Morgunblaðið - 01.09.1955, Qupperneq 1
42. árgangur
197. tbl. — Fimmtudagur 1. september 1955
Frentsmiðja Morgunblaðsin*
Frakkar heita stöðugyt
k&rku í Míffier
Scissfelle fer snöggcs ferð til Parísar
París og Algier, 31. ágúst. — Reuter—NTB.
IDAG sneri franska stjórnin sér að Algier-málunum, eftir að
hún hafði nokkurn veginn gengið frá þeim ráðstöfunum, er
fceinast að því að koma á friði og ró í Marokkó. Þar var tilkynnt
opinberlega í París í dag, að Gilbert Grandval, landstjóri Frakka
í Marokkó, fengi lausn frá störfum —- hann hefur gegnt embætti
sínu í tvo mánuði. Við landstjóraembættinu tekur Boyer de Latour,
landstjóri í Túnis.
Landstjórinn í Algier, Jacques
Soustelle, fór í dag snögga ferð
til Parísar til að ráðgasb við Ed-
gar Faure um, hverjar ráðstafan-
ir skuli gerðar til að vinna bug á
þeim óeirðum, er stöðugt gjósa
upp í Algier.
★ ★ ★
Bjartari tímar virðast nú fram-
undan fyrir Marokkó, eftir að
Frakkar hafa heitið Marokkóbú-
um stjórnarbót fyrir 12. sept. n.k.
Ben Arafa verður neyddur til að
láta af soldánstign og ríkisstjórn-
arráði komið á fót. Mun þetta
einnig hafa haft áhrif á Algier-
búa, þó að stöðugt berizt þaðan
fregnir um óeirðir.
Því næst fara fram kosningar í
landinu og komið verður á lagg-
irnar fyrstu stjórninni þar í landi,
sem kjörin er af þjóðinni sjálfri.
★ ★ ★
í Algier virðast Frakkar ætla
að beita allt öðrum aðferðum við
að koma á kyrrð og reglu. Virðist
stefna þeirra þar vera að auka
liðstyrk sinn sem allra mest til að
geta sigrazt á skæruliðunum.
Soustelle gaf innanríkisráðherr
anum Maurice Bourges-Maunoury
nákvæma skýrslu um þær blóðugu
óeirðir, er urðu í Algier kringum
20. ágúst, og um viðbrögð yfir-
herstjórnar Frakka þar í landi.
Liðsauki er stöðugt sendur frá
Frakklandi til Marokkó til að taka
þátt í aðgerðunum gegn skærulið
um í Constantine-héraðinu. Hern-
aðaróstand er enn um allt landið,
og hernaðaryfirvöldin hafa ná-
kvæmt eftirlit
aranna.
með ferðum borg-
Sænski fjármálaráð-
herrann lætur af
Stokkhólmi.
SÆNSKI fjármálaráðherrann,
Per Edwin Skjöld, lagði
lausnarbeiðni sína fyrir sænska
forsætisráðherrann s.l. mánudag.
S k j ö 1 d varð
nýlega 64 ára
gamall, og hef-
ur hann gegnt
ráðherraem-
bættum í sam-
fleytt 23 ár —
síðan 1932 —
að undantekn-
um nokkrum
mánuðum á ár-
inu 1936, og
gegnt ý m i s t
landbúnaðar-
embættum
málaráðherra,
viðskiptamálaráðherra, varnar-
málaráðherra og að síðustu fjár-
málaráðherra.
Forsætisráðherrann Erlander
lét svo ummælt, að lausnarbeiðni
Skjölds kæmi sér ekki á óvart:
Skjöld tjáði mér fyrir tæpum
tveim árum, að hann ætlaði sér
að segja af sér, áður en langt um
liði.
Við opnun dönsku bókasýningarinnar: Vinstra megin forsetahjónin og hægra megin frú Bodil Beg-
trup sendiherra, Julius Bomholt, áðherra, dr. Kristinn Gúðmundsson, Gunnar Thoroddsen og frú.
„Við komum með það
bezta, sem við eigum“
— Sagði menntamálaráðherra Dana,
Julius Bombolt við opnun dönsku
bókasýningarinnar í gærdag.
FJÖLDI gesta var við opnun dönsku bókasýningarinnar í Lista-
mannaskálanum, sem fór fram kl. 17 í gærdag. M. a. forseti
íslands og frú hans, ráðherrar og sendiherrar. ,
Per Edwin
Skjöld
Julius Bomholt heldur ræðu
Listamannaskálanum.
Perón býðst til að
forsetaembættinu
Skoðanir manna skiptar um, hvað
búi að baki þessu tiltæki
Buenos Aires, 31. ágúst. — Reuter-NTB.
