Morgunblaðið - 16.08.1955, Síða 16

Morgunblaðið - 16.08.1955, Síða 16
Veðurúllil í dag: Vestan og norðvestan gola. Sums staðar skúrir. FegurðardroHningin Samtal á biaðsíðu 9. Alímikil síld fyrir Austfjörðum í gær Sallað íim alia íirði SKYNDILEGA brá til hins betra um síldveiðina í gær og þá svo um munaði. Frá Raufarhofn símaði fréttaritari blaðsins í gærkvöld, að mikillar síldar hefði orðið vart úti fyrir öllum Austfjörðum, allt suður að Dalatanga. Mest var síldin þó út af Glettingarnesi við Seyðisfjörð. Þar voru 35—40 bátar í síld í allan gærdag og í nótt og fengu þeir allir góð köst. DÁLÍTIÐ UNDAN LANDI Nær öll skip, sem enn eru á síldveiðum voru komin austur í gær og höfðu hafið veiðar. Síldin var um 20—40 mílur undan landi. Síldin var nokkuð önnur en sú, sem veiðst hefur í sumar fyrir Norðurlandinu, meira blönduð ■smásíld, en ágæt til söltunar. Þrj ú skip höfðu haidið til Rauf arhafnar í gærkvöldi og sagzt koma með söltunarsíld, MÖRG SKIP Kl. 6 í gærkvöldi var vitað um þessa báta sem síld höfðu fengið: Akraborg hafði fengið góða veiði, Von, Grindavík 450 tn. og er með annað kast, Garðar frá Rauðu- vík, góðan afla, Helga 400—500 tunnur, Sævaldur 200, Haukur! 200, Pétur Jónssbn 350, Einar Þveræingur 300, Baldur, Dalvík 350, Hannes Hafstein 600, J3jörg, i Eskifirði 25. Fjöldi söltunarfólks hefur far- ið frá Raufarhöfn undanfarna daga heim til sín og ætluðu 40 stúlkur í morgun. Munu þær hafa verið kyrr- settar vegna hinnar óvæntu veiði. Margar söltunarstúlkur fóru austur á firðí í gær til söltunarinnar þar. Ágætt veður var í gær á mið- unum austanlands, logn og blíða. FRÁ Siglufirði er símað: Þor- steinn frá Siglufirði, sem verið hefir á snurpunotarveiðum í sumar er nú hættur veiðum og hefir tekið til við reknet. Bátur- inn er búinn að fara tvær veiði- ferðir og fékk 46 tunnur í fyrra- dag, en rúmar 30 tunnur í gær. Hann hefir látið reka norður úr firðinum, 3 tíma frá Strákum. — Síldin er stór og feit. — Bæjar- togarinn Elliði fór á veiðar á laugardaginn. — Guðjón. Þinn likami er fagur sem lcufguð björk Þessar 11 stúlkur kepptu til úrslita um titilinn „Fegurðardrottning íslands“. Eins og menn sjá á þessari mynd var áhorfendum í Tivolí mikill vandi á höndum, cr þeir áttu að skera úr um, hver þessara fögru kvenna væri fremst. Sigurvegarinn er önnur frá vinstri í efstu röð. Sú sem næst henni komst þriðja í sömu röð og sú sem þriðju verðlaun lilaut fimmta frá vinstri, einnig í aft- ari röð. (Ljósm. H. Teitss.) Flóð valda tjónum í íslendingabyggðum CRETTIR JÓHANNSSON ræðismaður Islands í Winnipeg, fór héðan af landi burt í morgun ásamt konu sinni. Héldu , þau hjónin flugleiðis vestur um haf, til heimkynna sinna í Kanada. Átti tíðindamaður blaðsins stutt viðtal við Gretti í gær, að Hótel Borg. RÆÐISMANNAFUNDUR Þau hjónin komu hingað til lands 2. júní s.l. og dvöldust hér til 16. sama mánaðar. Þá héldu þau til Kaupmannahafnar. Þar .sat Grettir þing allra ræðis- rnanna Danmerkur, en það var haldið þar í sumar. Að þinginu loknu ferðuðust þau hjónin um Þýzkaland, Frakkland og Eng- land, en komu aftur hingað 28. júlí. Fóru þau norður í Húna- vatnssýslu, en þar á Grettir bæði föður- og móðurbróður, þá Hall- dór Jóhannesson á Hvamms- tanga og Stefán Jónasson bónda á Hnúki. MIKIÐ REGN Þau hjónin sögðust harma það, hve veðrið hefði verið slæmt þann tíma, sem þau hefðu dvalizt hér heima, en eins væri veðráttan í Kanada. Geysilegar rigningar hafa verið þar í sumar og hafa t.d. íbúar í bænum Reykjavík orðið að flýja hús sín sökum vatnavaxtanna. NAUTGRIPUM FARGAÐ Flóð hafa einnig verið mjög til skaða í Vogarbyggð í sumar og íslenzkir bændur í Lundar hafa orðið að farga fjölda nautgripa sinna af sömu ástæðum. Grettir Jóhannsson og kona hans létu annars vel yfir dvöl sinni hérlendis að þessu sinni