Morgunblaðið - 07.04.1955, Side 7
Fimmtudagur 7. apríl 1955
MORGVNBLAÐIÐ
Hesíameun f jölmenntu að Geiíhálsi
í góða veðrinu á sunnudaginn notuðu óvenjumargir hestamenn
tækifærið til að fara í útreiðartúr upp að Geithálsi, en þar hafa
þeir áningarstað og kaffistofu. Var vegurinn þangað upp úr krökk-
ur af ríðandi mönnum. Myndin var tekin í hlaðinu á Geithálsi.
Umí Drengur í Kjös
eínir til stólaveltu
Gamiir Kjósverjar og aðrir sfyðja framfaramál
STJÓRN Umf. Drengur í Kjós
hefur í hyggju að afla tekna til
kaupa á stólum í samkomuhúsið
Félagsgarð með því að skora á
hina ýmsu menn að greiða sem
svarar eitt stólverð kr. 200.00.
Enginn er skyldugur að taka
áskorun, en þeir, sem áskorun
taka, hafa rétt til að skora á
tvo aðra.
Stjórn félagsins sér um kaup-
in á stólunum og innheimtir pen-
inga hjá þeim, sem taka þessum
áskorunum.
Hjalti Sigurbjörnsson form,
fél. skorar á Njál Guðmundsson
Ásgarði og Steinar Ólafsson
Valdastöðum. Steinar Ólafsson
Valdastöðum skorar á Eirík Sig-
urjónsson Sogni og Bjarna Jóns-
son Þúfu. Bjarni Jónsson Þúfu
skorar á Ingvar Jónsson Laxár-
nesi og Odd Andrésson N.-Hálsi.
Oddur Andrésson N.-Hálsi skorar
á Sr. Kristján Bjarnason Reyniv.
og Ólaf Andrésson Sogni. Ingvar
Jónsson Laxárnesi skorar á
Davíð Guðmundsson Miðdal og
Guðmund Jónsson Þúfu. Davíð
Guðmundsson Miðdal skorar á
Þorkel Þorkelsson frá Valdast.
og Guðmund Ólafsson, Flekku-
dal. Sr. Kristján Bjarnason
Reynivöllum skorar á Björgvin
Guðbrandsson Fossá og Valgerði
Guðmundsdóttur Hvammi. Ólaf-
ur Andrésson Sogni skorar ú
Ólaf Ág. Ólafsson Valdast. og
Guðmund Sigurðsson Möðruv.
Gísli Andrésson N.-Hálsi skorar á
Sigurbjörn Þorkelsson Fjölnisv.
2, Rvík og Ólaf Thors, forsætis-
ráðherra. Eiríkur Sigurjónsson
Sogni skorar á Gísla Andrésson
N.-Hálsi og Magnús Guðmunds-
son írafelli. Ólafur Ág. Ólafsson
Valdast. skorar á Pétur Sigurðs-
son Hurðarbaki og Ellert Eggerts-
son Meðalfelli. Pétur Sigurðsson
Hurðarbaki skorar á Berg And-
résson Meðalfelli og Eggert Ell-
ertsson Meðalfelli. Sigurbjörn
Þorkelsson Rvík skorar á Bjarna
Bjarnason form. Átthagaf. K. og
Pálínu Þorfinnsdóttur Rvík.
Hjörtur Þorsteinsson Eyri skorar
á Hannes Guðbrandsson Hæk-
ingsdal og Pétur Ásmundsson
Tindsstöðum. Hannes Guðbrands-
son Hækingsdal skorar á Harald
Magnússon Eyjum og Ólafíu
Ólafsdóttur Eyjum. Njáll Guð-
mundsson Ásgarði skorar á
Magnús Blöndal Grjóteyri og
Hjört Þorsteinsson Eyri. Magnús
Blöndal Grjóteyri skorar á
Gunnar Hannesson Hækingsdai
og Ólaf E. Ólafsson Þorláksstöð-
um. Guðmundur Sigurðsson
Möðruv. skorar á Ólaf Ólafsson
Þorláksstöðum og Magnús Sæm-
undsson Eyjum. EHert Eggerts-
son Meðalfelli skorar á Þór Axel
Jónsson frá Felli og Helga Jóns-
son Blönduholti. Ólafur Ólafsson
Þorláksstöðum skorar á Einar
Ólafsson Lækjarhvammi og Jó-
hann Eyvindsson frá Grjóteyri.,
Helgi Jónsson Blönduholti skorar
á Svein Guðmundsson Þúfukoti
og Odd Þórðarson Eilífsdal.
