Morgunblaðið - 08.05.1955, Qupperneq 16
Yeðurútiif í dag:
N.-austan stinningskaldi. Skýjað.
Sennilcga úrkomulaust.
103. tbl. — Sunnudagur 8. maí 1955
Fiskniðursuðuverk
faka upp verkask
FréðSeg grein í Ægi um Siskniéurs Ju
Ungur Kópavogsbúi með
kaoínum sínum
Togarinn VVire Gleamer í Reykjavíkurhöfn.
Skipstjórinn
dæmdur í 90
þús. kr. sekt
'tdfÍC í GÆRDAG var kveðinn
upp dómur í lögreglurétti
Keykjavíkur yfir skipstjóranum á
brezka togaranum Wyre Gleanter
fró Fleetwootl.
Skipstjórinn var nú dæmd
ur í 90.000 kr. sekt til
I.andhelgissjóðs, en hér var um
ítrekað brot að ræða. Þá var afli
togarans, sem var lítill, og veiðar-
færi gerð upptæk til Landhelgis-
sjóðs.
•fcitic Síðdegis í gær var búist
við að skipstjórinn myndi
setja fram tilskylda tryggingu ó
greiðslu sektar og hins upptæka
afla og veiðarfæra. IVIun togarinn
hafa siglt héðan skömmu síðar.
★★★ Sennilegt þykir að trygg-
ingin hafi alls numið
kringum 150 þús. króna.
Samsöngur Kanfölu-
kórs Akureyrar
AKUREYRI, 7. maí: — Kantötu
kór Akureyrar hafði samsöng í
Nýja Bíói í gærkveldi, undir
stjórn Björgvins Guðmundssonar
tónskálds. Undirleik annaðist Guð
rún Kristinsdóttir. Flutti kórinn
2. og 3. þátt úr óratoríunni Frið-
ur á jörðu, eftir Björgvin Guð-
mundsson.
Með ein- og tvísöngshlutverk
fóru 11 manns. Húsfyllir var og
kórnum ákaft fagnað, og varð
hann að flytja tvö aukalög. Barst
tónskáldinu mikið af blómum og
meðal annars fagur blómvöudur
frá bæjarstjórn Akureyrar, ásamt
skeyti.
í lok samsöngsins ávarpaði
Sverrir Pálsson söngstjórann og
tónskáldið Björgvin Guðmundsson.
Flutti honum þakkir bæjarbúa
fyrir hartnær aldarfjórðungs ómet
anlegt starf í þágu hljómlistar-
mála bæjarins. Að loknu prýðilega
snjöllu erindi Sverris, var tón-
skáldið hyllt með ferföldu húrra-
hrópi. — H. Vald.
Eldhúsdagsumræð-
umar á morgun
EINS og skýrt hefur verið frá
fara fram almennar stjórnmála-
umræður á Alþingi á mánudags-
og þriðjudagskvöld. — Af hálfu
Sjálfstæðisflokksins tala ráðherr-
arnir Ólafur Thors og Ingólfur
Jónsson á mánudagskvöldið en
Bjarni Benediktsson menntamála
ráðherra og Jóhann Hafstein 5.
þm. Reykvíkinga á þriðjudags-
kvöldið.
IMAÍ-HEFTI Ægis rits Fiski-
félags íslands, er grein í dálk-
unum Tæknitíðindi úr fiskiðnaði,
um niðursuðuiðnað hér á landi,
eftir Sigurð Pétursson. Er þetta
■ merkileg grein, þar sem höfund-
urinn ræðir hina ýmsu þætti
framleiðslunnar, ágalla hennar,
kostnaðinn við framleiðsluna og
afköstin. í greininni segir m. a.
á þessa leið:
Bólusefninqu hæl!
í U.S,L
Washington, 7. maí: — Næstu tvo
daga verður framkvæmd nákvæm
rannsókn á bóluefninu, sem fram
leitt hefur verið gegn mænuveiki,
í Bandaríkjunum. A meðan rann-
sóknin stendur yfir verð::r allri
bólusetningu með Salk-eíninu
hætt.
Þjóðverjar smíða
togara fyrir Breta
BREZKIR togaraútgerðarmenn
inga við þýzkar skipasmíða-
hafa að undanförnu gert samn-
stöðvar um smíði nýrra togara
fyrir fjarlæg mið.
