Morgunblaðið - 11.08.1955, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.08.1955, Qupperneq 7
Fimmtudagur 11. ágúst 1955 WORGVN BLAÐIB 7 Ragnar Jónsson: Magnns flsgeiisson Hiswinprorð ■ÍSLENZKA þjóðiti hefir enn orð- J. ið að sjá á bak einum mesta snillingi, sem hún hefir alið. Á þessari stundu er harmur henn- ar þó ef til vill minni en efni stóðu til, sakir þéss.að hann hafði áður neitað henni um að taka það saeti er hann var borinn og fædd- ur til að fyila, við hlið öndvegis- skálda hennar. Hlédrægni hans og lítillátt hjarta munu ekki hafa leyft honum slíkan veraldar- munað, og þar er fremur en annarsstaðar að leita orsakanna til þess að hann tók ungur þá ákvörðun að fela snilli sina og éhrifavald bak við nöfn ýmissa manna frá mörgum þjóðum, sem hann lyfti sumum hverjum úr hópi góðskálda í nálægð meist- aranna. Árið 1923 kom hér út lítið Ijóðakver eftir Magnús Ásgeirs- son, þá aðeins 22 ára gamlan, er hann kallaði Síðkveld, 27 frum- ort kvæði og nokkrar ljóðaþýð- ingar. Ástæðurnar fyrir því að þessar frumsmíðar Magnúsar heimtuðu ekki þegar viðurkenn- ingu, og að höfundi þeirra var ekki þá þegar lyft upp í sæti til- vonandi stórskálda, eru mjög auðsæjar. í þessum kjarnmiklu ljóðum er meira af djúpri hugs- un, biturri heimsádeilu og háum rökum en þeirri einföldu lífs- speki, skáldlega innblæstri, sem átakalaust finnur leiðina að hjartarótum venjulegs fólks. Ef til vill er sú staðreynd augljós- ari nú en fyrir 30 árum, að þjóðin hefir þá þegar orðið að sætta sig við að kveðja í vissum skilningi eitt sitt mesta skáld, og er það ekki í fyrsta eða síðasta skifti, sem þau örlög bíða íslenzkra listamanna, þó ástæðan sé ekki alltaf ein og hin sama. í þessum æskuverkum Magnúsar Ásgeirs- sonar kemur á margan hátt miklu greinilegar i ljós sá máttugi andi, formmeistari og heimspekingur, sem seinna birtist fullmótaður í beztu ljóðaþýðingunum, en hjá ýmsum þeirra skálda okkar er hæst hafa náð. Og leiðin er hér miklu skýrar mörkuð, jafnvel svo að ekki verður um villzt, að þessi ungi maður hefir þegar gert sér það Ijóst, hvar hans var mest þörf og hvert óskir hans og þrár stefndu. í kvæðinu „Komdu nótt“ mætum við strax þessu þroskaða ungmenni, sem við kvöddum nú fyrir nokkrum dögum. Hann hef- ir furðulítið breytzt, er aðeins orðinn ríkari af sárri lífsreynslu, ást hans á fólkinu, sem ber þvrni- krónu heimsins, er orðin inni-, legri, og nú bregður oftar fyrir þeirri stoltu gleði, sem þeim ein- um veitist, er miklu hafa til kost- að. Magnús Ásgeirsson hefir aldrei verið dagsins maður. Strax í æsku gaf hann djúpunum hug sinn, gerðist skáld næturinnar, söngvari þjáninganna, baráttunn- ar og draumanna. Hann segir sjálfur: Hljóða nótt, ég ann þér einni, •— unn mér hins lengsta af draum um þinum. Þeir, sem þykir hátt til himna, hvísla að þér bænum sínum. Hvorki bið ég gulls né gæfu — gengis hinna virku daga, — heldur '.júfrar villuvæxðar í vöku og blundi, unz úti er saga. Þeir, sem bezt þekktu Magnús og fylgdust með lífi hans og list- þróun af heilum huga, vita vel, að hann brást aldrei æskuákvörð- un sinni, að láta ekki aka sér í sigurvagni hins hyllta skálds í björtum ljósum dags og sólar. Frægð og veraldargengi, gull og gæfa, var honum alger hégómi og eftirsókn eftir vindi. Hans þrá var ,að fá skotið blysum sínum !; ■ rmnitri % .. II Maguús Ásgeirsson eins og björgunarmaður, sem fal- inn er að baki huliðshjúps myrk- urs og hríðar. Hann hélt æ lengra á vit næturinnar, lengra niður í hyldýpið þar sem hinir ógæfu- sömu bræður hans háðu strið sitt og unnu þar miklu dýrmætari sigra en hinir, sem létu daginn lýsa sér um refilstigu flatneskj- unnar og sólina verma sig, en nutu þó draumlauss svefns hins vanmáttuga borgara. En engan mann hefi ég séð „hefja augu sín til dagsins af slíkri þrá“ sem hann, er hann endrum og eins leyfði sér þann munað að teyga ferskt morgunloftið úti í íslenzkri náttúru. Síðkveld M. Á. gefa ef til vill ekki fyrirheit um þjóðskáldsnafn. Þau fylla ekki sál fólksins því tæra sólskini, sem hríslast eins og dýrar guðaveigar um hverja taug. Þau eru fyrst og fremst rödd úr djúpunum, tónn lágfiðlunnar, þytur helspunavélanna, vörn mannsins fyrir dómstóli lífsins, fremur en sókn. En hrein og ó- menguð lífsást gefur verkum hans hina skæru en þó mildu og oftast dálítið sáru yfirtóna. Ég