svo sem jafnan áður. Aðéins 7 þús. múl bætt- ust við í síðustu viku SÍLDVEIÐIN fyrir Norðurlandi var mjög lítil síðustu viku. — bættust þá einungis við rúmlega 7 þús. mál og tunnur. Heild- araflinn skiptist nú þannig. (í svigum samanburðartölur frá fyrra ári); í bræðslu 22.408 mál 124.024), í salt 161.369 uppsaltaðar tunnur (51.890) og í frystingu 9 Samanlagt aflamagn er rúm- lega 8 þús. málum og tunnum meira nú en á sama tíma í fyrra, en verðmæti til útvegsmanna miklum mun meira nú, sem staf- ar af miklu meiri söltun og hærra síldarverði. Allmörg skip hafa hætt veið- um, eða eru um það bil að hætta. Eru það aðallega skip frá verstöðvum við suður- og suð- vesturland. 116 skip af 132, sem veiðarnar .447 uppmældar tunnur (9.066). hafa stundað hafa aflað 500 mál og tunnur samanlagt eða meira. Aflahæstu skipin eru þessi: Snæfell, Akureyri 4961, Jörund- ur, Akureyri 4647, Víðir, Eski- firði 3889, Helga, Reykjavík 3583, Víðir II., Garði 3513, Vörð- ur, Grenivík 3344, Garðar, Rauðu vík 3246, Von, Grenivik 3110, Hannes Hafstein, Dalvík 2951, Þorsteinn, Dalvík 2845, Baldur, Dalvík 2770, Björgvin, Dalvík 2648 og Fanney, Rvík 2544. M jög fjölsótt héraðs- mót í Rangárvallas. HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu var haldið að Hellu síðastliðinn sunnudag. Sótti mótið mikill fjöldi fólks og mun hafa verið með fjölmennustu samkomum. Jóhanni Konráðs- syni ve! fagnað á Ausffjörðum AKUREYRI, 13. ágúst — Jóhann Konráðsson söngvari á Akur- éyri, er nýkominn úr söngför frá Austurlandi. Undirleik annaðist Áskell Jónsson. — Jóhann hélt konserta á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði og Seyðisfirði. Var söng hans hvarvetna mjög vel fagnað og var hann alls staðar hinn mesti aufúsugestur, einkum var aðsókn mjög góð á Seyðis- firði. — H. Vald. Saltað í Stykkis- hólmi Á LAUGARDAGINN var fyrsta síldin söltuð í Stykkishólmi á þessu sumri. Voru það um 50 tunn ur. í gær komu fimm bátar til Stykkishólms með síld, alls um 300 tunnur. Var þegar tekið að salta og salt- aðar í gær um 200 tunnur. Sildina fengu bátarnir í Breiðabugtinni. Guðmundur Erlendsson, hrepp- stjóri á Núpi, setti mótið og stjórnaði því. Ræður fluttu þeir Ingólfur Jónsson, viðskiptamálaráðherra og Sigurður Bjarnason, alþingis- maður. Guðmundur Jónsson, óperu- söngvari, söng við undirleik Fritz Weisshappel, og leikararn- ir Gerður Hjörleifsdóttir og Þor- grímur Einarsson skemmtu með upplestri og gamanþáttum. Að lokum var stiginn dans. Héraðsmót Sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu hafa jafnan verið mjög fjölsótt, en kunnugir telja, að aldrei hafi verið jafil mikið fjölmenni saman komið á héraðsmóti og í þetta sinn. , GIsesÉSafft héres&ssasót á SnæíelIsMsesi HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Snæfellsness- og Hnappa- dalssýslu var haldið að Breiðabliki í Miklaholtshreppi síð- astliðinn sunnudag. Sótti mótið mikill fjöldi fólks víðsvegar úr héraðinu. i Ólafur Magnússon, Haraldur Björnsson, Rúrik Haraldsson og Eygló Viktorsdóttir. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) | RÆÐUR Páll Pálsson, hreppstjóri á Borg, setti mótið og stjórnaði því. Bjarni Benediktsson, dóms- málaráðherra, flutti ítarlega og stórfróðlega ræðu um stjórnmála viðhorfið, en Sigurður Ágústsson, alþingismaður, ræddi um héraðs- málin og minnti á þau hagsmuna- mál héraðsins, sem brýnust þörf væri að leysa. Þá flutti Árni Ketilbjarnar í Stykkishólmi ávarp. 4 SKEMMTAN T Kristinn Hallsson, óperusöngv- ari, söng við undirleik Guðmund- ar Jónssonar, Árni Tryggvason, leikari, ílutti gamankvæði, og Árni Helgason í Stykkishólmi söng gamanvísur með undirleik í Víkings Jóhannssonar. Síðan var dansað og lék BL-kvartettinn í 1 Stykkishólmi fyrir dansinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.