Tekið er á móti áskorunum og
framlögum hjá Hjalta Sigur-
björnssyni, Kiðafelli í Kjós og
hjá Bjarna Bjarnasyni, slökkvi-
verði, form. Átthagafélagsins í
Rvík, en hann á heima á Hofteigi
36 og hefur síma 3008.
Frá áðalfimdi IIÍP
Á AÐALEUNDI Hins íslenzka
prentarafélags, á sunnudaginn
var lýst stjórnarkosningu, sem
fór fram í félaginu í febrúar-
mánuði s. 1. Formaður var nú
kjörinn Magnús Ástmarsson með
119 atkv. Með honum í stjórn
voru kjörnir: Ellert Á. Magnús-
son og Sigurður Eyjólfsson og
varaformaður Guðbjörn Guð-
mundsson. Fyrir eru í stjórninni
þeir: Kjartan Ólafsson gjaldkeri,
Meyvant Ó. Hallgrímsson og
Gunnhildur Eyjólfsdóttir, sem
formaður kvennadeildar H.Í.P.
Fráfarandi formanni Magnúsi
H. Jónssyni, var þakkað mikið
og gott starf í þágu félagsins, en
hann hefur verið formaður þess
lengur en nokkur annar, samtals
í 18 ár, en í störfum fyrir félagið
35 ár, en H.Í.P. er 58 ára.
Gerð var grein fyrir mjög at-
hyglisverðri nýjung og hagsmuna
máii prentara, en það er breytt
skipan á starfsemi atvinnuleysis-
styrktarsjóðs félagsins, sem hing-
að til hefur verið borinn uppi
af félagsmönnum. Nú greiða
félagsmenn H.Í.P. gjöld til sjóðs-
ins á móti jöfnu framlagi frá
prentsmiðjunum. Er þetta ein-
asti atvinnuleysisstyrktarsjóður-
inn sem starfar á þessum grund-
velli. Hefur málið verið í undir-
búningi af hálfu félagsins og at-
vinnureker'da um þriggja ára
skeið og hefur samkomulagið nú
verið samþykkt af báðum aðil-
um.
Ekki tókst að ljúka aðalfund-
arstörfum og verður framhalds-
aðalfundur boðaður síðar í mán-
uðinum.
INNFLUTNINGUR HAFINN I
Á NÝBRI ELDSNEYTISTEGUND
• ' Jfc
Gasol, sœnsk gastegund í fljótandi tormi:
hentug og ódýr til margskyns KQÍkunar
ASÍÐASTL. sumri hóf Guðni Jónsson & Go. innflutning á nýt ii
tegund eldsneytis, Casol, sem vonir standa til að komi a$
margvíslegum notum. Er hér um að ræða sænskar gastegundir,
Butan og Propan, sem hægt er að geyma í vökvaformi séu þær
látnar í geyma undir tiltölulega lágum þrýstingi. Eru gasteg-
undir orðnar ákaflega útbreiddar í heiminum og hentugar til
ýmissa nota.
AUÐVELT í MEÐFÖRUM | auðveld og gefur það mjög góða
Gasol er sænskt verzlunarheiti vöru. Að lokum má geta þess, að
á gastegundunum Butan og Prop- j tannlæknar og gullsmiðir noía.
an, en þær hafa þá eiginleika Gasol talsvert til bræðslu á gullL
fram yfir venjulegt gasstöðvar- og silfri.
gas, að þær er hægt að geyma
i vökvaformi séu þær látnar i
geyma undir tiltölulega lágum
Gðgngerðar endurbæfur á
hraðfrystihúsinu á Bíldudai
Bildudal, 29. marz: —
UNDANFARNA mánuði hafa
staðið yfir gagngerðar endur-
bætur og breytingar á hraðfrysti
húsinu á Bildudal. Frystivélar og
frystigeymslur hafa verið endur-
bættar og í stað dieselaflvéla hafa
verið settir rafmagnsmótorar.
Sex ný frystitæki hafa verið sett
upp.
Allri innréttingu og tilhögun
innan húss hefir verið gerbreytt
og komið upp þremur vistlegum
vinnusölum ásamt rúmgóðri fisk-
móttöku, skrifstofu, kaffistofu og
snyrtiherbergjum. Færibönd úr
aluminium hafa verið sett upp,
og fyrirkomulagi þeirra hagað
mjög smekklega í samræmi við
það sem reynslan hefir sýnt að
hagkvæmast væri. Flakaraband-
ið er fyrir 19 flakara. Öll vinnu-
borð eru ný.
Kostnaðurinn við breytingar
þessar mun nema um einni mill-
jón króna.
