Morgunblaðið - 25.08.1955, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.08.1955, Blaðsíða 16
Veðurúllif í dao* SV-átt og skúrir. Létir til í bili annað kvöld. 191. tbl. — Fimmtudagur 25. ágúst 1955 Fransmaður í fríi á íslanði. — Sjá grein á bls. 9. Misheppnuð fiiraun HS píslavæffisaðstöðu i % Arásir kommúnista á Bjarna Benediktsson auka andúð og fyrirlitningu á þeim sjálfum KOMMÚNISTAR hafa undanfarna mánuði fundið stöðugt hærri andúðaröldu rísa gegn sér vegna skemmdarverka þeirra gagn- vart íslenzku efnahagslífi. Eru þeir nú orðnir svo hræddir við hana, að þeir sáu þann kost vænstan að leiða athyglina að öðru. Þá var gripið til þess ráðs að láta ritstjóra „Þjóðviljans“ neita að borga meiðyrðasektir samkvæmt 8 dómum, sem faliið höfðu á hann fyrir óhróður og mannorðsþjófnað s.l. 5 ár. Ritstjórinn vildi fá tækifæri til þess að gista um skeið fangelsi til þess að afplána sektir sínar og gera í leiðinni tiiraun til þess að skapa sér píslarvættisaðstöðu. MISTÓKST Á FYRSTA DEGI En þessi tilraun mistókst þegar á fyrsta degi áróðursherferðarinn- «.r. Það sannaðist nefnilega í fyrsta lagi, að allir aðrir, sem dæmdir hafa verið í meiðyrðasektir undanfarin ár hafa greitt sektir sínar eða samið um greiðslu á þeim. í öðru lagi varð það Ijóst, að ritstjóri kommúnistablaðsins krafðist sérstöðu fyrir sig gagn- vart íslenzkum réttarreglum. Hann krafðist þess að mega halda uppi rótlausum óhróðri um menn og málefni í blaði sínu, án þess að vera nokkurntíma dreginn til ábyrgðar fyrir mannorðs- þjófnað sinn. í þriðja Iagi er öllum almenningi það fullkunnugt, að Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra hefur ekki farið í eitt einasta meiðyrðamál við Magnús Kjartansson enda þótt „Þjóð- „viljinn“ hafi í áratugi haldið uppi glóandi hatursáróðri og meið- yrðaskrifum um hann. í fjórða lagi er það sannað, — að bæði Hermann Jónasson og Einar Arnórsson lögðu svo fyrir í dómsmálaráðherratíð sinni, að meiðyrðasektir skyldu innheimtar eins og aðrar sektir. Bjarni Benediktsson hefði því enga heimild til þess að gefa Magnúsi Kjartanssyni upp sektir, sem hann hefur verið dæmdur í fyrir margra ára óhróður og lygar um fjölda manna. í fimmta Iagi getur engum manni dulizt það, að ritstjóri kommúnistablaðsins ber sjálfur alla ábyrgð á varðhalds- vist sinni. Hann neitaði að greiða þær sektir, sem allir aðrir ritstjórar hafa greitt, þegar þeir hafa verið dregnir til ábyrgðar gagnvhrt meiðyrðaákvæðum hegningarlaganna. ÓLÍKU SAMAN AÐ JAFNA Þegar á allt þetta er litið sætir það engri furðu þótt kommún- istum hafi mistekizt hrapalega að skapa ritstjóra sínum píslar- vættisaðstöðu. Fyrr á öldum hnepptu einræðisherrar og ofbeldisseggir menn í fangelsi fyrir að berjast fyrir hugsjónum sínum og láta skoðanir sínar í Ijósi. Sú aðferð tíðkast enn í þeim ríkjum sem kommúnistar stjórna, og það atferli hefur Magnús Kjartansson varið í líf og blóð í blaði sínu. Allir frelsisunnandi menn fordæma það hins vegar liarðlega. Hinn stöðugi mannorðsþjófnaður og óhróður, sem einkennir öll skrif „Þjóðvilja“-ritstjóranna nýtur aftur á móti engrar samúðar meðal hinnar lýðræðissinnuðu íslenzku þjóðar. Hinar vitfirrtu árásir kommúnista á Bjarna Benediktsson dómsmálaráðherra nú missa því marks eins og jafnan áður. Traust hans hjá þjóðinni verður aðeins því meira, sem kommúnistar svívirða hann freklegar. Kveikti í íbúðinni til þess hefna sín á konu sinni LAUST eftir hádegi í fyrradag var slökkviliðið kallað að stór- um bragga í Tripolicamp. Tókst þvl fljótléga að ráða niðurlög- um eldsins og urðu skemmdir ekki miklar. Fj'rir utan