Morgunblaðið - 11.08.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.1955, Blaðsíða 1
16 siður &*. árgangwe 179. tbl. — Fimmtudagur 11. ágúst 1955 PrentsmiiSjft Morgun blaðsin* Franska siiórnin Grandvais PARÍS, 10. ágúst — Reuter-NTB — Landstjóri Frakka í Marokkó, Gibert Grandval, lagði í dag fram tillögur sínar um umbæt- ur í Marokkó, en talin er hætta á að franska stjórnin kunni að klofna um þessar tillögur. Ræddi Grandval tillögur sínar í dag við Faure forsætisráðherra og Pierre July, ráðherrann, er fjallar um mál Norður-Afríku. Vill Grand- val, að soldáninn í Marokkó, Ben Arafa, segi af sér, en ríkis- stjórnarráði verði komið á stofn. + Á morgun mun stjórnskipuð nefnd fjaila um tillögur Grand- vals, en líklegt þykir, að franska stjórnin verði að taka afstöðu til þeirra næstu daga. Ráðherrar hægri flokkanna hafa þegar látið í ljósi mikla óánægju með tillög- ur Grandvals. + Landvarnamálaráðherrann, Pierre König, og July kveðast álíta tillögurnar óframkvæman- legar, m. a. af því að Ben Arafa vilji ekki sjá á bak hásætinu, og hann nýtur stuðnings hins vold- uga pasha af Marrakesh, E1 Glaoui. ♦ Segir Grandval, að mikil hætta sé á víðtækum óeirðum 20. ágúst, en þá eru tvö ár liðin síðan fyrrverandi soldán Ben Youssef var gerður útlægur Bretar vinna að hagnýtingu vetnisorku til rafmagnsframleiðslu Þær eru ekkerl þreytulegar á svipinn. ■ Aldrei hefur verið söltuð meiri síld á Raufarhöfn en í sumar. Þessar þrjár ungu stúlkur, sem sjást hér á myndinni hafa átt sinn þátt í því. Þær hafa staðið við síldartunnurnar og saltað og saltað. En þær eru ekkert þreytulegar á svipinn — eða finnst ykkur? Mestum vandkvæðum bundið oð finna efni, er Jbo/o Jbonn ofsahita, er myndast við nýtingu vetnisorkunnar GENF, 10. ágúst. — Reuter-NTB BREZKI vísindamaðurinn og Nóbelsverðlaunhafinn Sir John Cockeroft gaf í dag í Genf þær markverðu upplýsingar, að brezkir vísindamenn vinni nú að tilraunum við að hagnýta vetnis- orku til rafmagnsframleiðslu. Sir John er einn helzti fulltrúi Breta á alþjóðaráðstefnu kjarnorkufræðinga í Genf og forstöðumaður kjarnorkurannsóknarstöðvarinnar í Harwell. Vildi hann ekki upplýsa nán- ar, hversu langt Bretar væru komnir í tilraunum sínum, en annar brezkur vísindamaður tók svo til orða, að hann teldi lík- legt, að það yrði „innan manns- aldurs.“ Skýrðu brezku vísinda- mennirnir frá þessu á blaða- mannafundi, er haldinn var í Genf í dag. © ® ® Tjáði Cockeroft blaðamönnum, að hann gæti ekki kveðið fastar að orði, en „að verið væri að vinna að þessum tilraunum og Diem vUl tryggja frjólsor kosningor um gjörvnllt Vietnnm SAIGON, 10. ágúst. — Reuter-NTB STJÓRN Suður-Vietnam tilkynnti í dag, að ekki kæmi til greina að stofna til kosninga um allt land fyrr en kommúnistar í Vietminh hefðu fallizt á, að atkvæðagreiðslan væri algjörlega frjáls. Var þetta svar stjórnarinnar við orðsendingu frá utanríkis- ráðherra Vietminh, en þar lagði utanríkisráðherrann til, að full- trúar stjórnanna ættu með sér fund til að fjalla um kosningarnar, er fara eiga fram á næsta ári. Hefir Dfbrieht verií sviptur vöidum og áhrifum? Berlín. HVAÐ hefir orðið af Walter Ul- richt, sem til skamms tíma hefir verið áhrifamesti maður Austur- Þýzkalands? — Þessi aðalritari austur-þýzka kommúnistaflokks- ins og varaforsætisráðherra var ekki viðstadd- ur, þegar ráða- menn í Kreml f ó r u um A.