagi og lagfæring- nm gatna í Þingholtum og þær tillögur sendar bæjarráði til um- sagnar. Fjallað var um skipulag íbúða- hverfis á Gufunesi, í nánd við áburðarverksmiðj una. Skipulagt var hverfi sam- byggðra íbúðarhúsa við Bústaðar veg og Réttarholtsveg er sam- þykkt var í aðal atriðum og bygg ingar húsa hafnar. Að skipulagi svæðisins kring um Hálogaland frá Voga-byggð norður um Laugardal voru marg ar tillögur gerðar. Voru tvær þeirra samþykktar í samvinnu- nefndinni og síðan sendar bæjar- ráði. Skipulagsbreytingar á suður- hiuta Miðbæjarins voru gerðar’. Einnig gerðar tillögur að stað- setningu ráðhúss, og torgi milli þess og Lækjargötu o. fl. Tillög- urnar voru sendar bæjarráði. Fjallað var um breytingar á skipulagi verzlunarhverfis við Haga. Endanleg ákvörðun var ekki tekin. Skipulag austan Elliðaáa var tekið fyrir en ekki lokið. Skipulag sunnan Háskólalóðar fyrir íbúðahverfi var samþykkt í samvinnunefndinni og sent bæj- arráði. Þjóðlelhhúsið fær höqgmyná af Kamban Á SÍÐASTLIÐNU sumri tjáði Einar Jónsson, myndhöggvari, þjóðleikhússtjóra, að hann hefði í hyggju að gefa Þjóðleikhúsinu höggmynd af Guðmundi Kamb- an, sem hann hafði þá nýlokið við. Styttu þessari hefur verið val- inn staður í kristalssal hússins og var hún afhjúpuð þar fyrir skömmu. FORMAÐUR f járöflunarnefndar Barnaspítalasjóðs Hringsins, frú Herdís Ásgeirsdóttir, Hávalla- götu 9, hefir skýrt blaðinu frá vinargjöf, sem sjóðnum hefir borizt. Bandarísk kona, frú Stanford, sem gift er G. A. Stanford, starfs- manni bandaríska sendiráðsins hér, hefir afhent sjóðnum gjöf í nafni barna sinna tveggja, Gail og Peddy,- sem hafa verið bæði heilbrigð og hamingjusöm hér, eins og segir í bréfi, er fylgdi gjöfinni, en hún var strangi af lérefti, sem nota skal til þess að sauma úr fyrir barnaspítalann. Sýnir þessi vinargjöf greini- legan hlýhug til sjóðsins, sem vert er að þakka og minnast. Sljómmála- námskeiðið Þessi mynd var tekin af Reykjavíkurhöfn í gær, þar sem öll strandferðaskip Skipaútgerðar ríkisins liggja bundin við „Sprengisand“. Einnig sést frystiskipið „Vatnajökull“ á myndinni. Þá'liggja og þrír „Fossar“ Eimskipafélagsins í höfninni. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M, Norðan sférviðri við fsafjarðardjúp ÞÚFUM, 26. jan.: — Undanfarna daga hefir stórviðri af norð- austri verið hér með nokkurri snjókomu, einkum norðan Djúps- ins, en lítið frost. Ferðir Djúpbatsins hafa tafist af þeim sökum. Var hann veður- tepptur á Flateyri í gær. DANARFREGN Nýlega er látin Elísabet Sófus- dóttir, er lengi dvaldi á Hamri, eftir margra ára vanheilsu. Tvö ný íeikrif í Mennmgarsjóðs NÝLEGA eru komin út tvö ný hefti í leikritasafni Menningar- sjóðs. Eru það „Ævintýri á göngu för“ eftir Jens Christian Hostrup og „Æðikollurinn“ eftir Ludvig Holberg. Bæði þessi leikrit hafa hlotið miklar vinsældir hér á landi. — „Ævintýrið“ er hér í þýðingu Jónasar Jónassonar frá Hrafna- gili með breytingum eftir Lárus Sigurbjörnsson og Tómas Guð- mundsson. Leikritið er valið til útgáfunnar af Bandalagi ísl. leik- félaga og gefið út með stuðningi þess. „Æðikollurinn“ er í þýðingu Jakobs Benediktssonar. Leikritið er valið af þjóðleikhússtjóra og bókmenntaráðunaut Þjóðleik- hússins og gefið út með stuðningi þess. U N D U R verður í kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu (uppi). Þátttakendur eru beðnir að mæta , stundvíslega. Athugið breyttan' fundarstað. I Körluknaliielhs- æfingur kvennu KÖRFUKNATTLEIKUR á mikl- um vinsældum að fagna meðal æskufólks. Stunda nú mörg félög æfingar í þeirri grein. Þessi íþrótt er engu síður fyrir konur en karla, en nú mun að- eins eitt iþróttafélag hér í bæn- um — íþróttafélag Reykjavíkur halda uppi æfingum í körfuknatt leik fyrir konur. Vill félagið hvetja stúlkur til að leggja stund á þessa skemmtilegu íþrótt. .