braggann var mað- ur, sem bjó í íbúðinni, Sem eld- urinn var í. Var hann undir áhrifum áfengis. Lögreglan hand- tók manninn og viðurkenndi hann strax að hafa kveikt í bragganum. Skýrði maðuj inn svo frá í sakadómi í gær, að hann hafi verið einn í íbúðinni þarna um xnorguninn. Sér hefði þá hug- kvæmst að kveikja :í bragganum og viljað með því ná sér niðri á konu sinni, en hún hefði oft verið búin að hóta því að reka hann á dyr og skilja við hann Helti hann olíu í sæng' í stof- ] unni og kveikti í, og einnig reif hann pappír frá vegg í eldhús- inu og kveikti í honum og texinu. Þá setti hann föt sín og ýmsa smámuni, sem hann átti sjálfur | í poka, fór út fyrir, settist þar á: jörðina og beið hvað verða vildi. i í sama bragga var önnur íbúð : og skildi aðeins þunnur veggur íbúðirnar Kona og þ.'jú börn voru í íbúðinni, og varð eitt barnið vart reyks. Er nágrann- j arnir sáu, hversu komið var, ■ tóku þeir til við slökkvistarfið og kölluðu á slökkviliðið. íkveikjumaðurinn kvaðst hafa ; vitað um fólkið í na»stu íbúð, en ekkert athugað það. Hann er 28 ára gamail og hefir áður sætt refsidómi fyrir þjófnað og líkams árás. Er hann nú í gæzluvarð- haidi Neyðarástand að skapast í sveitunum Skemmdarverk framið á !ittum vél- bál I höfninni SEINNI hlutann í fyrrinótt eða snemma í gærmorgun hafa þau óskiljanlegu spjöll verið framin, að stungið hefir verið gat á lít- inn, opinn vélbát, sem lá í höfn- inni, í króknum milli vestustu verbúðarbryggjunnar gömlu og Ægisgarðs. Krókstjaki, sem var í bátnum. hefir verið notaður við verkið. Báturinn var um það bil að sökkva kl. 10 í gærmorgun, er honum var bjargað á land, en vélin liefir m. a. stórskemmst. — Ef einhverjxr kynnu að hafa séð spellvirkjann að verki, biður rannsóknarlögreglan þó um að gefa upplýsingar. VerkfalliS óleyst V iða í Kjós o<r Kjafarnesi •5 C S urr tuffga í hlöðu Og haustið er komið EFTIR því sem líður nær lokum ágústmánaðar og ekki breytir til um tíðarfarið verður mönnum æ ljósara, hví- Hkt vandræðaástand er að skapast í sveitunum á Suður- og Vesturlandi. ■£- Er nú farið að nálgast haustnætur og eru þess dæmt að bændur hafa ekki getað náð þurri tuggu í hlöðu. Víða liggur meginhluti töðunnar enn flatur í flekkjum, stór hlutl túnanna er ósleginn og háin vex ónytjuð. •ff í lengstu lög hafa menn vonazt eftir bata, en sú von deyfist óðum eftir því sem líður nær haustnóttum, því að ekki er það venja að tíðin batni þá. ■fa Hér er þess því ekki að dyljast, að fyrir dyrum ís- lenzkra bænda er hin stærsta vá, sem um getur á seinni árum. Við þeim blasir ekki annað en heyskortur og sennilega slátrun hluta bústofnsins. Félagasamtök bænda verða að taka mál þetta til athugunar sem allra fyrst, athuga ástandið skipulagsbundið og möguleika til úrbóta. ENN hefir ekkert gerzt í verk- falli kvenna í Keflavík og á Akranesi, né samúðarverkfalli því, senx verkamenn í Keflavík hafa gert. Sáttafundur hefst \ Alþingis- húsinu í dag kl. 4. Mishermi slæddist inn í grein, sem birtist hér í blaðinu í gær um verkfallsmálin. Þar sagði að grunnkaup verkakvenna á Siglu- firði og á Húsavík sé 8,10. Þetta er rangt. Hæsta grunn- kaup kvenna á landinu er 7,92 og er það á Sigluíirði. Semenfslausf á ákranesi AKRANESI, 24. ágúst—Sements laust er nú með öllu á Akranesi og hlýtur því öll steypuvinna við hinar mörgu byggingar sem hér eru að rísa upp að stöðvast þang- að til sement kemur aftur íil bæjarins. Heyrst hefur að það muni verða upp úr næstu mán- aðamótúm. — Oddur. ★ Morgunblaðið átti tal við þá Steina Guðmundsson á Valda- stöðum í Kjós og Ólaf Bjarnason í Brautarholti á Kjalarnesi