Karl Bjarnason starfsmaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna hefir skipulagt allar þessar
breytingar, en framkvæmdir hafa
annast eftirtaldir aðilar: Endur-
bætur á vélum, frvstikerfi og
vinnutækjum vélsmiðjan „Héð-
inn“, Reykjavik og starfsmenn
hennar, þeir Þorsteinn Guðmunds
son, Björn Vilhjálmsson og Sig-
urjón Sigurðsson vélsmiðir. Enn-
fremur vélsmiðja Magnúsar Jóns
sonar, Bíldudal. Færiböndin eru
smíðuð og sett upp af Guðbirni
Guðlaugssyni, Reykjavík, en
breytingar á innréttingu önnuð-
ust Sölvi Jónasson, Sigurður
Benjamínsson og Kristinn Ás-
grimsson smiðir á Bíldudal. Allar
raflagningu og niðursetningu raf-
mótora hafa annast Axel Magnús-
son og Jón Hannesson rafvirkja-
meistarar, Bíldudal.
Við þessar breytingar hafa af-
köst hússins aukizt verulega. jafn
hliða því sem aðstaða til vinnu
hefir batnað stórum.
Hraðfrystihúsið gerir út
þrjá línubáta í vetur og hefir
verið mjög mikið að gera und-
anfarið, þar sem allmikill afli
hefir borizt á land, en allan
þann tíma, sem endurbæturn-
ar hafa staðið yfir, hefir þeim
verið hagað þannig, að nnnt
hefir verið að vinna allan afla,
sem á land hefir borizt á
Bíldudal. Vinna með færi-
böndunum og hinum nýja út-
búnaði hófst s.l. laugardag að
viðstöddum Karli Bjarnasyni,
sem skipulagði vinnuna tvo
fyrstu dagana.
Með þessum endurbótum á
hraðfrystihúsinu telja Bílddæl-
ingar sig hafa hrundið í fram-
kvæmd mikilvægu hagsmuna-
máli.
Forstjóri frystihússins er Jónas
Ásmundsson, en eigandi þess er
Suðurfjarðarhreppur. Gísli Jóns-
son, alþm., hefir veitt mikla að-
stoð í sambandi við framkvæmd-
ir þessar. — Fr. V.
Fyrsiu gæsirnar sáust
í Eyjafirði á Fösfu-
daginn
AKUREYRI, 4. apríl — Undan-
farið hefur verið hér einmuna
blíða og sannkallað vorveður.
Fyrstu gæsirnar á vorinu sáust
frammi í Evjafirði s. 1. föstudag
og er það óvenju snemmt. Ann-
ars hefur verið hér venju fremur
lítið um fugl í vetur, að sögn
Kristjáns Geirmundssonar taxe-
dermist, en hann fylgist manna
mest með fuglalifi hér um slóðir.
Segir hann að t. d. hafi verið
miklum mun minna um.gráþröst
hér í vetur, en venja er til. Um
ástæðu til þessa mun ekki gott
að segja, en geta má þess til að
haustkuldarnir hafi átt þarna
sök. Nokkuð mun hafa borið á
því, að árssprotar furutrjáa hafi
kalið í vetur og er haustkuldun-
um kenht um. —Vignir.
Húsmóðirin á myndinni notar
Gasol eldunartæki jafnhliða raf-
magnseldavél. Talsvert fljótara
er t. d. að sjóða vatn með Gasol
tækjum heldur en með rafmagni.
þrýstingi. Þessi eiginleiki Gasol
er einn af mörgum kostum þess,
sem orsakað hafa hina miklu út-
breiðslu þess erlendis á síðustu
árum, og gerir mögulegt að flytja
það á auðveldan hátt hvert sem
vera skal.
HENTUGT TIL LOGSUÐU
Gasol hefur rutt sér mjög til
rúms erlendis á ýmsum sviðum,
t. d. í sveitum, sumarbústöðum,
bátum og allskyns iðnaði. Er
hægt að fá mjög margvísleg tæki
fyrir Gasol, svo sem allskyns log-
suðutæki, ofna, geislahitunar-
tæki, eldunartæki, bakaraofna,
til ljósa o. m. fl. Eru þessar gas-
, tegundir ódýrar í notkun.
! Gasol er ákjósanlegt til þess
að skera með járn og stál, en logi
þess er þó ekki það þéttur að
gott sé að sjóða þessar mátm-
, tegundir með honum.
' Til herzlu á stáli er Gasol
mjög gott eldsneyti, meðal ann-
ars sökum þess hve auðvelt er
að stjórna hitastigi logans. Gasol
er mikið notað til þess að beygja
rör og járnplötur t. d. við skipa-
smíðar. í málmsteypu er Gasol
notað til þurrkunar á sandi með
beinni snertingu reyksins við
sandinn og er það sökun þess
að Gasol er alveg brennisteins-
frítt og brennslan er fullkomin.