get aldi-ei varist þeirri til- finningu, að íslenzk list hafi beð- ið eitt sitt mesta áfall er M. Á gerðist ljóðaþýðari í stað þess að helga sia óskiftur sínu rfka lista- mannseðli, gefa sköpunarhæfi- leikum s;num fullt frelsi og ótak- markað Iífsrúm. Magnús hafði stálvilja, lífskraft og óruglaða andlega yfirsýn umfram flesta menn. Sú eina skýring, sem sam- boðin er slíkum manni fvrir þeirri ákvörðun að rifa seglin í fyrstu för, áður en um verulega ágjöf var að ræða, er sú, að með- fædd hlédrægni hans' hefði sett henum stólinn fvrir dyrnar. En þessi ákvörðun hefir ekki verið tekin þjáningalaust. enda mikið Iagt á móti, því þó að það bezta, s~m M. Á. hefir afrekað. sé ef til vill ekki stærra því fremstá sem aðrir hafa gert. verður varla dregið i efa, að enginn hefir unn- ið þar jafnmörg stórvirki né fært þjóð sinni heim jafnfjölskrúðug- an feng af dýrmætum perlum heimslistarinnar. Frá listrænu sjónarmiði voru vinnubrögð Magnúsar með þeim hætti, að lengra sýnist vart verða komizt. Samvizkusemi hans í | skiftum við skáldgyðjuna var í ætt við móðurlega nærfærni. Eft-. ir að hann tók að mestu að helga sig þýðingum, var ábyrgðartil- finning hans gagnvart frumverk- inu og höfundi þess svo sterk, að hún hlaut að verða hugkvæmni hans og andagift fjötur um fót. Harm velti oft hverju einstöku kvæði íyrir sér jafnvel árum saman áður en hann reyndi að rissa upp þá skýru mynd, er hann hafði fe&t i huganum, en þá og fyrr ekki byrjaði hann í raun og veru að yrkja kvæðið, en endan- lega gekk hann oft frá því þaxan- ig, að ekkert orð sem máli skifti var eftir úr fyrstu þýðingunni. I En hvorttveggja er, að mikið listaverk verður yfirleitt ekki flutt af einni tungu á aðra, frem- ur en f jalli eða vatni verður kom- ið fyrir i nýju umhverfi án þess að missa sína upprunalegu mynd og yfirbragð, og hitt að M. Á. var ekki rétti maðurinn til þess að annast slíkan hreppaflutning, flutning hugsana og tilfinninga, sem grafið höfðu um sig og mót- i ast um langan aldur í ákveðnu ' umhverfi við gjörólík skilyrði og viðhorf. Hér verður kjarninn aldrei þýddur heldur verður hann í höndum skálds efniviður í nýja sköpun, hversu annt sem því kann að vera um að hrófla ekki við anda höfundarins. En enginn getur neitað því að risið er ákaflega hátt á sumum býddu ljóðunum hjá Magnúsi, svo að þau munu ávallt standa við blið hins stærsla frumorta skáldskap- ar þjóðarinnar, og er í raun og veru þarflaust að nefna í þvi sam- bandi einstök ljóð, nema þá helzt „Kvæðið um fangann", þar sem tveir náskyldir andar undirdjúp- anna mætast í fullkominni sam- úð og bæta hvor annan upp, svo (að úr verður samfellt listaverk, Frh. á bis i. • ' r -f - i ’ • •r'"■ '• • ■ •'-:• o s k a s t 2—3 herbergi, helzt í Miðbænum eða í grennd. Nánari upplýsingar í síma 82948 í dag og á morgun klukkan 6—7. I Land Rover bifreið eða góður jeppi, óskast. Staðgreiðsla. ■ ■ Tilboð með nauðsynlegum upplýsingum, sendist í n pósthólf 1131, fyrir 15. ágúst. íf : >••.•««■■••■•»■•■■■■■■•■■■■■■■■■■■■•■ ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■•■•••■■•an! IVauðungaruppboð sem auglýst var í 47., 48. og 49. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins á eigninni Halldórsstaðir á Vatnslevsuströnd, « fer fram á eigninni sjálfri þriðjudag 16. ágúst n.k. • klukkan 4 e. h. Uppboðshaldarinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. 3 Til sölu lítið notuð ÐIESELRAFSIÖÐ 3ja strokka Lister. — Rafall: 220 volt. 3ja fasa 50 rið, 25 k.w.a. sjálfvirk spennustilling. Uppl. gefur Ámi Guðjónsson, héraösdómslögmaður, Garðastræti 17, Sími; 2831. STARFSSTULKA öskast til Vistheimilisins í Gunnarsholti strax eða við næstkomandi mánaðamót. Upplýsingar um kaup og vinnutíma í skrifstofu ríkis- spítalarma, sími 1765. Skrifstofa ríkisspítalanna. Þ4KPAPPI Byggingarefnaverzlanir, framleiðum þakpappa innan og utanhúspappa, unninn xir fyrsta flokks hráefni, með nýtízku vélxim. Þakpappaverksmí&jan h.f. Silfurtúni 11, við Hafnarfjarðarveg, Símar: 9829 og 1759. 3 ■ ‘•* NýkomiÖ! Terrazzo- og múrhúðunarefni, margar tegundir. lUísrs Trading Company Klapparstíg 20. — Sími 7373. IMokkrir flugvirkjar óska eftir vinnu á upphituðum vinnustað yfir vetrar- mánuðina. — Tilboð sendist blaðinu merkt: „Flugvirkjar —351“, fyrir 20. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.