Morgunblaðið - 16.08.1955, Side 1
16 SÍðuK
Hér eru fegurðardísirnar þrjár, sem verðlaunin hlutu í keppn-
inni. Fegurðardrottningin Arna Hjörleifsdóttir frá Akureyri er í
miðjunni, Anna Tryggvadóttir henni á vinstri hönd, en hún fékk
önnur verðlaun og Steingerður Þórisdóttir, sem varð sú þriðja.
— Myndina tók ljósm. Mbl. Ól. K. M. af þeim fegurðardisunum
i gærkvöld.
Eyjui jarðorsól sigraði
onnoð árið í röð
Ama Hjörleiisdóltir, fegurfSar-
drctfning islands.
MIL LI 8 og 9 þúsund áhorfendur í Tívoli kusu í fyrrakvöld
Akureyrarstúlkuna Örnu Hjörleifsdóttur fegurðardrottningu
Islands. Annars voru atkvæði frekar jöfn, þar sem ekki hefur
við fegurðarsamkeppni hér á landi fyrr verið samankomið svo
mikið úrval fagurra kvenkosta, sem á sunnudagskvöld. Voru
skiptar skoðanir um það meðal áhorfenda, hver væri fremst.
En Eyjafjarðarsól sigraði nú annað árið í röð.
Friðrik vann
í fyrstu umferS
OSLO, 15. ágúst: — Norður-
landamótið í skák var sett liér
á laugardag.
I fyrstu umferð vann Frið-
rik Ólafsson Svíann Stener.
Guðjón M. Sigurðsson gerði
jafntefli við Haave frá Noregi,
en Ingi R. Jóhannsson tapaði
fyrir Danmerkurmeistaranum
Bent Larsen. Aksel Nielsen,
Danmörku vann Niemela Finn-
landi, Hiidebrandt, Svíþjóð,
vann Marthinsen, Noregi, en
biðskák var hjá Vestöl, Noregi
og Haarle, Finnlandi.
I meistaraflokki vann Ingvar
Jóhannesson sína skák, Arin-
björn Guðmundsson og Lárus
Johnsen gerðu jafntefli í sín-
um skákum, en Jón Pálsson
tapaði. — G. A.
Kommor héldu
meirihlutunum
RÓM, 15. ágúst: — Úrslitin í
þingkosningunum í dvergríkinu
San Marínó urðu þau, að komm-
únistar og sósíalistar fengu 3008
atkv., en kristilegir demókratar
og jafnaðarmenn 2257. — Reuter.
Ekkert sam-
komtilag
GENF, 15. ágúst: — Bandaríkja
menn og Kínverjar hafa ekki enn
náð samkomulagi á ráðstefnunni
í Genf um skipti á stríðsföngum.
Er nú allt í óvissu, hvernig því
máli reiðir af. — NTB.
Þing SÚS hnldið á
Akureyri í septemher
STJÓRN Sambands ungra Sjálfstæðismanna hefir ákveðið, að
13. þing SUS verði haldið á Akureyri dagana 9.—11. sept. n. k.
Á þinginu verða tekin til meðferðar ýms þau mál, sem nú eru
efst á baugi og mörkuð afstaða ungra Sjálfstæðismanna til þeirra.
Samtök ungra Sjálfstæðismanna hafa eflzt ár frá ári og hafa
Sambandsþingin borið glöggt vitni um vaxandi þrótt samtakanna.
Er ekki að efa, að sú verði einnig reyndin með þetta Sambands-
þing, sem háð er á því ári, er SUS á aldarfjórðungsafmæli.
Tékkar bjóða dr. Aden-
auer stjórnmálasamhand
BONN, 15. ágúst. — Reuter.
ALAUGARDAGINN var stjórninni í Bonn send orðsending frá
tékkneska utanríkismálaráðuneytinu. í orðsendingunni var
þess farið á leit við stjórn dr. Adenauers að löndin tvö tækju upp
stjórnmálasamband sín á milli og skiptust á sendiherrum.
NANARA SAMBAND
Þess var þá jafnan getið í orð-
landanna tveggja og aukin við-
skipti.
Orðsending þessi hefur vakið
sendingunni, að nauðsyn bæri tiljmikla athygli stjórnmá'amanna í
að nánara samband vrði milli | Vestur Þýzkalandi og víðar.
Egypti vann sundkeppn-
ina yfir Ermarsund
★ LUNDÚNUM, 15. ág. — Tutt?á 11 klst. og 44 mín. og er það
ugu og sjö ára gamall Egypti, 53 mín. lakari tími en metið sem
Abdel Heif að nafni, sigraði í var sett 1951 af öðrum Egypta.
dag í sundkeppninni yfir Erm- Annar varð Bandaríkjamaður
arsund. Synti hann yfir sundið og synti hann vegalengdina á 12
klst. og 2 mínútum. — Sextán
sundmenn frá 11 löndum tóku
þátt í keppninni og gáfust margir
þeirra upp. Reuter.