Brennisteinn er sem kunnugt er
mjög skaðlegur í steypujárni.
í'
í FISKIBÁTUM
Gasol hefur rutt sér meira og
meira tii rúms í fiskibátum til
eldunar og að nokkru til hitun-
ar. Er það öryggið í rekstri og
hin hraða hitun, sem skapar vin-
sældir þess. Á vinnustöðum þar
sem menn þurfa að hita vatn í
kaffi eða elda mat, er Gasol mik-
ið notað. Hér á landi er mikil
þörf fyrir hentugt eldsneyti fyr-
ir vinnuflokka, sem eru stund-
um langt frá byggð, til eldunar,
ljósa og upphitunar á vistarver-
um og virðist Gasol vera heppi-
legt til þess.
VIÐ NIÐURSUÐU
Við niðursuðu er Gasol mikið
notað til þess að lóða blikkdósir.
Við reykingu á kjöti og fiski hef-
ur Gasol rutt sér til rúms sök-
um þess hve hitastillingin er
Ríkissfyrkir iil
vísinda- cg
MENNTAMÁLARÁÐ íslands
nefur nýlega úthluta styrkj-
um til visinda- og fræðimanna,
sbr. fjáriög 1955, 15. gr. XXVIÍ,
Úthlutunin er sem hér segir:
Þessir fengu kr. 3.000,00: Árni
Böðvarsson, cand mag., Barð|
Guðmundsson, þjóðskjalavörðurt
Bjarni Vilhjálmsson, cand. mag,
Björn Th. Björnsson, listfræðing*
ur, Björn K. Þórólfsson, bóka-
vörður, Björn Þorsteinsson, cand.
mag., Finnur Sigmundsson, land&r
bókavörður, Guðni Jónsson, skólp.
stjóri, Jakob Benediktsson, mag-
ister, Jón Guðnason, skjalavörð-
ur, Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður, Ólafur Jónsson, fræði-
maður, Sverrir Kristjánsson, sagn
fræðingur, Tryggvi J. Olsen, próf.
Þorkell Jóhannesson, háskóla-
rektor.
Kr. 2.000,00 fengu: Árni G. Ey-
lands, stjórnarráðsftr., Ásgeir Bl,
Magnússon, cand. mag, Baldur
Bjarnason, mag. art.., Jón Gísla-
son, skólastjóri, Jón Sigurðson,
bóndi, Konráð Vilhjálmsson,
fræðimaður, Magnús Björnsson,
bóndi, Sigurður Ólafsson, fræði-
maður, Stefán Jónsson, bóndi,
Sveinbjörn Beinteinsson, bragfr.,
Þórður Tómasson, fræðimaður.
Kr. 1.500,00 fengu: Ásgeir Hjart
arson, cand. mag., Benjanv’n Si"-
valdason, fræðimaður, BSríkup
Hreinn Finnbogason, cand. mr;
Geir Jónasson, bókavörður. Gu,5-
rún P. Helgadóttir, kennari, Gunn
ar Benediktsson, rithöfundur,
Gunnlaugur Þórðarson, dr. juris.,
Haraldur Sigurðsson, kennari,
Hróðmar Sigurðsson, kennari,
Jens Pálsson, mannfræðingur, Jó
hann Hjaltason, skólastjóri, Jó-
hann Sveinsson, cand. mag., Jón-
as Kristjánsson, cand. mag., Jón-
as Pálsson, uppeldisfr., I.árus
Blöndal, bókavörður, Magnús
Finnbogason, menntaskólakenn-
ari, Marta Valgerður Jónsdóttir,
ættfærðingur, Ólafur B. Björns-
son, fræðimaður, Óskar Magnús-
son, sagnfræðingur, Skúli Þórð-
arson, mag art..,=Þórha11ur Þor-
gilsson, bókavörður, Þorvaldur
Kolbeins, prentari.
Kr. 1.000 00 fengu: Ásgeir Jóns-
son, frreðimaður, Bergstcinn
Kristjánsson, fræðimaður. Bjafni
Einarsson, fræðimaður, Björn R.
Árnason, fræðimaður, Flosi
Björnsson, fræðimaður. Gils.Guð
mundsson, alþm., Indriði Indriða-
son, fræðimaður, Jochum M. Bgg
m'tsson. fræðimaður, Jóhannes
Örn .Tónsson. fræðimaður, .Tón
G'sla.son fræðimaður. Konráð Er-
lendsson, fræðimaður. Kristiún
Jónsson. fræðimaður. Ólafur Þor
valdsson, þingvörður. Vigfns'
Kristiánsson, fræðimaður.
ni.ZT AÐ AVGLÍSA
I MORGVNBLAÐIMJ