- Berlín á heim- leið frá Genf. — Undanfarið hefir Ulbricht ekki verið við- staddur ýmsar opinberar há- tíðlegar athafn ir. Engin opin- ber tilkynning hefir verið gef- in út um aðset- ursstað hans eða hvort hann sé heill heilsu. Óstaðfestar fregnir herma, að hann þjáist af gall- sjúkdóm, en þetta virðist ekki skýra málin til fulls. Allt bendir til þess, að talsverðar breytingar hafi átt sér stað á austur-þýzku stjórninni og að valdatíð Ul- brichts sé liðin. "♦ Fréttamenn víðast hvar telja, að tilkynning Vietnam-stjórnar- innar muni engu breyta. Sam- kvæmt Genfar-sáttmálanum hefðu viðræður stjórna Vietminh . og Vietnam átt að hefjast fyrir' þrem vikum, þann 20. júlí. Vest-’ urveldin þrjú hafa hvatt Ngo Dinh Diem, forsætisráðherra, til að hefja þegar viðræður við Vietminh-stjórnina. Talsmaöur Vietnam-stjórnar- innar benti á það síðdegis í dag, | að stjórn hans hefði ekki enn Syngman Rhee hvetur Senda %m fil að beifa ekki ofbsldi Fullfrúafundur á vegunt SÞ verður haldinn í Washington nœsfu daga SYNGMAN RHEE, forseti Suður-Kóreu, hvatti í dag þjóð sína til að koma vopnahlésnefndinni úr landi. Stjprn Suður-Kóreu hefir sett nefndinni þá úrslitakosti að hverfa úr landi fyrir mið- nætti n. k. laugardag. Hvatti Syngman Rhee landa sína til að beita ekki ofbeldi. Eins og áður hefir verið skýrt frá, ásaka íbúar Suður-Kóreu tékkneska og pólska fulltrúann um að hafa notað aðstöðu sína til njósna. Ulbricht — hvar er hann? svarað beint orðsendingu Viet-; minh-stjórnarinnar, sem Viet- nam-stjórnin áliti senda ein- göngu í áróðursskyni. Enda hafði Diem áður lagt áherzlu á það í útvarpsræðu, að hann vildi ekki eiga viðræður við Vietminh fyrr en hann væri sannfærður um, að sú stjórn setti hagsmuni þjóðar sinnar ofar kommúnismanum. WASHINGTON — Eisenhower forseta barst nýlega gjöf frá manni, er ekki vildi láta nafn- greina sig. Gjöfin var myndarleg og sérkennileg. Voru það húsgögn- in úr herbergi því, er Eisenhower notaði, meðan hann hafði aðsetur í Englandi sem æðsti maður herja Bandamanna í síðari heimsstyrj- öldinni og vann m. a. að því, hvernig innrásinni í Normandi skyldi hagað. Aðalstöðvar Banda- manna voru í Stanwell-húsinu skammt frá Lundúnum. Húsgögn- unum verður til bráðabirgða kom- ið fyrir í Hvíta húsinu, en síðar verða þau flutt í Eisenhower- safnið. í morgun beittu bandarískir varðmenn vatnsslöngum og tára- gassprengjum gegn múg manna, sem bersýnilega höfðu ekki hlýtt á áskorun forseta síns og gerðu árás á bækistöðvar pólsku og tékknesku fulltrúanna á Wolmi- eyjunni við Inchon. Hröktu þeir manngrúann á brott á nokkrum mínútum og meiddist enginn í átökunum. ® ® ® Talsmaður hersins í Suður- Kóreu kveður 36 manns hafa meiðzt í gær, er beitt var tára- gasi til að dreifa hóp 20 þús- manna, er safnazt höfðu saman í Pusan. Óstaðfestar fregnir herma, að fulltrúar þeirra 16 ríkja, er börðust í Kóreustríðinu á