PERÓN, forseti Argentínu, bauðst í dag til að segja af sér eftir
að hafa ráðið lögum og lofum þar í landi í niu ár. í bréfi til
stjórnar Perronista-flokksins og miðstjórnar verkalýðsfélaganna
kvaðst hann vera fús til að segja af sér, ef það mætti verða til þess
að koma kyrrð á stjórnmáladeilur í landinu. Fréttaritarar eru ekki
sammála um, hvað hafi valdið þessum atburði, og skoðanir eru
skiptar um, hvað búi hér raunverulega að baki.
afsala
ser
o-
Siðusfu frétfir
Skömmu fyrir miðnætti bárust
þær fregnir frá Buenos Aires, að
Perón forseti hefði dregið til
baka tilboð sitt um að segja af
sér embætti forseta. Kom hann
fram á svalir Bleika hússins við
Plaza de Mayo og ávarpaði
mannfjöldann. Er síðast fréttist
höfðu ekki borizt nánari fregnir
af ræðu hans.
□----------------------□
★ SKIPULAGT FYRIR FRAM?
En yfirleitt eru menn mjög
vantrúaðir á, að Perón ætli sér
raunverulega að láta af völd-
um. Sagt er, að þetta hafi allt
verið vandlega skipulagt fyr-
irfram, og tilgangur Peróns sé
ekki annar en sá að sýna öll-
um hciminum, að hann eigi
fullu fylgi að fagna meðal
þjóðarinnar.
Argentinska þingið var í skyndi
hvatt saman til aukafundar, sem
hætta varð við, þar sem Perrón-
Vill Perón sýn a alþjóS, hversu
miklu fylgi liann á aS fagna?
istar neituðu að ræða málin, fyrr
en Perón hefði dregið lausnar-
beiðni sína til baka.
★ VAGNAR TIL REIÐU!
Perronistaflokkurinn hefir ein-
dregið snúizt gegn því, að Perón
láti af völdum, og hafa leiðtogar
Perronista hvatt alla fylgismenn
Frh. á bls. 2.
VÍÐFEÐM MYND <
AF DANSKRI MENNINGU
Oliver Steinn verzlunarstjóri
bauð gesti velkomna og gaf síðan
orðið Gunnari Thoroddsen borg-
arstjóra, sem flutti ávarp í veik-
indaforföllum Bjarna Benedikts-
sonar menntamálaráðherra. Lýsti
borgarstjóri ánægju sinni og
þakklæti af íslendinga hálfu fyr-
ir framtak það, sem lægi að baki
þessari merku bókasýningu, hinni
stærstu, sem Danir hafa stofnað
til erlendis. Drap hann á nöfn
hinna helztu andans manna
dönsku þjóðarinnar fyrr og síðar,
sem haldið hafa á lofti kyndli
menningar og mannvits og skap-
að andleg verðmæti sem við ís-
lendingar, sem aðrar þjóðir hins
siðmenntaða heims hefðum notið
góðs af. Kvað hann það trú sína,
að bókasýning þessi sýndi víð-
feðma mynd af danskri menn-
ingu, hún opnaði íslendingum
nýjan heim og myndi reynast
traustur grundvöllur að auknum
menningartengslum milli íslands
og Danmerkur.
! Borgarstjóri færði að lokum
þakkir íslendinga til mennta-
málaráðherrans danska fyrir þátt
hans í framkvæmd sýningarinnar
og komu hans hingað. — Bað
hann ráðherrann flytja dönsku
þjóðinni þakkir frá íslandi.
SAMEIGINLEGT TAKMARK
j Þá kom að sjálfri opnun sýn-
ingarinnar, sem framkvæmd var
af menntamálaráðherra Dana,
Julius Bomholt.
j Ráðherrann drap meðal ann-
ars á hið aldagamla samband
1 milli íslands og Danmerkur. —
Stjórnmálasagan geymdi að vísu
bæði skin og skugga, en hin al-
j menna þróun hefði þó stöðugt
| miðað að því að færa þessar tvær
'frændþjóðir nær hvorri annarri,
í áttina að sameiginlegu takmarki
aukinnar menningar og andlegs
þroska fólksins.
Hver er
de Latour?
VERS KONAR maður er hinn
H
í Marokkó, Boyer de Latour, hers-
höfðingi? Er Frakkar gáfust upp
fyrir Þjóðverjum árið 1940, hafði
hann þegar verið í þjónustu hers-
ins um nokkurra ára skeið. Hann
skiplagði þá, á laun, marokkansk
an her, er gekk í lið með frjálsum
Frökkum.
.............. Að heimsstyrj-
öldinni lokinni
fór hann til
Indó-Kína, en
loftslagið þar
hafði mjög
slæm áhrif á
heilsu hans, og
var hann því
skipaður í aðra
stöðu Hann var
gerður að póli-
tískum ráð-
gjafa Juins
marskálks í Ma
rokkó.
Latour átti
frumkvæðið að því áformi, er
leiddi til þess, að fyrrverandi sol-
dán Ben Jussef var sendur í út-
legð, en Ben Arafa skipaður í
stað hans.
★ ★ ★ '
Talið er líklegt, að lögreglustjóri
Parísarborgar, André Dubois, taki
við landstjóraembættinu í Túnis
af Latour. Það er ékki í fyrsta
skipti, sem lögreglustjóri Parísar
er skipaður í landstjóraembætti í
frönsku Norður-Afríku. S. 1. ár
de Latour —
nýskipaður
landstjóri.
Ráðherrann minntist og á hinn; var þáverandi lögreglustjóri Le-
Frh. á bls. 2 onard skipaður landstjóri í Algier.