The Fishing News segir frá
þessu og getur þess að brezku
togaraútgerðarmennirnir fái
miklu betri kjör í Þýzkalandi og
m. a. að 13 mánuðum eftir að
smíðasamningur er gerður skulu
hinir nýju eigendur taka við
togaranum.
Fyrir skömmu var gerður samn
ingur um fimmta togarann, sem
byggður verður fyrir Breta. Var
það fyrir Butt togarafélagið. Það
lætur byggja í Bremerhaven 750
lesta togara, með 14 mílna gang-
hraða.
24 togarar fyrir
Rússa í smíðum
1 KIEL í Vestur-Þýzkalandi, eru
nú í smíðum 24 verksmiðju-togar-
ar fyrir Rússa.
The Fishing News segir frá
þessu og getur þess að þegar sé
búið að hleypa af stokkunum
fyrsta togaranum.
SJALFVIRKAR VELAR
Til þess að auka afköstin í
niðursuðuverksmiðjunum hér, er
aðeins eitt ráð, sem að nokkru
verulegu gagni kemur, en það
er aukinn vélakostur. Það sem
vantar eru sjálfvirkar hraðgeng-
ur vélar, sem notaðar eru í lang-
Áttu að fara til
Crænlands í dag
MEÐ morgni í dag var áætlaó að
flugvél sú, er flytur dr. Finn Guð-
mundsson, forstj. Náttúrugripa-
safnsins og félaga hans, færi til
Meistaravíkur í Grænlandi.
i Sem kunnugt er, af frásögn
blaðsins, verða dr. Finnur Guð-
mundsson, Hálfdán Björnsson frá
Kvískerjum og Kristján Geir-
mundsson frá Akureyri, við rann
; sóknir í Norð-austur Grænlandi,
á vegum dýrafræðideildar Nátt-
úrugripasafnsins. Verður bæki-
stöð leiðangursmanna í Meistara-
vík og þaðan verða rannsóknar-
leiðangrarnir farnir. Safnað verð-
ur samanburðargögnum fyrir
Náttúrugripasafnið og verða þeir
félagar um tveggja mánaða skeið
í Grænlandsför þessari. — Dönsk
herflugvél átti að flytja þá.
an tíma fyrir eina og sömu vöru-
tegund, eða fyrir fáar vöruteg-
undir, sem allar hljóta svipaða
meðferð. Um nokkura fjöl-
breytni í niðursuðuvörum til út-
flutnings getur hér alls ekki ver-
ið að ræða fyrst um sinn. Hér
verður að einbeita sér fyrst að
fáum tegundum, og leggja allt
kapp á að fá þær sem jafnast-
ár að gæðum og magnið sem
mest. Hvaða vörutegundir eru
líklegastar, verður fyrst sagt um
eftir nákvæma athugun á er-
lenda markaðinum.
í RÉTTA ÁTT
Spor í rétta átt, til þess að
auka afköst niðursuðuverksmiðj-
anna hér á landi, er hægt að
stíga nú þegar, en það er, að
verksmiðjurnar taki upp með
sér verkaskiptingu. Þurfa þá
verksmiðjurnar fyrst að mynda
með sér samtök og hætta að
keppa hver við aðra með sömu
vörutegundir.
Þórunn Jóhanns-
leika í Kefavík
ÞÓRUNN JÓHANNSDÓTTIR
heldur hljómleika í Keflavík n. k.
þriðjudag og hefjast þeir kl. 9
siðdegis.
Þórunn er, sem kunnugt ei, á
hljómleikaför hér á landi um þess-
ar mundir. Fyrstu hljómleika sína
hélt hún hér í Reykjavík, en síð-
an hefur hún leikið á Akureyri og
Akranesi, alls staðar við mjög
mikla hrifningu áheyrenda.
Þessi drengur á heima suður i
Kópavogi. Ilann og nokkrir fé-
lagar hans eiga tvær kanínur i
búri þar suður frá. Er önnur grá
en hin hvít. Eru þær að sjálf-
sögðu hjón. Á myndinni sést
drengurinn með kanínukarlinn
sinn. Átti hann erfitt með að fá
karlinn til þess að „sitja fyrir“.