//
Pressulið" volid
IGÆRKVÖLDI var valið „pressuliðið" sem leika á gegn lands-
liðinu á fimmtudagskvöld. í liðinu verða 5 Reykvíkingar, 3 Ak-
urnesingar. Varamenn verða m. a. frá Vestmannaeyjum og Akur-
eyri. — Liðið er þannig skipað:
Ragnar Sigtryggsson Albert Guðmundsson
Akureyri Val
Pétur Georgsson
Akranesi
Haukur Jakobsson Arngrímur Kristjánsson
Akureyri Akureyri
Haukur Bjarnason
KR
Ólafur Eiríksson
Víking.
Gunnar Guðmannsson
KR
Sig. Berjfsson
KR
Sveinn Teitsson
Akranesi
Hörður Óskarsson
KR
Marilyn
til Moskvu?
NEW YORK, 15. ágúst: — Til-
kynnt hefir verið, að bandaríska
kvikmyndadísin Marilyn Monroe,
hafi sótt um vegabréf til Rúss-
lands. — Langar hana að fara
þangað í september n.k. — Nú
bíða menn eftir því með eftirvænt-
ingu, hvort Sovétleiðtogarnir óska
eftir nærveru hennar í Moskvu
austur. — NTB.
Srottning getur ehki eignnzt
hnrn — og verður nú skorin upp
Iransdroftning ræddi við fæðingasérfræðinga í vetur
ÞRJÁR ÞÆR FEGURSTU
Sigurvegari að þessu sinni varð
ungfrú Arna Hjörleifsdóttir frá
Akureýri, dóttir Hjörleifs Árna-
sonar sjómanns þar. Hún er 21
árs að aldri.
önnur varð ungfrú Anna
Tryggvadóttir frá Reykjavík. Hún
er dóttir Tryggva Ófeigssonar út-
geiðarmanns. Hún varð stúdent
frá Verzlunarskólanum s.l. vor og
er 19 ára.
Þriðja varð frú Steingerður
Þórisdóttir frá Reykjavík. Hún er
dóttir Þóris Kjartanssonar í
Landsbankanum. Sjálf vinnur
hún á Innflutningsskrifstofunni,
er 20 ára, gift og á eitt barn.
Á SUNDBOI, í GÆR
Á sjálfri keppninni komu stúlk-
,urnar fram á kvöldkjólum af ýms-
um litum og gerðum. En í gær-
■kvöldi komu þær þrjár sem verð-
laun hlutu fram á sundbol og
Framh. á bls. 12.
TEHERAN, 15. ágúst: — Soraya,
íransdrottning, fer innar skamms
til Bandaríkjanna, þar sem hún
verður skorin upp.
ENGINN ARFTAKI
í vetur fóru keisarahjónin í op-
inbera heimsókn til Bandaríkj-
anna og ræddu þá þá við fæð-
ingasérfræðinga þar í iandi. —
Ástæðan var sú, að drottningin
getur ekki alið manni sínum
barn, og þykir það ekki gott.
Verður hún nú skorin upp,
ef það mætti stuðla að því, að
íran verði ekki keisaralaust,
þegar núverandi keisari lands
ing gengur fyrir ættemis-
stapa.
Georg V. tók niðri
GLASGOW, 15. ágúst: — Brezka
orrustuskipið King George V.
strandaði í Clyde-fljóti í gær. —
Ekki skemmdist skipið þó að ráði.
— NTB.
Við krefjumst
þess, að...
BERLlN, 15. ágúst: — Forsætis-
ráðherra Austur-Þýzkalands, Otto
Grothewoll, lýsti því yfir í gær á
þingfundi, að Austur-Þjóðverjar
séu reiðubúnir að taka þátt í
Genfarfundi utanríkisráðherra
fjórveldanna, sem haldinn verður í
októbermánuði. — Við krefjumst
þess, að þar sitji þýzkir fulltrúar
og á þá verði hlustað, sagði ráð-
herrann enn fremur.
Þá krafðist Grohtewoll þess enn
fremur, að öryggismálum Evrópu
verði kippt í liðinn, áður en fram-
tið sameinaðs Þýzkalands verði
ráðin. — Ráðherrann sagði og, að
ekki kæmi til mála, að sameinað
Þýzkaland gerðist aðili að Atlants
hafsbandalaginu.
Þjóðernissinnar andvígir
sljórnarbót Frakka
PARÍS, 15. ágúst: — Eftir tólf
tíma umræður í franska þinginu
náðist loks samkomulag um stjórn
arbót fyrir Marokkó. — Ekki hef-
ir þó verið skýrt nákvæmlega frá
stjórnarbótinni, en stjórnmála-
fréttaritarar segja, að hún sé I,
meginatriðum samkvæmt tillögum
franska landsstjórans i Marokkó,
Grandvals. — Eins og kunnugt
er, vill hann, að núverandi soldán
í landinu, Ben Afra, vérði settur
af og' ríkisráð komi í hans stað,
skipað fulltrúum stjórnarflokk-
anna i landinu.
Tveir helztu flokkar þióðernis-
sinna í Marokkó hafa lýst sig and-
víga stiórnarbót Frakka. Þeir
krefiast þess, að fyrrverandi sol-
dán landsins, sem Frakkar gerðu
útlægan, taki aftur við stöðu
sinni. — Reuter.