Morgunblaðið - 24.05.1955, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.05.1955, Qupperneq 16
Veðurúfli! í dag: SA stinningskaldi. Rigning öðru hvoru. ttrgtmMðMÞ 115. tbl. — Þriðjudagur 24. maí 1955 Kosningabaráftan í Bretlandi. — Sjá grein á bls. 9. Kiriff Sol á ilol í gœr eftir 3 mánaða strand SÍÐDEGIS í dag er brezka eftirlitsskipið væntanlegt hingað til Reykjavíkur með togarann King Sol, sem björgunarmenn frá Hamri náðu á flot í gærmorgun. Vantaði þá fimm daga upp á að J>rír mánuðir væri liðnir frá því King Sol strandaði á Meðal- landsfjöru. Björgun togarans hafði verið kvæmd bráðabirgðaviðgerð og mjög vel undirbúin af starfs- mönnum Hamars, sem alltaf höfðu trú á því að unnt væri að ná skipinu á flot aftur. Hefur Bjarni Jónsson verið verkstjóri við björgunina. í gærmorgun, er togaranum var bjargað, var Bene dikt Gröndal verkfræðingur þar eystra, ásamt fulltrúa vátryggj- enda í Bretlandi og Geir Zoega yngri, sem var fulltrúi Rinovia- félagsins við björgun skipsins. (ÍEGNUM SANDINN Milli kl. 4—5 í gærmorgun, var byrjað að láta vél skipsins vinna. Vírar höfðu verið festir í brezka eftirlitsskipið Mariner, sem lá fyrir utan, og var sem akkeri úr afturstefni togarans. Hægt og hægt mjakaðist togarinn gegnum iandinn og eftir rúmlega þrjár klukkustundir var hann kominn gegnum sandleðjuna og flaut. — Var klukkan þá um 8. DREGINN TIL REYKJAVÍKUR Eftirlitsskipið tók togarann síðan í eftirdrag, en stýri hans er laskað, svo skipið lætur ekki vel að stjórn. — Þá eru skemmd- ir í botni og lekur togarinn lít- i+sháttar. Nokkrar aðrar minni- liáttar skemmdir hafa orðið. Geir Zoéga yngri, skýrði blaðinu svo frá í gær, að björgunin hefði það dregið út til Bretlands. Bjarni Benedikísson gegnir störfum forsætis- ráöherra í fjamiton Ólafs Thors VEGNA utanfar.ír Ólafs Thors, forsætisráðherrai, f embeettiser- indum, hefur B.jama Benedikts- syni, dóms- og merfrstíamáiaráð- herra, verið faljíí að gegna for- sætisráðherrastökfarrt «rn stund- arsakir. (Frá forsætisráðMMytínu). asarnimi Barbara Árnason og Ásdís Sveinsdóttir sýna þar veggteppi og siifursmíði. D A G kl. 1 e. h. verður opnuð í Þjóðmingjasafninu listiðnaðar- sýning sem tvær íslenzkar listakonur standa að, þær Barbara Árnason og Ásdís Sveinsdóttir. Þær sýna þar aðallega tvennskonar muni, veggteppi, sem frú Barbara Árnason hefir gert og silfur- smíði eftir Ásdísi Sveinsdóttur. Munirnir eru nýkomnir af alþjóða listiðnaðarsýningu í Múnchen í Þýzkalandi, sem þar stóð fyrir nokkru í um hálfan mánuð. Sýning þeirra Barböru og Ásdísar verður opin almenningi n. k. hálfan mánuð frá kl. 1—10 e. h. dag hvern. I NÝJUNG Á ÍSLANDI Frú Barbara Árnason hefir eins og kunnugt er aðallega feng- izt við listmálun hingað til og er þegar þekkt á því sviði. „Það er ekki fyrr en fyrir um ári síðan, að ég tók að fást við tekizt mjög vel. Hér í Reykja-1 veggteppagerð", sagði frúin við vík fer togarinn þegar í slipp,' fréttamann Mbl. í gær. 13 vegg þar sem skemmdir verða kann- aðar nánar. Er óvíst hvort skipið verður gert haffært eða fram- teppi eru á sýningunni og auk þess ein ofnhlíf af sömu gerð og teppin. Þessi teppi eru all frá- Hý kirkja fyrir 200 lóknar- börn Asólfsskálakirkju Vígð á sunnudaginn var. Vík í Mýrdal 23. maí: IGÆR fór fram vígsla nýrrar kirkju að Ásólfsskála undir Eyjafjöllum, að viðstöddum mikl- »m mannfjölda. Biskup íslands, l»erra Ásmundur Guðmundsson, •framkvæmdi vígsluna. Hófst at- höfnin kl. 1. Þá gengu prestvígð- »» menn til kirkju með biskup í fararbroddi og báru hina helgu gripi kirkjunnar, sem þeir af- hentu biskupi fyrir altari. Hófst síðan vígsluathöfnin sjálf. Er biskup hafði