og lýstu þeir hinu alvarlega ástandi með nokkrum orðum. STÓRRIGNINGAR OG STORMUR Á HVERJUM DEGI Steini Guðmundsson taldi, að í Kjósinni hefði nú keyrt um þverbak með veðráttuna síðustu dagana, því að nú tæki aldrei af steini og flesta daga væri stór- rigning með stormi. Líktist þetta verstu haustveðráttu. Er nú víða að verða ófært með vélar bæði um tún og engjar vegna bleytu. Enn munu vera í Kjósinni nokkrir bændur, sem ekki hafa náS þurri tuggu í hlöðu og sumir eru tiltölulega lítið búnir að slá. Er mikil vá fyrir dyrum með skepnurnar á komandi vetri, því fæstir Flest síldnrskip ó heimleið NÚ MUNU flest skip hætt síldveiðum fyrir Norður- og Austurlandi, símar fréttaritari Mbl. á Siglufirði í gær. Komu þau síðustu þangað í fyrradag og í gærmorgun og | bíða aðeins byrjar að komast heim. Stormur hefur hamlaðj síldveiðum síðustu daga og engin veiði verið. Fáein norð- lenzk skip munu þó bíða og hyggjast leita eftir síld ef veður skánar fljótlega. Segir svo í frétt frá Kaufarhöfn. munu eiga verulegar heyfyrn- ingar, stafar það aðallega af því að vegna vorkuldanna urðu bændur að gefa fénaði langt fram eftir vori. i HEY FÝKUR Fyrir nokkru fauk allmikið af heyi, sérstaklega á einum bæ, Eyri. Var það mest hey, sem bú- ið var að sæta upp. Sumu af hey- inu, sem fauk hefur verið reynt að bjarga, en það blotnaði og hefur ekki náðst upp. Meðfram Laxá í Kjós hafa ver- ið góðar flæðiengjar. Á einum bæ, Sogni, er búið að slá töluvert á engjum bæði flæðiengi og þurr um bökkum. Var hey þetta ým- ist í sæti eða flatt, en er nú mik- ið komið í vatn aftur eða fokið. Er sums staðar eins og búið sé að hleypa vatni aftur á áveitu- svæðin. SÍÐUSTU DAGARNIR VERSTIR Ólafur Bjarnason í Brautar- holti skýrir frá því, að á Kjalar- nesi hafi ágústmánuður verið með eindæmum illviðrasamur og síðustu dagarnir verstir, því að nú er alltaf rok og rigning. Mjög lítið er komið af heyi I hlöður, en í votheysgryfjur hef- ur verið látið og þær orðnar full- ar. Hey liggur víða flatt á tún- um. Hey fauk víða á fimmtudag í síðustu viku. T. d. munu 50—80 hestar af heyi hafa fokið í Skrauthólum. í fyrradag komu þessi skip til Siglufjarðar á heimleið: Helgi Helgason, Fanney og Helga, Ing- var Guðjónsson og Sigurður. í gær var suðvestan stormur út af Siglufirði. Tveir bátar þaðan sem létu drífa með reknet í fyrrinótt höfðu ekki dregið þau inn seinni hluta dags í gær. Liggja þeir yfir þeim þar til lygnir. Togarinn Hafliði losaði full- fermi af karfa á Siglufirði í gær, sem hann hafði fengið við Vest- ur-Grænland. Leiguskip frá Eim- skip lestaði þar og í gær síld til útflutnings. VONDAUFIR UM BATA Hvað er framundan? spyrja menn. Kemur breyting á veður- lagið með höfuðdegi eða heldur þessu veðri áfram. — Bændur verða með hverjum degi von- daufari um þurrk, því að óðum færist nær haustnóttum og reynslan er sú, að sjaldan skiptir um til hins betra þá. Þetta er íslenzka landsliðið, sem mætir Bandaríkjamönnunum í kvöld. NEYÐARÁSTAND AÐ SKAPAST Ef veðurfarið breytir ekk! um til batnaðar alveg nú á yfir nokkurt byggðarlag, yfir- mesta neyðarástand, sem hægt cr að hugsa sér að geti komið yfir nokkuð byggðarlag, yfir- vofandi fóðurskortur fyrir stóran hluta af búpeningi manna. Þá er víst, að stórfækka verður búpeningnum í haust. Það ber því brýna nauðsyn til, sagði Ólafur Bjarnason að félagasamtök bænda, Biinað- arfélögin og Stéttarsamband- ið taki þetta mál örugglega til athugunar sem allra fyrst og athugi ástandið skipulags- bundið, svo og þá möguleika sem fyrir hendi eru til úrbóta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.