vegum SÞ, muni koma saman til fundar í Washington næstu daga til að ræða málið. Full- trúar Breta og Bandaríkja- manna hafa þegar rætt ástand ið í Suður-Kóreu. Fulltrúi Breta studdi þá tillögu, að smám saman yrði dregið úr starfsemi vopnahlésnefndar- innar, en nefndin hafði sjálf gert þetta að tillögu sinni í maímánuði í vor. í nefndinni sitja fulltrúar frá Tékkósló- vakíu, Póllandi, Sviss og Sví- Þjóð. ® ® ® Bretar álíta þessa framkomu Suður-Kóreumanna bera vott um virðingarleysi fyrir SÞ. Dulles lýsti yfir því á blaðamannafundi í dag, að Bandaríkin myndu gera sitt til að vernda hlutlausu vopna hlésnefndina í Suður-Kóreu. — Kvaðst hann skilja reiði íbúanna, ef nefndarfulltrúarnir tveir hefðu gert sig seka um að misnota stöðu sína. Var Dulles spurður að því, hvort hann væri því samþykk- ur, að í Kóreu yrðu í framtíð- inni tvö ríki. Kvað Dulles nei við því, en sagði, að beiting of- beldis til að sameina Norður- og Suður-Kóreu kynni að leiða til kjarnorkustyrjaldar. Fellibylur geisar við Bandaríkjanna NEW YORK, 10. ágúst. — íbú- arnir á austurströnd Bandaríkj- anna hafa í dag gert umfangs- miklar varúðarráðstafanir til að verjast tjóns af völdum felli- byls, er vænta má, að geisist yfir tólf fylki á austurströnd- inni aðfaranót fimmtudags. Að því er bezt verður séð mun felli- Frh. á bls. 11 auðvitað gerum við ráð fyrir að ná árangri í starfi okkar.“ Dr. Dunworth benti á það, að mestum erfiðleikum væri bundið að finna þau efni, er þyldu þann ofsahita, er myndaðist við nýt- ingu vetnisorkunnar. ★ Fyrr í dag hafði Sir Cockeroft skýrt frá því á ráðstefnunni, að Bretar hyggðust byggja 12 raf- orkuver, er knúin væru kjarn- orku, á næstu tíu árum. Skýrði hann einnig svo frá, að innan ársins 1975 væri gert ráð fyrir, að raforkuver, er knú- in væru kjarnorku myndu fram- leiða 40% af öllu því rafmagni, er Bretar þyrftu á að halda — til þess að framleiða þetta raf- orkumagn þurfa Bretar nú um 40 milljónir tonna af kolum á ári. Með tímanum verða kjarn- orkuofnarnir vandaðri, og et þá gert ráð fyrir, að eitt tonn af úraníum framleiði sama orkumagn og ein milljón tonna af kolum. Kanadiskir vísindamenn skýrðu svo frá„ að á árinu 1980 gerðu þeir ráð fyrir, að einn tíundi af því rafmagni, - er Kanada þyrfti á að halda, yrði framleitt í raforkuverum, knúnum kjarn- orku. Einnig var tekið til umræðu á fundinum í dag nauðsyn þess, að uppgötvaðar yrðu fleiri uraníum- námur. Brezkur jarðfræðingue skýrði svo frá, að miklir mögu- leikar væru á slíkum fundum í Mið-Afríku, einkum í nánd við koparnámurnar í Norður- Rhodesíu. Bandarískur vísinda- maður kvað einnig góðar horfur Framh. á bls. 12 Verðor Mololov settur oi? Belgrad. BLÖÐUM í Júgóslavíu hefir orð- ið tíðrætt u m þáð undanfar- ið, að d a g a r: Molotovs s e m utanríkisráð- nerra séu brátt taldir. S e g j a blöðin, að það íiafi kvisazt á fjórveldaráð- stefnunnil |L Genf, að Molo- “ '.wSímMBII tov yrði ekki lengur í stöðu sinni, er fyrir- hugaður fund- u r utanríkis- ráðherranna fjögurra hefst í Genf í október. Molotov — fer hann til Genf í haust?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.