flutt vígsluræðu og lýst vígslu kirkjunnar steig sókn- arpresturinn, séra Sigurður Ein- arsson í stólinn og flutti prédik- un. í lok guðsþjónustunnar flutti formaður sóknarnefndarinnar, Þórður Tómasson rithöfundur, Vallnatúni, ræðu þar sem hann rakti sögu kirkjubyggingarinnar í stórum dráttum. Á dögum fyrstu kristni hér á landi var reist kirkja að Ásólfs- skála. Hélst svo fram yfir siða- bót. Þá var kirkjan þar lögð nið- ur. Seint á 19. öld var kirkjan aftur reist þar, flutt frá prest- setrinu í Holti. Er kirkja sú er þá var reist, tók að gerast hrör- leg og lítt hæf til messugjörða, fór að vakna hreyfing um bygg- ingu nýrrar kirkju. Má telja að þáverandi sóknarprestur í Holti, séra Jón M. Guðjónsson nú á Akranesi, hafi verið upphafsmað- ur þeirx-ar hreyfingar. Var fjár- söfnun hafin til kirkjunnar þeg- ar árið 1939. Var söfnun síðan haldið áfram í nokkur ár og byggingafram- kvæmdir hafnar árið 1944. Síðan varð hlé á frekari framkvæmd- um um sjö ára skeið, ýmissa or- saka vegna. Aftur var hafizt handa árið 1951 og hefur verið unnið að byggingunni síðan. Hefur söfnuðurinn sýnt mik- inn áhuga og fórnarlund við kirkjusmíðina. Má nefna að alls munu hafa verið gefnar um 7000 vinnustundir við hana. Þar hafa allir lagst á eittyngri sem eldri. Alls mun kirkjan kosta uppkom- in um 300,000 krónur. Þarf mikið átak fyrir fámennan söfnuð að koma upp þessari kirkju. Alls munu safnaðarmenn vera tæp 200. Kirkjusmiður var Sigurjón Magnússon, Hvammi. Eftir að vígsluathöfninni var lokið, sátu allir kirkjugestir sem því gátu við komið, hóf í boði sóknar- nefndar í samkomuhúsinu að Heimalandi. Voru þar fluttar margar ræður og ávörp og þakk- ir færðar þeim mönnum sem mest og bezt hafa unnið að fram- gangi kirkjubyggingarmálsins. Sátu menn þar í góðum fagnaði til kvölds. Kirkjan er steinsteypt og mun taka um 200 manns. brugðin þeirri gerð veggteppa, sem við eigum að venjast. Þau eru ýmist flest úr Álafoss-efni, en sum úr striga og síðan eru útklipptar myndir úr öðru efni í ýmsum litum festar með snúr- um á klæðið. Mun slíkt ekki hafa þekkzt hér á landi áður. Er hér um að ræða einkar haglega gerða og smekklega vinnu. ÞRÆÐIR EKKI TROÐNAR SLÓÐIR Ásdís Sveinsdóttir er Reyk- víkingur. Hún lagði stund á silf- ursmíði hjá Leifi Kaldal silfur- smið hér í bænum og lauk iðn- námi í þeirri grein. Síðan hefir hún unnið sjálf- stætt að silfursmíði og þarna á sýningunni á hún 14 muni, ýmis- konar skartgripi, svo sem háls- festar, armbönd, eyrnalokka — og einn hring. Sérstaka athygli vekur hálsfesti með snæuglu- ■ klóm norðan úr Grímsey, sem komið er haglega fyrir í silfur- * smíðinni og yfirleitt eru allir gripirnir settir fleiri og færri ís- j lenzkum steinum, ýmist hrafn- tinnu, kartsi eða ýmsum ópalteg- I undum. Ásdís teiknar að jafnaði. smíðisgripina upp sjálf og smíð- j ar svo eftir og þræðir þar ekki j troðnar slóðir. Eru margir grip- anna hinir athyglisverðustu, enda þegar eftirsóttir. FYRSTA ÞÁTTAKA ÍSLENDINGA Spurðar frekari frétta af áður nefndri listiðnaðarsýningu í Múnchen, höfðu þær frú Bar- bara og Ásdís fremur fátt að segja að svo komnu, þar eð henni er rétt nýlokið og þær voru þar ekki sjálfar en sendu þangað út muni sýna á vegum Listiðnaðar- félags íslands, sem hér var stofn- að fyrir skömmu. Nokkrir fleiri íslendingar áttu muni á sýning- unni og er þetta í fyrsta skipti, sem íslendingar taka þátt í þess- ari sýningu, sem fer fram árlega í Múnchen. Kváðust þær vænta fregna af sýningunni innan skamms — en ekki er ólíklegt, að marga muni fýsa að sjá þessa nýstárlegu sýningu þeirra í Þjóð- minjasafninu, sem nýkomin er heim frá Þýzkalandi. Flugvélin Edda fyrir framan flugstöðina í Luxemborg. — Á neðrl myndinni eru tvær af flugfreyjum flugvallarins ásamt tveim flug« freyjum Loftleiða, þeim Sigríði Gestsdóttur og Ingveldi Dagbjarts- dóttur. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Mikil þátttaka í Vest- mannaeyjaför Heimdallar ---------------------I KHÖFN 22. maí. — Tvö dönsk íþróttafélög verða áttræð í þess- ari viku. Eru það íþróttahreyf- J ing Maríusar Leférve og Gymna- stikpædagogen. —Reuter. EINS og áður hefir verið skýrt frá, efnir Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna, til skemmtiferðar til Vestmannaeyja um hvítasunnuna. Upphaflega var gert ráð fyrir að farið yrði með m.s. Heklu, en af því verður ekki, þar eð nokkrar skemmdir urðu á skipinu fyrir nokkru, svo að það verður í slipp um hvíta- sunnuna. Hins vegar verður far- ið með Esju eins og í fyrra í hinni glæsilegu hvítasunnuför til Eyja. Gífurleg þátttaka verður í þess ari för, og fyrir Iöngu er allt farþegarúm pantað. Má því gera ráð fyrir að þátttakan verði sem skiprúm frckast leyfir eða um 300 manns. Farið verður héðan frá Revkja- vík kl. 2 e.h. á laugardag fyrir hvítasunnu. Gert er ráð fyrir að ýmislegt verði til skemmtunar á leiðinni. f förinni verður t. d. hin vinsæla danshljómsveit Björns R. Einarssonar, sem mun leika fyrir dansi á skipsfjöl. Á hvíta- sunnumorgún verður siglt um- hverfis Vestmannaeyjar. Flutt verður guðsþjónusta á skipsfjöl, og mun séra Jóhann Hlíðar predika. Síðar um daginn verður Vestmannaeyj abær skoðaður. Um Fyrsfi farseðillinn með Luffhansa í GÆR var hér keyptur fyrsti farseðillinn með áætlunarflugvél frá þýzka flugfélaginu Lufthansa á leiðinni London-—Múnchen. .— Flugfélag íslands annast sölu farseðla milli borga í Evrópu fyrir Lufthansa. En það hefur, sem kunnugt er nýlega hafið á- ætlunarflugferðir víðsvegar um Evrópu. Fyrsta áætlunarferð Lufthansa til London var 16. þ. m. Enn hefur ekki endanlega verið geng- ið endanlega frá samnmgum milli Lufthansa og Flugfélags íslands, en sennilega mun F. í. verða um- boðsfélag fyrir Lufthansa hér á landi. ( kvöldið efnir Félag ungra Sjálf- stæðismanna þar til samkomu. Verður mjög vandað til þeirrar skemmtunar. Á annan í hvíta- sunnu verður farið um Vest- mannaeyjar og skoðaðir þar ýms- ir merkir staðir, svo sem Herjólfa dalur, Stórhöfði, Helgafell og fleira. Um kvöldið kl. 8 hefst dana leikur á skipsfjöl og á bryggju, og verður dansað til kl. 10, en þá verður siglt heim á leið. Þess er fastlega óskað, að þátt- takendur, sem ekki hafa vitjað frátekinna farmiða geri það i dag milli kl. 5—7 í skrifstofu Hcimdallar í Vonarstræti 4. Mið arnir verða annars seldir öðrum. Brezkl herskip í heimsákn ! BREZKA sendiráðið hefur til- kynnt að H.M.S. Adamant mun| koma í heimsókn til Reykjavík- ur 28. maí og vera til 30. maí. Skip þetta er stórt birgðaskip fyrir kafbáta, og hefur nú sem stendur eftirlit með tólf kafbát- um. Stærð skipsins er 685 fet. Skipin hafa samtals 780 manna áhöfn, þar af eru 80 yfirmenn. Skipið lá í gær fyrir utan höfa ina í Keflavík. , Valur vann í GÆRKVÖLDI kepptu Valur og Víkingur í yfirstandandi Reykja- víkurmeistaramóti og fóru þá leikar svo að Valur vann með miklum yfirburðum, 5 mörkunf gegn engu. Síðasta markið vap skorað er aðeins voru eftir urrs 20 sek. af leik er Víkingur fékla á sig vítaspymu. 58 fórust. H KHÖFN 22. maí. — 58 manns, fullorðnir og börn, létu lífið 7, þ. m., er kviknaði í kvikmynda- húsi meðan á sýningu stóð 1 pólska bænum Wielocole- Skrzynski. Flestir þeirra, er lét- ust tróðust undir, er fólkið þyrpt- ist út undan eldinum. —Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.