En það tókst þá að lokum.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M»
FáirÞjóðverjar
hingað til land-
búnaðarstarfa
FYRIRSJAANLEGT er að inn-
flutningur á verkafólki til landbún
aðarstarfa frá V.-Þýzkalandi, mun
verða mjög lítill. í gærkveldi var
útrunninn frestur sá, er Búnaðar-
félag Islands hafði sett bændum
til umhugsunar og ákvörðunar.
Um hádegið í gær höfðu milli 10
—20 umsóknir borizt, og mun
þetta fólk verða ráðið hingað til
starfa.
Gistivist í aðal-
stöðvym $, Þ. fyrir
háskólastiidenta
N ORÐURL AND ASKRIFSTOFA
Sameinuðu þjóðanna hefur beð-
ið Háskóla íslands að koma á
framfæri tilboði um gistivist í að-
alstöðvum S. Þ. í New York.
Sameinuðu þjóðirnar bjóða 20
ungum mönnum og konum frá
ýmsum löndum samtakanna til
dvalar um eins árs skeið í aðal-
stöðvunum til þess að kynnast
starfseminni þar, vinna í ýmsum
deildum og að rannsóknum á sér
stökum verkefnum, leiðbeina
gestum og kynna þeim starf-
semina.
Umsækjendur verða að leggja
fram skilríki um 2 ára háskóla-
nám, um bað, að þeir séu full-
færir í ensku og að þeir séu 20
—26 ára að aldri.
Sameinuðu þjóðirnar greiða
ferðakostnað til New Yórk og
þaðan aftur til heimalands; enn
fremur $42.50 á viku í dvalar-
kostnað.
Star^ em.n hefst 1. ágúst 1955
og lýkur 30. júlí 1956. Starfstími
er kl. 9.30 til 6 fimm daga í viku.
Tveggja vikna sumarleyfi með
kaupi.
Umsóknii skal senda Norður-
landaskrifsfofu Sameinuðu þjóð-
anna ekki síðar en 26. maí.
Skrifstofa háskólans veitir
umsækjendum alla nánari vitn-
eskju í þessu efni.
Fiðlusveit Laugarnesskólans.
Fiðlusveit 18 barna
á nemendahljómleikum
Athyglisverðar nýjungar í tónlistar-
kennslu Laugarnesskólans
IDAG heldur Laugarnesskólinn nemendahljómleika í Austur-
bæjarbíói. Er sérstaklega athyglisvert við þessa hljómleika
skólans, sem eru hinir þriðju í röðinni, að fiðlusveit barna kemur
fram, en í henni eru 18 börn. Þá syngur kór eldri nemendanna
5 Laugarnesskólanum.
í söngskrá getur söngkennari
Laugarnesskólans, Ingólfur Guð-
brandsson þess, að ýmsar nýj-
ungar í sögn og tónlistarkennslu
hafi verið reyndar þar. Nem-
endur gagnfræðadeilda skólans
hljóta almenna fræðslu um tón-
list og hlýða á sígild tónverk.
Morgunsöngur fer fram daglega
í skólanum að viðstöddum öll-
um nemendum og kennurum
skólans og eru á þann hátt um
100 lög og ljóð á skólaárinu. Öll-
um börnum, sem löngun hafa til
að syngja stendur til boða að
æfa kórsöng.
Kennsla í fiðluleik hófst fyrir
þremur árum og voru nemend*
í honum í vetur 24. Nokkrif
þeirra eiga sjálfir hljóðfæri, en
aðrir fá lánaðar fiðlur, er keypt-
ar hafa verið með ágóða af
hljómleikum, er skólinn hefup
efnt til. Ruth Hermanns fiðlu-
leikari hefur annazt kennsluna,
Nokkur styrkur hefur verið veitt
ur til hennar úr bæjarsjóði
Reykjavíkur á þessu ári.
! 1
FJÖLBREYTT EFNISSKRÁ
Efnisskráin á Nemendahljóm-
leikunum er fjölbreytt. Bæði
kórsöngur, einleikur á fiðlu og
píanó. Þar er leikið Sarabanda
fyrir þrjár fiðlur og konsert fyr-
ir fjórar og þá leikur öll fiðlu-
sveitin. Tónleikarnir eru kl. 1 I
dag í Austurbæjarbíó og eru að-
göngumiðar seldir við inngang-
inn.