— Æfing er í kvöld að Hálogalandi klukkan 9,20. ■ r r kanadískum fræðslumyndum G. Eyford hár á vegum kanadíska kvikmyndaráðsins UNDANFARINN hálfan mánuð hefur dvalið hér á landi ungur Vestur-íslendingur að nafni G. Eyford, sem undanfarna 6 mánuði hefur ferðazt um Evrópu á vegum Kvikmyndaráðs Kanada (National Film board of Canada), sem hlotið hefur heimsviður- kenningu fyrir starfsemi sína við framleiðslu fræðslukvikmynda. Aðalfundur Fyjkls 'ii Vi ÍSAFIRÐI, 22. janúar. — Aðal- fundur „Fylkis“, félags ungra Sjálfstæðismanna á ísafirði var haldinn að Uppsölum í gærkvöldi Formaður félagsins, Jón Páll Halldórsson, flutti skýrslu stjórn- arinnar og gerði grein fyrir starfsemi félagsins á liðnu starfs ári, en gjaldkerinn, Ólafur Þórð- arson, las upp endurskoðaða reikninga félagsins. Fráfarandi stjórn félagsins baðst eindregið undan endur- kosningu og var Guðfinnur Magnússon k.osinn formaður, en aðrir í stjórn: Steindór Þórisson, Valdimar Jónsson, Jón Karl Sig- urðsson og Sigurður Th. Ingvars- son. í varastjórn voru kosnir Richard Sigurbaldursson, Viðar Fljartarson og Guðbjörn Charles. Að loknum aðalfundarstörfum hófust fjörugar umræður um fé- lagsmál, en síðan ræddi Matthías Bjarnason bæjarfulltrúi um raf- veitumál. Á fundinum gengu 30 nýir félagar í Fylki. — Jón. Landlega á Slokks- eyri STOKKSEYRI, 24. jan,— Stöðugt brim og ógæftir hafa verið hér síðastliðna viku og hefir verið algjör landlega hjá bátunum. — Stöðug suð-vestur og sunnan átt hefur verið hér en sú átt heldur venjulega briminu við. Snjólétt er í Árnessýslu, og má fara keðjulaust um allar sveitir að heita má. Virðist jafn- vel minni snjór vera í uppsveit- unum, til dæmis Hreppunum, heldur en á láglendinu —Magnús. ^UMFANGSMIKIL STARFSEMI „The National Film board of Canada“ var stofnað árið 1939 og hefur síðan stöðugt fært út starf- semi sína, sem er í því fólgin að nota kvikmyndir til hvers konai' fræðslu utanlands og innan, aðal- lega að því er varðar Kanadiska þjóðháttu og menningu. Stendur starfsemi þess í nánu sambandi við skóla- og kennslustarfsemi í Kana' da sjálfu og einnig fjölmörg kvik- myndafélög og klúbba, bæði utan lands og innan. f í AF EYFIRZKUM ÆTTUM Mr. G. Eyford er af eyfirzkunt ættum kominn, afi hans og amma voru meðal hinna mörgu, semí fluttust vestur um haf um og fyrn ir síðustu alaamót. Hann er hing- að kominn til að grenslast fyrií um möguleika á að fá íslenzkar fræðslukvikmyndir til Kanadai gegn kanadiskum myndum hingað. Sagði hann í viðtali við frétta- menn í gær, að fræðslumálastjóri, Helgi Elíasson hefði sýnt mikinn áhuga á að slíkt mætti takazt og hefði þegar pantað um 50 valdaé kanadiskar fræðslukvikmyndir til notkunar við kennslu í hinuní ýmsu skólum landsins. i SAMBAND VIÐ FERÐASKRIFSTOFU RlKISINS Mr. Eyford setti sig í samband við Ferðaskrifstofu ríkisins urrt skipti á íslenzkum og kanadiskura; fræðslukvikmyndum og mun einn- ig, þegar heim kemur, vinna að' undirbúningi Ameríku-lslandsferð arinnar, sem Ferðaskrifstofan hef ur í hyggju að efna til á komandi vori og getið er um á öðrum stað í blaðinu, í dag. Mr. Eyford gat þess, að miklaí Hkur vaeru fyrir því, að ýmis þjóð legur iðnaður Islendinga, svo serrt prjónavörur alls konar og keramik vörur, myndu eiga vísan markað í Kanada og væri reynandi að gera tilraun með slík viðskipti. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.